Fréttablaðið - 09.10.2005, Blaðsíða 68
LEIKIR GÆRDAGSINS
Undankeppni HM 2006:
1. RIÐILL:
FINNLAND–RÚMENÍA 0–1
0–1 Mutu (41.).
TÉKKLAND–HOLLAND 0–2
0–1 Van der Vaart (31.), 0–2 Opdam
(39.).
STAÐAN:
HOLLAND 11 10 1 0 27–3 31
RÚMENÍA 12 8 1 3 20–10 25
TÉKKLAND 11 8 0 3 32–12 24
FINNLAND 11 5 1 5 21–16 16
MAKED. 11 2 2 7 11–24 8
ANDORRA 11 1 2 8 4–31 5
ARMENÍA 11 1 1 9 6–25 4
2. RIÐILL:
GEORGÍA–KASAKHSTAN 0–0
ÚKRAÍNA–ALBANÍA 2–2
1–0 Shevchenko (45.), 1–1 Bogdani
(75.), 1–2 Bogdani (82.), 2–2 Rotan
(86.).
DANMÖRK–GRIKKLAND 1–0
1–0 Gravgaard (40.).
STAÐAN:
ÚKRAÍNA 12 7 4 1 18–7 25
TYRKLAND 11 5 5 1 22–9 20
DANMÖRK 11 5 4 2 25–11 19
GRIKKLAND11 5 3 3 14–9 18
ALBANÍA 11 4 1 6 11–19 13
GEORGÍA 11 2 4 5 14–24 10
KASAKST. 11 0 1 10 5–27 1
3. RIÐILL:
SLÓVAKÍA–EISTLAND 1–0
1–0 Hlinka (76.).
RÚSSLAND–LÚXEMBORG 5–1
1–0 Izmailov (8.), 2–0 Kerzhakov (18.),
2–1 Reiter (51.), 3–1 Pavluchenko (65.),
4–1 Kirichenko (75.), 5–1 Kirichenko (90.).
PORTÚGAL–LIECHTENSTEIN 2–1
0–1 Fisher (33.), 1–1 Pauleta (48.), 2–1
Gomes (86.).
STAÐAN:
PORTÚGAL 11 8 3 0 32–5 27
SLÓVAKÍA 11 6 4 1 24–8 22
RÚSSLAND 11 6 4 1 23–12 22
LETTLAND 11 4 3 4 18–18 15
EISTLAND 11 4 2 5 14–17 14
LIECHTENST.12 2 2 8 13–22 8
LÚXEMB. 11 0 0 11 5–46 0
4. RIÐILL:
KÝPUR–ÍRLAND 0–1
0–1 Elliot (6.).
ÍSRAEL–FÆREYJAR 2–1
1–0 Benyoun (1.), 2–0 Zandberg (90.),
2–1 Samuelsen (91.).
SVISS–FRAKKLAND 1–1
0–1 Cisse (52.), 1–1 Magnin (80.).
STAÐAN:
ÍSRAEL 10 4 6 0 15–10 18
SVISS 9 4 5 0 18–7 17
FRAKKLAND 9 4 5 0 10–2 17
ÍRLAND 9 4 4 1 12–5 16
KÝPUR 9 1 1 7 8–16 4
FÆREYJAR 10 0 1 9 4–27 1
Þrátt fyrir mikið safn stórgóðra knattspyrnumanna
er spænska landsliðið enn einu sinni í miklum
vandræðum. Úrslit þurfa að vera mjög hagstæð til
að liðið nái að tryggja sér sæti á HM í Þýskalandi.
Takist það ekki verður það í fyrsta sinn síðan 1974
að Spánverjar ná ekki í lokakeppni HM. Miðað við
að Spánverjar eru óneitanlega ein höfuðþjóð
knattspyrnunnar og þá staðreynd að færa má góð
rök fyrir því að spænska deildin sé sú jafnsterkasta
í heimi sætir slæleg frammistaða landsliðsins tíð-
indum. Og þó, spænska landsliðið hefur einhvern
veginn alltaf koksað þegar á reynir og sé rennt yfir
söguna þarf þetta ekki að koma á óvart.
Tómlegt titlasafn
Í samanburði við aðrar stórþjóðir er titlasafn
spænskra afar tómlegt. Eina stórmótið sem liðið
hefur sigrað á er EM 1964 og segjast verður að í
árdaga EM var mótið ekki jafn öflugt og í síðari tíð.
Spánverjar telja sjálfir meira afrek er liðið náði í úr-
slit gegn Frökkum á EM 1984. Utan þessara afreka
er fjórða sætið á HM 1950 besti árangurinn svo og
silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 1920. Þar með
er afrekaskráin upptalin. Samt bíða menn alltaf
eftir því að Spánverjar rísi úr öskustónni og stór-
mót eftir stórmót koma fram teóríur um að loksins
sé tími spænskra runninn upp, aðeins til að hníga
við fyrstu hindrun.
Mikið hefur verið skrifað og rætt um ástæður þess-
ara ófara í gegnum tíðina. Flestar kenningarnar
telja orsakirnar eiga rætur sínar í deilum ólíkra
þjóðarbrota innan Spánar og skorts á spænskum
þjóðernisslætti í hjörtum Baska og Katalóna sem
löngum hafa ungað út flestum gæðaknattspyrnu-
mönnum á Íberíuskaganum. Í vetrarfríinu í kring-
um jólin er t.d. hefð fyrir því að baskneska og kata-
lónska „landsliðið“ leiki vináttuleik við önnur
landslið, gjarnan frá Austur-Evrópu eða Afríku.
Leikirnir eru vel sóttir og allir helstu leikmenn
„landanna“ mæta. Katalónar undir forystu Pep
Guardiola reyndu m.a.s. fyrir nokkrum árum að fá
liðið viðurkennt sem fullgilt landslið.
Þjóðrembingur í nösunum
Þessi kenning hljómar sennilega í fyrstu
en skýrir þó ekki nema hluta vandans.
Kanadíski blaðamaðurinn Phil Ball,
sem búið hefur í tvo áratugi í San
Sebastian í Baskalandi á Spáni, hefur
verið duglegur að benda á að þjóð-
rembingur Baska og Katalóna sé mest í
nösunum á þeim. Ball er að mínu mati
einn besti knattspyrnublaðamaður sam-
tímans eins og lesendur hinnar vinsælu
vefsíðu Soccernet geta borið vitni um. Í
hinni stórkostlegu bók sinni Morbo, sem er
Biblía allra áhugamanna um spænska
knattspyrnu, eyðir hann löngum kafla í
vanda spænska landsliðsins. Ball þykist
svosem ekki komast að neinni niðurstöðu en
rekur nokkur dæmi um Baska og Katalóna
sem hafi barist öðrum fremur í spænsku
landsliðstreyjunni. Títtnefndur Guardiola er
gott dæmi um það en hann lék 47 leiki fyrir
Spán, marga sem fyrirliði og aldrei virt-
ist katalónskur púkinn koma upp í
honum því ævinlega var hann Spáni
til sóma. Enginn Katalóni né Baski
hefur opinberlega neitað að leika
fyrir Spán af pólitískum ástæðum.
Liðið sem varð Ólympíumeistari 1920
var skipað níu Böskum og tveimur
Katalónum. Baráttugleði liðsins
skapaði frasann „La furia
espanola“, spænski ofsinn og hef-
ur iðulega verið gripið til þessa
frasa þegar mikið liggur við. Spán-
verjar hafa hinsvegar verið ótrúlega
deigir á ögurstundu hvort sem rót-
anna er að leita í deilum þjóð-
arbrotanna, tilviljunum eða
hreinlega hræðslu við að mis-
takast svipað og í tilvikum fé-
lagsliða sem ævinlega klikka á síð-
ustu metrunum og hið ítalska Intern-
azionale er frægasta dæmið um.
Spánverjar deigir á ögurstundu
EINAR LOGI VIGNISSON: ÓGÆFA SPÆNSKA LANDSLIÐSINS
32 9. október 2005 SUNNUDAGUR
Englendingar komnir á
HM eftir nauman sigur
Englendingar geta flakka› Hollendingum fyrir sæti› sitt á HM í fi‡skalandi
flví sigur li›sins á Tékklandi fl‡ddi a› 1–0 sigur á Austurríki dug›i enskum.
David Beckham fékk a› líta rau›a spjaldi› í leiknum.
FÓTBOLTI Englendingar gátu leyft
sér að fagna í gærkvöld eftir sig-
ur liðsins á Austurríki og enn
fremur eftir sigur Hollands á
Tékklandi. Þau úrslit þýddu að
bæði Pólland og England eru
komin áfram á HM þar sem þau
tvö lið sem ná bestum árangri í 2.
sæti riðlanna komast beint áfram.
Englendingar taka á móti Pólverj-
um á miðvikudag og var búist við
því að sá leikur yrði spennu-
þrunginn þar sem hann væri úr-
slitaleikur um toppsæti riðilsins –
sem hann vissulega er – en úrslit
leikja gærdagsins gera úrslit
leiksins þýðingarlausan.
Eina mark leiksins skoraði
Frank Lampard, miðjumaður
Chelsea, úr vítaspyrnu á 25. mín-
útu en hún var réttilega dæmd
eftir að brotið hafði verið á
Michael Owen. Englendingar
hefðu vel getað bætt við fleiri
mörkum í fyrri hálfleiknum en
höfðu heppnina ekki með sér. Í
síðari hálfleik voru Austurríkis-
menn nálægt því að jafna þegar
Roland Linz átti skot í þverslána.
Á 57. mínútu fékk David Beck-
ham síðan tvö gul spjöld og þar
með rautt en seinna spjaldið var
rangur dómur og ekkert nema
leikaraskapur hjá Ibertsberger.
Englendingar héldu þó út einum
manni færri og fengu öll stigin
þrjú.
„Ég skil ekkert í þessari
ákvörðun dómarans. Fyrra gula
spjaldið var strangur dómur en
það seinna var alveg út úr kort-
inu. Allir sem sáu þetta atvik geta
verið sammála um það,“ sagði
fyrirliðinn Beckham sem verður
því í leikbanni í leiknum gegn Pól-
landi á miðvikudaginn. Sol Camp-
bell verður heldur ekki með í
þeim leik þar sem hann meiddist
gegn Austurríki og því mun Rio
Ferdinand endurheimta sæti sitt í
miðvarðarstöðunni.
„Sigurinn var samt mjög góð-
ur, það eru úrslitin sem skipta
máli þegar það er komið svona
langt í keppninni. Liðið sýndi
mikinn karakter og menn börðust
hvor fyrir annan. Það er erfitt að
vera manni færri í hálftíma en
við lönduðum stigunum þremur
sem telja,“ sagði Beckham.
Sven-Göran Eriksson getur nú
andað léttar fyrir að hafa komið
liði sínu á HM en hann hefur mátt
sæta mikilli gagnrýni eftir tap
Englendinga gegn Norður-Írum í
síðasta mánuði.
HARÐUR DÓMUR David Beckham var fyrsti fyrirliði Englands til að fá rauða spjaldið og fyrsti enski landsliðsmaðurinn sem fær tvisvar
rautt. NORDIC PHOTOS/GETTY
Riðill Íslands í HM:
Víti Srna skaut
Króata áfram
FÓTBOLTI Dario Srna, bakvörður-
inn öflugi í landsliði Króata,
skaut sínum mönnum áfram á úr-
slitakeppni HM í Þýskalandi á
næsta ári en hann skoraði eina
mark leiks Króata og Svía í Za-
greb í gær. Srna skoraði markið
úr víti snemma í síðari hálfleik.
Leikurinn var í raun hreinn úr-
slitaleikur um toppsæti riðilsins
en sigur Króata þýðir einfaldlega
að liðið er komið áfram á HM,
þótt liðið tapi gegn Ungverjum í
síðustu umferðinni. Svíar munu
reyndar vona að svo verði því ef
þeir vinna þá Íslendinga á mið-
vikudag vinna þeir riðilinn og
Króatar komast beint áfram sem
annað tveggja lið sem náði hvað
bestum árangri af þeim liðum
sem lentu í öðru sæti sinna riðla.
Landsliðsþjálfari Króata, Zlat-
ko Kranjcar, var svo spenntur að
hann varð að snúa sér undan þeg-
ar Srna tók vítið. Hann sneri sér
fyrst aftur við þegar áhorfendur
byrjuðu að fagna. „Það var ekki
það að ég treysti ekki Dario,“
sagði Kranjcar. „Þetta var bara
svo mikilvægt augnablik að ég
hafði ekki stjórn á sjálfum mér.“
Búlgarar unnu þægilegan 2–0
sigur á Ungverjum í gær og
höfðu sætaskipti í riðlinum. Loka-
umferð riðilsins verður háð á
miðvikudag þar sem Ísland mæt-
ir væntanlega baráttuglöðum Sví-
um.
Zlatan Ibrahimovic gat ekki
leikið með Svíum vegna meiðsla
og er enn vafamál hvort hann
verður klár í slaginn á miðviku-
daginn. - esá
DARIO SRNA Hetja Króata í gær.