Fréttablaðið - 11.10.2005, Síða 20
Umsjón: nánar á visir.is
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.467 Fjöldi viðskipta: 199
Velta: x.xxx milljónir
+0,11%
MESTA LÆKKUN
Skuldabréfin
vinsæl
Í gær voru gefin út skuldabréf í ís-
lenskum krónum fyrir alls fimm millj-
arða króna. Útgefendurnir voru sam-
kvæmt fréttum KB banka lánasýsla
Austurríkis og Deutsche Bank.
Í heild hafa þá verið gefin út skulda-
bréf erlendis fyrir um áttatíu milljarða
íslenskra króna.
„Ljóst er að allir hvatar eru fyrir
hendi að áframhald verði á útgáfunni
þar sem nafnvaxtamunur við útlönd er
7,7 prósent og almennt gert ráð fyrir
því að krónan haldist sterk næstu 6-12
mánuði,“ segir í fréttum KB banka.
Ekki muni draga úr útgáfunni fyrr en
nafnvaxtamunur við útlönd minnki frá
því sem nú er eða gengisáhætta enda-
fjárfestisins aukist.
- bg
11. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Actavis 40,20 +0,00% ...
Bakkavör 42,10 +0,00% ... FL Group 13,80 -0,70% ... Flaga 3,01
+0,30% ... HB Grandi 9,25 +0,00% ... Íslandsbanki 14,45
+0,00% ... Jarðboranir 20,70 -1,40% ... KB banki 582,00 +0,40%
... Kögun 53,50 +0,00% ... Landsbankinn 21,30 +0,50% ... Marel
64,50 +0,80% ... SÍF 4,44 +0,00% ... Straumur 12,70 -1,60% ...
Össur 85,00 +0,00%
Mosaic Fashions +3,45%
Icelandic Group +1,56%
Marel +0,78%
Atorka Group -1,72%
Straumur -1,55%
Jarðboranir -1,43%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Greining Íslandsbanka
telur st‡rivexti ná tólf
prósentum á næsta ári.
Talsver›ar líkur eru á a›
gengisvísitala krónunn-
ar fari í tveggja stafa
töku og dollarinn fari
ni›ur fyrir sextíu krón-
ur.
Stýrivextir Seðlabankans munu
verða tólf prósent á næsta ári og
líkur eru á að gengisvísitala krón-
unnar fari tímabundið undir
hundrað, að mati Greiningar Ís-
landsbanka.
Miðað við núverandi gengi milli
mynta myndi dollarinn fara niður
fyrir sextíu krónur og evran niður
fyrir 72 krónur miðað við að geng-
isvísitalan yrði hundrað.
Ingvar Arnarson, hagfræðingur
hjá Greiningu Íslandsbanka, segir
að Seðlabankinn meti það svo að
peninglegt aðhald hafi ekki verið
nægjanlegt í síðustu uppsveiflu og
ofþenslan sé meiri nú en þá. Vextir
Seðlabankans eru nú 10,25 prósent,
en raun styrivextir þegar tillit er
tekið til verðbólgu eru 5,5 prósent.
Raunstýrivextir í síðustu upp-
sveiflu voru ríflega sjö prósent.
Greining Íslandsbanka telur því að
miðað við að aðhaldsstig nú megi
ekki vera minna nú en það var um
aldamótin muni stýrivextir verða
tólf prósent.
Ingvar segir að vaxtahækkun
Seðlabankans hafi þá óhentugu
hliðarverkun að hún hvetji til út-
gáfu erlendra skuldabréfa í ís-
lenskum krónum. Það megi því bú-
ast við að krónan styrkist enn frek-
ar frá því sem nú er. „Það að geng-
isvísitalan færi í tveggja stafa tölu
er eitthvað sem hvarflaði ekki að
neinum fyrir einu eða tveimur
árum síðan, en nú erum við komin
mjög nálægt því.“ Hann segir að
það megi velta því fyrir sér hvort
Seðlabankinn hafi tekið nægjan-
legt tillit til erlendrar skuldabréfa-
útgáfu sem nú er komin yfir áttatíu
milljarða króna.
Ingvar segir líklegt að dragi úr
verðbólgu á næstunni. Verðbólg-
an hafi verið drifin áfram af
hækkun fasteignaverðs og elds-
neytishækkunum. „Manni sýnist
mestur hasarinn búinn á fast-
eignamarkaði og jafnvel þótt
verðið standi í stað þá hækkar
það ekki verðbólguna.“ Hann seg-
ir trúverðugleika Seðlabankans
vera bankanum ofarlega í huga
og það muni hafa áhrif á það að
Seðlabankinn muni hækka vexti
áfram til að stofna honum ekki
voða. „Það er alla vega ekki hægt
annað en að taka mark á stóru
orðunum hjá Seðlabankanum í
Peningamálum.“
haflidi@frettabladid.is
MIKILVÆGUR TRÚVERÐUGLEIKI Seðlabankanum er annt um trúverðugleika sinn og
telur að aðahaldsstig þurfi að verða meira nú en í síðustu uppsveiflu. Það bendir til þess
að stýrivextir verði tólf prósent þegar þeir ná hámarki á næsta ári.
Vextir í tólf prósent og
vísitalan undir hundrað
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
...skemmtir þér ; )
NIGHTWISH
Á TILBOÐI!
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni
CD • Highest Hopes: Best Of Nightwish
CD+DVD • Highest Hopes: Best Of Nightwish 2.499kr
NÝTT!
1.999kr
CD • Wishmaster
1.299kr
CD • Over The Hills And Far Away
1.299kr
CD • Angels Fall First
1.299kr
CD • Century Child
1.299kr
CD• Oceanborn
1.299kr
DVD • From Wishes To Eternity
1.799kr
DVD • End Of Innocence
1.799kr
Lokavika fyrir Somerfield
Fresturinn sem yfirtökunefnd í
Bretlandi veitti bjóðendum í
bresku verslunarkeðjuna
Somerfield rennur út á föstudag-
inn. Baugur var upphaflega í
hópi áhugasamra kaupenda en
heltist úr lestinni. Aðeins einn
hópur er nú eftir sem hefur lýst
áhuga á að kaupa keðjuna sem er
fimmta stærsta matvöruversl-
anakeðja Bretlands. Hópurinn,
sem skipaður er frumkvöðlinum
Robert Tchenguiz, Apax
Partners og Barclays-bankanum,
er talinn munu leggja fram tilboð
í vikunni.
Breska blaðið The Guardian
segir í gær að búast megi við því
að stjórn Somerfield muni hafna
tilboði sem hljóðar upp á 200
pens á hlut eða minna en Baugur
bauð í upphafi um 190 pens fyrir
hvern hlut í félaginu. Segir jafn-
framt í blaðinu að Tchenguiz og
hópurinn muni hugsanlega
leggja fram tilboð upp á 205 pens
á hlut en allsendis sé óvíst um
hvort að stjórnin munu taka slíku
tilboði. Fyrir það verð væri
heildarvirði Somerfield um 121
milljarður íslenskra króna.
- hb
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R
SOMERFIELD-VERSLUN Frestur til að skila inn tilboðum í matvöruverslanakeðjuna
Somerfield rennur út í vikunni.