Fréttablaðið - 11.10.2005, Síða 32
6 { hús og heimili } Íslendingar eru mikil flísaþjóð og
eru farnir að leggja meira upp úr
því að flísarnar séu bæði fallegar
ásamt því að þær gegni sínu hlut-
verki.
Þótt tískan nú einkennist af ein-
faldleika þá er fólk farið að sýna
meiri kjark og nota meira af list-
um, mósaíkflísum eða steinum til
að brjóta upp það einfalda án þess
það komi niður á því stílhreina.
Við þekkjum öll hugtakið „gott
flæði“ sem kunn sjónvarpskona
notar títt, en það á einmitt vel við
í umræðunni um flísar. Fólk flísa-
leggur nú í hólf og gólf svo bæði
innrétting og flísar myndi heild.
Umgjörð baðkara og sturtubotnar
eru flísalagðir í sama stíl. Fólk er
jafnvel farið að nota sama gólfefni
og veggefni og brýtur þá upp með
mósaík eða listum eða ólíkri lögun
og samsetningum. Flísaheimurinn
er sannkallaður frumskógur en
þess virði að berjast í gegnum
hann, því eftir stendur að flísarnar
sem valdar eru á baðherbergið eru
umgjörð þess og sá hluti herberg-
isins sem er hvað mest áberandi.
1. ÁLFABORG: Multicolor Acer,
20x31,6. Veggflís frá PORCELANOSA.
Nokkrir litir í boði sem og samsetning-
ar.
2. ÁLFABORG: Tartar Ossidi Negro,
20x33,3. Veggflís frá VENIS. Ílangt
mósaík með skemmtilegri áferð.
3. ÁLFABORG: Ossidi Blanco, 20x33,3.
Veggflís frá VENIS. Mósaíkflísar til í
sömu seríu.
4. FLÍSABÚÐIN: Azuví glerlisti 5x20
blár. Serían er til í fleiri litum. Sería
white fashion.
5. FLÍSABÚÐIN: Azuví – Med Duo
Blanco 20x31. Veggflís frá Azuví. Sería
white fashion.
6. FLÍSABÚÐIN: Panaria Bloom Warm
5x30. Skrautlisti frá Panaria. Sería
Mods. Hægt að fá mismunandi áferð
og lit.
7. FLÍSABÚÐIN: Panaria Mayfair Blades
30x30 mottur. Gólfflísar. Sería Mods.
Hægt að fá mismunandi áferð og lit.
8. FLÍSABÚÐIN: Panaria Mayfair Bars
30x30 mottur. Veggflísar. Sería Mods.
Hægt að fá mismunandi áferð og lit.
9. VÍDD: White riverstone boxer. Notað
til skrauts. Sett sem listar á milli flísa
eða notað á stærri fleti. Fáanlegt með
fleiri áferðum.
10. VÍDD: Sicis, hnetubrúnar mósaík-
flísar. Fáanlegar í mörgum litum.
11. VÍDD: Waterglass, rauðar
mósaíkflísar. Fáanlegar í mörgum lit-
um. Notaðar í lista eða á stærri fleti, til
að brjóta upp og gefa lit.
12. VÍDD: Argent-veggflís 30x30 frá
Eiffelgres. Flís úr argent-náttúrusteini
með álskreytingu í miðju.
10. 12.
9.
2.
4.
5.
8. 6. 7.
3. 1.
11.
Í hólf og gólf
Einfaldleiki er ráðandi í vali á flísum fyrir baðherbergið. Fólk kýs að flísarnar myndi
heild og að herbergið sé stílhreint. Vinsælt er að flísaleggja í hólf og gólf.
• Settu eina hillu meðfram veggnum sem hefur myndaramma, vasa
eða falleg ilmvatnsglös.
• Settu fallegar sápur, baðsölt eða aðra smáhluti í antíkskálar.
• Sé nóg pláss í baðherberginu má setja inn húsgagn eins og borð eða
tágastól.
• Stórir speglar stækka lítið herbergi til muna.
• Bættu við blómum og plöntum í baðherbergið. Endurhönnun bað
herbergisins snýst ekki eingöngu um flísar og borðplötur.
• Mósaíkflísar eru litríkar og gefa baðherberginu nýtt líf. Skemmtilegra
er að hafa mósaíkskreytinguna heimagerða.
Hugaðu að smáatriðum