Fréttablaðið - 24.10.2005, Blaðsíða 22
[ ]
Reykjanesbæ
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
IL TUCANO
Tryggvagata 11, 101 Reykjavík
Sími: 534 6100
Sérverslun
með húsgögn
og gjafavörulífstílsverslun
í miðbænum
Rýming
arsala
Allt á 5
0% afsl
ætti
Prúttað
u og ná
ðu verð
inu
enn fre
kar nið
ur
geta verið falleg skreyting á útidyrahurðir. Það fer samt hver
að verða síðastur að setja upp haustkrans því fljótlega fara
jólakransarnir að taka við.
Haustkransar
Fjölbreytt skapalón gera manni kleift að
búa til persónuleg tré.
Í þættinum Veggfóðri í kvöld
mun Vala kíkja í heimsókn
til Guðlaugar Halldórsdóttur
eða Gullu í Má Mí Mó sem
lumar á mörgum einföldum og
skemmtilegum lausnum.
Vala segir að ástæðan fyrir heim-
sókninni sé sú að Gulla komi allt-
af með skemmtilegar hugmyndir.
„Það sem er best við hugmyndir
hennar er að hver og einn getur
framkvæmt þær heima hjá sér og
þær eru einfaldar og mjög ódýr-
ar,“ segir Vala. Það sem Gulla
ætlar að kynna fyrir áhorfendum
í kvöld er sniðug lausn til þess að
setja persónulegan blæ á heimilið.
Um er að ræða mörg mismunandi
skapalón sem notuð eru til að gera
kirsuberjatré á veggi eða aðra slé-
tta fleti.
„Maður ræður því sjálfur hvern-
ig tréð er í laginu. Það er byggt
upp í smá pörtum og því hægt að
ráða lögun og stærð trésins. Hver
og einn getur haft eins margar
greinar og lauf eins og mögulegt
er. Þess vegna verða engin tvö
tré eins,“ segir Gulla. Hægt er að
nota alls kyns skapalón, til dæmis
margar gerðir greina og stöngla,
fiðrildi, fugla og fleira.
Til verksins þarf aðeins þessi
skapalón, venjulega vatnsmáln-
ingu og lítinn svamp með frekar
sléttu yfirborði. Hönnunar- og
lífstílsþátturinn Veggfóður verð-
ur á dagskrá sjónvarpsstöðvarinn-
ar Sirkus í kvöld klukkan 21.00 og
þar verður hægt að fylgjast betur
með framkvæmdinni.
Hver og einn getur látið hugmyndarflugið ráða för við gerð skapalónsins.
Persónuleg og einföld
skreyting máluð á vegg
Vala og Gulla við vegginn skemmtilega með sæta kirsuberjatrénu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEGGFÓÐUR