Tíminn - 01.08.1975, Side 2
2
TÍMINN
Föstudagur 1. ágúst 1975
Flest fljótustu
hross landsins á
Vindheimamelum
Gó-Sauðárkróki. Hestamót Skag-
tiröinga verður að venju haldið
um Verzlunarmannahelgina á
Vindheimamelum og má búast
við spennandi keppni, því að þar
verða flest fljótustu hross lands-
ins. Það hefst á iaugardag kl. 17
með undanrásum kappreiða. Á
sunnudag hefst dagskráin kl.
14.00 með hópreið félagsmanna úr
Léttfeta og Stiganda. Séra
Gunnar Gisiason i Glaumbæ hef-
ur helgistund. Gæðingakeppni fer
fram i tveim flokkum og dæmt
fyrir áhorfendum. Að lokum
verða úrslit kappreiða og móts-
slit.
Þrir efstu hestar i hverjum
flokki gæðinga fá áletraða bikara
til eignar. Bræðurnir Arni Guð-
mundsson og Hreinn Guðmunds-
son á Sauðárkróki gefa farand-
bikar i A-flokki gæðinga. Hann er
gefinn til minningar um Blesa
Árna Guðmundssonar, sem á sin-
um tima var þekktastur gæðinga i
héraði.
Á 30 ára afmæli Stiganda s.l.
vor gaf Halldór Sigurðsson gull-
smiður félaginu fagran bikar,
sem veita skal efsta alhliða
gæðingi Stiganda ár hvert. Nú er
keppt um báða þessa gripi i fyrsta
sinn. 1 hlaupum er keppt um há
peningaverðlaun. Einnig vinnast
verðlaunapeningar til eignar.
Undanfarin ár hafa landsmet
verið sett á Vindheimamelum,
eitt eða fleiri. Nú má búast við
æsandi keppni, þar sem flest
fljótustu hross landsins keppa.
Gaman verður til dæmis að
fylgjast með Loku Þórdisar Al-
bertsson, sem nú keppir i fyrsta
sinn i 80Ö metra hlaupi, en hún
hefur verið nær ósigrandi i styttri
hlaupum.
Sami aðgangsmiði gildir báða
dagana og börnyngrien 12 ára fá
ókeypis aðgang.
Sambandslaust meo
öllu við slökkvistöð
H.V. Reykjavik. —A miðvikudag
var slökkvistöðin i Hafnarfirði al-
gerlega sima- og talstöðvarsam-
bandslaus, vegna þess að kapall
slitnaði i jörðu á mótum Slétta-
Hátíð í Árnesi
um verzlunar-
mannahelgina
Ungmennafélag Gnúpverja
efnir til þriggja kvölda hátiðar-
halda I félagsheimilinu Árnesi um
Verzlunarmannahelgina. A föstu-
dagskvöld verður þar dansleikur
þar sem fram koma hljómsveit-
irnar Haukar og Pelican. A laug-
ardagskvöldið leika Haukar fyrir
dansi, en sérstakur gestur
kvöldsins verður hinn góðkunni
söngvari Engilbert Jensen.
Hátiðinni lýkur svo á sunnudags-
kvöldið með Haukum og einnig
mun þá koma fram spánski
söngvarinn og gitarleikarinn
Ramón.
Árnes er vel i sveit sett með til-
liti til umferðar á Suðurlands-
undirlendinu og ekki langt frá
vinsælum tjaldsvæðum svo sem
Þjórsárdal og Laugarvatni. Auk
þess verður aðstaða til að taka ,á
móti fólki á sjálfum staðnum en
þar eru tjaldstæði og matsala
verður i félagsheimilinu yfir alla
helgina.
Spænski söngvarinn og gltarleik-
arinn Ramón verftur meðal
þeirra, sem skemmta mönnum I
Árnesi um helgina.
hrauns og Flatahrauns i Haínar-
firði. Kapallinn slitnaði af völdum
verktaka, sem voru að grafa upp
skurð, sem búið var að fylla.
Verktakarnir bera að íegu
kapalsins i skurðinum hafi verið
breytt frá þvi sem vera átti og þvi
hafi þeir ekki varazt hann.
Að sögn lögreglunnar i Hafnar-
firði er mjög algegnt að bæði
sima- og rafmagnskaplar slitni i
jörðu þar, þegar verktakar eða
aðrir aðilar eru að grafa vegna
einhverra framkvæmda. Getur
þetta oft orðið til mikils baga og
jafnvel stórtjóns.
Fjórir stólu
hljómflutnings-
tækjum fyrir
tæpa milljón
H.V. Reykjavik, Rannsóknarlög-
reglan i Reykjavik handtók i gær-
morgun fjóra pilta um tvitugt,
sem hafa við yfirheyrslur viður-
kennt að hafa staðið að innbroti
þvi, sem framiö var i vöru-
skemmu Hafskip h.f. i Reykjavik,
aðfaranótt mánudags siðast-
liðins. Við leit fannst hjá piltunum
allt þýfið, sem hvarf úr skemm-
unni — fimm plötuspilarar, fjórir
stereo magnarar og fjögur út-
varpstæki i bifreiðar — en það er
talið um 900.000 króna virði.
Þann fyrsta af piltunum hand-
tók lögreglan á miðvikudags-
kvöld, en hina þrjá i gærmorgun.
Tveir þeirra hafa komið litillega
við sögu lögreglunnar áður.
Sesar skal
hann heita
Diskótekið og matstaðurinn nýi
við Ármúla 5 i Reykjavik hefur nú
hlotið nafn og hefur veriö skirður
Sesar.
IDNVAL
byggingaþjónusta
BOLHQLTI 4
c
8-31-55
%Vv8-33-54
Sjónvarpsdagskróin með
léttara móti ó næstunni
BH-Reykjavik. — Sjónvarpið
tekur til starfa I kvöld að loknu
sumarleyfi, og að sögn Her-
manns Jóhannessonar, dag-
skrárfulltrúa, eru talsverðar
nýjungar á döfinni, enda þótt
dagskráin verði nokkuð I sama
dúr og verið hefur, ef til vill þó
með léttara móti fram að upp-
hafi vctrardagskrár i byrjun
október.
Hermann tjáði Timanum i
gær, að af framhaldsmyndum
og þáttum væru þessir helztir
fyrirhugaðir i september:
í kvöld, föstudagskvöld, hefst
nýr sakamálamyndaflokkur,
sem nefnist „Skálkarnir”.
Enda þótt hann fjalli um banka-
rán, þykir sýnt að hann sé
byggður á sannsögulegum at-
burðum i sambandi við lestar-
ránið fræga.
A sunnudaginn verðurfluttur
fimmti þáttur Jökuls Jakobs-
sonar, en óvist er enn hversu
margir þessir þættir verða.
Á mánudaginn hefjast svo
þættir um Onedin aftur, en þeir
virðast óendanlegir og vinsæld-
irnar eftir þvi.
A þriðjudaginn i næstu viku
veröur fluttur fyrsti þátturinn af
þrettán um upphaf og þróun
þýzkrar kvikmyndagerðar og
nefnast þættir þessir „lifandi
myndir”.
A miðvikudag verður fluttur
fyrsti þáttuninn af sex, sem
gerðir hafa verið um Gunnlaugs
sögu ormstungu. Teikningar eru
með þáttum þessum, og hefur
Haraldur Einarsson gert þær,
en Óskar Halldórsson les sög-
una.
Föstudaginn 8. ágúst verður
fluttur skemmtiþáttur um söng-
konuna Diönu Ross, en þátt-
urinn er framleiddur af sömu
aðilum og framleitt hafa aðra
vinsæla söngvaþætti, sem sýnd-
ir hafa verið i sjónvarpinu, m.a.
þátturinn um Denis Rousseau.
Laugardaginn 9. ágúst hefjast
svo læknaþættirnir viinsælu að
nýju. Nú heita þeir „Læknir i
vanda” (Doctor atLarge) og að
venju byggðir á sögum
Richards Gordon. Nú er sú
breyting á orðin, að Upton er
ekki með, sagður vera kominn
til Bandarikjanna, svo að skipt
hefur verið um aðalpersónuna,
og nú er það Duncan, sem er
mest áberandi. Það er ómögu-
legt að segja, hversu margir
þessir þættir verða, — en byrjað
á 13 og siðan séð til.
Sama kvöld verður þáttur
Rolf Harris, en eitthvað er ósýnt
af þáttum hans.
Þriðjudaginn 12. ágúst hefjast
svo að nýju sýningar á banda-
risku gamanmyndasyrpunni
„Love American Style”, sem
hlotið hefur nafnið „Svona er
ástin”, en þar eru sýndar 2-3
myndir I hverjum þætti.
Loks er svo þess að geta, að
miðvikudaginn 13. ágúst hefjast
sýningar á myndaflokknum
„ShouldertoShoulder” sem enn
hefur ekki hlotið islenzkt heiti,
en fjallar um kvenréttinda-
baráttuna i Bretlandi og þá
aðallega þær Pankhurst-mæðg-
ur. Þættir þessir þykja spenn-
andi og hafa náð vinsældum
miklum, en þeir eru 6 talsins.
Þetta eru helztu nýjungar hjá
sjónvarpinu i ágúst-mánuði,
hvað snertir framhaldsmynda-
flokka.
ELDBORG MEÐ 500 LESTIR
— BRÆÐSLA AÐ HEFJAST
AF KRAFTI
BH-Reykjavik. — Eldborg GK
kom til Siglufjarðar i gær um kl.
fjögur og landaði um 500 tonnum
af loðnu. Veiddist loðnan á
svipuðum slóöum og áður, norð-
vestur af Kolbeinsey, við Isbrún-
ina.
Jónas Bjarnason, vigtarmaður
á Siglufirði veitti Timanum þær
upplýsingar i gær, að nú myndi
verða farið að bræða i SR46-verk-
smiðjunum, þar eð eitthvert
magn aö ráði Hefði fengizt, en
a.m.k. fyrsta loðnan, sem til
Siglufjarðar barst, hefði verið
sett i SRP, sem til þessa hefur
annazt beinabræðslu.
Kvaðst Jónas hafa heyrt, að
eitthvað væri að nótinni hjá Guð-
mundi RE, en það fengum við
ekki staðfest I gærkvöldi, þar eð
ekki náðist i Hrólf skipstjóra.
Jónas Bjarnason kvað atvinnu,-
lifiö fjörugt á Siglufirði, nógur
fiskur væri i báðum frystihúsun-
um, og ekki sakaði, að nú bættist
loðnan við.
Skjálfandafljót
Fréttir frá Skjálfandafljóti
hafa ekki hingað til fyllt dálka
Veiöihornsins en nú ætlum við
að gera nokkra bragarbót.
Svo lengi sem menn vita, hef-
ur lax gengið I neðri hluta fljóts-
ins, upp að Barnafossi, Ullar-
fossi og hindrun i
Skuldaþingeyjarkvisl.
Arið 1971 var stofnað veiði-
félag, er skiptist I A-deild, neðan
fossa, og B-deild, ofan þeirra.
Deildirnar hafa samvinnu um
fiskvegagerð og fleira. Lokið er
laxastiga upp I Djúpá, og að
mestu ofar I ánni framhjá raf-
stöðvarstiflu, og verður þá lax-
gengt upp I Ljósavatn, en jafn-
framt er þetta áætlaður áfangi
þess, að laxgengt verði framhjá
Goðafossi, upp um Bárðardal.
Sprengd var hindrun úr
Skuldaþingeyjarkvisl, og far-
vegur hennar á fljótseyrum
lagaður með jarðýtu, en ekki
hefur það reynzt varanlegt.
Sumariö 1974 veiddust á stöng
tæplega 200 laxar og um 600
silungar á svæöi A-deildar, en
stundun veiði var oft ekki mikil
einkum varð silungsveiðin út-
undan.
Nú I sumar er stangveiðidög-
um skipt með útdrætti i 12 hluta. _
10 hluti leigja menn I nágrenni
fljótsins og á Húsavik og Akur-
eyri. 1. hluti ætluðu Reykviking
ar að leigja, en drógu sig til
baka, vegna sérstöðu, sem þeir
töldu sig þurfa að fá, meiri en
féll að kerfinu. Þessa 2 hluti hef-
ur þvi deildin sjálf.
Hver leigutaki notar og selur
veiöileyfi svo sem til vinnst, en
sameiginlegir sölu- og upp-
lýsingaaðilar eru Hótel Húsavik
og Sportvöruverzlun Brynjólfs
Sveinssonar á Akureyri. Verö á
laxastöngum er I almennri sölu
kr. 4.000,00 en silungsstengur
kosta kr. 1.000,00 og kr. 200.00
eftir svæðum.
Skjálfandafljót er jafnan
fremur seint á ferð með veiði,
enda er veiöitimi til 20. septem-
ber. I vor var lengi kalt, en svo
kom alllangur kafli mikilla hlý-
inda með jökulkorg I fljótinu.
Þvi er I raun nýlega fariö aö
veiðast, en hins vegar gæti vel
veiðzt allvel til 20. september.
Laugardagskvöldið 26. júli
var skráð veiöi 21 lax, að meðal-
þyngd um 11 pund — og um 100
silungar.
Umsjónarmenn veiðibóka eru
Bragi i Landamótsseli fyrir
Barnafellshvamm, sem ekki er
til sölu á opnum markaði, Vé-
steinn i Vaði fyrir austurbakka
og Friðgeir i Felli fyrir vestur-
bakka.
Friögeir á litið veiðihús I
Fellsskógi, sem I sumu má kalla
listaverk. Þar munu veiöimenn
við fljótið geta fengið að koma
inn — og jafnvel gista, ef þeir
hafa með sér svefnpoka.
Kunnugum veiðimönnum
mun þykja gott að frétta, að vel
er nú jeppafært alla leið suöur
aö Skipapolli — og að möl
verðúr viö tækifæri dreift á
neðri veg i Fellsskógi.