Tíminn - 01.08.1975, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 1. ágúst 1975
Tízkuföt — með
þjóðbúninga að
fyrirmynd
Lydia Avdeyeva, tizkufrömuö-
ur i Kiev i Ukraniu, er viöþekkt
fyrir skemmtilegar fata-
teikningar sinar. Nýlega var
haldin sýning á verkum hennar,
og komu þar fram sterk áhrif
frá ukraniskum þjóðbúningum.
Annars er hún vön að vera mjög
alþjóöleg og fylgja heimstizk-
unni i tizkuteikningum sinum,
bæöi með kjólasfdd og annaö.
HUn ferðast mikið, einkum
hefur hún ferðazt mikið um
Asiu, og segist hafa orðið fyrir
miklum austrænum áhrifum,
sem komi stundum fram i
teikningum sinum. Nýlega var
hún lika á ferðalagi i Evrópu til
að kynna sér hausttizkuna. Við
sjáum hér mynd af Lydiu
Avdeyeva i vinnustofu sinni,
einnig mynd af samkvæmiskjól,
mjög fallegum, og svo tvær ung-
ar stúlkur sem sýna skemmti-
legan búning, en það eru buxur,
sem há stigvél eru notuð við, og
mjög litskrúðugar blússur og
klútar. Bæði búningarnir og
stúlkurnar vöktu hrifningu á
sýningunni.
< |j»“ tfU'Á ‘t
' m \
DENNI
DÆMALAUSI
,,Já. Það er rétt, viö erum hér
til að lifga upp á daginn fyrir
þig. Hvernig vissurðu það?”