Tíminn - 14.08.1975, Side 5
Fimmtudagur 14. ágúst 1975
TÍMINN
L
mm
Skammsýni
Mörgum svíður I augu,
hversu illa hefur verið farið
með norður og norðaustur
strandlengjuna I Reykjavlk. t
stað þess að skipuleggja
Ibúðahverfi að einhverju
marki við ströndina, þar sem
útsýni er hvað fegurst yfir
sund og voga, hefur verið
kappkostað að setja niður
verzlunar- og iðnaðarhverfi
með byrgðum gluggum, sem
mynda langa og heldur óhrjá-
lega húsakeðju við strand-
lengjuna.
Úr þvi, sem komið er, verð-
ur þessu ekki breytt. Hluti
þeirrar starfsemi, sem komið
hefur verið fyrir á þessu
svæði, á fyllsta rétt á sér og á
raunar hvergi annars staðar
heima.svosem vörugeymslur
skipafélaga og önnur starf-
semi, sem tengd er Sunda-
höfn. En það, sem er alvarleg-
ast er sú vitneskja, að skipu-
lagsyfirvöld ætli sér að halda
áfram á sömu braut og leggja
þau svæði, sem enn eru ó-
byggð, undir iðnaðarstarf-
semi. Er hér átt við svæðið
norðan Grafarvogs, sem
kunnugir. telja eitthvert feg-
ursta ibúðarhúsastæði i höfuð-
borginni.
Engin sérstök áétæða knýr
skipulagsyfirvöld til að koma
iðnaðarstarfsemi fyrir einmitt
á þessu svæði. Landið er bratt
og þar af leiðandi ekki hentugt
byggingarsvæði fyrir iðnaðar-
fyrirtæki, auk þess, sem þau
byrgja útsýni fyrir ibúða-
hverfi, sem fyrirhugað er
austur af svæðinu.
Borgarfulltrúar Framsókn-
arflokksins hafa margsinnis
gagnrýnt ráðslag skipulags-
yfirvalda i þessum efnum, og
m.a. flutt sérstaka tillögu þess
efnis, að við endurskoðun
aðalskipulags Reykjavikur
verði skipuiaginu breytt á þá
lund, að i stað iðnaðarhverfis
við strandlengjuna norðan
Grafarvogs verði skipulagt
ibúðahverfi. A það hefur ekki
reynt, hvort farið verður að
tillögum framsóknarmanna,
en eins og sakir standa horfir
þó dauflega um það vegna
skilningsskorts borgarstjórn-
armeirihluta Sjálfstæðis-
flokksins. Sem dæmi um á-
hugaleysi borgarstjórnar-
meirihlutans i þessum efnum
má geta þess, að fyrir nokkr-
um árum bentu borgarfulltrú-
ar Framsóknarflokksins á
það, að fyrirhugaðar
skemmubyggingar norðan
Kleppsvegar myndu byrgja
útsýnitileyja og sunda. Þá til-
lögu afgreiddu borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins með
þvi, að fólk, sem æki um
Kleppsveginn, ætti ekki að
góna út á sundin. Svona einfalt
var málið í þeirra augum.
Ekki er vist, að allir telji af-
greiðslu af þessu tagi til fyrir-
myndar, og hætt er við þvi, að
framtiðin felli þunga dóma
yfir skammsýnum borgaryfir-
völdum, sem girtu alla strand-
lengjuna með mismunandi
ljótum steinkumböldum
byrgðra glugga, en kappkost-
uðu að dreifa ibúðarhúsa-
byggð um holt og hæðir.-a.þ.
Múlakvísl enn
lokuð allri umferð
ö.B. Reykjavik. — Ennþá er
unnið að viðgerð á brúnni yfir
Múlakvisl. Hefur öll vinna við
brúna sótzt mjög seint sakir
mikils vatns i ánni.
Reynt var að ryðja jarðvegi
með tveimur jarðýtum til að
breyta_ árfarveginum og beina
honum undir brúna á öðrum stað
svo unnt væri að gera við stöp-
ulinn sem fór. Ekki gekk það
betur en svo, að er vinnuflokk-
urinn kom i morgun hafði áin rutt
sér i sinn gamla farveg og tekið
með sér vestasta okið.
Mikil umferð hefur verið þarna
um og hefur þetta komið sér mjög
bagalega fyrir ferðafólk að
komast ekki yfir á bilum sínum.
Vegagerðin hefur aðstoðað fólk
Fjallabaksleið en margir hafa
þurft að skilja bila sina eftir og
taka sér far með áætlunarbilum
áfram á áfangastað. Sérleyfis-
hafinn hefur haft mikið að gera
við að flytja fólk til sins heima en
hann er með bila beggja vegna
brúarinnar.
Brúin hefur sigið talsvert en
ekki er þó talið að hætta sé á að
hún sigi öllu meira.
AÐALFUNDUR SUMARGJAFAR
AÐALFUNDUR Barnavinafél-
agsins Sumargjafar var haldinn
að Hótel Sögu fyrir nokkru.
Fram fóru venjuleg aðalfund-
arstörf. Formaður félagsins,
Bragi Kristjánsson forstjóri,
flutti itarlega skýrslu stjórnar, og
framkvæmdastjórinn, Þorvarður
örnólfsson, las og skýrði reikn-
inga félagsins.
Þá voru kjörnir tveir menn i
stjórn skv. lögum félagsins. Úr
stjórninni áttu að þessu sinni að
ganga sr. Bernharð Guðmunds-
son, sem nú er búsettur i Eþiópiu,'
og Stefán Matthíasson læknir,
sem starfar nú á ísafirði. í stað
þeirra voru kjörnar Hulda
Björnsdóttir og Guðrún Guðjóns-
dóttir forstöðukona.
Auk þeirra eiga nú sæti i stjórn
Sumargjafar Bragi Kristjánsson
forstjóri, formaður, Jón Freyr
Þórarinss. skólastjóri, varafor-
maður, Þórunn Einarsdóttir um-
sjónarfóstra, ritari, Helgi Elias-
son fr. fræðslumálastjóri og
Svava Stefánsdóttir félagsráð-
gjafi.
Varastjórn skipa Maria Finns-
dóttir fóstra, Ragnheiður Blöndal
fóstra og Guðrún Jónsdóttir
félagsráðgjafi.
Samþykktu
verkfalls-
heimild
ö.B. -Reykjavík —Heimild til
verkfallsboðana var sam
þykkt á fundi með undirmönn-
um i kaupskipaflotanum með
allsherjar atkvæðagreiðslu
sem lauk i gærkvöldi. 85
greiddu atkvæði með til-
lögunni en 17 voru á móti.
Fundur deiluaðila hjá sátta-
semjara, Guðlaugi Þorvalds
syni, háskólarektor, verður
dag fimmtudag og að honum
loknum verður tekin ákvörðun
um verkfallsboðun að þvi er
Hilmar Jónsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavikur,
tjáði Timanum i gærkvöldi.
Auglýsícf
íTímanum
O
Skóli
tilboðsupphæð þeirra kr. 69.31
millj. Verkefni þessu lýkur nú i
haust. Áætlaður heildarkostnaður
við verkið er um kr. 139.5 millj. -
143.5 millj. kr.
Þá er að geta framkvæmda við
öskjuhliðarskóla, en þar er lokið
1. áfanga skólans.
1 áfanganum verður starfsemi
sú, er verið hefur i Höfðaskóla við
Sigtún. Húsnæði verður fyrir
skólastjom og rými fyrir al-
menna kennslu og sérgreina-
kennslu, er samsvarar 8 stofum
auk hópherbergja o. fl., t.d. rými
fyrir félagslega starfsemi. Stærð
4417 rúmmetrar. Byggingin var
boðin út i október 1974. Samið var
við lægstbjóðanda, Friðgeir
Sörlason trésmiðameistara, með
smá breytingum frá útboði, þ.e.
grunnvinna, lóð, mótauppsláttur
o. fl. til lækkunar i samningi, og
var samið um kr. 56.0 millj.
Heildarkostnaður er áætlaður kr.
104.5 millj.
Orðsending til
eigenda festi- og
tengivagna
Hinn 15. ágúst n.k. rennur út áður auglýstur frestur til
að setja ökumæli á festi- og tengivagna.
Heimilað er þó fyrst um sinn, að greiða þungaskatt
fyrir notkun festivagna skv. ökumæli viðkomandi
cfráttarbifreiðar i stað þess að setja sérstakan ökumæli
á festivagn. Þeir eigendur festivagna, sem skv.
framansögðu ætla að greiða þungaskatt skv. ökumæli
dráttarbifreiðar skulu snúa sér til Bifreiðaeftirlits
ríkisins með beiðni þar að lútandi.
Séu fleiri en einn festivagn notaðir jöfnum höndum ber
að miða þungaskattsgreiðslu við þann vagn sem mesta
hefur heildarþyngd. Óheimilt er siðan að nota þyngri
festivagn án ökumælis aftan I dráttarbifreiðina en til-
kynntur hefur verið til Bifreiðaeftirlitsins. Sérstök at- '
hygli er vakin á þvi, að þeir sem nota sér þessa heimild
þurfa að greiða gjald af festivagni fyrir allan akstur
dráttarbifreiðar hvort sem bifreiðin dregur vagn eða
ekki.
Þar sem notkun festivagna er gjaldskyld frá og með 15.
ágúst n.k. þarf að láta lesa af ökumæli dáttarbifreiðar
fyrir þann tlma. Hafi álestur ekki átt sér stað fyrir
þann tima verður litið svo á, að allur gjaldskyldur
akstur dráttarvagns hafi átt sér stað eftir 15. ágúst n.k.
5
UTANLANDSFERÐIR
sem er 87% hljóðlátari en flestir aðrir sleðar.
Fullkominn búnaður er innifalinn t.d.: tveggja
strokka vél, 440 cc, rafstart, Magflash, CD raf-
eindakveikja, hraða- og vegalengda- og snúnings-
hraða-mælar, 52ja sm belti, aftur-á-bak gír, Super
Torque sjálfskipting 5:1, lás í hlutlausu, vindla-
kveikjari og margt fleira.
4'Uohnson
OLÍUR
Uohnson
REIAAAR
urmaí S4ó£eimon k.f.
Akureyri • Glerárgötu 20 • Sími 2-22-32
Reykjavík • Suðurlandsbraut 16 • Sími 3-52-00
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Framsóknarfélögin i Reykjavik gefa félögum sinum kost á ferð-
um til Spánar i sumar og haust. Brottfarardagar: 19. ágúst, 2.
september, 16. september.
17.-24. ágúst
Sérstakt tækifæri — síðustu forvöð
Nánari upplýsingar um ferðirnar á flokksskrifstofunni. Simi-
24480.
Ferð til Vínarborgar 4.
til 13. sept.
Fyrirhuguð er i sept. 10-15 daga I
ferð til Vinarborgar. Þeir sem'
áhuga hafa á þessari ferð, hafi
samband við flokksskrifstofuna.
Kaupmanna
hafnarferð