Tíminn - 16.08.1975, Page 3

Tíminn - 16.08.1975, Page 3
Laugardagur 16. ágúst 1975 TIMINN 3 Kolmunninn rang- lega aldursgreindur ? Gsal-Reykjavik. Niðurstöður rannsókna á kolmunna, sem Sveinn Sveinbjörnsson, fiski- fræðingur hefur haft með hönd- um, benda sterklega til þess, að kolmunni hafi fram að þessu verið ranglega aldursgreindur, og sé i raun og veru einu ári eldri en hingað til hefur verið álitið. — Kolmunninn virðist ekki mynda árhring á fyrsta ári, eða þá að hann er svo daufur, að hann sést ekki, sagði Sveinn Sveinbjörnsson i viðtali við Timann. — Talið hefur verið, að vöxtur kolmunna á fyrsta ári væri allt að 18 sm, en allt virðist benda til þess að kolmunni af þeirri stærð sé fiskur á öðru ári. Sveinn kvað skozkan fiski- fræðing hafa komizt að sömu niöurstöðu með rannsóknum á beinnialdursgreiningu, en sínar niðurstöður kvað hann byggöar á lengdardreifingu, og sam- kvæmt henni leiddi hann likur að þvi, að vöxtur kolmunnans á fyrsta ári væri ekki jafn mikill og talið hefði verið. Sagði Sveinn, að fiskur sá, er veiddist með spærlingi, væri samkvæmt þessum niður- stöðum eins árs fiskur, en ekki fiskur á fyrsta ári, eins og al- mennt hefði verið talið. — Það er mjög liklegt, að kolmunni hafi hrygnt hér a.m,k. 1972 og 1973, og umræddar rannsóknir benda greinilega til þes, að kolmúnnaklak hafi átt sér stað i hafinu við ísland, en við höfum enn ekki fundið hrygningarstöðvarnar. Við leituðum að þeim I vor, suður og suðvestur af landinu, en fundum þærekki,enég geri ráð fyrir að frekari leit fari fram næsta vor, sagði Sveinn. Sérstaka nauðsyn ber til að finna hrygningarstöðvarnar, sagði Sveinn að lokum, þvi að svo virðist sem kolmunni sé helzt veiðanlegur á hrygningar- timanum I marz og aprll. Dagvistunaraðstaða fyrir aldraða í miðbæ Kópavogs Öryrkjabandalagið reisir 40 íbúða hús í miðbænum BH-Reykjavik. A fundi bæjarráðs Kópavogs á þriðjudaginn var ein- róma samþykkt að leggja til við bæjarstjórn, að leitað verði eftir kaupum á húsnæði fyrir dagvist- un aldraðra i miðbæ Kópavogs, og að bæjarstjórn heimili erlenda iántöku til þessara kaupa, ef samningar nást. Bæjarstjórn veitti þessa heimild á fundi f gær- kvöldi. Kópavogur hefur oft verið nefndur bær barnanna og unga fólksins, enda hefur meðalaldur ibúa hans lengstum verið lægri en annarra sveitarfélaga hérlendis. Bæjarfélagið hefur þvi jafnan þurft að verja miklu fé til skóla- bygginga, og æskulýðsstarf hefur lengi verið þróttmikið og fjöl- breytt i Kópavogi og má segja, að á félagslega sviðinu hafi kröftun- um einkum verið beint að þvi að liðsinna ungu fólki og frjálsum félögum. Ellilifeyrisþegar hafa til þessa verið hlutfallslega mjög fá- ir i Kópavogi, en þeim mun stór- fjölga á næstunni, þvi frumbyggj- ar bæjarins, sem voru um og inn- an við miðjan aldur, þegar byggð hófst að marki i Kópavogi upp úr striðinu,eru nú orðnir rosknir. Elliheimili er ekkert i Kópa- vogi, en á siðustu árum hefur ýmiss konar aðstoð við aldraða eflst mjög I bænum fyrir tilstilli Félagsmálastofnunar bæjarins. Heimilishjálp hefur verið aukin, samkomur hafa verið haldnar með gömlum Kópavogsbúum og farið hefur verið i leikhús og ferðalög með þá, nokkrum sinn- um á ári. Hafa ferðalögin og sam- komurnar notið mikilla vinsælda. Það var rætt i bæjarstjórn Kópavogs i lok siðasta kjörtima- bils að koma upp dagvistunarað- stöðu fyrir aldraða Kópavogsbúa, þar sem þeir gætu haft margvis- lega tómstundaiðju, rabbað sam- an um áhugamál sin og notið ýmiss konar félagslegrar fyrir- greiðslu á daginn, en farið heim til sin aö kvöldi eða hvenær sem þá lysti á deginum. Slik aðstaða getur veitt gömlu fólki margar ánægjustundir, léttir heimilishald þess og léttir að auki nokkuð á þörfinni fyrir elliheimili, sem eru mjög dýr i rekstri og hálfgert neyðarbrauð i augum margra aldraðra. Var gerð um það sam- þykkt i fyrri bæjarstjórn að leitað væri samninga við Miðbæ hf, sem var þá að hefja byggingu þriggja húsa i miðbæ Kópavogs um kaup á húsnæði þar til þessara nota. Siðari hluta árs i fyrra lenti Kópavogskaupstaður i fjárhags- erfiðleikum eins og flest stór sveitarfélög hérlendis vegna verðbólguþróunarinnar, og var þvi ekkert fé handbært til þess að leggja i húsakaup þessi. Byggingarframkvæmdir á mið- bæjarsvæðinu gengu lika hægar en gert hafði verið ráð fyrir, og lá málið þvi i láginni um sinn. Hins vegar beitti núverandi bæjar- stjórn sér fyrir þvi, að öryrkja- bandalag íslands tók að sér að byggja eitt húsa þeirra, sem Mið- bær ætlaði sér að byggja, og mun bandalagið reka hús þetta, sem i verða um 40 ibúðir fyrir öryrkja, á sama hátt og húseignir sinar i Reykjavik, en Kópavogsbúar njóta forgangs að öðru jöfnu til dvalar i þvi. Þegar ákveðið var, að öryrkja- bandalagið byggði þetta hús, var ljóst, að enn æskilegra var orðið en áður, að dagvistunaraðstaða fyrir aldraða Kópavogsbúa yrði einnig á þessu svæði. Sennilegt er, að ekki verði mikið um nægi- lega stórt leiguhúsnæöi fyrir slika starfsemi á miðbæjarsvæðinu i framtiðinni, og ef svo yrði, myndi húsaleiga þar verða mjög há. Telja bæjaryfirvöld þvi nauðsyn- legt að festa kaup á húsnæði til þessara nota, og forráðamenn Miöbæjar hf. hafa lýst sig reiðu- búna til samninga um kaup á ca. 800 fermetra húsnæði i þessu skyni. Til þessara kaupa skortir bæjarsjóð Kópavogs fé, og þvi hefur verið ákveðið að reyna að fá erlent lán til hluta af kaupunum. 1 viðtali við Timann sögðust bæjarfulltrúar Framsóknar- manna i Kópavogi, þeir Jóhann H. Jónsson og Magnús Bjarn- freðsson vonast til, að úr þessum kaupum gæti orðið. „Þegar hús öryrkjabandalagsins er risið og þessi aðstaða komin i Kópavogi, má segja, að Grettistaki hafi ver- iðlyft i málefnum aldraðra i bæn- um á stuttum tima,” sögðu þeir, „þótt auðvitað biði fjölmörg önn- ur verkefni á þessu sviði”. f EKKI \ UTANVEGA) LAWDVERND Unniö vift aft dýpka nýju hafnarkvina I Noröfirfti. Tfmamynd ET. Nýja höfnln i Neskaupsstað gerð á þurru: Sjónum hleypt inn í kvína í september HHJ-Rvik. — Ef allt gengur aft óskum, hleypum viö sjónum inn I nýju hafnarkvina i septemberlok, sagfti Ragnar Sigurftsson, hafnar- stjóri i Neskaupstaft, I vifttali vift Timann I gær. Nýja höfnin er i botni fjarftarins, og aft henni er unnift meft þeim nýstárlega hætti, aft hún er gerft á þurru. Byrjaft var á þvi aft loka botni fjarftarins meft garfti, sjónum siftan dælt út, og að þvi búnu var hafizt handa um aft moka jarftveginum Iburtu. Þegar er búið að aka brott um það bil 120 þús. rúmmetrum af jarðvegi. Aætlað er, að dýpkunin kosti 50-60 milljónir króna, og verður það fé tekiö af bráöa- birgðafjárveitingu út á væntan- legar fjárveitingar á næstu árum. — Við ætlum að reyna að fá stálþil frá Akureyri, sagöi Ragnar. Það mun kosta um 40 milljónir króna, en þar við bætast 25 milljónir til þess aö koma þvi niður. Þegar þessu er lokið höf um við fengið 120-130 metra langan viðlegukant, auk þess sem gert er ráð fyrir kvi fyrir smá- báta.Heildarkostnaður verður 120-130 milljónir. Næsta sumar er siðan fyrir- hugað að ganga frá innsiglingunni. Nú er unniö að þvl að skipu- leggja svæðið kringum nýju höfnina. Þar verður loðnu- bræðslan, og hefur þegar verið byrjað á undirstöðum verk- smiöjuhússins. Vift ætlum okkur aö koma bræöslunni I gagnið fyrir næstu loðnuvertið, og ég held aö þaö takist, sagði Ragnar. Nú er að mestu búið að gera viö þau tæki, sem unnt er að gera við, og önnur ný komin hingaö austur. Við bræðsluna verða tveir stórir lýsisgeymar og fimm hráefnis- geymar, auk svartoliugeyma. Þá hefur BP sótt um að fá að reisa sex oliugeyma á nýju uppfyllingunni, og er ætlunin aft reisa þá i tveimur áföngum, þrjá og þrjá I hvorum. Auk þessara fyrirtækja er áætlað að Bifreiðaþjónustan og málmsmiðjan Glgja reisi hús undir starfsemi sina á nýja hafnarsvæðinu. Imrlf Ir Vrrrf n Ji , j^rj 1 Veiðihornið reyndi mikið til að ná fregnum af veiði Finnlandsforseta i Viðidaisá I gær, en það var rétt eins og allt fólkið úr veiðihúsinu væri úti við —og simstöðin lokaði kl. 8 svo að við erum fregniausir þaðan I dag, þvi miður. # Steingrimur Atlason hjá Stangveiðifélagi Hafnarfjarðar veitti Veiðihorninu i gær upplýs- ingar um veiðisvæði félagsins og sagði okkur af veiði þar. Þess skal sérstaklega getiö, að veiði- leyfi eru seld I Essostööinni við Reykjavikurveg og Nýju bilastöðinni I Hafnarfirði. Þar geta menn einnig keypt sér svokölluð sumarkort, sem til dæmis i Kleifarvatni kosta 1200 krónur yfir sumarið. og mega menn þá veiöa þar hvenær sem þeir vilja, en stöngin kostar annars 200 krónur á dag. Hlíðarvatn Þar hefur veiði verið eindæma góð i sumar og mikil ásókn i veiðileyfi. Hafa þau öll verið upp- seld til þessa. Nú mun eitthvað vera fáanlegt af leyfum siðari hluta mánaðarins, og kosta þau 800 krónur. Djúpavatn Suðurnesin eru ekki rik af veiðiám en þar er hinsvegar að finna góð veiðivötn. Djúpavatn er ekki i alfaraleið, en þar þykir dásamlegur staður til veiöa og útivistar. Til að komast þangað fer maður upp af Vatnsskarði og suður með Sveiflu- hálsi, og þá kemur maður að vatninu suðaustan i Trölladyngju. Þarna hefur verið mikil ásókn i veiðileyfi, en eitthvað fer að verða fáanlegt af þeim. Þau kosta 500 krónur. Kleifarvatn I Kleifarvatni hafa veiðzt nokkuð stórir fiskar i sumar og ekki er að spyrja að magninu þar hafa veiðzt allt að 70-80 á stöngina á dag en þeir eru nú ekki allir stórir, þó vel ætir, svipaðir og murtan i Þingvallavatni. Veiðin i Kleifarvatni er helzt sunnan til, og þar hefur veriö hægt að fá veiðileyfi i allt sumar, þvi að vatnið er stórt og veiðileyfin nánast ótakmörkuð. Þau kosta 200 krónur. Eldvatn í Meðallandi Þá hefur félagið á leigu Eldvatn i Meðallandi, og þar er góð sjóbirtingsveiði og von um lax sið- ari hluta sumars. Nú er laxveiðin hafin, og um siðustu helgi voru komnir 12-13 laxar á land. Flókadalsá í Borgarfirði Loks hefur félagið Flókadalsá á leigu aö hálfu á móti Keflvikingum. Þar hefur veriö góð veiði i allt sumar og öll veiðileyfi löngu uppseld. Laxinn þar er fremur smár, en hinsvegar veiðist hann vel þarna. # Elliðaárnar Friðrik Stefánsson hjá Stangveiöifélagi Reykjavikur veitti blaðinu þær upplýsingar i gær, að upp úr Elliðaánum væru komnir 1430 laxar á þessu sumri, en á sama tima i fyrra höfðu veiðzt 1383 laxar. Það er eftirtektarvert, að fjórði hver lax á þessu sumri hefur veiðzt á flugu, eða samtals 349 laxar. Þyngsti flugulax- inn var 16 pund, hann veiddist þann 13. ágúst á HS-Streamer flugu. Svo virðist sem siöustu dagana hafi veiði aukizt, og undanfarna þrjá daga hafa að meðal- tali veiðzt um 30laxar á dag iánum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.