Tíminn - 16.08.1975, Qupperneq 3
Laugardagur 16. ágúst 1975
TIMINN
3
Kolmunninn rang-
lega aldursgreindur ?
Gsal-Reykjavik. Niðurstöður
rannsókna á kolmunna, sem
Sveinn Sveinbjörnsson, fiski-
fræðingur hefur haft með hönd-
um, benda sterklega til þess, að
kolmunni hafi fram að þessu
verið ranglega aldursgreindur,
og sé i raun og veru einu ári
eldri en hingað til hefur verið
álitið.
— Kolmunninn virðist ekki
mynda árhring á fyrsta ári, eða
þá að hann er svo daufur, að
hann sést ekki, sagði Sveinn
Sveinbjörnsson i viðtali við
Timann. — Talið hefur verið, að
vöxtur kolmunna á fyrsta ári
væri allt að 18 sm, en allt virðist
benda til þess að kolmunni af
þeirri stærð sé fiskur á öðru ári.
Sveinn kvað skozkan fiski-
fræðing hafa komizt að sömu
niöurstöðu með rannsóknum á
beinnialdursgreiningu, en sínar
niðurstöður kvað hann byggöar
á lengdardreifingu, og sam-
kvæmt henni leiddi hann likur
að þvi, að vöxtur kolmunnans á
fyrsta ári væri ekki jafn mikill
og talið hefði verið.
Sagði Sveinn, að fiskur sá, er
veiddist með spærlingi, væri
samkvæmt þessum niður-
stöðum eins árs fiskur, en ekki
fiskur á fyrsta ári, eins og al-
mennt hefði verið talið.
— Það er mjög liklegt, að
kolmunni hafi hrygnt hér a.m,k.
1972 og 1973, og umræddar
rannsóknir benda greinilega til
þes, að kolmúnnaklak hafi átt
sér stað i hafinu við ísland, en
við höfum enn ekki fundið
hrygningarstöðvarnar. Við
leituðum að þeim I vor, suður og
suðvestur af landinu, en fundum
þærekki,enég geri ráð fyrir að
frekari leit fari fram næsta vor,
sagði Sveinn.
Sérstaka nauðsyn ber til að
finna hrygningarstöðvarnar,
sagði Sveinn að lokum, þvi að
svo virðist sem kolmunni sé
helzt veiðanlegur á hrygningar-
timanum I marz og aprll.
Dagvistunaraðstaða
fyrir aldraða í
miðbæ Kópavogs
Öryrkjabandalagið reisir 40
íbúða hús í miðbænum
BH-Reykjavik. A fundi bæjarráðs
Kópavogs á þriðjudaginn var ein-
róma samþykkt að leggja til við
bæjarstjórn, að leitað verði eftir
kaupum á húsnæði fyrir dagvist-
un aldraðra i miðbæ Kópavogs,
og að bæjarstjórn heimili erlenda
iántöku til þessara kaupa, ef
samningar nást. Bæjarstjórn
veitti þessa heimild á fundi f gær-
kvöldi.
Kópavogur hefur oft verið
nefndur bær barnanna og unga
fólksins, enda hefur meðalaldur
ibúa hans lengstum verið lægri en
annarra sveitarfélaga hérlendis.
Bæjarfélagið hefur þvi jafnan
þurft að verja miklu fé til skóla-
bygginga, og æskulýðsstarf hefur
lengi verið þróttmikið og fjöl-
breytt i Kópavogi og má segja, að
á félagslega sviðinu hafi kröftun-
um einkum verið beint að þvi að
liðsinna ungu fólki og frjálsum
félögum. Ellilifeyrisþegar hafa til
þessa verið hlutfallslega mjög fá-
ir i Kópavogi, en þeim mun stór-
fjölga á næstunni, þvi frumbyggj-
ar bæjarins, sem voru um og inn-
an við miðjan aldur, þegar byggð
hófst að marki i Kópavogi upp úr
striðinu,eru nú orðnir rosknir.
Elliheimili er ekkert i Kópa-
vogi, en á siðustu árum hefur
ýmiss konar aðstoð við aldraða
eflst mjög I bænum fyrir tilstilli
Félagsmálastofnunar bæjarins.
Heimilishjálp hefur verið aukin,
samkomur hafa verið haldnar
með gömlum Kópavogsbúum og
farið hefur verið i leikhús og
ferðalög með þá, nokkrum sinn-
um á ári. Hafa ferðalögin og sam-
komurnar notið mikilla vinsælda.
Það var rætt i bæjarstjórn
Kópavogs i lok siðasta kjörtima-
bils að koma upp dagvistunarað-
stöðu fyrir aldraða Kópavogsbúa,
þar sem þeir gætu haft margvis-
lega tómstundaiðju, rabbað sam-
an um áhugamál sin og notið
ýmiss konar félagslegrar fyrir-
greiðslu á daginn, en farið heim
til sin aö kvöldi eða hvenær sem
þá lysti á deginum. Slik aðstaða
getur veitt gömlu fólki margar
ánægjustundir, léttir heimilishald
þess og léttir að auki nokkuð á
þörfinni fyrir elliheimili, sem eru
mjög dýr i rekstri og hálfgert
neyðarbrauð i augum margra
aldraðra. Var gerð um það sam-
þykkt i fyrri bæjarstjórn að leitað
væri samninga við Miðbæ hf, sem
var þá að hefja byggingu þriggja
húsa i miðbæ Kópavogs um kaup
á húsnæði þar til þessara nota.
Siðari hluta árs i fyrra lenti
Kópavogskaupstaður i fjárhags-
erfiðleikum eins og flest stór
sveitarfélög hérlendis vegna
verðbólguþróunarinnar, og var
þvi ekkert fé handbært til þess að
leggja i húsakaup þessi.
Byggingarframkvæmdir á mið-
bæjarsvæðinu gengu lika hægar
en gert hafði verið ráð fyrir, og lá
málið þvi i láginni um sinn. Hins
vegar beitti núverandi bæjar-
stjórn sér fyrir þvi, að öryrkja-
bandalag íslands tók að sér að
byggja eitt húsa þeirra, sem Mið-
bær ætlaði sér að byggja, og mun
bandalagið reka hús þetta, sem i
verða um 40 ibúðir fyrir öryrkja,
á sama hátt og húseignir sinar i
Reykjavik, en Kópavogsbúar
njóta forgangs að öðru jöfnu til
dvalar i þvi.
Þegar ákveðið var, að öryrkja-
bandalagið byggði þetta hús, var
ljóst, að enn æskilegra var orðið
en áður, að dagvistunaraðstaða
fyrir aldraða Kópavogsbúa yrði
einnig á þessu svæði. Sennilegt
er, að ekki verði mikið um nægi-
lega stórt leiguhúsnæöi fyrir slika
starfsemi á miðbæjarsvæðinu i
framtiðinni, og ef svo yrði, myndi
húsaleiga þar verða mjög há.
Telja bæjaryfirvöld þvi nauðsyn-
legt að festa kaup á húsnæði til
þessara nota, og forráðamenn
Miöbæjar hf. hafa lýst sig reiðu-
búna til samninga um kaup á ca.
800 fermetra húsnæði i þessu
skyni. Til þessara kaupa skortir
bæjarsjóð Kópavogs fé, og þvi
hefur verið ákveðið að reyna að fá
erlent lán til hluta af kaupunum.
1 viðtali við Timann sögðust
bæjarfulltrúar Framsóknar-
manna i Kópavogi, þeir Jóhann
H. Jónsson og Magnús Bjarn-
freðsson vonast til, að úr þessum
kaupum gæti orðið. „Þegar hús
öryrkjabandalagsins er risið og
þessi aðstaða komin i Kópavogi,
má segja, að Grettistaki hafi ver-
iðlyft i málefnum aldraðra i bæn-
um á stuttum tima,” sögðu þeir,
„þótt auðvitað biði fjölmörg önn-
ur verkefni á þessu sviði”.
f EKKI \
UTANVEGA)
LAWDVERND
Unniö vift aft dýpka nýju hafnarkvina I Noröfirfti. Tfmamynd ET.
Nýja höfnln i Neskaupsstað gerð á þurru:
Sjónum hleypt inn í
kvína í september
HHJ-Rvik. — Ef allt gengur aft
óskum, hleypum viö sjónum inn I
nýju hafnarkvina i septemberlok,
sagfti Ragnar Sigurftsson, hafnar-
stjóri i Neskaupstaft, I vifttali vift
Timann I gær. Nýja höfnin er i
botni fjarftarins, og aft henni er
unnift meft þeim nýstárlega hætti,
aft hún er gerft á þurru. Byrjaft
var á þvi aft loka botni fjarftarins
meft garfti, sjónum siftan dælt út,
og að þvi búnu var hafizt handa
um aft moka jarftveginum Iburtu.
Þegar er búið að aka brott um
það bil 120 þús. rúmmetrum af
jarðvegi. Aætlað er, að dýpkunin
kosti 50-60 milljónir króna, og
verður það fé tekiö af bráöa-
birgðafjárveitingu út á væntan-
legar fjárveitingar á næstu árum.
— Við ætlum að reyna að fá
stálþil frá Akureyri, sagöi
Ragnar. Það mun kosta um 40
milljónir króna, en þar við bætast
25 milljónir til þess aö koma þvi
niður. Þegar þessu er lokið höf
um við fengið 120-130 metra
langan viðlegukant, auk þess sem
gert er ráð fyrir kvi fyrir smá-
báta.Heildarkostnaður verður
120-130 milljónir.
Næsta sumar er siðan fyrir-
hugað að ganga frá
innsiglingunni.
Nú er unniö að þvl að skipu-
leggja svæðið kringum nýju
höfnina. Þar verður loðnu-
bræðslan, og hefur þegar verið
byrjað á undirstöðum verk-
smiöjuhússins. Vift ætlum okkur
aö koma bræöslunni I gagnið fyrir
næstu loðnuvertið, og ég held aö
þaö takist, sagði Ragnar. Nú er
að mestu búið að gera viö þau
tæki, sem unnt er að gera við, og
önnur ný komin hingaö austur.
Við bræðsluna verða tveir stórir
lýsisgeymar og fimm hráefnis-
geymar, auk svartoliugeyma.
Þá hefur BP sótt um að fá að
reisa sex oliugeyma á nýju
uppfyllingunni, og er ætlunin aft
reisa þá i tveimur áföngum, þrjá
og þrjá I hvorum.
Auk þessara fyrirtækja er
áætlað að Bifreiðaþjónustan og
málmsmiðjan Glgja reisi hús
undir starfsemi sina á nýja
hafnarsvæðinu.
Imrlf
Ir
Vrrrf
n
Ji , j^rj
1
Veiðihornið reyndi mikið til að ná fregnum af
veiði Finnlandsforseta i Viðidaisá I gær, en það
var rétt eins og allt fólkið úr veiðihúsinu væri úti
við —og simstöðin lokaði kl. 8 svo að við erum
fregniausir þaðan I dag, þvi miður.
#
Steingrimur Atlason hjá Stangveiðifélagi
Hafnarfjarðar veitti Veiðihorninu i gær upplýs-
ingar um veiðisvæði félagsins og sagði okkur af
veiði þar. Þess skal sérstaklega getiö, að veiði-
leyfi eru seld I Essostööinni við Reykjavikurveg
og Nýju bilastöðinni I Hafnarfirði. Þar geta
menn einnig keypt sér svokölluð sumarkort,
sem til dæmis i Kleifarvatni kosta 1200 krónur
yfir sumarið. og mega menn þá veiöa þar
hvenær sem þeir vilja, en stöngin kostar annars
200 krónur á dag.
Hlíðarvatn
Þar hefur veiði verið eindæma góð i sumar og
mikil ásókn i veiðileyfi. Hafa þau öll verið upp-
seld til þessa. Nú mun eitthvað vera fáanlegt af
leyfum siðari hluta mánaðarins, og kosta þau
800 krónur.
Djúpavatn
Suðurnesin eru ekki rik af veiðiám en þar er
hinsvegar að finna góð veiðivötn. Djúpavatn er
ekki i alfaraleið, en þar þykir dásamlegur staður
til veiöa og útivistar. Til að komast þangað fer
maður upp af Vatnsskarði og suður með Sveiflu-
hálsi, og þá kemur maður að vatninu suðaustan i
Trölladyngju.
Þarna hefur verið mikil ásókn i veiðileyfi, en
eitthvað fer að verða fáanlegt af þeim. Þau
kosta 500 krónur.
Kleifarvatn
I Kleifarvatni hafa veiðzt nokkuð stórir fiskar
i sumar og ekki er að spyrja að magninu þar
hafa veiðzt allt að 70-80 á stöngina á dag en þeir
eru nú ekki allir stórir, þó vel ætir, svipaðir og
murtan i Þingvallavatni. Veiðin i Kleifarvatni er
helzt sunnan til, og þar hefur veriö hægt að fá
veiðileyfi i allt sumar, þvi að vatnið er stórt og
veiðileyfin nánast ótakmörkuð. Þau kosta 200
krónur.
Eldvatn í Meðallandi
Þá hefur félagið á leigu Eldvatn i Meðallandi,
og þar er góð sjóbirtingsveiði og von um lax sið-
ari hluta sumars. Nú er laxveiðin hafin, og um
siðustu helgi voru komnir 12-13 laxar á land.
Flókadalsá í Borgarfirði
Loks hefur félagið Flókadalsá á leigu aö hálfu
á móti Keflvikingum. Þar hefur veriö góð veiði i
allt sumar og öll veiðileyfi löngu uppseld. Laxinn
þar er fremur smár, en hinsvegar veiðist hann
vel þarna.
#
Elliðaárnar
Friðrik Stefánsson hjá Stangveiöifélagi
Reykjavikur veitti blaðinu þær upplýsingar i
gær, að upp úr Elliðaánum væru komnir 1430
laxar á þessu sumri, en á sama tima i fyrra
höfðu veiðzt 1383 laxar. Það er eftirtektarvert,
að fjórði hver lax á þessu sumri hefur veiðzt á
flugu, eða samtals 349 laxar. Þyngsti flugulax-
inn var 16 pund, hann veiddist þann 13. ágúst á
HS-Streamer flugu.
Svo virðist sem siöustu dagana hafi veiði
aukizt, og undanfarna þrjá daga hafa að meðal-
tali veiðzt um 30laxar á dag iánum.