Tíminn - 16.08.1975, Page 6
6
TÍMINN
Laugardagur 16. ágúst 1975
233 leiguíbúðir eru
nú í smíðum d veg-
um 43 sveitarfélaga
r
Sérfræðingur
frá S.Þ. kannar
húsnæðismálin
Vorið 1973 samþykkti Alþingi,
sem kunnugt er, heimild til handa
Húsnæðismálastofnuninni til þess
að veita lán, er næmi allt að 80%
byggingarkostnaðar til bygging-
ar allt að 1000 leiguibúða á vegum
sveitarfélaga utan Reykjavikur.
Hefur siðan mjög mikið verið
unnið að þessu máli, bæði i stofn-
uninni sjálfri sem og á vegum
sveitaríélaganna.
Staðan i þvi er nú sú, aö stofn-
unin hefur heimilað 57 sveitar-
stjórnum að hefja tæknilegan
undirbúning að byggingu samtals
339 ibúða, þar af hafa 24 sveitar-
stjórnum verið veitt lán að fjár- lögum.
hæð samtals 692 millj. króna, er
koma munu til greiðslu á
byggingartimanum, til byggingar
170 leiguibúða: þá hafa einnig 19
sveitarstjórnir af hinum framan-
greindu 57 sveitarstjórnum fengið
heimild stofnunarinnar til þess að
hefja framkvæmdir fyrir eigið fé
við byggingu 63 ibúða. Má þvi
segja að á ýmsum fram-
kvæmdarstigum séu nú 233 leigu-
ibúðir, i sumum tilfellum eru
framkvæmdir að hefjast, i flest-
um tilfellum eru þær komnar vel
á veg og nokkrar ibúðir eru þegar
fullgerðar og komnar i notkun.
Þessar ibúðir eru i 43 sveitarfé-
Húsnæðismálastofnunin hefur
óskað eftir þvi við sveitar-
stjórnirnar, að þær leitist við að
samræma sem mest fram-
kvæmdir þessar og standa sem
mest saman að útboðum og inn-
kaupum, enda greinilegt hve
mikla þýðingu það hefur i svo
miklu verkefni sem þessu. Mun
stofnunin leggja aukna áherzlu á
að samvinna og samstaða þess-
ara aðila veröi sem mest svo aö
byggingarkostnaður verði eigi
meiri en brýnasta nauðsyn
krefur.
ö.B. Reykjavik. — Undanfarna
daga hefur dválið hér á landi sér-
fræðingur i húsnæðismálum, er
hingað kom á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Tilgangur ferðar hans,
var að afla gagna og upplýsinga
um húsnæðismál landsmanna á
vegum húsnæðismálastofnunar
S.Þ., og er ætlunin að vinna úr
þessum gögnum i vetur og munu
tillögur þvi berast frá stofnuninni
seinni part næsta vetrar eða að
vori.
Sérfræðingur þessi, prófessor
dr. Helmut W. Jenkins, hefur
farið viða um lönd á vegum
Sameinuðu þjóðanna til ráð-
gjafarstarfa á þeirra vegum Atti
hann fundi með ýmsum forystu-
mönnum á sviðum húsnæðis-
efnahags- og fjármála. Tildrög
þessarar ferðar próf. dr. Jenkins
er sú að tæknideild Sameinuðu
þjóðanna vildi veita okkur aðstoð
og leiðbeiningar á þessum sviðum
án endurgjalds og kom utanrikis-
þjónustan þessu til skila til
Húsnæðismálastofnunar rikisins
sem þá boðið.
Að sögn Sigurðar E. Guð-
mundssonar, foi;stjóra Húsnæðis-
málastofnunar rikisins eru
menn bjartsýnir á að góður
árangur náist á sviði húsnæðis-
mála með samstarfi þessu.
Byggingasjóður lónar
til 256 íbúða í 7 elli-
og dvalarheimilum
Fyrir skömmu voru teknar
ákvarðanir um lánveitingar úr
byggingasjóði rikisins til bygg-
ingar samtals 256 ibúða i 7 elli- og
dvalarheimilum i 6 byggðarlög-
um i landinu. Nemur það fjár-
magn samtals 411 milljónum
króna, sem veitt er að láni i þess-
um tilgangi. Þeir aðilar, sem hér
um ræðir eru þessir:
Dvalarheimilið Höfði, Akranesi:
40,3 millj. kr. til byggingar 38
Ibúða. Dvalarheimili aldraöra á
Hellu: 20,4 millj. kr. til byggingar
12 ibúða. Elliheimilið As, Hvera-
gerði: 10 millj. kr. til byggingar 6
ibúða. Dvalarheimili aldraðra
sjómanna, Hafnarfiröi: 129,2
millj. kr. til byggingar 76 ibúða
Dvalarheimili aldraðra, Dalvik:
34 millj. kr. til byggingar 20
ibúða. Dvalarheimili aldraðra,
Furugerði 1, Reykjavlk: 125.8
millj. kr. til byggingar 74 Ibúöa.
Lántakandi: Borgarsjóöur
Reykjavikur. Dvalarheimili aldr-
aðra, Hafnarfirði (lántakandi:
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar): 51
millj.kr. til byggingar 30 Ibúða
við Alfaskeið 64.)
Lán þessi verða öll greidd út á
byggingartimanum, með föstum
mánaðargreiðslum, i samræmi
við gang byggingarframkvæmd-
anna. Eru fyrstu framkvæmdir
þegar hafnar en ekki er reiknað
með að þeim verði allsstaðar lok-
ið fyrr en I árslok 1978. Húsnæðis-
málastofnunin mun óska eftir þvi
og leggja þunga áherzlu á það við
alla þessa aðila, að þeir leitist við
að samræma efniskaup sin og út-
boð, þannig, að unnt verði að
stefna að sem hóflegustum
byggingarkostnaði • á grundvelli
sameiginlegra innkaupa og fram-
kvæmda.
Til fróðleiks má einnig geta
þess.að öryrkjabandalag íslands
hefur nú hafiö byggingu 40 Ibúöa
fyrir aldraöa i fjölbýlishúsi i
Kópavogi og jafnframt sótt um
byggingarlán til Húsnæðismála-
stofnunarinnar að fjárhæö 68
millj. króna til byggingar þess.
Liggur þaö mál nú fyrir hús-
næöismálastjórn til afgreiðslu.
Sveitastjórnir geta ekki
boðið forkaupsrétt að
leiguíbúðum eftir 5 ár
Eins og kunnugt er samþykkti
Alþingi sl. vor að heimilt skyldi
að verja allt að 160 millj. króna
samtals úr Byggingasjóöi rikisins
til lánveitinga vegna kaupa á
eldri ibúðum. Hefur nú fyrsta lán-
veitingin á grundvelli þessarar
ákvörðunar farið fram. Er hér
um að ræða lánveitingu þeim um-
sækjendum til handa, er lögðu
fram umsóknir i stofnuninni fyrir
1. aprilsl. Hefur verið ákveðið að
sú lánveiting skuli koma til
greiðslu frá og með 15-ágúst n.k.
Að meðaltali námu lánin sem
næst kr. 310.000.00 pr. Ibúö.
Til fróðleiks má geta þess, að
fyrsta ársgreiðsla sliks láns, að
fjárhæð kr. 300.000,00 (sem er til
15 ára) á hinum nýju kjörum
(6.25% vextir og 4/10 verðtrygg-
ing ársgjaldsins) næmi kr.
31.395.00, væri sú greiðsla innt af
hendi nú.
Eins og áður segir kemur til
greiðslu eftir 15. ágúst nk. lán-
veiting þeim til handa, er sótt
höfðu um lán fyrir 1. april sl. til
kaupa á eldri ibúðum. Nemur húh
samtals 100,5millj. króna, þar af I
Reykjavik 56,7 millj. króna.
Jafnframt þessu hefur verið
ákveðin veiting framhaldslána
(,,seinni-hluta-lána”) þeim til
handa, er fengu frumlán sin
greidd út eftir 20. desember sl.
Kemur sú lánveiting til greiðslu
eftir 10. september nk. og mun
nema 434 millj. króna. Er hér að
sjálfsögðu um byggingarlán að
ræða. Þá hefur einnig veriö
ákveðin veiting fyrstu lána þeim
til handa, er sendu stofnuninni
lánsumsóknir sinar fyrir 1.
febrúar 1 ár og sendu henni
fokheldisvottorð vegna húsa
sinna fyrir 1. april. i ár. Mun sú
lánveiting væntanlega nema 135
millj. króna og kemur til útborg-
unar eftir 1. september nk.
Hið nýja byggingarlán, sem
nemur kr. 1700.00.00 pr. ibúð,
gildir fyrir ibúðir I þeim húsum,
er framkvæmdir hófust við á
árinu 1974 eða 1975 og fokheld
verða á þessu ári. öll önnur lán
verða óbreytt. Aðeins þarf að
leggja fram eina lánsumsókn
vegna lána þessara, þ.e. þá, sem
lögð er fram i upphafi. Er það
breyting frá þvi, sem til þessa
hefur verið. Þá hefur einnig verið
ákveðið, að hin nýju byggingar-
lán skuli koma til greiðslu i þrem-
ur hlutum, þannig, að fyrsti hlut-
inn nemi 600 þús. krónum, annar
hluti nemi sömu fjárhæð og hinn
þriðji 500 þús. krónum, annar
hluti nemi sömu fjárhæð og innan
6 mánaða frá fyrsta greiðsludegi
lánveitingarinnar falla þeir úr
gildi.
UM LANVEITINGAR
Undanfarið hafa nokkrar
sveitarstjórnir boðið til sölu
skuldabréf, er nemi allt að 20%
byggingarkostnaðar leiguibúöa
þeirra,sem byggðar eru skv. lög-
um nr. 59/1973. Kveða þau, sem
kunnugt er m.a. á um það, að
heimilt sé að veita lán, er nemi
allt að 80% byggingarkostnaðar
úr Byggingarsjóði rikisins til
smiði þeirra. Jafnframt þessu
hafa sumar sveitarstjórnirnar til-
kynnt, að skuldabréfakaupin veiti
kaupendum bréfanna forgangs-
rétt til kaupa á viðkomandi leigu-
ibúð eða leiguibúðum, að 5 árum
liðnum. Auglýsingar af þessu tagi
geta verið mjög villandi og er þvi
nauðsynlegt að fara þess á leit við
sveitarstjórnir, að þær láti það
ógert að birta þær. Að visu er
heimilað i rlg. nr. 45/1974 að gera
forkaupsréttarsamninga af þessu
tagi við einstaklinga, er kaupa
framangreind skuldabréf, en þar
er lika skýrt kveðið á um:
— að óheimilt sé að selja ibúð-
irnar fyrstu 5 árin eftir að þær eru
teknar i notkun:
— að hafi aöstæöur i sveitarfél
breytzt að þeim tima liönum geti
sveitarstjórn sótt um heimild
húsnæðismálastjórnar til að selja
ibúðirnar. I dag verður að sjálf-
sögðu ekki séð fyrir hvort eða að
hvaða leyti aðstæður breytast i
hinum ýmsu sveitarfélögum eða
hver staðan verður þar að 5 árum
liðnum, svo að ekki sé talað um
lengri tima. 1 dag verður heldur
ekkert vitað úm það hver afstaða
húsnæðismálastjórnar verður þá
til slikra erinda. Verður þvi ekki
séð, að sveitarstjórnir geti nú
gert forkaupsréttarsamninga við
skuldabréfakaupendur á þessum
grundvelli:
— að hugsanlegir kaupendur
slikra Ibúða verða að uppfylla
skilyrði reglugerðar nr. 27*2/1974
(um verkamannabústaði) varð-
andi hámark eigna og tekna, eins
og það er ákveðið af Félagsmála-
ráðuneytinu næstu áramót á
undan. Samkvæmt þvi verður
ekki séð, að unnt sé að gera for
kaupsréttarsamning við skulda-
bréfakaupanda/leigutaka i dag,
þar sem engin vissa er fyrir hendi
um það, að hann uppfylli framan-
greind skilyrði rlg. nr. 272/1974
um hámark eigna og tekna, eftir 5
ár eða lengri tima
Samkvæmt þessu er þvi ljóst,
að sú aðstaða, sem sveitarstjórn
hefur, skv. 2.mgr. 8. gr. rlg. nr.
45/1974, til þess að bjóða væntan-
legum skuldabréfakaupendum
forkaupsrétt að umræddum ibúð-
um, er vægast sagt mjög tak-
mörkuð og i meira lagi hæpið að
gera þeim slik boð, enda framan-
greindir annmarkar i rauninni
þess eðlis, að engu er hægt að
heita skuldabréfakaupendum um
forkaupsrétt á ibúðum þessum.
NYBREYTNI I
LÁNSKJÖRUM
HÚSNÆÐIS-
AAÁLASTJÓRNAR
Breyting hefur orðið á vöxtum
og verötryggingu lána þeirra,
sem húsnæðismálastjórn veitir úr
Byggingasjóði rikisins. Voru
grunnvextir lána þeirra (F-lán og
G-lán) áður 5.25% en eru nú orð-
nir 6.25%. Með sama hætti nam
verðtryggingin áður 3/10 af
hækkun byggingarvisitölu en
nemur nú 4/10. Eru þessi nýju
kjör á öllum þeim lánum úr
Byggingasjóði rikisins, er komið
hafa til greiðslu siðan 1. júli sl.
Húsnæðismálastjórn hefur
tekið upp nýtt verðtryggingakerfi
sem greiða skal um leið og vexti.
Verðtryggingunni er þannig hátt-
að, að á hverjum gjalddaga ár-
gjalds ber auk þess að greiða
verðtryggingarálag sem hlut-
fallslega viðbót við árgjaldið,
sem svarar 4/10 — fjórum tiundu
— þeirrar hækkunar, er hverju
sinni kann að hafa orðið á gild-
andi visitölu byggingarkostnaðar
frá lántökutima til hvers gjald-
daga árgjalds eða greiösludags,
dragist greiðsla fram yfir gjald-
daga.
Eins og áður segir gildir þessi
nýja skipan fyrir öll þau lán, sem
veitt hafa verið úr Byggingasjóði
rikisins síðan hinn 1. júli sl. Tók
rikisstjórnin ákvörðun þessa að
fengnum tillögum húsnæðismála-
stjórnar, eins og fyrir er mælt i
lögum.
Byggingarlán Húsnæðismála-
stofnunarinnar (F-lán) eru sem
kunnugt er til 26 ára. Fyrsta árið
eru aðeins greiddir vextir en öll
önnur ár lánstimans samanstend-
ur hvert árgjald af vöxtum og af-
borgun. Fyrsta árgjald af sllku
láni, er kæmi nú til greiðslu,
næmi kr. 136.161.00 og er þá álag
af völdum visitölu að sjálfsögðu
ekki reiknað með.
Úr fréttabréfi Húsnæðismálastjórnar ríkisins