Tíminn - 16.08.1975, Blaðsíða 6

Tíminn - 16.08.1975, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Laugardagur 16. ágúst 1975 233 leiguíbúðir eru nú í smíðum d veg- um 43 sveitarfélaga r Sérfræðingur frá S.Þ. kannar húsnæðismálin Vorið 1973 samþykkti Alþingi, sem kunnugt er, heimild til handa Húsnæðismálastofnuninni til þess að veita lán, er næmi allt að 80% byggingarkostnaðar til bygging- ar allt að 1000 leiguibúða á vegum sveitarfélaga utan Reykjavikur. Hefur siðan mjög mikið verið unnið að þessu máli, bæði i stofn- uninni sjálfri sem og á vegum sveitaríélaganna. Staðan i þvi er nú sú, aö stofn- unin hefur heimilað 57 sveitar- stjórnum að hefja tæknilegan undirbúning að byggingu samtals 339 ibúða, þar af hafa 24 sveitar- stjórnum verið veitt lán að fjár- lögum. hæð samtals 692 millj. króna, er koma munu til greiðslu á byggingartimanum, til byggingar 170 leiguibúða: þá hafa einnig 19 sveitarstjórnir af hinum framan- greindu 57 sveitarstjórnum fengið heimild stofnunarinnar til þess að hefja framkvæmdir fyrir eigið fé við byggingu 63 ibúða. Má þvi segja að á ýmsum fram- kvæmdarstigum séu nú 233 leigu- ibúðir, i sumum tilfellum eru framkvæmdir að hefjast, i flest- um tilfellum eru þær komnar vel á veg og nokkrar ibúðir eru þegar fullgerðar og komnar i notkun. Þessar ibúðir eru i 43 sveitarfé- Húsnæðismálastofnunin hefur óskað eftir þvi við sveitar- stjórnirnar, að þær leitist við að samræma sem mest fram- kvæmdir þessar og standa sem mest saman að útboðum og inn- kaupum, enda greinilegt hve mikla þýðingu það hefur i svo miklu verkefni sem þessu. Mun stofnunin leggja aukna áherzlu á að samvinna og samstaða þess- ara aðila veröi sem mest svo aö byggingarkostnaður verði eigi meiri en brýnasta nauðsyn krefur. ö.B. Reykjavik. — Undanfarna daga hefur dválið hér á landi sér- fræðingur i húsnæðismálum, er hingað kom á vegum Sameinuðu þjóðanna. Tilgangur ferðar hans, var að afla gagna og upplýsinga um húsnæðismál landsmanna á vegum húsnæðismálastofnunar S.Þ., og er ætlunin að vinna úr þessum gögnum i vetur og munu tillögur þvi berast frá stofnuninni seinni part næsta vetrar eða að vori. Sérfræðingur þessi, prófessor dr. Helmut W. Jenkins, hefur farið viða um lönd á vegum Sameinuðu þjóðanna til ráð- gjafarstarfa á þeirra vegum Atti hann fundi með ýmsum forystu- mönnum á sviðum húsnæðis- efnahags- og fjármála. Tildrög þessarar ferðar próf. dr. Jenkins er sú að tæknideild Sameinuðu þjóðanna vildi veita okkur aðstoð og leiðbeiningar á þessum sviðum án endurgjalds og kom utanrikis- þjónustan þessu til skila til Húsnæðismálastofnunar rikisins sem þá boðið. Að sögn Sigurðar E. Guð- mundssonar, foi;stjóra Húsnæðis- málastofnunar rikisins eru menn bjartsýnir á að góður árangur náist á sviði húsnæðis- mála með samstarfi þessu. Byggingasjóður lónar til 256 íbúða í 7 elli- og dvalarheimilum Fyrir skömmu voru teknar ákvarðanir um lánveitingar úr byggingasjóði rikisins til bygg- ingar samtals 256 ibúða i 7 elli- og dvalarheimilum i 6 byggðarlög- um i landinu. Nemur það fjár- magn samtals 411 milljónum króna, sem veitt er að láni i þess- um tilgangi. Þeir aðilar, sem hér um ræðir eru þessir: Dvalarheimilið Höfði, Akranesi: 40,3 millj. kr. til byggingar 38 Ibúða. Dvalarheimili aldraöra á Hellu: 20,4 millj. kr. til byggingar 12 ibúða. Elliheimilið As, Hvera- gerði: 10 millj. kr. til byggingar 6 ibúða. Dvalarheimili aldraðra sjómanna, Hafnarfiröi: 129,2 millj. kr. til byggingar 76 ibúða Dvalarheimili aldraðra, Dalvik: 34 millj. kr. til byggingar 20 ibúða. Dvalarheimili aldraðra, Furugerði 1, Reykjavlk: 125.8 millj. kr. til byggingar 74 Ibúöa. Lántakandi: Borgarsjóöur Reykjavikur. Dvalarheimili aldr- aðra, Hafnarfirði (lántakandi: Bæjarsjóður Hafnarfjarðar): 51 millj.kr. til byggingar 30 Ibúða við Alfaskeið 64.) Lán þessi verða öll greidd út á byggingartimanum, með föstum mánaðargreiðslum, i samræmi við gang byggingarframkvæmd- anna. Eru fyrstu framkvæmdir þegar hafnar en ekki er reiknað með að þeim verði allsstaðar lok- ið fyrr en I árslok 1978. Húsnæðis- málastofnunin mun óska eftir þvi og leggja þunga áherzlu á það við alla þessa aðila, að þeir leitist við að samræma efniskaup sin og út- boð, þannig, að unnt verði að stefna að sem hóflegustum byggingarkostnaði • á grundvelli sameiginlegra innkaupa og fram- kvæmda. Til fróðleiks má einnig geta þess.að öryrkjabandalag íslands hefur nú hafiö byggingu 40 Ibúöa fyrir aldraöa i fjölbýlishúsi i Kópavogi og jafnframt sótt um byggingarlán til Húsnæðismála- stofnunarinnar að fjárhæö 68 millj. króna til byggingar þess. Liggur þaö mál nú fyrir hús- næöismálastjórn til afgreiðslu. Sveitastjórnir geta ekki boðið forkaupsrétt að leiguíbúðum eftir 5 ár Eins og kunnugt er samþykkti Alþingi sl. vor að heimilt skyldi að verja allt að 160 millj. króna samtals úr Byggingasjóöi rikisins til lánveitinga vegna kaupa á eldri ibúðum. Hefur nú fyrsta lán- veitingin á grundvelli þessarar ákvörðunar farið fram. Er hér um að ræða lánveitingu þeim um- sækjendum til handa, er lögðu fram umsóknir i stofnuninni fyrir 1. aprilsl. Hefur verið ákveðið að sú lánveiting skuli koma til greiðslu frá og með 15-ágúst n.k. Að meðaltali námu lánin sem næst kr. 310.000.00 pr. Ibúö. Til fróðleiks má geta þess, að fyrsta ársgreiðsla sliks láns, að fjárhæð kr. 300.000,00 (sem er til 15 ára) á hinum nýju kjörum (6.25% vextir og 4/10 verðtrygg- ing ársgjaldsins) næmi kr. 31.395.00, væri sú greiðsla innt af hendi nú. Eins og áður segir kemur til greiðslu eftir 15. ágúst nk. lán- veiting þeim til handa, er sótt höfðu um lán fyrir 1. april sl. til kaupa á eldri ibúðum. Nemur húh samtals 100,5millj. króna, þar af I Reykjavik 56,7 millj. króna. Jafnframt þessu hefur verið ákveðin veiting framhaldslána (,,seinni-hluta-lána”) þeim til handa, er fengu frumlán sin greidd út eftir 20. desember sl. Kemur sú lánveiting til greiðslu eftir 10. september nk. og mun nema 434 millj. króna. Er hér að sjálfsögðu um byggingarlán að ræða. Þá hefur einnig veriö ákveðin veiting fyrstu lána þeim til handa, er sendu stofnuninni lánsumsóknir sinar fyrir 1. febrúar 1 ár og sendu henni fokheldisvottorð vegna húsa sinna fyrir 1. april. i ár. Mun sú lánveiting væntanlega nema 135 millj. króna og kemur til útborg- unar eftir 1. september nk. Hið nýja byggingarlán, sem nemur kr. 1700.00.00 pr. ibúð, gildir fyrir ibúðir I þeim húsum, er framkvæmdir hófust við á árinu 1974 eða 1975 og fokheld verða á þessu ári. öll önnur lán verða óbreytt. Aðeins þarf að leggja fram eina lánsumsókn vegna lána þessara, þ.e. þá, sem lögð er fram i upphafi. Er það breyting frá þvi, sem til þessa hefur verið. Þá hefur einnig verið ákveðið, að hin nýju byggingar- lán skuli koma til greiðslu i þrem- ur hlutum, þannig, að fyrsti hlut- inn nemi 600 þús. krónum, annar hluti nemi sömu fjárhæð og hinn þriðji 500 þús. krónum, annar hluti nemi sömu fjárhæð og innan 6 mánaða frá fyrsta greiðsludegi lánveitingarinnar falla þeir úr gildi. UM LANVEITINGAR Undanfarið hafa nokkrar sveitarstjórnir boðið til sölu skuldabréf, er nemi allt að 20% byggingarkostnaðar leiguibúöa þeirra,sem byggðar eru skv. lög- um nr. 59/1973. Kveða þau, sem kunnugt er m.a. á um það, að heimilt sé að veita lán, er nemi allt að 80% byggingarkostnaðar úr Byggingarsjóði rikisins til smiði þeirra. Jafnframt þessu hafa sumar sveitarstjórnirnar til- kynnt, að skuldabréfakaupin veiti kaupendum bréfanna forgangs- rétt til kaupa á viðkomandi leigu- ibúð eða leiguibúðum, að 5 árum liðnum. Auglýsingar af þessu tagi geta verið mjög villandi og er þvi nauðsynlegt að fara þess á leit við sveitarstjórnir, að þær láti það ógert að birta þær. Að visu er heimilað i rlg. nr. 45/1974 að gera forkaupsréttarsamninga af þessu tagi við einstaklinga, er kaupa framangreind skuldabréf, en þar er lika skýrt kveðið á um: — að óheimilt sé að selja ibúð- irnar fyrstu 5 árin eftir að þær eru teknar i notkun: — að hafi aöstæöur i sveitarfél breytzt að þeim tima liönum geti sveitarstjórn sótt um heimild húsnæðismálastjórnar til að selja ibúðirnar. I dag verður að sjálf- sögðu ekki séð fyrir hvort eða að hvaða leyti aðstæður breytast i hinum ýmsu sveitarfélögum eða hver staðan verður þar að 5 árum liðnum, svo að ekki sé talað um lengri tima. 1 dag verður heldur ekkert vitað úm það hver afstaða húsnæðismálastjórnar verður þá til slikra erinda. Verður þvi ekki séð, að sveitarstjórnir geti nú gert forkaupsréttarsamninga við skuldabréfakaupendur á þessum grundvelli: — að hugsanlegir kaupendur slikra Ibúða verða að uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 27*2/1974 (um verkamannabústaði) varð- andi hámark eigna og tekna, eins og það er ákveðið af Félagsmála- ráðuneytinu næstu áramót á undan. Samkvæmt þvi verður ekki séð, að unnt sé að gera for kaupsréttarsamning við skulda- bréfakaupanda/leigutaka i dag, þar sem engin vissa er fyrir hendi um það, að hann uppfylli framan- greind skilyrði rlg. nr. 272/1974 um hámark eigna og tekna, eftir 5 ár eða lengri tima Samkvæmt þessu er þvi ljóst, að sú aðstaða, sem sveitarstjórn hefur, skv. 2.mgr. 8. gr. rlg. nr. 45/1974, til þess að bjóða væntan- legum skuldabréfakaupendum forkaupsrétt að umræddum ibúð- um, er vægast sagt mjög tak- mörkuð og i meira lagi hæpið að gera þeim slik boð, enda framan- greindir annmarkar i rauninni þess eðlis, að engu er hægt að heita skuldabréfakaupendum um forkaupsrétt á ibúðum þessum. NYBREYTNI I LÁNSKJÖRUM HÚSNÆÐIS- AAÁLASTJÓRNAR Breyting hefur orðið á vöxtum og verötryggingu lána þeirra, sem húsnæðismálastjórn veitir úr Byggingasjóði rikisins. Voru grunnvextir lána þeirra (F-lán og G-lán) áður 5.25% en eru nú orð- nir 6.25%. Með sama hætti nam verðtryggingin áður 3/10 af hækkun byggingarvisitölu en nemur nú 4/10. Eru þessi nýju kjör á öllum þeim lánum úr Byggingasjóði rikisins, er komið hafa til greiðslu siðan 1. júli sl. Húsnæðismálastjórn hefur tekið upp nýtt verðtryggingakerfi sem greiða skal um leið og vexti. Verðtryggingunni er þannig hátt- að, að á hverjum gjalddaga ár- gjalds ber auk þess að greiða verðtryggingarálag sem hlut- fallslega viðbót við árgjaldið, sem svarar 4/10 — fjórum tiundu — þeirrar hækkunar, er hverju sinni kann að hafa orðið á gild- andi visitölu byggingarkostnaðar frá lántökutima til hvers gjald- daga árgjalds eða greiösludags, dragist greiðsla fram yfir gjald- daga. Eins og áður segir gildir þessi nýja skipan fyrir öll þau lán, sem veitt hafa verið úr Byggingasjóði rikisins síðan hinn 1. júli sl. Tók rikisstjórnin ákvörðun þessa að fengnum tillögum húsnæðismála- stjórnar, eins og fyrir er mælt i lögum. Byggingarlán Húsnæðismála- stofnunarinnar (F-lán) eru sem kunnugt er til 26 ára. Fyrsta árið eru aðeins greiddir vextir en öll önnur ár lánstimans samanstend- ur hvert árgjald af vöxtum og af- borgun. Fyrsta árgjald af sllku láni, er kæmi nú til greiðslu, næmi kr. 136.161.00 og er þá álag af völdum visitölu að sjálfsögðu ekki reiknað með. Úr fréttabréfi Húsnæðismálastjórnar ríkisins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.