Tíminn - 16.08.1975, Blaðsíða 16
5ÍMI I2S34
•HERRA
GARDURiNN
A-DAL5THÆT18
fyrirgóúan mai
^ KJÖTIDNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Bylting í Bangladesh
A. m. k. tvö hundruð af stuðningsmönnum AAujibur
Rahmans féllu í átökunum
Volvo
skatt-
frjálst
Reuter-Gautaborg. Forráöa-
menn Volvo-bifreiöaverk-
smiðjanna — sem er stærsta
iðnfyrirtæki i Svlþjóö — hafa
viðurkennt, að fyrirtækiö hafi
ekki greitt neinn skatt til
sænska rikisins, þrátt fyrir 411
milljón s.k.r (u.þ.b. 16
milljaröa isl. kr.) ágóöa á slð-
asta ári.
Aftonbladet skýrði frá þessu
I forsiðufrétt i fyrradag. Blað-
ið sagöi, að forráðamönnum
Volvo hefði tekizt að „skrapa
saman" svo marga frá-
dráttarliði, að útkoman heföi
að lokum orðið: NUll i skatta.
Talsmaður Volvo hefur lýst
þvi yfir, að fyrirtækið hafi að-
eins farið að sænskum lögum
— og þvi sé viö löggjafann að
sakast, en ekki forráðamenn
fyrirtækisins.
Gunnar Stráng fjármála-
ráðherra neitaði að segja álit
sitt á frétt Aftonbladets, fyrr
en hann hefði kynnt sér alla
málavexti. Erik Warneberg,
þingmaður sósialdemókrata
og formaður nefndar, sem er
að kynna sér skattlagningu
sænskra fyrirtækja, tók aftur
á móti djúpt i árinni: — Spurn-
ingin er fyrst og fremst þessi:
Getum við verið þekkt fyrir að
halda áfram á sömu braut? A
þessu stigi málsins er a.m.k.
hægt að segja, að fyrirtækið
noti gloppur I skattalöggjöf-
inni til hins Itrasta.
NTB/Reuter — Nýju-Delhi. t
fyrrinótt var gerð stjórnarbylting
I Bangladesh. t byltingunni var
Mujibur Rahman, fyrrum forseti,
tekinn af lifi.
Fréttir af byltingunni eru frem-
Portúgalskir komm
únistar vígreifir
hyggjast ná fótfestu að nýju í
norðurhluta Portúgals
Reuter-Lissabon. Portúgalskir
kommúnistar tilkynntu i gær, að
þeir ætluðu að efna til útifundar i
Alcobaca I norðurhluta Portú-
gals. En það var einmitt I Alco-
baca, er andstæðingar
kommúnista hófu andófsaðgerðir
sinar — aðgerðir, sem slðan hafa
breiðzt út, eins og eidur I sinu.
Alvaro Cunhal, leiðtogi
kommúnista, hélt ræðu á útifundi
i Lissabon I fyrrakvöld. Undir
dynjandi fagnaðarhrópum sagði
Cunhal, að kommúnistar væru
staðráðnir I að ná aftur fótfestu á
þeim stöðum, er þeir heföu verið
hraktir frá. Búast má við átökum
i sambandi við fyrirhugaðan uti-
fund þeirra i Alcobaca.
Margt bendir nú til, að
kommúnistar séu að endurskipu-
leggja baráttuaðferðir slnar eftir
það afhroð, er þeir hafa beðið.
Þannig hefur portúgalska verka-
lýðssambandið boðað til hálfrar
klukkustundar allsherjarverk-
falls til að mótmæla ofsóknunum i
garð kommúnista. (Þeir ráða
sem kunnugt er verkalýðssam-
bandinu.) Eins binda
kommúnistaleiðtogar miklar
vonir við þá yfirlýsingu, sem
runnin er undan rifjum Otelo
Saraiva de Carvalho hershöfð-
ingja. I yfirlýsingunni er m.a.
hvatt til einarðari vinstri stefnu.
Sakamála-
höfundar
þinga
Reuter-London. Þrjú hundruð
rithöfundar, er einkum hafa
fengizt við að skrifa leynilög-
reglusögur, koma saman til
fundar I London slðar á árinu.
Þetta er I fyrsta sinn, að saka-
málahöfundar hvaðanæva að
halda sérstakt ársþing.
. Það þykir sjálfsagt, að árs-
þingið sé haldið I London —
heimaborg hins snjalla leyni-
lögreglumanns Sherlock
Holmes. I ráði er, að þátttak-
endurnir kynni sér m.a.
„heimkynni" Holmes.
Að auki hlýða þeir á fyrir-
lestra um starfsaðferðir
brezku lögreglunnar og kynna
sér nýjungar á sviði lögreglu-
fræða.
Róstusamt á Norður-írlandi:
Fjöldi fólks særist í
sprengjutilræði
Reuter-Belfast-. Sprengja, sem
komið hafði verið fyrir I bifreið,
sprakk i gær úti fyrir aðalstöðv-
um Sinn Fein-flokksins I vestur-
hluta Belfast. Sprcngingin var
svo öflug, að bækistöðvarnar
stórskemmdust og fjöldi fólks
særðist.
Sirin Fein ej sem kunnugt er
stjórnmálaarmur írska lýð-
veldishersins (IRA), þótt flokkur-
inn taki engan þátt i hermdar-
verkum IRA.
Stór hópur kaþólskra safnaðist
saman úti fyrir bækistöðvunum
eftir sprengjutilræðið. Fólkið
byrjaði að kasta steinum og öðru
lauslegu að brezkum hermönn-
um, er komu á vettvang, en her-
mennirnir svöruðu með því að
skjóta viðvörunarskotum ilt I loft-
ið.
Að undanförnu hefur loft veriö
lævi blandið á Norður-írlandi.
Brezk hernaðaryfirvöld óttast, að
ný átök kaþólskra og mótmæl-
enda kunni að brjótast út þá og
þegar, enda bendir ekkert til, að
varaníegur friður komist á I ná-
inni framtið.
Brezkir her-
menn standa
vörð yfir
óróaseggj-
um á Norð-
ur-triandi
ur óljósar. Ljóst er þó, að þaö var
her landsins — ásamt nokkrum
fyrri stuðningsmönnum forsetans
— sem stóð að byltingunni. Talið
er, að hinir nýju valdhafar ætli
sér að snúa baki við sósialskri
stefnu fyrri stjórnar, svo og að
taka upp nánari samvinnu við
Arabariki. (Yfir 90% af Ibúum
Bangladesh játa múhameðstrú.)
Stuðningsmenn Mujibur Rah-
mans veittu viða mótspyrnu, og
er áætlað, að tvö hundruð manns
hafi fallið.
I gær sór Khondakar Mush-
taque Ahmed, fyrrum viðskipta-
ráðherra, embættiseið sem for-
seti. Hann var áður náinn sam-
starfsmaður Mujibur Rahmans.
Mujibur Rahman (t.v.): Ótvlræður þjóðarleiðtogi i Bangladesh, unz
rýtingur var rekinn I bak honum.
Umdeildum réttarhöldum í Banda-
ríkjunum lokið:
Little sýknuð
Reuter-Raleigh, Norður
Karólinufylki. 1 gær lauk I borg-
inni Raleigh i Bandarikjunum
réttarhöldum, er mikla athygli
hafa vakið. Blökkustúlka — Joan
Little að nafni — var ákærð fyrir
að hafa myrt fangavörð I fangelsi
þvi, er hún hafði setið I — dæmd
fyrir innbrot og þjófnað.
Kviðdómur kvað i gær upp þann
úrskurð, að Little hefði orðið
fangaverðinum að bana i sjálfs-
vörn, þvi að áöur hefði hann gerzt
áleitinn við hana. Þegar úr-
skurðurinn hafði verið lesinn upp,
gekk Little út úr réttarsalnum I
fylgd nokkurra Hfvarða úr sam-
tökunum „Blacíc Panthers" —
frjáls ferða sinna.
Sem áður segir hafa réttarhöld-
in vakið mikla athygli i Banda-
rikjunurri og viöar. Flest samtök
blökkumanna og kvenréttinda
tóku afstöðu með Little og töldu
hana hafða fyrir rangri sök, enda
hefði fangavöröurinn verið hvitur
á lit. Aftur á mói kröfðust öfga-
sinnar þess, að hún yrði dæmd
sek — og bar i þeim hópi mjög á
hinum alræmdu
Ku Klux Klan.
öfgasamtökum
iá ' n
/ & Ik. K™
f ¦¦* X '* W
-*<*^ ^Kk, y$<
JS
Ki''-*1* :-Œ r*' 'i<^fe«SiB3
Little
Blaðburðarfólk óskast
Háteigsveg - Austurbrún - Laugarás
- Nökkvavogur - AAelar - Laufásvegur
Sími 26500
12323