Tíminn - 17.08.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.08.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 17. ágúst 1975 TÍMINN 3 international Þessar myndir af Ilúsfriðunarsýningunni i Norræna húsinu sýna hús við Strandgötu I Hafnarfirði og eru talandi dæmi þess, hvernig halda má húsi við og eyöileggja það um leið. Þetta hús hefur verið rúið upprunalegu skarti og „augun stungin úr þvi”, þ.e. að i stað upprunalegu smárúðuglugganna hafa veriö settir inn nýtizku giuggar. Húsið er þvi ekki nema svipur hjá sjén, þútt það sé annars vel hirt. Þetta hús er auðvitað ekki nema eitt fjölda dæma af þissu tagi. Vafa- lifið myndi eigandi þessa húss allt eins og jafnvel fremur hafa kosið að færa húsið til uppraunalegs horfs, ef hann hefði átt kost á upplýsingum, myndum og teikningum og annarri nauðsynlegri aðstoð til þess af hálfu bæjarfélagsins. Á þessu sviði biða mikil verkefni, og með þvl að koma á fót slikri þjónustu við eigendur gamalla húsa, mætti enn forða mörgum húsum frá afskræmingu og færa önnur til fyrra horfs. Hárgreiðslustofa H m if/ & 88 Tilboð óskast i leigu á aðstöðu fyrir hárgreiðslustofu I ójC Borgarspltalanum. Upplýsingar gefur skrifstofustjóri Borgarspitalans Tilboð sendist sama aðila fyrir 1. sept. n.k. 1 'fí iV, Reykjavlk, 14. ágúst 1975. Borgarspitalinn. 1200 fulltrúar 60. heimsþing esperanto- hreyfingarinnar 40 löndum sóttu 1977 verður þingið haldið í Reykjavík Pelican á Lækjartorgi Hljómsveitin Pelican mun halda hljómleika á Lækjar- torgi I dag, ef veður leyfir. Hljómleikarnir eiga að hefjast klukkan 15 og mun hljómsveitin ætla að spila á aðra klukkustund. Nýlokið er I Kaupmannahöfn 60. heimsþingi esperanto- hreyfingarinnar (60-a Universala Kongreso de Esperanto). Þingið sóttu um 1200 esperantistar frá 40 löndum, þar á meðal 16 frá Is- landi. Verndari þingsins var Ank- er Jörgensen, forsætisráðherra Danmerkur. Að venju bárust þinginu kveðjur og árnaðaróskir frá rikisstjórnum ýmissa landa og forsvarsmönnum alþjóðlegra stofnana, m.a. aöalframkvæmda- stjóra UNESCO, Amadou-Mahtar M’Bow. Menntamálaráðherra ls- lands, Vilhjálmur Hjálmarsson, sendi og,þinginu sérstakar kveðj- ur. Meginstef þingsins að þessu sinni var staða kvenna i nútima samfélagi. Hafa samtök espe- rantista viðs vegar um heim beitt sér mjög fyrir umræðum um það efni á þessu ári, og þá einkum al- þjóðlega Esperanto-sambandið, sem m.a. sendi sérstakan fulltrúa á heimsþingið í Mexikó. Þingið i Kaupmannahöfn ræddi kven- réttindamál bæði i nefndum og á almennum umræðufundi og sam- þykkti ályktun, þar sem lýst er fullum stuðningi við jafnréttis- kröfur kvenna. Heimsþing esperantista eru fjölbreytt og starfsöm, enda eng- um tima eytt I túlkun og þýðingar á ræðum manna, þar sem allir nota þar sama tungumálið, espe- ranto. Þingið i Kaupmannahöfn var hér engin undantekning. Auk þess umræðuefnis, sem að ofan getur, var fjölmargt annað á dag- skrá þingsins. Sérstakur sumar- háskóli starfaði alla þingvikuna, þar sem háskólaprófessorar fluttu fyrirlestra á eperanto fyrir almenning, ýmis sérgreinafélög héldu ársfundi sina innan ramma þingsins, skoðunarferðir voru farnar um borgina og nágrenni hennar og til Sviþjóðar, listakvöld voru flest kvöld þingvikunnar o.s.frv. sérstakur hátiðarfundur var I tilefni af 25 ára afmæli hinn- ar árlegu bókmenntasamkeppni Alþjóðlega Esperantosambands- ins, núverandi formaður dóm- nefndar þeirrar keppni er Baldur Ragnarsson. 61. esperanto-þingið verður haldiði Aþenú á næsta ári, en 1977 verður 62. þingið haldið i Reykja- vik i boði menntamálaráðherra íslands og borgarstjóra Reykja- vikur. Bæjar- og Sveitarfélög Tökum að okkur hreinsun á klóakaðalæð- um og fl. Góð tæki, vanir menn. Upplýsingar i simum 4-24-78 og 4-01-99. Bændur — Ath iug ið WemaBoml 430 - Hin afkastamikta heybindivél Eigum fyrirliggjandi hinar landsþekktu IH 430 heybindivélar og jafnframt nokkra traktora 354 38 hestöfl á mjög hagstæðu verði — eldra verksmiðjuverði VID HVETJUM þó bændur, er hafa hug á þessum vélum, að hafa samband við okkur sem fyrst, þar sem mjög fdar vélar eru eftir Ódýrar vélar — hagstæðir greiðsluskilmálar NOTIÐ YKKUR ÞETTA EINSTAKA TÆKIFÆRI Kaupfélögin UM ALLTIAND IsIaíaíslsIalalalaÍHlalalaBíalHlalsIalsíalaíalalslsSIalaíalala Samband islenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD Ármula 3 Reykjavik simi 38900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.