Tíminn - 17.08.1975, Síða 4

Tíminn - 17.08.1975, Síða 4
4 TÍMINN Sunnudagur 17. ágúst 1975 Sírenan úr sögunni Auðveldari aðgangur fyrir fatlaða Fyrir aðalferðamannatimann i ár hafa Póstur og simi i V- Þýzkalandi komið i gagnið nýj- um Utisimaklefum. Þeir eru gulmálaðir eins og gömlu sima- klefanir og sjást vel úr fjarlægð, en framgaflinn og hliðarnar eru opnar. Höfuðkostur þessara nýju klefa : Aðgangur fyrir fatl- aða. Fólk, sem dæmt er til að nota hjólastóla, getur auðveld- lega hjálpað sér sjálft að siman- um, en það hefur oft komið fyrir að jafnvel hraustmenni hefur átt i erfiðleikum með að opna og loka gömlu klefunum. Þessum nýju simaklefum er auðvelt að halda við og þeir eru auðveldir i notkun fyrir almenning. Stjórn Pósts og sima vonar að skemmdarvargar vægi þessum nýju klefum. Þeir hafa hingað til þurft að borga i viðgerðir af almenningsfé 7 milljónir marka. Nýja gerðin af sima- klefum, sem er lika heppileg innan dyra,mun smátt og smátt leysa af hólmi eldri gerðina, a.m.k. þar sem hægt er að fá skjól fyrir regni eða snjó, umferðarhávaða og annars kon- ar hávaða. Nú er sá timi liðinn, sem slökkviliðsmenn i litla bænum Mörsch, skammt frá Karlsruhe i Þýzkalandi, þurftu að hlýða kalli sirenunnar, þegar einhvers staðar kviknaði i, og á aðstoð þeirra þurfti að halda. A neðri myndinni sjáið þið járnsmið i bænum við vinnu sina. Fyrir framan hann stendur ofurlitið tæki, sem likist einna helzt út- varpstæki, örin bendir á tækið. Þegar einhvers staðar hefur kviknað i i þorpinu er kall sent út á þessu tæki, og hver og einn af hinum 34 slökkviliðsmönnum i Mörsch heyra kallið. Tækið er framleitt af AEG-Telefunken og talið mjög þægilegt og til mik- illa bóta frá þvi sem var, þegar menn urðu að fylgjast með kalli brunalúðursins. Tækið er þann- ig úr garði gert, að slökkviliðs- mennirnir á brunastað geta kallað eftir aðstoð i þvi og einnig er hægt að senda leiðbeiningar út í gegnum tækið. Á efri mynd- inni eru svo slökkviliðsmenn að störfum i Mörsch. ☆ „Ennþá lifandi" Maria Sempreviva, itölsk, hefur haldið upp á sinn 104. afmælis- dag, Seinna nafn hennar, ☆ Sempreviva, þýðir á islenzku „ennþá lifandi”. Ég hefði svo sem ekkert á móti þvi að eiga systur eins og Ginu, en hún gæti alit eins vel likzt Margréti. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.