Tíminn - 17.08.1975, Side 7
Sunnudagur 17. ágúst 1975
TÍMÍNN
7
Lögfræðingamót
Norrænir lögfræðingar halda
27. mót sitt í Reykjavik dagana
20.—22. ágúst. Af þessu tilefni er
haft sérstakt pósthús með sér-
stimpli á mótsstað. Þetta er nú
allt saman gott og blessað. En
það bara vaknar sú spurning
hvort ekki hefði nú kannski
verið mun hagkvæmara fyrir
póstinn að veita þessa þjónustu
á hinu stóra kristilega stúdenta-
móti sem haldið var i Laugar-
dalshöllinni. A Norðurlanda-
þingi voru sendar um 20.000
sendingar með pósti og ekki
hefðu þær orðið færri á
kristilega mótinu. Vera má að
enginn hafi haft athugun á að
biðja um sérstakt pósthús fyrir
það mót, en eigum við þá ekki
að hafa frumkvæði og veita
svona þjónustu? Þá má og
geta þess að enginn sérstimpill
var i fyrstu frimerkjasýning-
unni, sem haldin var á Hellu i
vor, samt var beðið um hann.
Nr. 4/7 1975
Það verður þvi ekki betur séð,
en við verðum að fara að gera
okkur grein fyrir hvar mörkin
eiga að vera i þessum efnum.
Það er þvi tillaga min, að i
þessu efni verði linurnar dregn-
ar við, að alltaf sé veittur sér-
stimpill fyrir frimerkjasýning-
ar, sé um samkeppnissýningar
að ræða, eða fyrstu sýningu eða
kynningu á einhverjum stað á
landinu. Fjölmenn mót eins og
lögfræðingamótið og stúdenta-
mótið fái einnig sérstimpil, en
sé ekki beðið um hann, höfum
við sjálfir, þ.e. Póststjórnin
frumkvæði þar um. Þá verði
dagur frimerkisins haldinn
viðar en i Reykjavik og á næstu
árum verði hann haldinn i þeim
bæjum fyrst og fremst, þar sem
frimerkjafélög eru starfandi.
Þetta yrði þeim mikil lyftistöng.
Hvi skyldujn við ein þjóða
heims einskorða okkur við
höfuðborgarsvæðið? Þessar til-
lögur eru lagðar fram i fullri al-
vöru og að yfirlögðu ráði og ósk-
ast meðfarnar af yfirvöldum,
sem slikar.
Ég veit harla vel að einhverjir
koma til með að segja, að nú
megi gæta sin að vera ekki með
of mikið af sérstimplum. Þvi er
þar til að svara, að sérstimplar
heyra ails ekki undir sama hatt
og frimerkjaútgáfa. Fjöldi
hvers sérstimpils ákvarðast af
frimerkjasöfnurunum sjálfum,
hversu mikið þeir kaupa. Ein-
hver ihaldssamasta þjóöin um
sérstimpla, að íslandi undan-
skildu, er Danmörk, en þeir
komast þó upp i 18 stimpla á ári.
Aðrir gefa út marga á dag.
Þarna er okkur alveg óhætt að
auka flóru islenzkrar frí-
merkjasöfnunar, en innan
vissra takmarka, þvi get ég
verið sammála.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Sérstakt pósthús verður op!S ó 27. norrœna
lögfrœðingamótinu f Reykjavfk 20.-22.
ógúst 1975.
Et midlertidigt postkontor bliver ábent pá
dert 27. nordiske juristmöde i Reykjavfk den
20. 21. og 22. august 1975.
A temporary Post Office will be open during
the 27th Congress of nordic jurists in Reykjavik
on the 20th, 21 st and 22nd August 1975.
Un bureau de poste temporaire sera ouvert pendant
le 27éme Congrés de juristes nordiques á Reykjavik
!e 20, 21 et 22 aoút 1975.
Wáhrend den 27. Nordischen Juristentag in Reykjavfk
den 20, 21 und 22 August 1975 wird ein spezielles
Postamt geöffnet.
Kópal línan
Sumar’75
Kópal Dyrotex
Málningin, sem hlotið hefur viðurkenningu þeirra sem reynt hafa.
Kópal Dyrotex er framleidd hjá okkur í Kópavogi. Framleiðslan er
byggð á reynslu okkar og þekkingu á íslenzkum aðstæðum. Kópal
Dyrotex er akryl málning til málunar utanhúss, — málning með
viðurkennt veðrunarþol. Hressið upp á útlitið með Kópal Dyrotex.
Kynnið yður' Kópal litabókina og athugið hina mörgu fallegu liti,
sem hægt er að velja.
Veldu litina strax, og málaðu svo einn góðan veðurdag.
Auglýsid
í Tímanum
Rifflar
Riffilsjónaukar
Skot og
hlífðarföt
POSTSENDUM
8PORT&4L S
cHCEMMTORGi
HAGLA-
BYSSUR
ÚTSALA
Otrúlega ódýrar kópur úr poplini
og flaueli — verð fró kr.
2.200
buxur, peysur, úlpujakkar og ótal
margt fleira
Á BÖRN
Sendum útsöluvörur — eins og aðrar
vörur — gegn póstkröfu um land allt
GALLABÚÐIN
Kirkjuhvoli — Simi 26-103