Tíminn - 17.08.1975, Page 15

Tíminn - 17.08.1975, Page 15
14 TÍMINN Sunnudagur 17. ágúst 1975 Sunnudagur 17. ágúst 1975 TÍMINN 15 W Vonandi verður aldrei svo hlýtt á íslandi að Vatnajökull hverfi áhugaljósmyndara. En svo ég svari spurningu þinni beint, þá byrjaði ég að ferðast, þegar ég var fjórtán ára gamall, fyrst með Ferðafélagi íslands, en siöar með Farfuglum. Þar kynntist ég mörgum ágætum fararstjórum, sem létu okkur i té vitneskju um þaö, sem á vegi okkar varð. Og samferðafólkið var samhent og glatt, enda tókust þar góð kynni og vináttubönd, sem entust svo áratugum skipti, jafnvel allt fram á þennan dag. — Þið hafið þá haldið hópinn lengi? — Já, ég hef gengið á fjöll og jökla með þessum ágætu félögum siöastliðin fjörutiu ár, þótt vitan- lega sé ekki alveg um sama fólk- ið að ræöa, ný andlit hafa bætzt i hópinn. — Þú vilt kannski telja upp eitthvað af þeim fjöllum, sem þú hefur sótt heim? — Já, það er vist minnstur vandinn. Snæfellsjökull, Eyja- fjallajökull, Tindafjallajökull, hafa allir verið heimsóttir, og auk þess Ésja, Skarðsheiði, Súlur og fleiri fjöll, sem nær liggja Reykjavik. Mér leiddust ljósmynd- arar — þangað til ég fór sjálfur að taka myndir — En hvenær byrjaðir þú að taka myndir á feröum þinum? — Fyrir eitthvað tólf eöa þrettán árum álpaöist ég til þess að kaupa myndavél, en var held- ur óánægöur við sjálfan mig fyrir tiltækið, þvf ég hélt, að ég gæti aldrei lært að taka myndir á hana. — Þú hefur þá verið búinn aö ganga lengi um islenzk fjöll án þess aö bera myndavél á öxlinni? — Já, sannarlega, og ég get bætt þvi við, að á þeirri tið var mér ekki eins illa við neina menn og ljósmyndara! Þeir voru pril- andi upp um öll fjöll, fóru eilifa útúrkróka, og við hin vorum alltaf að biða eftir þeim. Þetta gramd- ist mér óskaplega, og ég óskaöi þess heitt og innilega, að ég yrði aldrei svo vitlaus að tefja sam- ferðamenn mina með slíkum hé- góma. (En nú er að visu svo komið, aö það er alltaf verið að biða eftir mér!) — Nú hefur þú komið mjög viöa. Hcfur þú þann hátt á að klífa hvert fjall aöeins einu sinni og svo ekki meir? — Nei, öðru nær. A Eyjafjalla- jökul hef ég gengið fjórum sinn- um, nokkrum sinnum á Tind- fjallajökul og sjö sinnum á Snæ- fellsjökul, en ég man ekki, hve oft ég er búinn að ganga á Heklu. Og svo eru það nú Súlur og Skarösheiði, sem ég kleif á hverju vori um langt árabil. Ég var svo heppinn aö kynnast manni, sem var talsvert yngri en ég, Pétri Þorleifssyni. Hann þekkir Islenzk fjöllflestum mönnum betur, og er einhver ágætasti ferðafélagþsem hægt er aö hugsa sér. Það var mikil gæfa fyrir mig að kynnast honum. „Sérstæðasti staður á jörðinni” — Minnist þú ekki einhvers staöar, sem hreif þig sérstaklega, þegar þú komst þar I fyrsta skipti? — Jú, þvi á ég auðvelt með að svara. Fyrir mörgum árum buðu nokkrir piltar mér með sér i ferð Hvergi verður maðurinn eins lltill og uppi á reginjökli. Þar er vissara að fara að öllu með gát, en slikar feröir skilja lika eftir óbrotgjarnar endurminningar. Ljósm. Gunnar Hannesson. á Vatnajökul. t þeirri ferð varð ég svo hrifinn af þvi sem fyrir augu bar, að það varö úr, að við nokkr- ir félagar keyptum i sameiningu snjóbil, sem viö notuöum til þess að fara I á Vatnajökul næstu tiu árin eða svo, oftast á hverju ári. Vatnajökull hreif mig svo, að ég hika ekki við að telja hanh sérstæðasta staö á jörðinni. — Það var ekki nein smáræðis fullyrðing. Viltu ekki rökstyðja þessi ummæli? — Jú, hvort ég vil! Fyrst vil ég telja það, sem segja má að ekki sé sérstætt nema fyrir okkur íslendinga, að i suðurbrún Vatna- jökuls er hæsti tindur landsins, Hvannadalshnjúkur i öræfajökli. Næst má nefna hjartsláttinn i miðjum Vatnajökli, þar sem hinn stóri og djúpi dalur, Grimsvötn, er. Þar eru heitir hverir undir, og hafa meira að segja gosið. Þar bræðir hitinn jökulinn af sér,lyftir upp ishellunni, þá verða hlaup, venjulega á fimm ára fresti, og vatnið göslast fram undan jöklin- um. Þá má ekki gleyma að tala um Kverkfjöllin, hverasvæðið mikla, sem ris upp úr norðurbún Vatnajökuls, stærsta jökuls Evrópu. Og svo allt litskrúðiö. Að koma til Kverkfjalla, yfir Vatna- jökul, er áreiðanlega einhver tignarlegasta sjón, sem nokkur ferðamaöur á völ á, hvort sem miðað er við tsland eða önnur lönd. — Og nú þykist ég búinn að rökstyðja stóru orðin, sem ég not- aði um Vatnajökul áðan . — Finnst þér þú ekki kominn i návigi við dulinn kynngikraft, þegar þú stendur uppi á há Snæfeilsjökli? — Jú, ekki neita ég þvi. En þegar ég kom þangað fyrst, var ég svo ungur, að ég kunni ekki að meta hina sérstæðu jöklatign, sem ég átti eftir að kynnast svo mjög, siöar á ævinni. Þúfurnar á Snæfellsjökli eru afar sérkenni- legar og draga að sér óskipta at- hygli ferðamannsins, sprungurn- ar i jöklinum sömuleiðis. Þó höfðar Vatnajökull til manna með allt öðrum hætti, hann er svo ein- stakur. Strengdi þess heit að ná tökum á ljósmynduninni — En hvað er þér efst I huga, að jöklunum undanskildum? — Snæfellsnesiö er eitthvert myndrænasta svæði á öllu Islandi. Ég veit varla hvort ég á að fara að telja upp einstaka staði: þeir eru svo margir, að i rauninni er ógerlegt að meta hvar á að byrja og hvar að enda. Það er auðvitað hægt að þylja nöfn eins og Þórsmörk, Landmanna- laugar, Kerlingarfjöll, Lónsöræfi, Oskju, Herðubreiðarlindir, Jökulsárgljúfrin, Hólmatungur og Hljóðakletta. — Nöfnin ein segja litið fyrir þá, sem aldrei hafa komið á þessa staði, en hin- um, sem til þekkja, mun fegurð þeirra seint liða úr minni. Og það er ég sannfærður um, ævi min mun ekki endast til þess að gera þessum stöðum þau skil, sem mig langar til. — Þú gazt þess, snemma I spjalli okkar, að þú hefðir slysazt til þess að kaupa myndavél. Manstu hver sá staður var, sem þú reyndir fyrst að mynda? — Éins og ég sagði hér að framan, þá var ég engan veginn viss um að geta nokkru sinni lært að taka myndir svo i lagi væri, en samt var ég nú svo launmontinn af myndavélinni, þegar ég hafði eignazt hana, að ég fór með hana meðmér til kunningja mins, sem þá dvaldist i sumarbústað hérna nálægt bænum. Ég ætlaði að taka myndir af bústaðnum og blóm- unum þar I kring, og æfa mig nú duglega. En þegar ég kom inn i sumarbústaðinn var þar fyrir verkfræðingur, sem hafði mikið vit á myndavélum. Honum sýnd- ist þetta svo ómerkilegt áhald, sem ég var þarna með, að ég stakk myndavélinni i vasa minn og hætti við alla myndatöku. En á leiöinni heim, beit ég á jaxlinn, einsetti mér og strengdi þess heit, að ég skyldi einhvern tima taka almennilega mynd. Það er það, sem ég hef veriö að glima við, allt fram á þennan dag, en þá mynd er ég að visu ekki enn búinn að taka. — Þetta siðasta kynni nú aðdá- endum mynda þinna að þykja of- sagt. En svo hafa tæki þin smám ' saman orðið fullkomnari. — Já, það er alveg rétt, ég kynntist nýjum filmum og nýjum vélum. Sum þessi hjálpargögn eru góð, önnur léleg, sum jafnvel óhæf. En þetta smálagaðist, eins og þú sagðir, og þvi betri tæki sem ég fékk i hendur, þeim mun meiri varð áhugi minn. Og nú held ég að sé svo komið, að ég eigi góð áhöld til ljósmyndunar, og sjálfur legg ég mig fram til þess að ná góðum árangri, — sem ég vona að verði einhvern tima. Áhugi og eftirtekt breyt- ast með árunum — Hvað er það i náttúrunnar riki, sem þér þykir skemmtileg- ast að mynda? — A fyrstu ljósmyndunarárum minum beindist áhugi minn mest að þvi að mynda heilar sýslur i einu, — að vinna samkvæmt 'landabréfinu. Seinna, með aukn- um þroska, breyttist smekkurinn og athyglin beindist meira að þvi sem smærra er. Þessi áhugi minn á hinu smáa hefur siðan haldizt og farið vaxandi, enda er það min reynsla, að menn kunni varla að njóta náttúrunnar I öllum hennar óendanlega fjölbreytileika, fyrr en þeir eru komnir vel af ungl- ingsárum. Sama er að segja um tima- lengdina. Núorðið er það svo, að ef ég ætla að mynda eitthvert svæði og gera það ekki verr en svo, að ég sé sæmilega ánægöur með það sjálfur, þá tekur það mig fimm til sjö ár. Af þvi geta menn séð, að það var ekki út I bláinn, sem ég sagði áðan, að mér myndi ekki endast aldur til þess aö gera sæmileg skil öllum þeim mörgu og fögru stöðum, sem ég var að telja upp. — En hvenær telur þú þig búinn að gera tilteknu svæði viðhlitandi skil? Eftir að hafa tekið þar tiu, tuttugu eða þrjátiu myndir? — Það er ákaflega mismun- andi. Ef skilyrði eru góð, verður timinn styttri og myndirnar ekki eins margar, og svo fer þetta líka eftir þvi, hvernig svæðiö sjálft er frá náttúrunnar hendi. Enn er svo þess að geta, að kröfurnar, sem ljósmyndarinn gerir, breytast með aldri og þroska hans sjálfs. Þegar ég skoða myndir, sem ég tók i fyrra eða hitteðfyrra, hugsa ég sem svo: Á morgun ætla ég aö gera þetta öðru visi. — Nú hefur komið frá þinni hendi myndabók um Reykjavik. Varst þú lengi að vinna hana? — Já, það tók talsvert langan tima. Sannast að segja er Reykjavik með skemmtilegustu stöðum á Islandi til ljósmyndun- ar, svo ótrúlegt sem ókunnugum kann að viröast það. Hugsaðu þér öll þessi bárujárnsþök I alls konar litum, og svo blóma- og trjágarð- ar eða grasi grónar lóðir á milli húsanna, að ógleymdum eyjum ,Og bak viö isinn er ylur/ og eldur, sé grafið djúpt.” Ljósm. Gunnar Hannesson. og sundum I næsta nágrenni og fjallahringnum, þegar lengra er horft. Þarna er allt aö þvi óþrjót- andi myndaefni, og það er liklega bezt að ég ljósti þvi upp, fyrst við erum að spjalla saman, að ég er búinn að taka myndir I aðra Reykjavikurbók, sem ég vona að gefin verði út einhverntima áður en langt um liður. Vatnajökulsbókin kem- ur i haust — Þú hefur þá vist lika tekið myndir af þeim stað, sem þú telur vera hinn sérstæðasta á allri jörð- inni? — Já, ekki ber ég á móti þvi. Myndir hef ég tekið af Vatnajökli, og þær margar. Ég hef verið að vinna að þessu siðastliðin sjö til átta ár,og nú er svo komið, að bók með Vatnajökulsmyndum minum er fullbúin til prentunar i Hol- landi. Ég vona, að hún geti kómið út i haust. Hún mun koma út á vegum Iceland Review, eins og Reykjavikurbókin. — Eru þetta ekki eingöngu lit- myndir? — Jú, enda hef ég aldrei tekið svart/hvita mynd. Ég vil taka það skýrt fram og undirstrika sérstaklega, að ef menn hafa i hyggju að taka litmyndir, eiga þeir ekki að byrja á þvi að fást viö svart/hvitt. Munurinn á þessum tveim greinum ljósmyndunar er tæknilega séð, ekki minni en á múrverki og trésmiðum. myndabókinni þinni um Vatna- jökul? — Jú, textinn er skrifaður af dr. Sigurði Þórarinssyni. 1 upphafi kemur bókin út á ensku, en vonir standa til að hún komi út á is- Framhald á bls. 1' þegar hann lítur niður á HEMPECs þökín og sér hve fallegum blæbrígðum mánáúrlifumhans Nú eru fyrirliggjandi 14 gullfallegir litir af HEMPEL'S þakmálningu. Um gæði HEMPEL’S þakmálningar þarf ekki að efast. HEMPEL’S er einn stærsti framleiðandi skipamálningar í heiminum. Seltan og umhleypingarnir hér eru þvl engin vandamál fyrir sérfræðinga HEMPEL’S MARINE PAINTS. HEMPEEs þakmálníng Framleiðandi á Islandi Slippfélagið íReykjavík hf Málningarverksmiðjan Dugguvogi—Simar 33433 og 33414 Rætt við Gunnar Hannesson um f jallaferðir og Ijósmyndun 0 > . o:- EKKI VÆRI þaö óliklegt, aö islenzkir ljósmyndarar legðu stund á útiveru mörgum öðrum fremur. Svo auðug er islenzk náttúra, i allri sinni fegurð og fjölbreytni, að hún hlýtur að höfða sterkt til hvers manns, sem gæddur er einhverju myndrænu skyni. Þessa hefur nokkuð gætt I greinaflokki okkar um útiveru, þar sem að.minnsta kosti tveir þeiri;a, sem talaö hefur veriö viö, eru þekktir ljósmyndarar. Og nú bætist þriðji ljósmyndarinn, Gunnar Hannesson, I hópinn. Frá fjórtán ára aldri. — Fyrst langar mig að spyrja, hvort þú hafir lengi stundað gönguferðir og utiveru, Gunnar? Aður en ég svara þessari spurn- ingu, vil ég gera litils háttar athugasemd við það sem þú sagð- ir áðan I inngangsoröum þinum, Þar kallaöir þú mig ljósmynd- ara, — og vist er það rétt, að ég hef tekiö myndir, — en samt finnst mér réttara að kalla mig Undir beru lofti *

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.