Tíminn - 17.08.1975, Side 17
TÍMINN
17
Sunnudagur 17. ágúst 1975
Vonandi
verður
aldrei...
lenzku slðar. Og það er bezt að
taka það fram um leið, að texti
Sigurðar er lipur og aðgengilegur
öllum almenningi, eins og jafnan
einkennir ræðu og rit dr. Sigurðar
Þórarinssonar.
— >ú sagðir áðan, að þér myndi
ekki endast ævin til þess að ljós-
mynda allt tsland, en heldur þú
aö þér gefist timi til þess að gera
eina myndabók?
— Þarna hittir þú naglann á
höfuðið, — liklega alveg óviljandi.
Fram að þessu hef ég ekki talað
um það við neinn, en ég er einmitt
byrjaður að undirbúa útgáfu
þriðju bókarinnar.
— Er leyfilegt að spyrja um efni
þeirrar bókar?
— Já, já, enginn hefur á spurn-
ingunni. Hitt er annað mál, að
svarið hef ég ekki alveg á reiðum
höndum. Ég tel mig búinn að taka
meginhlutann af myndunum, sem
i þessari fyrirhuguðu bók verða,
utan að mig vantar dálitið af
Vestfjörðum, en við þá er ég ein-
mitt að glima þessa stundina. Að
öðru leyti get ég fátt sagt um
þetta fyrirhugaða verk mitt,
nema þá helzt það, að mér hefur
dottið i hug að fara þarna dálitið
aðra leið en i fyrri bókum minum,
— hafa nýtt tema eða stef, ef ég
má komast svo hátiðlega að orði.
Hef lært að meta þau
veður, sem kölluð eru
,,vond”
— Svo við snúum okkur aftur að
ferðalögum: Ferðast þú aðaliega
Ljósm. Gunnar Hannesson.
Svona myndar Gunnar Hanncsson þau náttúrufyrirbæri, sem á vegi hans verða. Hér eru oröóþörf.
til þess að taka myndir nú á siöari
árum?
— Ég sækist mikið eftir þvi að
koma aftur og aftur á sömu stað-
ina, þvi að það getur tekið nokkur
ár að uppgötva á hvaöa tima árs
er bezt að vera á hverjum stað til
þess að taka myndir, enn fremur
hvaða timi dags er heppilegastur
til þess að fá rétta birtu i mynd-
irnar, og svo framvegis. Hins
vegar hef ég alveg eins mikið
yndi af náttúruskoðun og ljós-
myndun og ég stunda ferðalög og
nýt þeirra, hvort sem ég er að
taka myndir eða ekki.
Fyrstu árin tók ég eingöngu sól-
skinsmyndir, en það hef ég þó
lært á útiverunni öll þessi ár, að
nú þykir mér engu minna gaman
að rigningarmyndunum. Það tók
mig tvö ár að fá nógu vont veður á
Vatnajökli til þess að þurfa ekki
að sýna eintómar sólskinsmyndir
þaðan. Ég vona aðeins að vond
veður haldi áfram að geisa á
Vatnajökli, svo að hann verði I
framtiðinni sjálfum sér likur. Og
vonandi verður aldrei svo hlýtt á
íslandi, að hann hverfi! — VS
Gengið á jökli.
Kartöflupokar
Þéttriðnir 3 tegundir
Grisjur 2 tegundir
Stærðir 25 og 50 kg
Pokagerðirí Baldur
Stokkseyri, simi 99-3213 og 3310.
Heyyfirbreiðslur
Tilbúnar heyyfirbreiðslur úr gerviefnum,
sem ekki fúnar, eru nú styrktar nylon-
kanti á öllum hliðum, svo hægara sé að
festa þær niður.
Kynnið ykkur verð og gæði.
Pokagerðin Baldur
Stokkseyri, simi 99-3213 og 3310.
1 AuglýsidT
• ' 4 Tá
:
ilimanum !
•:
Japönsku NYLON hjólbarðarnir.
Allar vörubílastærðir.
825x20, — 900x20, — 1000x20 og 1100x20
seldar ó Tollvörulagersverði gegn staðgreiðslu,
Verkstæðið opið alla daga
fró kl. 7.30 til kl. 22.00.
SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055