Tíminn - 17.08.1975, Page 17

Tíminn - 17.08.1975, Page 17
TÍMINN 17 Sunnudagur 17. ágúst 1975 Vonandi verður aldrei... lenzku slðar. Og það er bezt að taka það fram um leið, að texti Sigurðar er lipur og aðgengilegur öllum almenningi, eins og jafnan einkennir ræðu og rit dr. Sigurðar Þórarinssonar. — >ú sagðir áðan, að þér myndi ekki endast ævin til þess að ljós- mynda allt tsland, en heldur þú aö þér gefist timi til þess að gera eina myndabók? — Þarna hittir þú naglann á höfuðið, — liklega alveg óviljandi. Fram að þessu hef ég ekki talað um það við neinn, en ég er einmitt byrjaður að undirbúa útgáfu þriðju bókarinnar. — Er leyfilegt að spyrja um efni þeirrar bókar? — Já, já, enginn hefur á spurn- ingunni. Hitt er annað mál, að svarið hef ég ekki alveg á reiðum höndum. Ég tel mig búinn að taka meginhlutann af myndunum, sem i þessari fyrirhuguðu bók verða, utan að mig vantar dálitið af Vestfjörðum, en við þá er ég ein- mitt að glima þessa stundina. Að öðru leyti get ég fátt sagt um þetta fyrirhugaða verk mitt, nema þá helzt það, að mér hefur dottið i hug að fara þarna dálitið aðra leið en i fyrri bókum minum, — hafa nýtt tema eða stef, ef ég má komast svo hátiðlega að orði. Hef lært að meta þau veður, sem kölluð eru ,,vond” — Svo við snúum okkur aftur að ferðalögum: Ferðast þú aðaliega Ljósm. Gunnar Hannesson. Svona myndar Gunnar Hanncsson þau náttúrufyrirbæri, sem á vegi hans verða. Hér eru oröóþörf. til þess að taka myndir nú á siöari árum? — Ég sækist mikið eftir þvi að koma aftur og aftur á sömu stað- ina, þvi að það getur tekið nokkur ár að uppgötva á hvaöa tima árs er bezt að vera á hverjum stað til þess að taka myndir, enn fremur hvaða timi dags er heppilegastur til þess að fá rétta birtu i mynd- irnar, og svo framvegis. Hins vegar hef ég alveg eins mikið yndi af náttúruskoðun og ljós- myndun og ég stunda ferðalög og nýt þeirra, hvort sem ég er að taka myndir eða ekki. Fyrstu árin tók ég eingöngu sól- skinsmyndir, en það hef ég þó lært á útiverunni öll þessi ár, að nú þykir mér engu minna gaman að rigningarmyndunum. Það tók mig tvö ár að fá nógu vont veður á Vatnajökli til þess að þurfa ekki að sýna eintómar sólskinsmyndir þaðan. Ég vona aðeins að vond veður haldi áfram að geisa á Vatnajökli, svo að hann verði I framtiðinni sjálfum sér likur. Og vonandi verður aldrei svo hlýtt á íslandi, að hann hverfi! — VS Gengið á jökli. Kartöflupokar Þéttriðnir 3 tegundir Grisjur 2 tegundir Stærðir 25 og 50 kg Pokagerðirí Baldur Stokkseyri, simi 99-3213 og 3310. Heyyfirbreiðslur Tilbúnar heyyfirbreiðslur úr gerviefnum, sem ekki fúnar, eru nú styrktar nylon- kanti á öllum hliðum, svo hægara sé að festa þær niður. Kynnið ykkur verð og gæði. Pokagerðin Baldur Stokkseyri, simi 99-3213 og 3310. 1 AuglýsidT • ' 4 Tá : ilimanum ! •: Japönsku NYLON hjólbarðarnir. Allar vörubílastærðir. 825x20, — 900x20, — 1000x20 og 1100x20 seldar ó Tollvörulagersverði gegn staðgreiðslu, Verkstæðið opið alla daga fró kl. 7.30 til kl. 22.00. SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.