Tíminn - 17.08.1975, Page 21

Tíminn - 17.08.1975, Page 21
Sunnudagur 17. ágúst 1975 TÍMINN 21 melódiuformið getur vart breytzt aö neinu marki, en i mörgum tilfellum breytizt melödlan verulega i samningu og allur söngur er meira og minna improviseraður. Hér eru það tilfinningarnar sem ráða. — Þaö er bezt að hafa þetta óbundið, — það er að vísu tvieggjaö, en skemmtilegra að minum dómi og meira spenn- andi”. — Það er jafnt þroskaþjálfun og tónlistarþjálfun að vera i svona stórri hljómsveit, svaraði Magnús er hann var inntur eftir þvi, hvort þaö væri ekki stund- um erfitt að sameina öll sjónar- mið I hljómsveitinni. — Við vitum að við verðum að vinna saman, og i heild verður hljóm- sveitin að beinast I einhverja ákveðna átt. Hins vegar geta meðlimir hennar fariö inn á ýmsar aðrar brautir þar fyrir utan, — en þegar hljómsveitin á I hlut verður stefnan aö vera ein og ákveðin. Ný skoðanakönnun Nú-tímans: spurningar ___________í ágúst_____________________ ATKVÆÐASEÐILL 1. Hvaða (listamann — hljómsveit), sem fram hefur komið i popptónlistinni á siðastliðnum fimm árum (frá 1970) telur þú athyglisverð- asta (n)? svar: ............................... 2. Hvaða islenzk (ur) (listamaður)— hljóm- sveit telur þú að eigi mest skilið að verða fræg (ur) utan íslands? svar: ............................... 3. Hvaða hljómsveit er að þinum dómi bezt á ísiandi i dag? svar: ............................... 4. Hvaða hljómsveit er að þinum dómi efnileg- ust (bjartasta vonin) á tslandi i dag? svar: ............................... 5. Ef þú ættir að nefna beztu LP-plötu allra tirna, — hvaða plötu myndir þú nefna? svar: ............................... 6. Hvaða lag Bitlanna fellur þér bezt? svar: ............................... 7. Hvern af Bitlunum (John, Paul, George, Ringo) telur þú merkastan frá tónlistarlegu stjónarmiði, — eftir að Bitlarnir hættu? svar: ............................... 8. Ritdeilur hafa verið i Nú-timanum um það, m.a. hvor hljómsveitin sé betri, Led Zeppe- lin eða Cream. Hvora hljómsveitina telur þú vera betri? svar: ............................... 9. Tvö lönd hafa áunnið sér nafnbótina stór- veldi i popptónlistinni, — Bretland og Banda- rikin, og hafa menn löngum deilt um það, hvort landið eigi að teljast meira stórveldi. Hvort myndir þú nefna Bretland eða Banda- rikin? svar: ............................... 10. Hver er lélegasta hljómsveit, sem þú hefur heyrt i? svar: ............................... Skilafrestur i þessari ágúst-skoðanakönnun Nú-timans er til 31. ágúst. Klippið atkvæða- seðilinn út og sendið til Nú-timans. Utan- áskriftm er: Nú-timinn, Edduhúsinu v/Lindar- götu, Reykjavík. ATH. í spurningum 1, 5 og 10 er bæði átt við það sem íslenzkt er og erlent. Nafn.................................. Heimilisfang.......................... Magnús sagði að hann og Jóhann ætluðu að gefa út LP-plötu saman, en kvaðst ekki vita hvenær hægt væri að taka til við þau áform. „Viö vitum ekki hvort Chappell/Robinson muni gefa þá plötu út — en við höfum rætt um þá plötu við þá, en það fer eftir þvi hvort hún verður nógu góö — hvort þeir gefi hana út.” — Sú plata verður talsvert óllk að efni til og lög Change — þar veröa rólegri tilfinningar sem ráða ferðinni, meiri ihugun — meiri heimilistilfinningar. Já, ég býst við að hinir strákarnir i hljómsveitinni muni aðstoða okkur eitthvaö — Þá hefur Björgvin haft á orði að gefa út sólóplötu einnig. — Við getum litiö á hljóm- sveitina sem hjól, sem heldur áfram ferð sinni hvað sem á dynur. Þaö er þvi allt I lagi fyrir einn og einn aö hoppa af farar- skjótanum smá tíma. Og hljóm- sveitin — Change — mun alltaf halda áfram, jafnvel þótt ein- hverjir meölimir hennar segi skilið við hana fyrir fulit og allt. Þaö er til svo mikið af góðum hljóðfæraleikurum, sem við gætum fengið til aö fylla i skaröið, ef svo bæri undir. —• En ég held að það þurfi enginn að óttast það nú, að breytingar verði á liðsskipan hljómsveitar- innar i náinni framtiö. Magnús sagöi að þeir myndu næstu mánuði helga hljóm- sveitinni alla krafta sina og til að byrja með myndu þeir æfa virkilega gott hljómleikaefni. Sagði Magnús, að hann hefði mikla trú á þeim markaði fyrir hljómsveitina. „Þetta eru búnar að vera góðar kennslustundir hér heima. Viö höfum leikií mikið og það er alveg nauðsyn- legt, þvi hljómleikaferðin verður eflaust erfið og þess vegna gott aö hafa fengið smjörþefinn af slikri vinnu,” sagði hann. — Þetta verður þá ekkerl sældarlif? — Nei, tónlistarmenn lifa engu sældarlifi, þvi að þá hverfur sköpunargetan. Nú-timinn spurði Magnús um það, hvernig auglýsingaherferð fyrir Change yrði háttaö, þegar LP-platan og hljómleikarnir væru I brennidepli. — Ég veit það ekki, sagði hann — ætli það verði ekki svipaö og með Pilot. Annars fylgist ég litið með svona hlutum. Ég vil bara fá að vera i friði i tónlistinni. — Við verðum að fara að taka afstöðu til stils hljómsveitar- innar, og siðan halda þeim stil til streitu, meðan efniviðurinn leyfir. Við teljum, að nú séum við búnir að leita nóg fyrir okkur, og þvi ættum við að geta farið að taka afstöðu til þess, hvaða stil hljómsveitin ætlar að einbeita sér að i framtíðinni. Mér finnst persónulega, að ég hafi fariö i heilan hring og meira en það, en það er ekki hægt að biða mikið lengur með það að ákveða stefnu hljóm- sveitarinnar. Ræddum við nú um stund um ýmis fyrirbrigði i hljómsveitar- bransanum, m.a. glys og ýmiss konar skraut sem margir hljómlistarmenn skreyta sig með. „Kannski veröur okkur einhvern tinia sagt að skreyta okkur meö fjöðrum,” sagði Magnús og brosti. „Annars tel ég að svona hlutir séu á engan hátt þýöingarmiklir, og þótt ýmsir afli sér einhverra vinsælda út á þetta held ég að þær vinsældir geti þá aldrei orðið nema skammvinnar. Geta listamannsins hlýtur alltaf að ráða úrslitum.” Sagöi Magnús aö það væri mikið um öfga hvað sviösbúnað snerti i Bretlandi, en taldi, að flestir, sem notuðu slikt gerðu það til aö hylja það, hvað þeir væru lélegir. Snerum við nú aftur tali okkar að Change og umboðs- mönnum þeirra og sagöi Magnús, að hljómsveitin hefði aðgang að mörg þúsund lögum eftir hina og þessa, — sem Chappell/Robinson hefðu einka- rétt á. „Þegar byrjað var að hugleiða LP-plötuna báðu þeir okkur um að koma með lög eftir okkur sjálfa, og komum við fyrst með 10 lög og þeir samþykktu fimm af þeim. Ætluöu þeir þá að láta okkur fá einhver lög af sinum, en við sögðum þeim að við ættum miklu meira efni. Komum viö þvi næst með 17 lög, — og þá sáu þeir loks að það var tilgangs- laust að halda áfram að bjóða okkur önnur lög, þvi okkar eigin lög stóðu hinum lögunum fylli- lega á sporöi. Þegar við vorum að ræða saman um feril hljómsveitar- innar, dagana hér heima, tima- bilið með H.B. Barnum og fleira, sagði Magnús, að kona nokkur islenzk' hefði spáð þvi áður en til samstarfsins kom meö Barnum, aö svartur maður myndi hefta framför hljóm- sveitarinnar um nokkurn tima. „Þessi spádómur rættist, og við fundum að hann var alltaf að koma betur i dagsljósið. Tima- bilið með Barnum var samt að minum dómi ágætt fyrir margra hluta sakir, en þegar horft er aftur I timann, er ekki annað hægt aö segja en að fram- farir hljómsveitarinnar hafi ekki verið miklar þann tima. — Samt var þessi timi nauösyn- legur, þvi aö við vorum mikilli reynzlu rikari eftir ár,” sagði hann. — Já, ég er forlagatrúar. Ég trúi þvi, að allt sem gerist sé fyrirfram ákveðið, og þvi verði að taka hverju sem er eins og það er. Menn verða að temja sér þolinmæði, — og fyrst verður maður aö sigra sjálfan sig, áöur en maöur sigrar heiminn. Sem kunnugt er hafa Magnús Sigmundsson og Jóhann Helga- son verið afkastamestir strákanna i Change við laga- gerð og ræddum við nokkuð um það atriði. Sagði Magnús að hann ætti mjög auövelt meö að semja, en hins vegar væri stundum erfitt aö túlka melódiuna i flutningi og eins sagði hann að það væri stund- um erfiðleikum bundið að tjá sig ioröum. „Mér hentar best að tjá mig I tónlist,” sagöi hann. Magnús sagði, aö hann hefði samið heilmikiö af lögum siðan hannkomheim ogsagöiaðþau lög væru ööruvísi en lögin, sem hann heföi samið úti. „Þaö eru svo margir áhrifavaldar sem sækja á mig, þegar ég er heima — og tsland er svo sannarlega sérstakur staður i tilverunni,” sagði hann. — Einhvern tlma ætla ég að gefa út LP-plötu með einu löngu tónverki, sem ég samdi viö ljóð Jónasar Hallgrimssonar, Gunnarshólma. — Hvað segir þú.... hváði Nú-timinn.... — Ég samdi 17 minútna verk við enska þýðingu, sem birtist I Iceland Review, en það tónverk er að öðru leyti alveg óunnið. Þegar búið verður aö vinna þaö til hlitar mun það eflaust fylla eina LP-plötu og ég er staöráöinn i þvi, aö koma þessu á plötu. Mig langaði að semja einnig við þetta ljóð — og geröi það — en ég veit ekki hvenær gefst timi til aö vinna það. Magnús sagöi, að ætlunin væri hjá Change aö leggja nú meiri rækt við hæfileika hvers og eins i hljómsveitinni, og nefndi aö Björgvin ætti eitt lag á LP-plötunni Ruby Baby. Þá kvað hann Birgi hafa samiö talsvert aö undanförnu. Framhald á bls. 27 i 1 t Fa Vinsældalistinn vikuna 3. til 9. dgúst 1. O'Lucky Man Alan Price 2. Sumar á Sýrlandi Stuðmenn 3. One of These Nights Eagles 4. Venus & Mars Wings 5. Stuð, Stuð, Stuð Lónlí Blú Bois 6. Last Farewell Roger Whittaker 7. Gylfi Ægisson Gylfi Ægisson 8. Shame, Shame, Shame Shirley & Co 9. Roger McGuinn & Band Roger McGuinn & Band 10. One Size Fits All Frank Zappa & Mothers Hafið þið athugað að i flesjum tilfellum eru hljomplöt- urnar odyrari hjá FACO hljomdeild, LAUGA- VEGI 89. Simi: 13008. SENDUM I POSTKROFU

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.