Tíminn - 17.08.1975, Qupperneq 21
Sunnudagur 17. ágúst 1975
TÍMINN
21
melódiuformið getur vart
breytzt aö neinu marki, en i
mörgum tilfellum breytizt
melödlan verulega i samningu
og allur söngur er meira og
minna improviseraður. Hér eru
það tilfinningarnar sem ráða. —
Þaö er bezt að hafa þetta
óbundið, — það er að vísu
tvieggjaö, en skemmtilegra að
minum dómi og meira spenn-
andi”.
— Það er jafnt þroskaþjálfun
og tónlistarþjálfun að vera i
svona stórri hljómsveit, svaraði
Magnús er hann var inntur eftir
þvi, hvort þaö væri ekki stund-
um erfitt að sameina öll sjónar-
mið I hljómsveitinni. — Við
vitum að við verðum að vinna
saman, og i heild verður hljóm-
sveitin að beinast I einhverja
ákveðna átt. Hins vegar geta
meðlimir hennar fariö inn á
ýmsar aðrar brautir þar fyrir
utan, — en þegar hljómsveitin á
I hlut verður stefnan aö vera ein
og ákveðin.
Ný skoðanakönnun Nú-tímans:
spurningar
___________í ágúst_____________________
ATKVÆÐASEÐILL
1. Hvaða (listamann — hljómsveit), sem fram
hefur komið i popptónlistinni á siðastliðnum
fimm árum (frá 1970) telur þú athyglisverð-
asta (n)?
svar: ...............................
2. Hvaða islenzk (ur) (listamaður)— hljóm-
sveit telur þú að eigi mest skilið að verða
fræg (ur) utan íslands?
svar: ...............................
3. Hvaða hljómsveit er að þinum dómi bezt á
ísiandi i dag?
svar: ...............................
4. Hvaða hljómsveit er að þinum dómi efnileg-
ust (bjartasta vonin) á tslandi i dag?
svar: ...............................
5. Ef þú ættir að nefna beztu LP-plötu allra
tirna, — hvaða plötu myndir þú nefna?
svar: ...............................
6. Hvaða lag Bitlanna fellur þér bezt?
svar: ...............................
7. Hvern af Bitlunum (John, Paul, George,
Ringo) telur þú merkastan frá tónlistarlegu
stjónarmiði, — eftir að Bitlarnir hættu?
svar: ...............................
8. Ritdeilur hafa verið i Nú-timanum um það,
m.a. hvor hljómsveitin sé betri, Led Zeppe-
lin eða Cream. Hvora hljómsveitina telur þú
vera betri?
svar: ...............................
9. Tvö lönd hafa áunnið sér nafnbótina stór-
veldi i popptónlistinni, — Bretland og Banda-
rikin, og hafa menn löngum deilt um það,
hvort landið eigi að teljast meira stórveldi.
Hvort myndir þú nefna Bretland eða Banda-
rikin?
svar: ...............................
10. Hver er lélegasta hljómsveit, sem þú hefur
heyrt i?
svar: ...............................
Skilafrestur i þessari ágúst-skoðanakönnun
Nú-timans er til 31. ágúst. Klippið atkvæða-
seðilinn út og sendið til Nú-timans. Utan-
áskriftm er: Nú-timinn, Edduhúsinu v/Lindar-
götu, Reykjavík.
ATH. í spurningum 1, 5 og 10 er bæði átt við það
sem íslenzkt er og erlent.
Nafn..................................
Heimilisfang..........................
Magnús sagði að hann og
Jóhann ætluðu að gefa út
LP-plötu saman, en kvaðst ekki
vita hvenær hægt væri að taka
til við þau áform. „Viö vitum
ekki hvort Chappell/Robinson
muni gefa þá plötu út — en við
höfum rætt um þá plötu við þá,
en það fer eftir þvi hvort hún
verður nógu góö — hvort þeir
gefi hana út.”
— Sú plata verður talsvert óllk
að efni til og lög Change — þar
veröa rólegri tilfinningar sem
ráða ferðinni, meiri ihugun —
meiri heimilistilfinningar. Já,
ég býst við að hinir strákarnir i
hljómsveitinni muni aðstoða
okkur eitthvaö — Þá hefur
Björgvin haft á orði að gefa út
sólóplötu einnig.
— Við getum litiö á hljóm-
sveitina sem hjól, sem heldur
áfram ferð sinni hvað sem á
dynur. Þaö er þvi allt I lagi fyrir
einn og einn aö hoppa af farar-
skjótanum smá tíma. Og hljóm-
sveitin — Change — mun alltaf
halda áfram, jafnvel þótt ein-
hverjir meölimir hennar segi
skilið við hana fyrir fulit og allt.
Þaö er til svo mikið af góðum
hljóðfæraleikurum, sem við
gætum fengið til aö fylla i
skaröið, ef svo bæri undir. —• En
ég held að það þurfi enginn að
óttast það nú, að breytingar
verði á liðsskipan hljómsveitar-
innar i náinni framtiö.
Magnús sagöi að þeir myndu
næstu mánuði helga hljóm-
sveitinni alla krafta sina og til
að byrja með myndu þeir æfa
virkilega gott hljómleikaefni.
Sagði Magnús, að hann hefði
mikla trú á þeim markaði fyrir
hljómsveitina. „Þetta eru búnar
að vera góðar kennslustundir
hér heima. Viö höfum leikií
mikið og það er alveg nauðsyn-
legt, þvi hljómleikaferðin
verður eflaust erfið og þess
vegna gott aö hafa fengið
smjörþefinn af slikri vinnu,”
sagði hann.
— Þetta verður þá ekkerl
sældarlif?
— Nei, tónlistarmenn lifa engu
sældarlifi, þvi að þá hverfur
sköpunargetan.
Nú-timinn spurði Magnús um
það, hvernig auglýsingaherferð
fyrir Change yrði háttaö, þegar
LP-platan og hljómleikarnir
væru I brennidepli. — Ég veit
það ekki, sagði hann — ætli það
verði ekki svipaö og með Pilot.
Annars fylgist ég litið með
svona hlutum. Ég vil bara fá að
vera i friði i tónlistinni.
— Við verðum að fara að taka
afstöðu til stils hljómsveitar-
innar, og siðan halda þeim stil
til streitu, meðan efniviðurinn
leyfir. Við teljum, að nú séum
við búnir að leita nóg fyrir
okkur, og þvi ættum við að geta
farið að taka afstöðu til þess,
hvaða stil hljómsveitin ætlar að
einbeita sér að i framtíðinni.
Mér finnst persónulega, að ég
hafi fariö i heilan hring og
meira en það, en það er ekki
hægt að biða mikið lengur með
það að ákveða stefnu hljóm-
sveitarinnar.
Ræddum við nú um stund um
ýmis fyrirbrigði i hljómsveitar-
bransanum, m.a. glys og ýmiss
konar skraut sem margir
hljómlistarmenn skreyta sig
með. „Kannski veröur okkur
einhvern tinia sagt að skreyta
okkur meö fjöðrum,” sagði
Magnús og brosti. „Annars tel
ég að svona hlutir séu á engan
hátt þýöingarmiklir, og þótt
ýmsir afli sér einhverra
vinsælda út á þetta held ég að
þær vinsældir geti þá aldrei
orðið nema skammvinnar. Geta
listamannsins hlýtur alltaf að
ráða úrslitum.”
Sagöi Magnús aö það væri
mikið um öfga hvað sviösbúnað
snerti i Bretlandi, en taldi, að
flestir, sem notuðu slikt gerðu
það til aö hylja það, hvað þeir
væru lélegir.
Snerum við nú aftur tali
okkar að Change og umboðs-
mönnum þeirra og sagöi
Magnús, að hljómsveitin hefði
aðgang að mörg þúsund lögum
eftir hina og þessa, — sem
Chappell/Robinson hefðu einka-
rétt á. „Þegar byrjað var að
hugleiða LP-plötuna báðu þeir
okkur um að koma með lög eftir
okkur sjálfa, og komum við
fyrst með 10 lög og þeir
samþykktu fimm af þeim.
Ætluöu þeir þá að láta okkur fá
einhver lög af sinum, en við
sögðum þeim að við ættum
miklu meira efni. Komum viö
þvi næst með 17 lög, — og þá sáu
þeir loks að það var tilgangs-
laust að halda áfram að bjóða
okkur önnur lög, þvi okkar eigin
lög stóðu hinum lögunum fylli-
lega á sporöi.
Þegar við vorum að ræða
saman um feril hljómsveitar-
innar, dagana hér heima, tima-
bilið með H.B. Barnum og
fleira, sagði Magnús, að kona
nokkur islenzk' hefði spáð þvi
áður en til samstarfsins kom
meö Barnum, aö svartur maður
myndi hefta framför hljóm-
sveitarinnar um nokkurn tima.
„Þessi spádómur rættist, og við
fundum að hann var alltaf að
koma betur i dagsljósið. Tima-
bilið með Barnum var samt að
minum dómi ágætt fyrir
margra hluta sakir, en þegar
horft er aftur I timann, er ekki
annað hægt aö segja en að fram-
farir hljómsveitarinnar hafi
ekki verið miklar þann tima. —
Samt var þessi timi nauösyn-
legur, þvi aö við vorum mikilli
reynzlu rikari eftir ár,” sagði
hann.
— Já, ég er forlagatrúar. Ég
trúi þvi, að allt sem gerist sé
fyrirfram ákveðið, og þvi verði
að taka hverju sem er eins og
það er. Menn verða að temja sér
þolinmæði, — og fyrst verður
maður aö sigra sjálfan sig, áöur
en maöur sigrar heiminn.
Sem kunnugt er hafa Magnús
Sigmundsson og Jóhann Helga-
son verið afkastamestir
strákanna i Change við laga-
gerð og ræddum við nokkuð um
það atriði. Sagði Magnús að
hann ætti mjög auövelt meö að
semja, en hins vegar væri
stundum erfitt aö túlka
melódiuna i flutningi og eins
sagði hann að það væri stund-
um erfiðleikum bundið að tjá sig
ioröum. „Mér hentar best að tjá
mig I tónlist,” sagöi hann.
Magnús sagði, aö hann hefði
samið heilmikiö af lögum siðan
hannkomheim ogsagöiaðþau
lög væru ööruvísi en lögin, sem
hann heföi samið úti. „Þaö eru
svo margir áhrifavaldar sem
sækja á mig, þegar ég er heima
— og tsland er svo sannarlega
sérstakur staður i tilverunni,”
sagði hann.
— Einhvern tlma ætla ég að
gefa út LP-plötu með einu löngu
tónverki, sem ég samdi viö ljóð
Jónasar Hallgrimssonar,
Gunnarshólma.
— Hvað segir þú.... hváði
Nú-timinn....
— Ég samdi 17 minútna verk
við enska þýðingu, sem birtist I
Iceland Review, en það tónverk
er að öðru leyti alveg óunnið.
Þegar búið verður aö vinna þaö
til hlitar mun það eflaust fylla
eina LP-plötu og ég er
staöráöinn i þvi, aö koma þessu
á plötu. Mig langaði að semja
einnig við þetta ljóð — og geröi
það — en ég veit ekki hvenær
gefst timi til aö vinna það.
Magnús sagöi, að ætlunin væri
hjá Change aö leggja nú meiri
rækt við hæfileika hvers og eins
i hljómsveitinni, og nefndi aö
Björgvin ætti eitt lag á
LP-plötunni Ruby Baby. Þá
kvað hann Birgi hafa samiö
talsvert aö undanförnu.
Framhald á bls. 27
i 1 t Fa
Vinsældalistinn
vikuna 3. til 9. dgúst
1. O'Lucky Man
Alan Price
2. Sumar á Sýrlandi
Stuðmenn
3. One of These Nights
Eagles
4. Venus & Mars
Wings
5. Stuð, Stuð, Stuð
Lónlí Blú Bois
6. Last Farewell
Roger Whittaker
7. Gylfi Ægisson
Gylfi Ægisson
8. Shame, Shame, Shame
Shirley & Co
9. Roger McGuinn & Band
Roger McGuinn & Band
10. One Size Fits All
Frank Zappa & Mothers
Hafið þið athugað að i flesjum tilfellum eru hljomplöt-
urnar odyrari hjá FACO hljomdeild, LAUGA-
VEGI 89. Simi: 13008.
SENDUM I POSTKROFU