Tíminn - 17.08.1975, Side 22

Tíminn - 17.08.1975, Side 22
22 TÍMINN Sunnudagur 17. ágúst 1975 Gerplu vakti athygli á landsmótinu flokkur fró STCLKUR.... úr Gerplu sjásthér sýna á landsmótinu á Akran,esi. Fimleika á Akranesi Á landsmóti UMFí á Akranesi vakti sérstaka athygli fjölmennur fim- leikahópur frá Gerplu i Kópavogi. Gerpla er ekki gamált iþróttafé- lag, en hefur engu að siður haslað sér völl i þessari iþróttagrein. íþróttasi&an sneri sér til Þór- unnar Isfeld Þorsteinsdóttur, for- manns fimleikadeildar Gerplu, og baö hana aö segja frá starf- semi fimleikadeildarinnar: — 1 fimleikadeildinni hjá okkur voru sl. vetur um 200 manns, þar af 150 börn. Við byggjum starfiö hjá okkur upp á stigakerfi, sem skiptist I fernt — það eru æfingar á gólfi, olympiuslá, tvislá og svo stökk. En með þessari uppbygg- ingu eru fimleikar ekki einungis sýningagrein. • heldur einnig keppnisgrein. Svo i framtiðinni munum við eignast okkar afreks- fólk i fimleikum. — Fimleikasambandið hefur staðið fyrir tveimur keppnismót- um á ári, þar sem keppt er i fimleikastiganum. Félagar úr Gerplu fengu tvö gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun á íslands- mótinu i fimleikum, en á mótinu varð Berglind Pétursdóttir meist- ari — annað árið i röð. — Við höfum tekið þátt I mörg- um sýningum sl. vetur og var stærsta sýningin i Laugardals- höllinni, þar sem flokkur frá okk- ur sýndi nútlmaleikfimi. Þá tók- um viðþátti nokkrum sýningum i sumar, eins og á 17. júni I Kópa- vogi, á Olympiudeginum á Laug- ardalsvellinum, en við enduðum starfsárið með þvi að fara með 70 manna flokk á Landsmót U.M.F.l. á Akranesi, þar sem við tókum þátt I samæfingum fyrir bæöi eldri og yngri þátttakendur, auk þess sem við tókum þátt I samæfingum fyrir bæði eldri og yngri þátttakendur, auk þess sem við vorum meö sýningarhóp I nú- tima fimleikum, jassleikfimi, stökkum og frúarleikfimi. — í haust ráðgerum við að byrja starfsemina hjá okkur i september og vonumst til þess að geta byrjað næsta starfsár af full- um krafti, sagði Þórunn að lok- um. ÞÓRUNN tSFELD.... formaöur fimleikadeildar Gerplu. EITT af sýningaratriðunum á Akranesi. — og „stjörnuleikmenn í nær hverri stöðu íslandsmeistararnir frá Akranesi undir stjórn enska þjálfarans GEORGE KIRBY, sem hefur náð mjög góðum árangri með Akranes-liðið, eiga á að skipa mjög skemmtilegu liði og i því eru margir góðir máttarstólpar — „stjörnur” í vörninni og „stjörnur” i sókninni, sem hafa verið marksækn- ustu leikmenn okkar undanfarin ár. Það er vitað mál, að ef Skagamönnum tekst vel upp, eru þeir ósigrandi. Það hafa þeir sýnt undanfarin ár — en ef á móti blæs, þá eiga Skagamenn það til, að verða auðveld bráð. Skagamenn hafa nú yfir að ráða 7 landsliðsmönnum, þar af 6 mönnum, sem hafa leikið með landsliöinu I sumar. Þetta eitt nægir til að segja til um styrk- leika liðsins. Við skulum lita nánar á þá leikmenn, sem hafa verið stjörnur Akranes-liðsins i sumar. DAVÍÐ Kristjánsson hefur - varið mark Islandsmeistaranna I sumar og hefur hann komizt vel frá flestum leikjum þeirra — jafngóður markvörður, sem gerir sjaldan slæm mistök i leik. JÓN„KIettur” Gunnlaugsson er maður varnarinnar hjá Skaga- mönnum —-hann hefur aldrei ver- iö eins góður, eins og einmitt um þessar mundir. Jón er stór og sterkur miðvörður, sem hefur stórt sjóndeildarsvið — hann hef- ur yfir að ráða mikilli skallatækni og má segja að hann sé „einvald- ur” I loftinu inni i vitateigi Skaga manna. Þá er hann hættulegur við mark þeirra. Jón hefur skorað tvö mörk i deildinni i sumar. BJÖRN Lárusson, sem er okkar bezti bakvörður, leikur stöðu hægri bakvarðar i Akranes- liðinu. Björn, sem er drjúgur stoppari, er mikill sóknarbak- vörður, það sést bezt á þvi, að hann tekur mjög oft þátt I sóknar- aðgeröum íiðsins og er samleikur hansogKarls Þórðarsonar oft að- dáunarverður. Þótt að Björn leiki stöðu bakvarðar, er hann enginn viðvaningur i sókninni — þaö eru ekki mörg ár síðan hann var einn bezti og marksæknasti sóknar- maöur Islands. Björn, sem lék stöðu útherja héráður fyrr, hefur skorað 17 mörk á ferli sinum i deildinni. JÓN Alfreðsson er tvimæla- laust einn bezti miðvallarspilari okkar i dag — hann er heilinn á bak við sóknarleik Skaga-liðsins. Jón, sem hefur ódrepandi keppnisskap, hefur yfir að ráða mikilli yfirferö og hann er sifellt byggjandi upp sóknarlotur, með sinum nákvæmu sendingum. Þá hefur hann yfir mikilli skothörku að ráða og hefur tvisvar sinnum sent knöttinn i net andstæðing- anna I sumar. Hinn ungi og efnilegi ARNI Sveinssonleikurvið hliðina á Jóni Alfreðssyni á miðjunni. Þessi skotharði piltur er nú búinn að skipa sér á bekk með okkar beztu knattspyrnumönnum. Árni hefur næmt auga fyrir samleik og þar að auki hefur hann yfir geysileg- um skotkrafti að ráða — það hef- ur hann sýnt I sumar, enda skorað þrjú gullfalleg mörk i deildinni. KARL Þórðarsoner annar ung- ur og efnilegur leikmaður i Akra- nes-liðinu. Karl hefur yfir að ráða æfintýralegri knattmeðferð, sem hann kann svo sannarlega að nýta sér. Hann hefur gert mörg- um mótherjum lifið leitt með hraöa sinum og tækni,enda hugsa menn sig tvisvar sinnum um, áður en þeir reyna að ná knettin- um af honum. Þá hefur Karl yfir að ráöa mjög nákvæmum send- ingum sem hafa gefið Skaga- mönnum mörg mörk og mark- tækifæri. TEIT Þórðarson og MATTHÍAS Hailgrlmsson, landsliðsmiðherj- ana snjöllu, á að vera óþarfi að kynna. Þessir tveir marksækn- JÓN ALFREÐSSON....fyrirliði Skagamanna. ARNI SVEINSSON. W>. TEITUR ÞÓRÐARSON. MATTHIAS HALLGRIMSSON. ■*m ■ • il BJÖRN LARUSSON. ustu leikmenn okkar hafa ávallt verið á meðal markhæstu leik- manna okkar, þegar markareikn- ingarnir eru gerðir upp i deild- inni. Matthias, sem hefur skorað 63 1. deildarmörk, er nú mark- hæstur I deildinni — með 7 mörk. Teitur, sem hefur skorað 41, 1. deildarmark, hefur skorað 5 mörk I deildinni i sumar. Aðrir leikmenn I Akranes-liðinu eru Benedikt Valtýsson, bak- vörður með mikla reynslu, Jó- hannes Guðjónsson, Þröstur Stefánsson, fyrrum landsliðsmið- vörður, Guðjón Þórðarson, Hörður Helgason, varamark- vörður og Hörður Jóhannsson.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.