Tíminn - 17.08.1975, Síða 23

Tíminn - 17.08.1975, Síða 23
Sunnudagur 17. ágúst 1975 TÍMINN 23 Hvernig lyktar orustunni um miðjuna? ★ Ræður sú orusta úrslitum, þegar Framarar r mæta Islandsmeisturunum frú Akranesi á Laugardalsvellinum í kvöld? LEIKUR ársins fer fram á Laug- ardalsvellinum i dag, þegar toppliðin f 1. deild Akranes og Fram mætast. Knattspyrnuunn- endur hafa beðið eftir þessum leik með mikilli eftirvæntingu, enda hefur hann mikla þýðingu f bar- áttu liðanna um Islandsmeistara- titilinn — en miklar likur eru á þvi, að það lið sem stendur uppi sem sigurvegari á Laugardals-' veliinum i kvöld, hljöti meistara- titilinn I ár. Akurnesingar mæta til leiks sem Islandsmeistarar, en Framarar, sem hafa komið skemmtilega á óvart f deildar- keppninni, mæta til leiks með þvi hugarfari að næla sér I meistara- titilinn frá Skagamönnum. Það verður örugglega erfiður róður fyrir Reykjavfkurliðið, þvi að ts- landsmeistararnir frá Akranesi hafa sýnt það að undanförnu, að það verður erfitt aö „ræna” frá þeim meistaratitlinum, sem þeir eru ákveðnir i að verja. Leikurinn, sem hefst kl. 2:30 á Laugardalsvellinum, verður örugglega tvisýnn og spennandi. Margar spurningar hafa skotið upp kollinum i sambandi við leik- inn — stóra spurningin er: Hvern- íþróttir IITITITI111J 1111 I I 11III11111111111111 I M I H 1111! V m ig lyktar orustunni um miðjuna? Ná þeir Jón Alfreðsson, Árni Sveinsson og Haraldur Stur- laugsson völdum á miðjunni fyrir Skagamenn og fá þeir þar með að ráða miðvallarspilinu og gangi leiksins? Eða snýst dæmið við — verður það I verkahring þeirra Gunnars Guðmundssonar, Agústs Guðmundssonar og Eggerts Steingrimssonar, að stjórna spil- inu á miðjunni? Orslitin i orust- unni um miðjuna getur ráðið úr- slitum i þessum þýðingarmikla leik — Timinn spáir þvi, að það lið sem .nær tökunum á miðjunni, beri sigur úr býtum. Margar aðrar spurningar hafa skotið upp kollinum, eins og t.d. — taka Framarar Karl Þórðarson eða Matthias Hallgrímsson úr umferð? Framarar eru ófáanleg- ir til að svara þessari spurningu, enda ekkert hernaðarleyndarmál gefið upp fyrir hinn þýðingar- mikla leik — „Það kemur I ljós I leiknum”, sögðu leikmenn Fram-liðsins, þegar viö spurðum þá um þetta. Svör við spurningum ' varðandi leikinn, — spurningum MIÐVALLARSPILARARNIR Haraldur Sturlaugsson og Jón Alfreðsson. Ná þeir völdunum á miójunni fyrir Skagamenn? Hér á myndinni sjást þeir meðtslandsbikarinn, sem barizt er um. eins og: — Tekst Fram-liðinu að stöðva hina hættulegu framlinu Skagamanna? — Tekst Skaga- mönnum að rjúfa hinn sterka varnarmúr Fram? — Hvað gerir Marteinn og Co? — fást á Laug- ardalsvellinum i dag. Það má búast við mikilli aðsókn á leikinn, sem er svo að segja úr- slitaleikur mótsins. Akraborgin fer sérstaka ferð frá Akranesi, með hina tryggu áhangendur Skagamanna og koma þeir til með að setja mikinn svip á leik- inn, sem menn segja að sé barátta á milli Reykjavikur og landsbyggðarinnar. Þá hefur Iþróttasiðan frétt að áhangendur Fram ætli ekki að láta sitt eftir liggja, til að hvetja Fram-liöið til sigurs. UMSJÓN: Sigmundur Ó. Steinarsson FRAMLIÐIÐ hefur vaxið með hverri JÓN PÉTURSSON...fyrirliði MARTEINN GEIRSSON Framara. raun FRAM-liöiö undir stjórn Guö- mundar Jónssonar og Jóhannesar Atlasonar, hefur komið skemmti- lega á óvart I sumar. Eftir sterk- an meðvind I byrjun mótsins, hef- ur liöiö vaxið meö hverri raun og oft á tiðum sýnt ágæta leiki. Fram-liðið er ekki byggt upp á „stjörnum” — heldur jöfnum leikmönnum með óþrjótandi baráttuvilja, sem einkennist af úthaldi, vinnu og aftur vinnu. Þessir eiginleikar Fram-liösins, sem hefur verið aðalsmerki liðs- ins undanfarin ár, hefur reynzt liðinu drjúgir. Margir hafa sagt, að Fram-liðið hafi verið heppið 1 keppninni. Þetta er að vissu marki rétt, en liðið hefur oft veriö brennimerkt heppnisstimpli fyrir leiki sem það hefur sigrað á mjög sannfærandi hátt. En lánið hefur ekki leikið við Fram-liöið að öðru leyti — t.d. hefur liðið mátt þola mikla blóðtöku, sem ætla mátti aö myndi rlða liðinu til falls. Fram-liðið missti alls 7 leikmenn, sem voru fastamenn með liðinu sl. keppnistimabil, í byrjun keppnistimabilsins. Má þar nefna leikmenn eins og landsliösmenn- ina Asgeir Eliasson, Guðgeir Leifsson og Sigurberg Sigsteins- — eftir hina miklu blóðtöku, sem liðið varð fyrir í vor HVERNIG verður lið íslands- meistaranna frá Akranesi skipað, þegar það mætir Fram á Laugar- dalsvellinum i kvöld? Allar likur eru á þvi, að liðið sem byrjar inn á, verði skipað þessum leikmönn- Davið Kristjánsson Benedikt Valtýsson Björn Lárusson Jón Gunnlaugsson Jóhannes Guðjónsson Jón Alfreðsson Haraldur Sturlaugsson Árni Sveinsson Teitur Þórðarson Matthias Ilallgrimsson Karl Þórðarson GUÐMUNDUR JÓNS- SON...þjálfari Framliðsins. son, sem voru i hópi allrabeztu leikmanna Fram. Þetta var mikil blóðfórn fyrir hið unga Fram-lið, enda var þaö komið svo, að liðinu var spáð falli I byrjun keppnis- timabilsins. Þrátt fyrir þessa miklu blóðtöku gáfust leikmenn liðsins ekki upp — þeir tviefldust i hinni hörðu baráttu og sú barátta hefur gefið rikulegan,, ávöxt. Geysilegur baráttuandi er aðall Fram-liðsins, sem er skipað jöfn- um leikmönnum, sem þurfa sjaldan að hirða knöttinn úr netinu hjá sér. Fram-liðið á þó sinar stjörnur, eins og önnur lið —• landsliðsmennina Martein Geirs- son, Jón Pétursson og Arna Stefánsson. ARNI Stefánsson er tvimæla- laust einn okkar allra bezti mark- vörður. Hann hefur yfir að ráða miklu öryggi og er frábær á milli stanganna. Þá gripur hann vel inn I leikinn og hirðir yfirleitt all- ar háar sendingar, sem koma fyr- ir markið. Arni er I stöðugri framför, hann hefur skipað sér á bekk með okkar beztu markvörð- um fyrr og siðar. JÓN Pétursson, fyrirliði Fram-liðsins, hefur yfir geysileg- um baráttuvilja að ráða, og er hann ekki þekktur fyrir að gefast upp þó á móti blási. Það hefur oft veriö sagt, að andstæðingar Jóns gefi knöttinn frekar til Jóns, held- ur en að lenda i návigi við hann. Jón, sem er sterkur varnar- maður, er hættulegur I sókninni — sérstaklega þegar Framarar taka auka- eða hornspyrnur við mark andstæðinganna. MARTEINN Geirsson er burð- arás Fram-liðsins. Það er ekki nóg að hann sé okkar allra sterk- asti varnarmaður, heldur er hann stórhættulegur hvaða vörn sem er. Marteinn hefur yfir geysilegri yfirferð að ráða — hann er Beck- enbauer okkar íslendinga. Mar- teinn getur verið eitt augnablikið að stöðva sóknarlotur and- stæðinganna við mark sitt, en á næsta augnabliki er hann kominn ifremstu viglinu Fram-Iiðsins, að hrella vörn andstæðinganna. Marteinn, sem er tveggja manna maki á knattspyrnuvellinum, hef- ur verið óstöðvandi i sumar. Þessi sterki og stæðilegi miðvörð- ur hefur 6 sinnum sent knöttinn i mark andstæðinga sinna I sumar og er ofarlega á blaði yfir mark- hæstu leikmenn. Aðrir leikmenn Fram-liðsins eru: Kristinn „Marka-Kiddi” Jörundsson, sem er ávallt hættu- legur við mark andstæðinganna, Ómar Arason, Simon Kristjáns- son, Gunnar Guðmundsson, miðjumaðurinn, sem hefur óþrjótandi úthald, Agúst Guð- mundsson, Eggert Steingrims- son, Rúnar Gislasonog ungu leik- mennirnir Trausti Haraldsson, Guðmundur Hafberg og Pétur Ormslev. HVERNIG verður Fram-liöið skipað, þegar það mætir tslands- meisturunum frá Akranesi á Laugardalsvellinum? Allt bendir til, að þessir leikmenn byrji leik- inn: Arni Sveinsson Simon Kristjánsson Trausti Haraldsson Jón Pétursson Marteinn Geirsson Gunnar Guðmundsson Agúst Guðmundsson Eggert Steingrimsson Guömundur Hafberg Kristinn Jörundsson Rúnar Gislason

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.