Tíminn - 20.08.1975, Page 4

Tíminn - 20.08.1975, Page 4
4 TÍMINN htitQQOjtttttt Miövikudagur 20. ágúst 1975 Simone Veil — ráðherra, húsmóðir, tízk Á.siðastliðnu ári hefur nafnið Si- mone Veil orðið þekkt um allan heim. Simone er heilbrigðis- málaráðherra heimalands sins, Frakklands, og hefur þótt að- sópsmikil i þeirri stöðu. Það þótti ganga næst kraftaverki, þegar hún fékk samþykkt i franska þinginu lög um fóstur- eyðingar, sem eru einhver hin frjálslegustu i Evrópu. Frakkar eru yfirleitt kaþólskrar trúar, og kaþólska kirkjan hefur sem kunnugt er barizt mjög á móti hvers konar frjálslyndi i þess- um efnum. Simone Veil barðist sleitulaust fyrir þessu málefni I þinginu, og tókst að sannfæra það marga þingmenn um rétt- læti sins máls, að frumvarpið □□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□ Rokkhljómsveit og stjórnmdl Er nokkur skyldleiki milli stjórnmálahneigðar og rokktón- listar? John Orman, sem kennir stjórnmálavisindi við Indiana- háskóla segir i bók sinni, Stjórn- málarokk, að stjórnmál séu ekki fyrir hendi i rokki. Orman heldur þvi fram, að tónlistin hjá Elton John, Pink Floyd og The Carpenter höfði til repúblikana. Tónlistin hjá The Rolling Stones og Jethro Tull höfði aftur á móti til demókrata, en hinir óháðu séu hrifnastir af Bob Dylan, The Who og The Carpenter. Eftir þvi sem Orman segir: „Tónlist hef- ur ekki tök á að breyta neinu i ☆ stjórnmálum. Hún styrkir að- eins fyrirfram ákveðna afstöðu. Rokktónlist endurspeglar, hún er ekki virkur aóili”. Hann bendir á ákveðið samband milli rokks og kapitalisma, og út- skýrir það þannig, að rokkarar syngi gjarnan um samheldni, ást og jöfnuð, en vili ekki fyrir sér að krefjast eins hárrar peningagreiðslu fyrir skemmt- unina og aðdáendur þeirra frek- ast geta af hendi látið. Sem dæmi tekur hann Bob Dylan og bendir á að viðskiptahættir hans séu i hróplegri mótsögn við hug- sjónasöngva hans! ☆ udama komst I gegn.Hún þykir alveg sérstakiega góðurlögfræðingur, og á sæti i hæstarétti Frakk- lands siðan 1970. Simone er 47 ára. Hún er gift og á þrjú börn, og er sögð góð móðir og hús- móðir, þrátt fyrir miklar annir, en að sjálfsögðu með góðri heimilishjálp, — og öll fjöl- skyldan hjálpast að, segir hún. t heimsstyrjöldinni siðari, þá settu Þjóðverjar hana I hinar illræmdu fangabúðir i Ausch- witz. Hún var þá innan við tvi- tugt, og hafði verið I störfum fyrir mótspyrnuhreyfinguna i Frakklandi, sem vann gegn þýzku herstjórninni, er Frakk- land var hersetið af nasistum. Það er mál, sem Simone talar litið um. — Við eigum að horfa fram á veginn, segir hún, en ekki eyða tima I að bollaleggja um það sem er liðið. Síðast en ekki sizt, er það sagt i umsögn- inni, sem fylgdi mynd þessari af ráðherranum, — er hún glæsileg I útliti, klæðaburði og fram- komu. □ □□□□□ Segulbönd notuð við sérskólakennslu Hvert einasta barn, sem stund- ar nám i skóla fyrir börn með heyrnarskaða i Frankfurt i Þýzkalandi, hefur til umráða sitt eigið segulband og heyrnar- tæki, eins og sést hér á mynd- inni. Þessi sérskóli i Frankfurt tók til starfa vorið 1974, og þar er nú rúm fyrir 120 nemendur, sem búa bæði i borginni sjálfri og nágrenni hennar. Eru þeir daglega sóttir i vögnum og flutt- ir til skólans, þar sem kennarar leggja allt kapp á að kenna þeim, og reyna að bæta úr þeim skaða, sem þeir hafa orðið fyrir. Einnig geta foreldrar barnanna fengið ráðleggingar i skólanum eftir þvi, sem þeim finnst þeir þurfa. Af þeim 85 nemendum, sem fyrstir komu i skólann eru þegar fimm farnir úr honum og hafa þeir hafið nám i venjuleg- um skóla, þar sem þeir hafa tekið svo miklum framförum, og það er mögulegt fyrir þá að fylgjast með kennslu eins og hún er framkvæmd fyrir börn, sem talin eru fullkomlega heil- brigð. — Ég vara þig við. Ef þú útskýrir gildi krónunnar fyrir þeim, heimta þeir meiri vasapeninga. Vertu sæll, Jónatan, það er allt búið á milli okkar — það er ekkert samband á milli okkar lengur — bless, bless — þetta er hljómplata... Q-'l'L DENNI DÆMALAUSI Ef þér finnst sagan um Grisina þrjá vera Ijót, biddu þá, þangað til þú heyrir söguna um Hróa hött.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.