Tíminn - 20.08.1975, Qupperneq 5

Tíminn - 20.08.1975, Qupperneq 5
Miðvikudagur 20. ágúst 1975 TÍMINN 5 fKllIll I m Samningaviðræður við útlendinga t iei&ara i blaðinu Austra gerir ritstjórinn, Jón Kristjánsson, landhelgismálið að umræðuefni og segir m.a.: „Það verður sjálfsagt mikið rætt um það á næstunni hvort semja beri við útlendinga um veiðar i landhelginni, og hafa talsmenn stjórnmálafiokk- anna þegar tjáð sig um það efni og einnig forsvarsmenn ýmissa félagasamtaka. Skoð- anir á þessu máli liggja á milli þess að ræða alls ekki við út- lendinga, og á hinn bóginn aö semja um takmörkuð veiði- réttindi til skamms tima. Þegar rætt er um þessi mál, er rétt að gera sér grein fyrir mikilvægi þess þegar fisk- veiðilögsagan var færð út i 50 milur. Innan 50 milna eru mikilvægustu fiskimið okkar og þau mið, sem umfram allt verður að vernda fyrir ofveiði. Veiðiheimildir utan 50 mílnanna Það er vert að geta þess, að sá árangur hefur náöst, að það er aðeins ein þjóð, Vestur- Þjóðverjar, sem viöurkenna ekki 50 mQna mörkin á ein- hvern hátt, og rétt er að undir- strika það, að samningar þeir, sem gerðir voru við Breta, fólu f rauninni i sér óbeina við- urkenningu á 50 milna mörk- unum. Ég er i höpi þeirra manna, sem telja að innan 50 miina eigi engar veiðiheimiidir fyrir útlendinga að koma tii greina, og ég vil undirstrika þetta sjónarmið alveg sérstaklega og tel að stjdrnvöldum beri að halda sig fast viö þá stefnu. Ástand fiskistofnanna er þaö slæmt að allra mati, sem um þau mál hafa fjallað, að þaö eitt er næg röksemd. Hins veg- ar tel ég, að til greina komi að semja um takmarkaöar veiði- heimildir til skamms tima milli 50 og 200 milna”. Mólinu ekki til framdróttar, að neita viðræðum Loks segir I leiðara Austra: „Það einstrengingslega sjónarmið að ræða alls ekki viö útlendinga verður málinu ekki til framdráttar, enda sett fram til þess að skapa sér- stööui þessum málum. Flestir gera sér það ljóst, að viðræður við aörar þjóðir verða aö leiða til einhverrar niöurstöðu, en það skal undirstrikað, að þjóð- in væntir þess aö samninga- menn okkar haldi fast á sinum rétti. Þeim er mikill vandi á höndum og eiga erfitt verk framundan, að afla 200 milna fiskveiðilögsögu viðurkenn- ingar. Þvi er nauðsynlegt að að baki þeim standi einhuga þjóð og þetta mál verði ekki dregið niður I dægurþras og flokkadrætti. Þróunin á alþjóðavettvangi er jákvæð fyrir okkur, og með samstöðu er okkur sigurinn vis”. —a.þ. Inn-Djúpsdætlun: AAeiri framkvæmdir nú en d 20 dra tímabili þar d undan — segir Árni Jónsson, landndmsstjóri Gsal-Reykjavik — „Ég held að ó- hætt sé að segja þaö, að viðhorf manna á þessu svæði hafi gjör- breytzt eftir að áætlunin var gerö. Nú eru meiri framkvæmdir á þessu svæði en veriö höföu á 20 ára tímabili þar á undan, — og sé miðað við önnur byggðarlög i dreifbýli landsins hefur verið mest utn framkvæmdir i Inn-Djúpi. A siöasta ári var rúm- lega þriðji hver bóndi I einhverj- um framkvæmdum og þeir eru litið færri i ár”, sagöi Árni Jóns- son, landnámsstjóri i viðtali við Timann, en alit frá þvi I fyrravor hefur veriö unniö að endurreisn og uppbyggingu I tnn-Djúpi, sam- kvæmt samnefndri áætlun. Inn-Djúpsáætlun er fimm ára framkvæmdaáætlun og hófust framkvæmdir I fyrra,,eins og áður segir. Þá voru býggingafram- kvæmdir á 16 bæjum, aðallega fjárhúsbyggingar, og nam heildarkostnaður tæpum 40 mill- jónum króna. 13 fjárhús voru byggð fyrir tæp 4000 fjár. 1 ár er unnið að hlöðubyggingum, bæði þurrheys og votheys, svo og 30 kúa fjósi að Látrum, Reykja- fjaröarhreppi, og gróöurhúsi að Myndavél tapaðist í Almannaskaröi á mánudaginn. Skilist á lögreglustööina, Höfn, Hornafiröi, eða hringið í síma 91-43720. BÍLALEBGAN BRAUTARHOLTl 4, SlMAR: 28340-37199 Kord Bronco Land/Rover Range/Rover Blazer VVV-sendibilar VYV-fólksbílar Datsun-fólks- bílar Laugarási, Nauteyrarhreppi, en auk þessa tveggja hreppa, falla inn I ramma Inn-Djúpsáætlunar, ögurhreppur og Snæfjallahrepp- ur, svo og eyjarnar Æöey og Vig- ur. Jafnhliða byggingafram- kvæmdum hefur verið unniö að jarðræktarframkvæmdum ogi sumar hefur verið grafið meö skurðum mest af jaröhæfu landi, sem ekki hefur verið ræst fram áður. Þá hefur verið unnið að frumvinnslu og sáningu i tals- verðan hluta lands á þessu ári. Að sögn landnámsstjóra eru framkvæmdir samkvæmt Inn-Djúpsáætlun fjármagnaöar á þrennan hátt. I fyrsta lagi lánar Stofnlánadeild landbúnaðarins allt að 70% af áætluðum kostnaði, i annan stað lánar byggðasjóður um 15% og i þriðja lagi koma svo til framlög samkvæmt jarð- ræktarlögum, en þau eru mis- munandi eftir þvi hvaða tegund framkvæmdar á I hlut. „Samtals á þetta að geta verið um eða yfir 85% af kostnaðarveröi mann- virkja”, sagði Arni, ,,en hvaö jarðræktarframkvæmdir snertir er lánað um 65% af kostnaöar- verði”, sagði hann. Árni nefndi að bankar, Land- námið og Innkaupastofnun rikis- ins hefðu hlaupiö undir bagga með fyrirgreiðslu bráðabirgðar- fjármagns þar til lánin heföu ver- ið veitt. — Þetta er allt að komast i fast- ara form, sagði Arni. — Núna er sérstakur maöur fyrir vestan, sem skipuleggur framkvæmdir, ákveður forgangsröð bygginga, sér um ýmiss konar útréttingar, og greiöir efni og vinnulaun, — en vinnukraftur er fenginn bæði úr sveitunum sjálfum og sóttur ann- að. Árni nefndi að Búnaðarsam- band Vestfjarða hefði beitt sér fyrir þvi, að kaupa flekamót og tilheyrandi búnað með steypi- hrærivél og hefði þessi búnaður verið tekinn i notkun i vor. Kvað hann kosti þessara tækja vera þá, aö framkvæmdirnar væru ódýr- ari fyrir vikið og framkvæmda- hraöi meiri. Eins og kunnugt er var það Landnám rikisins, sem hlutaðist til um gerð þessarar áætlunar i samráði við ýmsar aðrar stofnan- ir og heimamenn. „Já, það hefur borið við, að fólk vilji setjast að á þessu svæði”, sagði Arni. „Ungt fólk settist að á eyðijörðinni, Botni i Mjóafirði, i fyrra og fleiri hafa sýnt áhuga á búsetu á svæð- inu. Eðlilega eru vissir annmark- ar á þvi, áð setjast að á eyðijörö- um, en það eru nokkrir staðir sem i athugun eru að verði teknir til á- búðar aftur”, sagöi Árni Jónsson að lokum. H F= 5ÍMI B1500 ÁRMÚLA11 undir hesta og kýr Mjúkar og einangrandi Undirstaða ánægjunnar í gripahúsinu Drætti frestað til 20. september í happdrætti Hauka Skrifstofustúlka óskast sem fyrst til vélritunarstarfa. Upplýsingar i skrifstofunni. Jeppakerur— Fólksbílakerrur Vorum að fó nokkurt magn af notuðum herjeppakerrum Eigum einnig nokkrar amerískar fólksbílakerrur Gísli Jonsson & Co. hf. Sundaborg — Klettagöröum 11 — Simi 86644

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.