Tíminn - 26.08.1975, Qupperneq 19
Þriðjudagur 26. ágúst 1975
TÍMINN
19
Erum við svo vön fisklykt, að
við finnum hana ekki?
Mun minni lykt hér en frá erlendum fiskmjölsverksmiðjum
SJ-Reykjavik. Fyrir fáum árum
hófust mælingar á lykt i reyk frá
þurrkurum fiskmjölsverksmiðja
á vegum Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins undir stjórn Páls
Ólafssonar efnaverkfræðings.
Eru þær mælingar gerðar með
svonefndri þynningaraðferð, sem
er raunverulega sú eina aðferð,
sem til greina kemur.
t stuttu máli er aðferðin i þvi
fólgin, að hópur manna er valinn
til að segja til um, hvort lykt
finnst af reyknum, sem þynntur
er mismunandi mikið með fersku
lofti. Það er talið lyktarlaust, ef
helmingur hópsins finnur ekki
lykt. Ef reykurinn hefir verið
þynntur t.d. 1:2000 er sagt, að
lyktin sé 2000 lyktareiningar.
A árinu 1974 fóru fram
allviðtækar mælingar á reyk frá
EVINRUDE
>SÁ STÓRI
NÚ NÆST
>SÁ STÓRI
NÚ MÁ
SÁ STÓRI'
FARA AÐ VARA SIG
Litill mótor,hraóskreióur,
hljóólátur,laus vidtitring
léttbær og gangviss,
4 sparneytin hestöfl
sEVINRUDE
FREMSTIR
í flokki
FYRSTIR
af stað
ÞORHF
ArmúlaH Skólavörðust.25
báðum verksmiðjunum i Reykja-
vik, en þar hagar þannig til, að
reykurinn frá báðum þurrkurun-
um i hvorri verksmiðju sam-
einast i einn skorstein, og má þvi
auðveldlega ná sýni af öllum
reyknum frá þurrkurunum.
Mælingar fóru fram við loðnu,
þorsk- og karfamjölsframleiðlsu.
Þvi miður urðu niðurstöður
þær, að aðferðin virðist ekki not-
hæf. Fólki bar illa saman um það
hvort um lykt væri að ræða og á
hvaða stigi þynningar.
Ef til vill er skýringin sú, að við
Islendingar erum svo vanir fisk-
lykt og það jafnvel lykt frá verk-
smiðjunum, að okkur veitist erfitt
að kveða á um hvortum lykt sé að
ræða þegar búið er að þynna
reykinn svo að lykt finnist
„varla”.
Niðurstöður virtust þó benda til
að um mun minni lykt væri að
ræða en erlendar niðurstöður
benda til, þ.e. færri lyktar-
einingar.
Rætt var um þessi mál við sér-
fræðinga á fundi Visinda- og
tækninefndar Alþjóðafélags fisk-
mjölsframleiðenda i Vigo á Spáni
i april s.l. Þar kom i ljós, að Danir
höfðu svipaða reynslu af að-
ferðinni, þ.e. hún reyndist mjög
ónákvæm, og niðurstöður þeirra
bentu til minni lyktar en tölur frá
hliðstæðri vinnslu erlendis bentu
til. Var þar um að ræða
gufuþurrkara en hér á landi eru
sem kunnugt er, næstum alfarið
notaðir eldþurrkarar.
Þá fóru og fram allviðtækar
mælingar á vatni i reyk fisk-
mjölsverksmiðjanna, sem áður
er getið. Var þar einnig um að
ræða framleiðslu sömu mjöl-
tegunda og getið var.
Ef vitað er, hvernig vinnslu er
hagað i einhverri verksmiðju má
með sæmilegri nákvæmni reikna
út hve mikið vatn er eimað úr
hráefninu i þurrkurunum. Er hér
með vitnað til útreikninga Páls
Ólafssonar i Tæknitiðindum nr.
18, 19. jan 1973.
1 þeirri greinargerð var reiknað
með að 0,25 kg. af vatni færi með
hverju kg af þurru lofti, sem frá
þurrkurunum kæmi við hag-
stæðustu skilyrði samkvæmt
norskum heimildum.
Niðurstöður þessara mælinga
voru þær, að allmiklu meira loft
kemur frá þurrkurunum en að
ofan greinir, enda um talsvert
loftmagn að ræða, sem ,,,ekur”
inn i loftstrauminn á leiðinni frá
þurrkurunum. Reyndist vatnið i
reyknum mjög misjafnt, eða 0,1-
0,3 kg. á hvert kg af þurru lofti.
Þeim, sem þekkja til framleiðslu
fiskmjöls koma þessar sveiflur
ekki á óvart.
Nokkrar verkfræðistofur hafa
Elliheimili í
Hafnarfirði
ö.B. Reykjavik.— Aformað er að
Hafnarfjarðarbær byggi ibúðir
fyriraldraða inágrenni Sólvangs.
Verða byggð 5 hús með samtals 30
ibúðum, þar af 10 hjónafbúðir og
20 einstaklingsibúðir. Tæknileg-
um undirbúningi er nú lokið, og
verða framkvæmdirnar boðnar út
næstu daga. Framkvæmdir eiga
að hefjast i haust, og á þeim að
verða lokið á árinu 1978.
Nú er að ljúka byggingu þriðja
áfanga Vfðistaðaskóla i Hafnar-
firði. Viðbyggingin er mjög
haganlegá unnin, þvi hægt er að
flytja milliveggi eða taka þá
hreinlega niður. Gefur þetta
fyrirkomulag möguleika á að
kenna i hópkennslu eða upp á
gamla móðinn. Teppi eru lögð
undir milliveggi, hver fermetri er
upphitaður og lýsing hönnuð með
tilliti til færanlegra veggja. Verk-
inu lýkur um næstu mánaðamót.
CREDA-tauþurrkarinn
er nauðsynlegt hjálpartæki á nútimaheimili og
ódýrasti þurrkarinn i sinum gæðaflokki. Fjórar
gerðir fáanlegar. Ennfremur útblástursbarkar
f/Creda, o.fl. þurrkara. Veggfestingar f/Creda
T.D. 275 þurrkara. (Sýndur i bás 46 á vörusýn-
ingunni).
SMYRILL Armúla 7. — Simi 84450.
þegar fengið upplýsingar um
þessi efni, væntanlega vegna
hönnunar hárra skorsteina, sem
þremur verksmiðjum hefur verið
gert að reisa.
Snjómaður-
inn skilur
eftir sigspor
Reuter-Srinagar, Kasmir-
fylki. Dagblað eitt i Kasmir-
fylki á Indlandi birti nýlega
myndir af fótsporum snjó-
mannsins vlðfræga.
Að sögn blaðsins voru
myndirnar teknar af stúdent-
um, er klifu fyrir skömmu
Mahadevtind i Himalajafjöll-
um.
Fótsporin voru nýleg og
slóðin lá um nokkurn veg.
Sjálf voru sporin 2,5 senti-
metra djúp og mun breiðari en
spor nokkurs manns.
Floð á
Indlandi
Reuter-Nýju Delhi. Tug-
þúsundir Indverja liafa misst
heimili sin af völdum flóða.
Fljótið Ganges og nokkrar
þverár þess hafa flætt yfir
bakka sina með þeim
afleiðingum, að vatn hefur
streymt um götur borgarinnar
Patna og nærliggjandi bæja og
þorpa.
Hermenn hafa unnið að
björgunarstörfum og bjargað
fjölda fólks frá drukknun.
® Áhorfendur
tryggði liöi sinu sigur (2:0) með
tveimur góðum mörkum. Dave
Smallman, welski landsliðs-
maðurinn hjá Everton, tryggði
liði sinu sigur (1:0) gegn
Birmingham, þegar hann skoraði
á 19. minútu. Bob Latchford,
markaskorinn mikli hjá Everton,
og fyrrum leikmaður Birming-
ham, var bókaöur i leiknum —
fyrir að brjóta gróflega á bróðir
sinum, Dave Latchford, mark-
veröi Birmingham.
John Hichton tryggði „Boro”
sigur á Ayresome Park, þegar
Úlafarnir komu þangað i heim-
sókn — hann skoraöi eina mark
leiksins. Alan Hudson var hetja
Stoke-liðsins, sem vann sigur
(1:0) yfir Arsenal-liðinu, sem átti
mjög lélegan leik á heimavelli
sinum — Highbury. Hudson
skoraði eina mark leiksins, þegar
hann sendi knöttinn örugglega i
net Arsenal-marksins, án þess að
Jimmy Rimmerhefði möguleika
á að verja — knöttinn hafnaði út
við stöng. Eftir leikinn var greini-
legt, að Arsenal-liðinu veitir ekki
af aö fá Alan Ball, fyrrum fyrir-
liöa liðsins — sem hefur ekki
fengið að leika upp á siðkastið
með liðinu — aftur i liðið. Baller
maðurinn, sem getur tengt
Arsenal-liðið saman.
Alan Taylor, hinn marksækni
leikmaður West Ham, skoraði tvö
mörk fyrir „Hammers” — þegar
Lundúnaliðiö vann sigur- (3:2)
yfir Burnley á Upton Park.
Taylor er nokkurs konar
,,M ar k a-K idd i ” (Kristinn
Jörundsson) Englendinga. Hann
er þekktur fyrir að skora mörk
með „potum” — eftir að aðrir
leikmenn hafa skotiö að marki.
Þannig voru bæði mörkin, sem
Taylor skoraöi gegn Burnley —
hann stóð inn i markteig og potaði
kenttinum yfir marklinu
Mersey-liðsins, sem hafði tvi-
vegis náð forustu — 1:0 (Leighton
James) og 2:1 (Peter Noble).
Rétt fyrir leikslok tókst siðan
Graham Paddon.að tryggja West
Ham- sigur, með þvi að spyrna
knettinum af miklum krafti i
netamöskva Burnley-marksins.
UTANLANDSFERÐ
Héraðsmót í
Skagafirði
Héraðsmót framsóknarmanna i Skagafirði verður haldið að
Miðgarði 30. ágúst og hefst það kl. 21. Einar Agústsson utanrikis-
ráðherra og Jón Sigurðsson varaformaður SUF flytja ræður.
Óperusöngvararnir Svala Nielsen og Guðmundur Jónsson
syngja við undirleik Carls Billich. Gautar leika fyrir dansi.
Snæfellssýsla
Héraðsmót framsóknarmanna I Snæfellssýslu verður haldið að
Röst, Hellissandi sunnudaginn 14. sept. og hefst kl. 21.00. Hljóm-
sveit Þorsteins Guðmundssonar leikur fyrir dansi.
Nánar auglýst siðar.
Kjördæmisþing á Austurlandi
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið
i Egilsbúð Neskaupstað laugardaginn 30. og sunnudaginn 31.
ágúst. Þingið hefst kl. 14.
Ferð til Vínarborgar
r
Arnessýsla
Sumarhátið Framsóknarmanna i Arnessýslu verður haldin að
Árnesi 30. ágúst og hefst kl. 21.
Ræður flytja Halldór E. Sigurðsson ráðherra og Gerður Stein-
þórsdóttir kennari. Magnús Jónsson óperusöngvari syngur,
Baldur Brjánsson töframaður skemmtir og Stuðlatrió leikur fyr-
ir dansi.
Allir velkomnir.
Héraðsmót í
Neskaupstað
Héraösmót Framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið i
Egilsbúð Neskaupstað laugardaginn 30. ágúst og hefst kl. 21.
Ræður flytja Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra og
Halldór Asgrimsson alþingismaður. Ómar Ragnarsson, hljóm-
sveit Ragnars Bjarnasonar og Halli og Laddi flytja nýja
skemmtidagskrá. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir
dansi.
4. til 13.
september
Þeir sem áhuga
hafa á þessariferð
hafi samband við
flokksskr if stofuna.
Nánari upplýsing-
ar um ferðina á
flokksskrif stof unni.
Simi 2-44-80.
Síðustu forvöð