Tíminn - 26.08.1975, Page 20
SÍM112234
tíERRfl
ARÍ3URINN
A'ÐAbSTRflETI a
g:~:ði
fyrirgóóan mai
$ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Rabin, forsætisráöherra tsraels, rennir augum yfir Mitla-fjallaskaröiö, sem hefur veriö eitt af bitbeinunum I samningaumleitunum Ggypta og
israelsmanna
KHFFIÐ
ffrá Brasiliu
Hæstiréttur Indlands:
tillögum þeirra.
Um næstu helgi fer Kissinger til
New York, þar sem hann ávarpar
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna. Hafi samkomulag ekki
náðst fyrir þann tima, er hann
staðráðinn i að snúa aftur til Mið-
jarðarhafslanda og taka upp
þráðinn, þar sem frá var horfið.
Sadat Egyptalandsforseti viröir fyrir sér herstöövar tsraelsmanna á Sinai-skaga.
Vestrænir fréttamenn
fá ekki aðgang
Reuter-Nýju Delhi. t gær hófust
aðila- og vitnayfirheyrslur fyrir
Hæstarétti Indlands i máli, er
snýst c.t.v. meira um pólitisk en
lagaleg atriði. Stjórnarand-
stæðingar á Indlandi hafa nefni-
lcga vcfengt gildi stjórnarskrár-
breytingar þeirrar, er indverska
þingið gerði fyrir skömmu.
Stjórnarskrárbreyting þessi er
tilkomin vegna dóms yfir Indiru
Gandhi forsætisráðherra — þess
efnis, að hún hafi gerzt sek um
kosningamisferli i þingkosning-
unum árið 1971 og hafi þvi glatað
embættis- og kjörgengi. Með
breytingunni er úrskurðarvald
um embættis- og kjörgengi tekið
úr höndum dómstóla og fengið
annarri stofnun, er enn hefur ekki
verið sett á laggirnar. Breytingin
hefur og i för með sér, að Indira
Gandhi getur gegnt embætti
áfram og á ekki á hættu að glata
kjörgengi.
Vefengingin byggir fyrst og
fremst á þeim rökum, að
stjórnarskrárbreytingin brjóti i
bága við þær grundvallarreglur,
er stjórnskipun landsins sé reist
á. Og aukaþing það, er afgreiddi
breytinguna, hafi ekki verið hæft
til að taka slika ákvörðun.
Búizt er við, að yfirheyrslurnar
standi yfir alla þessa viku. Það
vakti athygli i gær, að vestrænir
fréttamenn fengu ekki að vera
viðstaddir réttarhöldin. Þvi var
borið við, að indverskir frétta-
menn hefðu fyllt stúku frétta-
manna og þvi væri ekki rúm fyrir
— þó ekki væri nema einn einasta
erlendan fréttamanna.
Kissinger bjartsýnn eftir viðræðurnar í gær:
Samkomulag um næstu helgi?
NTB /Reuter-
Alexandriu/Jerúsalem/Tel Aviv.
Henry Kissinger, utanrikisráö-
herra Bandarikjanna — er nú
reynir að miðla málum i deilu
Egypta og tsraelsmanna — sagði
i gær, að hann teldi likur á nýju
bráðabirgðasa m kom ulagi um
frið á Sfnai-skaga hafa aukizt að
undanförnu. — Og e.t.v. verður
hægt að undirrita slfkt samkornu-
lag fyrir næstu helgi, bætti hann
við.
Kissinger lauk i gær viðræðum
sinum við Anwar Sadat Egypta-
landsforseta og aðra egypzka
ráðamenn. Áður en hann hélt frá
Alexandri'u til Jerúsalem, ræddi
hann við fréttamenn, og lét þá
framangreind orð falla.
Kissinger staðfesti, að Egyptar
og tsraelsmenn ræddu nú aðeins
uppkast að fyrirhuguðu sam-
komulagi. Hann upplýsti og, að
mikilverður árangur hefði náðst i
viðræðunum i gær, t.d. virtist svo
sem samkomulag hefði náðst um
atriði, er áður hefði staðið styrr
um.
Bandariski utanrikisráðherr-
ann kom til Tel Aviv siðdegis i
gær. Yigal Allon utanrikisráð-
herra tók á móti honum á flug-
vellinum, en siðan héldu þeir til
Jerúsalem með þyrlu. Kissinger
hóf þegar i gærkvöld að skýra
israelskum ráðamönnum frá
undirtektum Egypta við nýjustu
Blaðburðarfólk óskast
Laufásvegur - Óðinsgata -
Skólavörðustigur - Lindargata -
Háteigsvegur - Austurbrún -
Laugarás ■ Skeiðarvogur■
Suðurlandsbraut - Bólstaðarhlíð
Sími 26500 -
12323
Ródesíu-
viðræður
ganga
stirðlega
Reuter-Livingstone, Zambiu.
Sem kunnugt er hófust viöræð-
ur um stjórnskipulega framtið
Ródesiu fyrir skömmu. Til
þessa hafa deiluaðilar hitzt I
járnbrautarvagni, er stendur
á brú yfir Zambesi-fljót, en
fljótið skilur Ródeslu frá
Zamblu.
Aftur á móti er sýnt, að
breyta verður til, þegar farið
verður að ræða smáatriði
fyrirhugaðs samkomulags um
nýja stjórnarskrá til handa
Rödesiu. Ian Smith, forsætis-
ráðherra Ródesi'u, krefst þess,
að fundir þessir verði haldnir i
Ródesiu, en ANC — sem er ráð
blökkumanna — er andvígt þvi
og vill halda fundina i Zambiu
eða einhvers staðar utan
Ródesiu.
í gær slitnaði upp úr við-
ræðunum, en siðdeg-is var svo
boðað til fundar á ný með
deiluaðilum. Það eru þeir
Kenneth Kaunda Zambiufor-
seti og John Vorseter, for-
sætisráðherra Suður-Afriku,
er gengið hafa fram fyrir
skjöldu i þvi skyni að sætta
deiluaðila og fá þá til að halda
viðræðum áfram.
Knattspyrnu-
ieik aflýst
af ótta
við uppþot
Reuter-Bastia, Korsiku. Yfir-
völd á Korsíku liafa aflýst
knattspyrniileik, er fram átti
að fara á morgun. Þau óttast,
að til uppþots komi fyrir at-
heina korsiskra aöskilnaðar-
sinna.
Það voru lið frá Bastia og
Nice, er áttu að leiða saman
hesta sina. Leiknum var aflýst
að frumkvæði Michel Ponia-
towskis, innanrikisráðherra
Frakklands. Sem kunnugt er
kom til átaka á Korsiku i fyrri
viku með þeim afleiðingum,
að tveir lögreglumenn féllu.
Siðan hefur rikt mikil ólga á
eynni.
Goncalves
situr ófram
NTB-Lissabon. Francisco
Costa Gomes Portúgalsforseti
hefur ákveðið, að Vasco
Goncalves forsætisráðherra
gegni þvi cmbætti áfram,
þrátt fyrir andstöðu ymissa
áhrifamanna i Portúgal.
Talsmaður Gosta Gomes
skýrði frá þessu i gærkvöld. —
Orðrómur um, að forsætisráð-
herranum verði vikið frá, á
ekki við rök að styðjast —
hann gegnir embætti áfram,
bætti talsmaðurinn við.
Aður hafði Costa Gomes átt
sex stunda langan fund með
þeim Goncalves og Otelo
Saraiva Carvalho, er sæti eiga
I herforingjastjórninni ásamt
forsetanum, svo og hinum
þrem yfirmönnum Portúgals-
hers.
A fundinum á Carlos Fabiao
yfirhershöfðingi að hafa kraf-
izt þess, að Goncalves yrði
vikið frá innan sólarhrings. Að
öðru leyti eru fréttir af fundin-
um óljósar.