Tíminn - 27.08.1975, Blaðsíða 1
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
_________u.i — ,
Landvélar hf
cllUeiV
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SiMI (9DÍ9460 j
Tölvan spdði
illa fyrir
Friðriki, en
hann ætlar
d mótið samt
»....■» Q
VILL ÍSLENZKT
HRÁEFNI
TIL PIZZU-
GERÐAR
■—> o
Gsal-Reykjavik „Eru Rússarnir komnir til að njósna um
NATO-skipin?” spurðu menn i gær, þegar stórt rússnekst skip birt-
ist óvænt og virtist lóna á Kollafirði. Skýringín á ferðum rússneska
skipsins »*r þó sögð önnur. -Þeir komu til að hv.la áhöfnina og leituðu
þvi til hafaar en liggja nú viö ankei i, þar sem það var ekkert
hafnarpláss i Reykjavik” sögðu hafnsögumenn I gær.
Zudmiy Pobedy heitir rússneska skipið, og er það verk-
smiðjutogari um 3000 lestir að stærð.
A myndinni sjást . tvö NATO-skipanna og rússneski togarinn,
sem er lengst til vinstri á myndinni.
Timamynd: G.E.
GRÓÐRARSTÖÐ
RÍS AÐ MÓGILSÁ
Á KJALARNESI
Samkomulag undirritað
Fundir hjó undirmönnum í Lindarbæ í dag
BH-Reykjavik. — Samninga-
nefndir farmanna og útgerðar-
felaganna undirrituðu bráða-
birgðasamkomuiag i gær, sem
fjallað verður um nánar næstu
daga. Fundur verður haldinn i
Sjómannafélagi Reykjavikur I
Lindarbæ kl. 2 I dag, og að honum
ioknum fer fram allherjarat-
kvæðagreiðsla meðal farmanna i
Sjómannafélaginu um samkomu-
lagið. Stendur atvkæðagreiðslan
daglega á skrifstofutlma á skrif-
stofu Sjómannafélags Reykja-
víkur til þriðjudagsins 2. septem-
ber, og lýkur þá kl. 5. Jafnframt
hefur áður boðuðu verkfalli verið
frestað til miðnættis
þriðjudagsins 2. september.
Um eðli samninganna nú
vörðust samningsaðilar allra
frétta I gær og kvdðu ekki rétt að
fjalla um þá á opinberum vett-
vangi fyrr en félagsmenn hefðu
fjallað um þá.
Hitt væri ekkert leyndarmál, að
þeir væru byggðir á ramma-
samningi ASl og samræmingu
sérkrafna.
Timinn rifjar upp, að fulltrúar
farmanna lýstu þvi yfir, fyrir
skömmu, að aðalkröfurnar væru
þær, að hækkun fengist á
mánaðarlaun, og þó sérstaklega
yfirvinnukaup. Þá vildu þeir fá
sömu laun fyrir vinnu við lestun
og losun skipanna og hafnar-
verkamenn í Reykjavik.
FJ-Reykjavik. Að Mógilsá á
Kjalarnesi verður reist ný
gróðrarstöð, þar sem beitt
verður nýjustu aðferðum við
plöntuuppeldi. Þetta kom fram i
ræðu skógræktarstjóra, Hákons
Bjarnasonar á aðalfundi Skóg-
ræktarfélagsins.
Skógræktarstjóri lýsti i ræðu
sinni m.a. framkvæmd á Skóg-
ræktarþætti Landgræðsluáætlun-
ar, sem samþykkt var á Alþingi
29. júli 1974. Auk nýju gróðrar-
stöðvarinnar verður höfuðáherzla
lögð á friðun nýrra landa til skóg-
ræktar og útivistar. Þá gat skóg-
ræktarstjóri þess, að unnið væri
að skýrslugerð um skógrækar-
möguleika og árangur skógrækt-
ar hér á landi.
Sjá nánar frétt á
» o
Borgarráðsmeirihlutinn hyglir gæðingunum:
ÁRMANNSFELU AFHENT FJÖL-
BÝLISHÚSALÓÐ ÁN UMSÓKNAR
Samkomulagið undirritaö i gær.
Timamynd: Gunnar
BANASLYS
Gsal-Reykjavik. — i gærdag
varð tamslys á Vesturlandsvegi,
er þrir bílar lentu þar I mjög
hörðum árekstri, skömmu eftir
hádegið. ökumenn þessara
tveggja bila voru strax fluttir á
slysadeild Borgrspitalans, þar
sem annar mannanna iézt
skömmu siðar, en hinn
maðurinn iiggur enn á Borgar-
spitalanum og er i lffshættu.
Cortinu-bifreið var ekið eftir
Vesturlandsvegi i átt til Reykja-
vikur. Svo að segja beint fyrir
ofan Korpúlfsstaði missti
ökumaðurinn stjorn á bif-
reiðinni, og stefndi hún út af
veginum. Reif maðurinn þá i
stýrið, og við það hentist bif-
reiðin þvert yfir veginn i veg
fyrir bifreiðar, sem voru á hinni
akreininni. Lenti Cortinu-bif-
reiðin fyrst á Bronco-jeppa og
siðan á Fiat-bil, sem við árekst-
urinn hafnaði utan vegar.
ökumenn Cortinunnar og
Fíatsins klemmdust báðir i sæt-
um sinum, en voru þegar fluttir
á slysadeildina, þegar tekizt
hafði að ná þeim út úr bilflökun-
um. ökumaður Fiat-bilsins lézt
siðan á slysadeildinni skömmu
eftir að þangað var komið.
ökumenn beggja bilanna voru
einir i bilunum.
ökumann og farþega i
Bronco-jeppanum sakaði ekki,
enfengutaugaáfall að sögn lög-
reglunnar.
Á SAMA TÍMA OG FYRIRTÆKIÐ
ER Á EFTIR MEÐ FRAMKVÆMD-
IR FYRIR REYKJAVIKURBORG
FB-Reykjavik. A fundi borgar-
ráðs á þriðjudagsmorgun var
samþykkt með atkvæðum meiri-
hiutans, Sjálfstæðisflokksins,
gegn atkvæðum minnihluta
borgarráðs að afhenda Armanns-
felli hf. lóð undir 23 ibuðir á horni
Grensásvegar og Hæðagarðs, en
þetta er mjög eftirsóknarverður
staður undir fjölbýlishús. Var
þetta gert án þess að lóðin væri
fyrst auglýst, og öðrum
byggingaraðilum þannig gefinn
Þetta er lóðin við Hæðagarð
og Grensásveg, sem Ar-
mannsfeil fékk. Aftara
fjölbýlishúsið byggði Ar-
mannsfell einnig á eftir-
sóknavcrðum stað við
Espigerði.
(Timamynd Gunnar)
kostur á að sækja um lóðina.
Þrir fulltrúar minnihlutans i
borgarráði, þeir Alfreð Þor-
steinsson (F), Björgvin Guð-
mundsson (A) og Sigurjón
Pétursson (Ab) óskuðu eftir sér-
stökum bókunum varðandi þetta
mál, og sömuleiðis Albert Guð-
mundsson (S).
1 bókununum kemur fram, að
hjá borginni liggja nú umsóknir
hvorki minna en 28 aðila, sem
óska eftir lóðum undir fjölbýlis-
hús frá 1. desember sl. og fram til
þessa dags. 1 þeim hópi eru
margir byggingameistarar, sem
ekki hafa fengið úthlutað lóðum i
Reykjavik, en Armannsfell fékk
hins vegar úthlutað mjög eftir-
sóttri lóð fyrir nokkrum árum á
Stóragerðissvæðinu. Vakti sú út-
hlutun mikíð umtal á sinum tima.
Þá kemur fram i bókun Alfreðs
Þorsteinssonar, að Ármannsfell
er nú á eftir með framkvæmdir á
vegum Reykjavikurborgar, og
telur hann þvi varhugavert að út-
hluta fyrirtækinu á sama tima
stórri byggingarlóð.
SJÁ NÁNAR
>