Tíminn - 02.09.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 2. september 1975.
BH-Reykjavik. Úrsvalt nætur- Það er umsvifalaust hafizt inga og siðan haldið út i myrkr-
húm helgarinnar leggst þungt handa, aflað haldgóðra upplýs- ið, skipulega og með leitarljós.
að húsunum, þegar fregnin
berst frá einni ibúö til annatrar:
Fjögurra ára drengur er týnd-
ur....
Myrkrinu létt sem snöggvast af skurðinum, sem er milli vegar-
ins og túnsins.
La garfl jótssvæðið
Veiöihornið var orðið talsvert langeygt eftir
fregnum af Héraði og nágrenni, svo að þegar viö
náðum i hann Jón Kristjánsson á Egilsstöðum,
létum viö sannarlega ekki undir höfuð leggjast
að spyrja hann um veiðiskapinn fyrir austan.
Jón kvaö veiöiskapinn hafa verið heldur treg-
an framan af á vatnasvæði Lagarfljóts, en þetta
væri heldur að lagast, og t.d. hefði nýlega veiðzt
lax frammi i Grimsá I Skriðdal, sem væri næsta
sjaldgæft.
Ástæðuna fyrir þvi, að laxinn væri tregur i
Lagarfljóti, þrátt fyrir mikla alúð, sem þar
hefði verið lögö við aö rækta laxinn upp, kvað Jón
ef til vill vera þá, að nýi laxastiginn i Lagarfossi,
sem gerður var vegna virkjunarframkvæmda,
hefði liklega ekki verkað rétt á laxinn ennþá,
a.m.k. hefði hann ekki virzt ganga upp hann. Nú
væri 1 ráði að setja laxateljara i stigann til þess
að ganga úr skugga um, hvort þetta væri rétt.
Selfljót og Gilsá
eru i rauninni sama áin, sem gengur undir tveim
nöfnum, eins og svo margar ár á okkar landi.
Gilsá heitir hún inni I Eiðaþinghá og þar hefur
verið óvenju góð veiði i sumar, en tölur liggja
ekki fyrir.
Selfljót heitir áin rétt áður en hún fellur út i
Unaós, og þar er ágæt veiði, en sama máli gegn-
ir um hana, að tölur eru ekki fyrir hendi.
Kaldá og Fögruhliðará
Kaldá er i Eiðaþinghá og fellur i Jökulsá á Dal
og þar hefur verið reytingsveiði i sumar, sér'
staklega upp á siðkastið, en I Fögruhliöará hefur
ekki veiðzt mikill lax til þessa. Þetta er fremur
stutt á, sem er i ræktun, og hefur orðið vart við
lax i henni, þannig að menn gera sér vonir um
hana.
Enda þótt þessar upplýsingar segi ekki margt,
er ljóst, að laxaræktunin I ánum á Austfjörðum
er I fullum gangi, og vafalaust ekki langt að biða
þess að þar komi margar og góðar ár i gagnið.
Með tilliti til þessa skal það haft hugfast, að
veiðileyfin i þessum ám kosta ekki stóran pen-
ing. Samkvæmt gjaldskrá Stangveiðifélags
Reykjavikur, sem hefur Kaldá, Fossá og Laxá I
Jökulsárhlið á leigu eðra hverja viku, kostar
stöngin ekki nema 2000.00 krónur, og eru 2 leyfð-
ar I Kaldá og 1 i hvora hina. Á Lagarfljótssvæð-
inu kostar stöngin 2000,00 kr., á laxasvæðunum,
en þar eru stengurnar 1-3, en kr. 1000,00 á
silungssvæðunum, en silungsveiðina kvað Jón
Kristjánsson hafa verið góða I sumar.
Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.
Selá I Vopnafirði
Þorsteinn Þorgeirsson, bóndi á Ytri-Nipu i
Vopnafiröi hafði samband við veiðihornið I gær
til þess að segja okkur frá aflabrögðum I Selá.
Þann 1. september voru komnir á land 656 lax-
ar úr Selá, sem verður að teljast næsta góð út-
koma, þvi að allt sl. sumar veiddust I Selá 589
laxar.
Veiðitimanum i Selá lýkur þann 11. septem-
ber.
Leyfðar eru 3 stangir I Selá frá 1. júli, en frá
20. júli eru leyfðar 6 stangir. Stærsti laxinn, sem
veiözt hefur á þessu sumri, er 20 pund, en
meðalþyngd laxanna er eitthvað rúm 8 pund.
Laxá i Aðaldal
Veiði lauk i Laxá þann 31. águst. Nokkuð var
veiðin betri en á siðastliðnu sumri, en endanleg-
ar tölur liggja enn ekki fyrir. 1 veiöihúsinu tald-
ist Helgu Halldórsdóttur ráðskonu að um 1412
laxar væru skráðir i veiðibækurnar en ekki
sagðist hún halda að allt væri skráð enn. Þetta er
um 200 löxum fleira en i fyrra. Þá eiga tölur eftir
að koma frá öðrum svæðum i Laxá, frá bændun-
um, en fastlega er búizt við að heildartalan verði
tæplega tvö þúsund, en I fyrra veiddust rúmlega
átján hundruð laxar. Siðustu dagana sem veitt
var, var veiði fremur dræm þó fengust á laugar-
dagsmorgun sjö laxar fyrir neðan fossa, sem er
mjög góð veiði á þessum tima.
Hver blettur I námunda Ibúða-
hverfisins er vendilega kannað-
ur, hver grastoppur hreyfður,
hverjum hlut velt við....
Myrkrið setur óhug að mönn-
um, gatan mishæðótt og ógn-
.vekjandi i dulúð sinni, sem
magnast margfaldlega við ljós-
leysið.
Fréttamaður Timans er einn
þeirra, sem tekur þátt I leitinni,
og þar sem hann klöngrast yfir
skurði, gjótur og grunna, hrýs
honum hugur við öllum hættun-
um, sem þarna blasa við full-
orðnum manni, en leynast ung-
um, óreyndum augum.
Til þess að koma mönnum 't'il
að hugsa um, hvað hér er um að
ræða, skal látið nægja að benda
á, að gatan er i byggingu. Allt ó-
frágengið i kringum húsin, sem
þegar eru byggð, moldarhrúg-
ur, timburstaflar, skurðir uppi
við húsin, breiðir og hrollvekj-
andi i rökkri, hvað þá I myrkri.
Það er margt, sem kemur upp i
hugann, þegar þetta kemur i
ljós, litils drengs er saknað og
það er komið fram yfir mið-
nætti....'
Og þögnin umhverfis verður
enn voðalegri, þegar farið er að
dæla vatninu upp úr ógirtum
húsgrunnum I grenndinni —
núna fyrst, þegar litils drengs er
saknað....
Það er skundað og skimað,
eftirvæntingin og spennan
gagntekur hugi allra, — snuð-
randi sporhundurinn er kominn
á vettvang og dregur gæzlu-
manninn á eftir sér út i dimm-
una.
Það er rifjað upp, hvernig
þetta bar að höndum. Ung hjón
flytja með börnin sin inn i nýja
Ibúð. Umhverfið er frumstætt,
— og hestar á beit handan við
götuna. Snáðinn ætlar að klappa
Svo er farið að dæla upp
úr húsagrunnum I myrkr-
inu....
Óbreytt
stjórn
Stéttar-
sam-
bands
bænda
A AÐALFUNDI Stéttarsambands
bænda voru eftirtaldir menn
kosnir I stjórn: Ólafur Andrésson,
Sogni Kjós. Gunnar Guðbjarts-
son, Hjarðarfelli. Guðmundur
Ingi Kristjánsson, Kirkjubóli.
Sigurður Jónsson, Reynistaðir.
Ingi Tryggvason, Kárhóli. Þor-
steinn Geirsson, Reyðará. Jón
Helgason, Seglbúðum.
í ljósleysi umhverfisins
heldur leitarflokkurinn af
stað — hvað finnum við i
myrkrinu? er spurningin,
sem er efst i huga hvers
manns.
Myndir
Gunnar V.
Andrésson
hestunum. Klukkan átta er hann
ekki kominn heim, þá er strax
byrjað að leita. Klukkan
hálf-ellefu er mannskapur kall-
aður út.
Klukkuna vantar fimm min-
æutur I eitt, þegar kallið glymur
úr hátalara yfir byggðina: Litli
drengurinn er fundinn, Og fögn-
uðurinn gripur alla.
Hann fannst undir svölum við
blokk. Hafði lagzt til svefns og
breitt plastdúk ofan á sig, blaut-
ur og hrakinn. Hafði ekki fundið
réttu leiðina heim I nýju ibúð-
ina....
Skyggnzt inn I bifreiðar,
sem einhvern veginn hafa
dagað uppi á bygginga-
svæðinu.
Sitja
þing
S.Þ.
FJ-Reykjavik. Allir þingflokkar,
nema Samtök frjálslyndra og
vinstri manna, hafa útnefnt fulí-
trúa sina á þing Sameinuðu þjóð-
anna, sem hefst 20. október.
Fulltrúar Framsóknarflokksins
verða Jón Helgason, alþm., og
Björn Fr. Björnsson, sýslumaður.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
verður Pétur Sigurðsson, alþm.,
en Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki tilkynnt hinn fulltrúa sinn, en
venjan er, að tveir fulltrúar skipt-
istá um þingið. Fulltrúar Alþýðu-
flokksins verða Eggert G. Þor-
steinsson, alþm., og Eyjólfur Sig-
urðsson, prentari, og fulltrúar Al-
þýðubandalagsins verða Garðar
Sigurðsson, alþm., og Sigurður
Blöndal, skógarvörður.