Tíminn - 02.09.1975, Side 13
TÍMINN
13
Halogen-ljós
J-perur -
ótrúlega mikiö
Ijósmagn
PERUR f ÚRVAU
NOTIÐ
ÞAÐ BESIA
IITíOSSI
H
W
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
Og enn aukum við úrvalið. Nú sýnum við
hverju sinni um 60 stórar tepparúllur — og
ekki nóg með það — þér getið þar fyrir utan
valið úr
yfir 100 sýnishornum
CREDA-tauþurrkarinn
er nauðsynlegt hjálpartæki á nútimaheimili og
ódýrasti þurrkarinn I sinum gæöaflokki. Fjórar
geröir fáanlegar. Ennfremur útblástursbarkar
f/Creda, o.fl. þurrkara. Veggfestingar f/Creda
T.D. 275 þurrkara. (Sýndur i bás 46 á vörusýn-
ingunni).
SMYRILL Armúla 7. — Simi 84450.
BRAUN SYNCHRON PLUS
Örþunnt platínuhúðað blað
Það er leyndardómur
hins snögga og mjúka raksturs
Snöggur og mjúkur á
raksturinn að vera.
Hann á svo sannarlega
ekki að vera harður og
óþægilegur.
Þess vegna er blaðið húðað
örþunnri platínuhúð og það
er mjúkt þegar það leggst
þétt að húð þinni.
Platínuhúðin er öruggasta
tryggingin fyrir þægilegum,
snöggum og mjúkum rakstri.
Þessi þægilegi, snöggi og mjúki
rakstur er ástæðan
fyrir þvi, að þér kaupið og notið
BRAUN SYNCHRON PLUS rakvélina.
„Hvað gerist daginn
þann”?
Pétur Guðjónsson á Akranesi
skrifar:
Ég vil i upphafi taka það
fram, að ég veit mæta vel hvað
vinnustöðvun er, þvi ég hefi
fylgzt með þróun verkalýðs-
mála siðan 1944. Meðal annars
hefi ég átt sæti i og verið for-
svarsmaður i - stjórn sveina-
félags og staðið að stofnun og
viðurkenningu á öðru sveina-
félagi en nóg um það.
Hvað skeður svo, ef konur
leggja niður vinnu i einn dag?
Ég er mjög fylgjandi, að þær
einmitt geri þetta. Þessu myndu
að visu fylgja ýmis óþægindi, en
ég held, að það væri allt i lagi,
nema í einni starfsstétt, sem ég
hefi alltaf metið mikils, en það
er hjúkrunarstéttin og hjá
öðrum starfskonum sjúkrahúsa.
Að þessu undanskildu væri þetta
mjög skemmtileg tilbreyting.
Ekki sakna ég simans i einn
dag.
Ekki er nauðsyn að fá af-
greiðslu i banka i einn dag.
Verzlanir mega loka i einn
dag, — að meðtöldum mjólkur-
búðum.
Ekki er svo mikið að gera á
skrifstofum, að einn dagur
vinnist ekki upp um siðir.
t frystihúsum, þar sem lægst
launuðu konurnar vinna að
framleiöslustörfum þjóðarinn-
ar, — yrði að isa fiskinn i einn
dag, og vinna svo yfirvinnu. t
mötuneytum starfshópa myndu
áreiðanlega fást karlmenn, sem
tækju að sér að malla einn dag
— þvi margir karlar eru ágætis
kokkar þótt þeir annars vinni
önnur störf, og þvi ættu þeir
konulausu ekki að svelta.
Og þar með sný ég mér að þvi
veigamesta, sem er og hefur
alltaf verið vettvangur konunn-
ar, — það eru heimilisstörfin.
Ég held, að ég mæli fyrir
munn mjög margra karla, ef ég
segi að ekki sé vandi að hugsa
um heimilið i einn dag! Sjálfur
hugsaði ég um heimili mitt, —
með minni vinnu — á þriðju viku
nú nýverið meðan konan skrapp
i skemmtireisu til útlanda. Að
sjálfsögðu fór hún á vegum ein-
hverra félagasamtaka eins og
svomargir aðrir m.a. karlmenn
gera. Nú og aftur er ég rita
þessar linur, hugsa ég um
heimilið, þvi nú er það sjúkra-
hússvist hjá frúnni.
Að visu veit ég, að fjöldi karla
hefur hvorki þekkingu.vilja eða
getu til að hugsa um heimili
jafnvel i einn dag, en þeir hefðu
gott af að reyna það i einn dag,
ef ekki lengur. Mér finnst aö
koma mætti upp kennslu i þeim
fræðum fyrir þessa menn, þvi i
ýmsum tilfellum, svo sem veik-
indum, getur það komiö sér vel,
að þeir séu reiðubúnir að taka
aö sér þau störf um stundar sak-
ir.
Aftur vil ég vikja að sjálfum
mér (og sem fulltrúi þeirra,
sem geta annazt heimilisstörf i
viðlögum). Ég hafði lengi fyrir
sið, á meðan börnin voru yngri
og konan vann ekki úti, að elda
matinn á sunnudögum — og
hafði gaman af! Heimilisstörf
hefi ég flest unnið, þó ekki
þvegið stórþvott, og litið bakað.
Hér áður fyrr pressaði ég bux-
ur, stifaði skyrtur og strauk
flikur, festi tölur (geri reyndar
enn), stoppaði i göt og jafnvel
faldaði ég barnableyjur og
gengiö hefi ég frá föíum á ung-
bam. Sem krakki gekk ég i
sokkum og með vettlinga sem
pabbi prjónaði i höndum.
Minnisstætt mun dóttur minni
er ég stoppaði i þumalinn á
vettlingnum hennar, er mamma
vildi ekki gera það, þvi gatið var
nagað á!
En þá vil ég snúa mér að úti-
vinnu kvenna, — hún er oft unn-
in af meiri vanþörf en þörf,
vegna tekna heimilisins. 1
fyrsta lagi hefur kona með litið
heimili og góða aðstöðu svo litið
að gera heima, að hún hefur
gaman af að skreppa út hálfan
daginn eða svo og vinna úti á
meðal fólks. 1 öðru lagi er það
lúxusinn, sem verið er að
strekkja við, — safna i Spánar-
ferð, —fyrir nýjum bH, — fötum
á sjálfa sig, — finni húsbúnaði
og fleira, sem hún vill hafa eins
og jafnvel meira af en nágrann-
inn eða vinkonan.
Og það er einmitt þetta lúxus-
æði, sem viðgengst og mér
finnst, að konur ættu að beita
sér fyrir að minnka, þvi það
gengur út i öfgar á flestum
sviðum. Hitt er svo annaö mál,
að atvinnuvegir þjóðarinnar
þarfnast starfskrafta sem
flestra kvenna, ekki sizt i fisk-
vinnslu, sem er undirstöðuat-
vinnuvegur þjóðarinnar. Stafar
það ekki hvað sizt af þvi, að stór
hópur ungra kvenna (og karla)
slæpist i rándýrum skólum fram
yfir tvítugsaldur og nær þar svo
kannski vafasömum árangri.
Ég er eindregið þeirrar
skoðunar, að kvenréttindabar-
átta á Islandi sé löngu liöin tið.
Konur hafa það jafngott og karl-
ar og á sumum sviðum mun
betra. Það er min skoðun að þar
sem þær kynnu að ná lengra
yrði það þeim beint i óhag.
Heimilið á fyrst og fremst að
vera vettvangur konunnar, og
verk ungra kvenna ætti að vera
að búa sig sem bezt undir það
vandasama starf að verða góð
húsmóðir. Þetta mun ég rök-
styðja siðar ef tilefni gefst, en
ekki meira um þetta að sinni þvi
i raun hefi ég nú fengið ofnæmi
fyrir þessu svonefnda „kvenna-
ári”.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUAA
Fæst í raftækjaverzlunum í Reykjavík og víða
um land og hjá okkur.— Verð kr. 12.385.
Sími sölumanns er i-87-85.
BRAUN-UMBOÐIÐ:
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS
af hinum þekktu dönsku WESTON teppum,
sem við útvegum með tveggja til fjögurra
vikna fyrirvara. — Við bjóðum einnig skozkar
ryamottur og indverskar, kínverskar og tékk-
neskar alullarmottur.
Við sjáum um máltöku og ásetningu.
Ægisgötu 7 — Sími 17975/76
Teppadeild • Hringhraut 121 • Simi 10-603