Tíminn - 02.09.1975, Blaðsíða 16

Tíminn - 02.09.1975, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriftjudagur 2. september 1975. ÞÓRUNN ALFREÐSDÓTTIR Þórunn enn á ferðinni Næsta NAA unglinga hér á landi ÞÓRUNN ALFREÐSDÓTTIR, hin unga og efnilega sundkona úr Ægi, setti glæsilegt tslandsmet i 200 m fjórsundi um helgina á ung- lingameistaramóti tslands, sem fór fram á Sauöórkróki. Þórunn synti vegalengdina á 2:36.8 min. Þórunn, sem er nýkomin frá NM unglinga i Finnlandi, þar sem hún setti nýtt met i 200 m flugsundi — hún synti vegaiengdina á 2:29,65 min, og varö i fjóröa sæti. Þaö má geta þess, aö það var samþykkt aö næsta unglinga- meistaramót Noröurlanda yröi haldið hér á landi 1976 — dagana 9.-11. júli. • • Halldór skoraði lSchöen ó örlagastundu valdi — og KR-ingar lyftu sér af botninum ★ Tony Knapp kreisti farseðilinn til Frakklands, Belgíu og Rússlands HALLDÓR BJÖRNSSON var hctja Vesturbæjarstrákanna, þegar hann skoraði sigurmark KR-inga gegn Vestmannaeying- um á öriagastundu og kom þar meö gamla Vesturbæjarliöinu af botninum i 1. deiidarkeppninni. Þarna rættist óskadraumur Halldórs, sem er þekktur fyrir annaö en aö skora mörk — þrumuskot frá honum hafnaöi i netamöskvum Eyjamanna, al- gjörlega óverjandi fyrir Arsæl Sveinsson. Skemmtilegt fyrir Halidór, ekki einungis vegna þess, aö þarna bjargaði hann KR á þýðingarm iklu augnabliki, heldur og vegna þess, að þarna skoraöi hann sitt þýðingarmesta mark á knattspyrnuferli sinum. Þetta var hans annaö 1. deildar- mark, en hann skoraöi sitt fyrsta mark I deildinni 1973 gegn Akur- eyringum á Akureyri — þaö mark dugöi ekki til sigurs, þvi aö Akur- eyringar unnu þá sigur (2:1) yfir KR-ingum. Fyrir utan þetta mark Halldórs sem bjargaöi KR-ingum frá yfir- vofandi fallhættu, var fátt um fina drætti i leiknum, sem fór fram i leðjuhafi á Melavellinum — vellinum sem KR-ingar hafa unnið marga sæta sigra. KR-keppnisskapið fræga, sem sjaldan bregzt á örlagastundu, var svo sannarlega fyrir hendi leikmenn KR-liðsins börðust vel og þeir héldu áhugalausum Eyja- mönnum algjörlega I skefjun. Þetta réði Urslitum og sigur KR-inga var I öruggri höfn, frá þvi að Halldór Björnsson skoraði hið þýðingarmikla mark á 18. minútu leiksins. Mikill fögnuður var I herbúöum KR-inga eftir leikinn, og að sjálf- sögðu var Tony Knapp, þjálfari KR og landsliðsins ánægðastur — | enda var hann sagður hafa kreist farseðil sinn með landsliðinu til | Frakklands, Belgiu og Rússlands. HALLDÓR BJÖRNSSON..... var hetja strákanna I Vsturbænum. ER TOFRAMATTURINN HORFINN ÚR SKÓNUM HANS HERMANNS? hann misnotaði þrjú er Valsmenn unnu s ER töframátturinn horfinn úr knattspyrnuskónum hans ller- manns Gunnarssonar? Þessi mesti markaskorari Islands und- anfarin ár, sem hefur skorað 82 1. deildar mörk á mjög svo litríkum knattspyrnuferli, komst þrívegis i leiknum gegn Fram i opin mark- tækifæri, en honum brást boga- listin i öll skiptin. öðru visi mér áöur brá. Ilermann missti ekki áöur slik marktækifæri. . Þetta kom ekki aö sök í leiknum, sem Valsmenn unnu 3:2. En Her- mann, sem hefur ekki veriö á skotskónum i sumar, skoraöi þó eitt mark — meö skalla, en skallamörk eru nú efst á vin- sældalistanum hjá honum. Þaö er opin marktækifæri, igur (3:2) yfir Fram ekki langt siðan hann skoraöi 5 mörk með skalla f sama leiknum — gcgn Selfyssingum I bikar- kcppninni. En nóg um það, snúum okkur að leik Vals og Fram. Valsmenn tóku leikinn fljótlega i sínar hend- ur, og það var greinilegt að taug- ar hinna ungu Framara voru ekki I sem bezta lagi. Valsmenn tóku forustuna, þegar Magnús Bergs skallaði aftur fyrir sig, þar sem hann var staddur inni i vftateig Fram — varnarmenn Fram voru illa á verði og knötturinn hafnaði i netinu hjá þeim. Aftur voru Framarar illa á verði, þegar Al- bert Guðmundsson tók horn- spyrnu -- sending frá honum Heimsþekktur hlaupaþjálfari til ÍR-inga DAGANA 4-7—. septmber nk. mun Fjálsiþróttadeild ÍR gangast fyrir námskeiði fyrir millivegalengdahlaupara og langhlaupara og þjálfara þeirra. Til námskeiösins hefur félagiö fengiö mr. GORDON SURTEES, sem um þessar mundir er einn af þekktustu hlaupaþjálf- urum Englands, og mun hann ásamt þjálfara IR-inganna, Guömundi Þórarinssyni, leiðbcina þátttakendunum um æfingar og skipuleggja æfingakerfi þeirra fyrir komandi vetraræfingar. Mikill kostnaður fylgir þessu framtaki þeirra ÍR-inganna, þótt námskeiðið :muni ekki taka langan tima, og þvi munu væntanlegir þátttakendur þurfa að taka þátt i kostnaðinum með því að greiða krónur 2500 I þátttökugjald i upphafi námskeiðsins. Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna sig til Guðmundar Þórarinssonar eða Sigfúsar Jónssonar, sem veita munu allar nánari upplýsingar um námskeiðið. hafnaði i þverslá Frammarksins og þaðan hrökk knötturinn til Guömundar Þorbjörnssonar.sem skailaði hann fram hjá varnar- mönnum Fram og i netið. Vals- menn bættu siðan þriðja skalla- markinu við i síðari hálfleik, þeg- ar Hermann sneiddi knöttinn skemmtilega fram hjá Arna Stefánssyni, eftir sendingu frá Bergsvcini Alfonssyni. Þar með voru Valsmenn búnir að ná þriggja marka forskoti (3:0) og fátt gat hindrað sigur I þeirra. Það var ekki fyrr-en 15 minútur voru til leiksloka, að | Framarar vakna af vondum draumi. Þeir fara að sækja og ber þá ein sóknarlota þeirra árangur I — Trausti llaraldssonátti skot að I marki Vals, sem Dýri Guð-| mundsson reyndi að verja. En f heppnin var ekki með Dýra, sem sendi knöttinn i eigið mark, fram i hjá Sigurði Dagssyni, markverði Vals. Tveimur minútum siðar hafnaði knötturinn aftur f markil Valsmanna, það var Marteinnl Geirssonsem sendi hann þangað [ af 8 m færi. En þessi fjörkippur Framara kom of seint, þrátt fyrir mikla pressu að marki Vals-| manna, tókst þeim ekki að skora fleiri mörk. Sigurður Dagsson átti mjög I góðan leik i marki Valsmanna, og þá áttu þeir Hermann Gunnars-j son og Vilhjálmur Kjartansson á- gætan leik. Hjá Fram bar mest á Marteini Geirssyni og ungu I mönnunum Trausta Haraldssyni | og Pétri Ormslev, sem er stór- efnilegur sóknarleikmaður —| hann er leikinn með knöttinn og hefur skemmtilegar hreyfingar | og næmt auga fyrir samspili. HERMANN GUNNARSSON....... misnotaöi þrjú gullin tækifæri gegn Fram, en hann skoraði eitt mark — meö skalla. fióra nvliða HELMUT Schöen, einvaldur heimsin eistaranna frá V- Þýzkalandi, hefur valið fjóra nýliöa i 16 manna landsliöshöp sinn, sem leikur gegn Austur- rikismönnum i Vin á morgun. Nýliöarnir eru Manfred Kaltz, Hamburger SV og Gerd Zimm- ermann, Fortuna Dússeldorf, sem eru varnarmcnn, miðvall- arspilarann Uli Stielike, Bo- russia Mönchengladbach og miðherjann Bernd Gersdorff, Eintracht Braunschweig. Annars er 16 manna landsliðs- hópur V-Þjóðverja, skipaður þessum leikmönnum: Maier (Bayern Miinchen) og Franke (Braunschweig), markverðir. Varnarmenn: Kaltz (Hamburg- er), Vogts (Mönchengladbach), Beckenbauer (Bayern Múnchen), Koerbel (Frank- furt), Schwarzenbeck (Bayern Múnchen), Cullmann (1. FC Köln) og Zimmermann(Dussel- dorf). —• Miðvallarspilarar og framherjar: Geye (Dussel- dorf), Wimraer, Dannerog Stie- like (allir Mönchengladbach), Gersdorff (Braunschweig ), Holezenbein (Frankfurt) og Seel (Dusseldorf). MARKA- REGN BAYERN Múnchen vann stór- sigur (5:0) yfir Fortuna Dusscl- dorf i „Bundesligunni” á laug- ardaginn, þegar liðin mættust á Olympiuieikvellinum i Mun- chen. V-Þjóðverjar voru heldur betur á skotskónum á laugar- daginn — Hertha Berlin vann einnig stórsigur (5:0) yfir nýlið- um Bayern Uerdinger frá Rin- ardalnum. Þá vann VfL Bochuni stóran sigur (5:1) yfir Kickers Offenbach og 7 mörk voru skoruð i Duisburg. En litum á úrslit leikja i 5. umferð „Bundesligunnar”: Hertha—Uerdingen......5:0 Essen—Mönchengladbach ..1:3 Bochum— Offenbach.....5:1 Frankfurt—Schalke 04..2:1 Duisburg—Hannover 96 .... .4:3 Karlsruher—l.FC Köln .3:1 Hamborg—Kaisersleut ..2:0 Braunschweig—Bremen ....3:2 Bayern—Dusseldorf.....5:0 • REYKJAVÍK SKORAR Á LANDIÐ AD UNDANFÖRNU hefur sá orðrómur verið uppi, að frjáls- iþróttafólk úr Reykjavik þyrði ekki aö keppa viö úrvalsliö frjáIsiþróttafólks frá lands- byggöinni, en sú keppni var ekki fyrirhuguð samkvæmt móta- skrá FRÍ. Frjálsiþróttafólk úr Reykjavik hefur ncitaö þvi að þessi orörómur hafi við einhver rök að styðjast. 1 gær fréttist svo, að frjáls- iþróttafólk úr Reykjavik væri búiðað skora á frjálsiþróttafólk af landsbyggðinni, að mæta til keppni við það á Laugardals- vellinum dagana 13. og 14. september og keppa i öllum greinum Bikarkeppni FRl og með 3 keppendur i grein. Reyk- vikingum finnst eðlilegt að FRl sjái um val á liði landsins, og keppt verði eftir timaseðli bik- arkeppninnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.