Tíminn - 03.09.1975, Page 4
4
J.
TÍMINN
Miðvikudagur 3. september 1975.
Endur fyrir löngu leitaði fjár-
hirðir skjóls i helli einum til að
borða brauðið sitt og ostinn. En
þegarhannfór gleymdi hann af-
ganginum af ostinum. Sex
mánuðum siðar leitaði fjárhirð-
irinn aftur skjóls ihellinum. Þar
fann hann ostinn, sem hann
skildi eftir hálfu ári áður.
Honum til mikillar undrunar
var osturinn orðinn enn mýkri
og bragðmeiri en þegar hann
★
gleymdi honum og bragðið
betra en af nokkfum osti öðrum.
Þetta var upphafið að Roque-
fort ostunum, sem étnir eru af
sælkerum um allan heim.
Fyrirtækið sem framleiðir þá
notar enn hellana i Combalou i
Frakklandi til að geyma ostana i
meöan þeir þroskast.
Myndirnar eru af hamra-
veggnum, sem hellarnir eru i og
af feitum og hamingjusömum
ostagerðarmanni.
★
^ Sleðaferð í stdltrogi
Skiðalyftueigandi nokkur
Vestur-Þýzkalandi var
óánægður með þaö, hvaö sá timi
var stuttur á ári hverju, sem
hann hafði gróða af skfðalyftun-
um. Honum datt i hug, að það
gæti verið engu siður gaman
fyrir fólk, að fara upp i fjöllin I
skiöalyftum aö sumri til, en
fæstir höfðu samt áhuga á þvi,
vegna þess að mjög seinfarið og
ógreiðfært var niður. Þá datt
honum i hug að útbúa
sleðabraut úr stáli, sem hefði
fasta sleða til að rennsa sér
niður hliðina. Hann fékk verk-
fræðing til þess að koma hug-
myndinni á blað og segja fyrir
um verkið, og fullbúin kostaði
brautinskiðalyftueigandann um
200.000 þýzk mörk, sem hann
segist ekki vera lengi að vinna
upp, þvf að eftirsókn i þessar
sleðaferðir er mikil. Fyrir þá,
sem hafa áhuga, skal tekið
fram.aðþetta er SOOmetra löng
„salíbuna” — eins og
krakkarnir segja — niðurbratta
fjallshliðina. Skyldi ekki aðeins
fara fiðringur um magann á
þessari, sem við sjáum hér á
myndinni. Hún er i síöustu
brekkunni — og þar beið ljós-
myndarinn!
Einu sinni var ostur... ^
DENNI
DÆMALAUSI
„Það gerði ekkert til þótt þú
öskraðir svolitið fagnandi. Þetta
er i fyrsta sinn sem hann gerir
mark.”