Tíminn - 03.09.1975, Qupperneq 4

Tíminn - 03.09.1975, Qupperneq 4
4 J. TÍMINN Miðvikudagur 3. september 1975. Endur fyrir löngu leitaði fjár- hirðir skjóls i helli einum til að borða brauðið sitt og ostinn. En þegarhannfór gleymdi hann af- ganginum af ostinum. Sex mánuðum siðar leitaði fjárhirð- irinn aftur skjóls ihellinum. Þar fann hann ostinn, sem hann skildi eftir hálfu ári áður. Honum til mikillar undrunar var osturinn orðinn enn mýkri og bragðmeiri en þegar hann ★ gleymdi honum og bragðið betra en af nokkfum osti öðrum. Þetta var upphafið að Roque- fort ostunum, sem étnir eru af sælkerum um allan heim. Fyrirtækið sem framleiðir þá notar enn hellana i Combalou i Frakklandi til að geyma ostana i meöan þeir þroskast. Myndirnar eru af hamra- veggnum, sem hellarnir eru i og af feitum og hamingjusömum ostagerðarmanni. ★ ^ Sleðaferð í stdltrogi Skiðalyftueigandi nokkur Vestur-Þýzkalandi var óánægður með þaö, hvaö sá timi var stuttur á ári hverju, sem hann hafði gróða af skfðalyftun- um. Honum datt i hug, að það gæti verið engu siður gaman fyrir fólk, að fara upp i fjöllin I skiöalyftum aö sumri til, en fæstir höfðu samt áhuga á þvi, vegna þess að mjög seinfarið og ógreiðfært var niður. Þá datt honum i hug að útbúa sleðabraut úr stáli, sem hefði fasta sleða til að rennsa sér niður hliðina. Hann fékk verk- fræðing til þess að koma hug- myndinni á blað og segja fyrir um verkið, og fullbúin kostaði brautinskiðalyftueigandann um 200.000 þýzk mörk, sem hann segist ekki vera lengi að vinna upp, þvf að eftirsókn i þessar sleðaferðir er mikil. Fyrir þá, sem hafa áhuga, skal tekið fram.aðþetta er SOOmetra löng „salíbuna” — eins og krakkarnir segja — niðurbratta fjallshliðina. Skyldi ekki aðeins fara fiðringur um magann á þessari, sem við sjáum hér á myndinni. Hún er i síöustu brekkunni — og þar beið ljós- myndarinn! Einu sinni var ostur... ^ DENNI DÆMALAUSI „Það gerði ekkert til þótt þú öskraðir svolitið fagnandi. Þetta er i fyrsta sinn sem hann gerir mark.”

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.