Tíminn - 06.09.1975, Page 5
Laugardagur 6. september 1975.
TÍMINN
5
Greiddi
Armannsfeil
undir borðið?
Alþýðublaðið birti eftirfar-
andi frétt i gær frá fundi
borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
fiokksins, sem var haldinn
siðastl. miðvikudag:
„Davið Oddsson sagði á
fundinum, að honum væri
kunnugt um, að fyrirtækið Ar-
mannsfell hefði greitt 1
milljón króna i húsbygginga-
sjóð Sjálfstæðisflokksins gegn
loforði frá Albert Guðmunds-
syni um, að fyrirtækið myndi
fá byggingalóð i borginni i
staðinn. Sagði Oavið, að fyrir-
tækið hefði svo kallað eftir
efndunum og heimtað lóð á
þeim stað, sem það siðar fékk
— en þar hafði verið gert ráð
fyrir „grænu svæði” i borg-
inni.
— Albert baröi þetta i gegn,
sagði Oavið, og gagnrýndi
harðlega slik vinnubrögð sam-
starfsmanna sinna i borgar-
stjórnarmeirihlutanum.
Mikið uppistand varð á
fundinum vegna þessara upp-
Ijóstrana Oavíðs Oddssonar.
lilll
Kom til harðra deilna milli
hans og Alberts Guðmunds-
sonar með þeim afleiðingum,
að fundurinn flosnaði upp.
Hafði Albert i heitingum við
Oavið og mun m.a. hafa látiö
þau orð falla, að hann ætti ekki
erindi á fundi með sliku fifii og
slefbera, sem Oavíð Oddsson
væri.
Alþýðublaðið reyndi i gær að
ná tali af þeim Oavið Oddssyni
og Albert Guðmundssyni til
þess að fá nánari fregnir af
þessu máli, en tókst ekki.
Oavið var önnum kafinn við
próflestur fram eftir kvöldi og
heimasími Alberts Guð-
mundssonar er ekki skráður i
simaskrá.”
Hafnbann
Þjóðviljinn tekur I gær undir
þá tillögu, sem kom fram i for-
ustugrein Timans siðastl.
sunnudag, að hafnbann verði
sett hér á vestur-þýzku gæzlu-
skipin. Þjóðviljinn ségír:
„Þremur árum eftir út-
færslu landhelginnar i 50 mil-
ur eru það vestur-þjóðverjar
einir útlendinga sem enn
stunda veiðiþjófnað i islenskri
lögsögu. A miðunum njóta
1
m
þýsku togararnir halds og
trausts „verndarskipa” eins
og Meerkatze o.fl. sem fyrst
og fremst gegna hlutverki
njósnamiðstöðva gagnvart is-
lensku landhelgisgæslunni.
Þessum „verndarskipum”
stýra menn sem beittu sér fyr-
ir náinni samvinnu við yfir-
menn bresku herskipanna á
sinum tima og kröfðust þá
ihlutunar vestur-þýska sjó-
hersins. islendingar muna enn
eftir sjóhernaði þjóðverja hér
við land á striðsárunum. Þetta
vildi foringinn á Meerkatze að
endurtæki sig, en yfirvöld i
Bonn treystu sér ekki i þau
vopnaviðskipti. Þeim mun
meiri áherslu leggja vestur-
þýsk stjórnvöld nú á efna-
hagslegar þvinganir gagnvart
islendingum.
En það hlýtur að vera svarið
af hálfu islendinga að Meer-
katze og öðrum vestur-þýsk-
um „gæsluskipum” sé tafar-
' laust visað burt af yfirráða-
svæði islcndinga og ekki komi
til greina að hleypa slikum
skipum i islenska höfn og af-
greiða þau þar að vatni og
vistum. Sá óvinafagnaöur hef-
ur of lengi viðgengist.” Þ.Þ.
Helgafell heldur
upp á kvennaárið
BÓKAÚTGAFAN Helgafell held-
ur upp á kvennaárið með þvi að
gefa út fjórar bækur eftir konur
eða um konur, og eru þrjár þeirra
þegar komnar út. Þær eru Fólk á
förum eftir Ragnhildi ólafsdótt-
ur, Fyrir börn og fullorðna, ljóða-
bók eftir Ninu Björk Arnadóttur
og Sagan af Þuriði formanni og
Ka m bs rá n s m önnu m eftir
Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi,
En Guðni heitinn Jónsson ann-
aðist útgáfuna. Kvæði eftir Höllu
Loftsdóttur eru væntanleg i
desember.
Fólk á förum er skáldsga, og
gerist á elliheimili, þar sem fólk
biður dauða sins, eftir að starfs-
kraftar þess eru þrotnir. — Okkur
er tamt að lita á elliheimilin sem
nokkurs konar tákn velferðar og
menningar, — en er allt sem sýn-
ist? Fremst i bókinni eru nokkur
orð frá Halldóri Laxness. Þar
segirhann meðal annars: „ísögu
þinni hefur sá lesandi, sem telur
sig búa f heimi heimum fegri,
Halldór Laxness: „t túninu
heima.”
ekki minna uppúr krafsinu en
hinn, sem ekki fær betur séð, en
„velferðarsamfélagið” sé ó-
skammfeilin nafngylling á helviti
iðnrikisins.”
Fólk á förum er 133 bls. þýdd af
Elisabetu Jónasdóttur, en bókin
er frumsamin á dönsku. Höfund-
urinn, Ragnhildur ólafsdóttir,
hefur um áratuga skeið verið bú-
sett i Danmörku, en er stödd hér á
landi um þessar mundir.
Ljóðabók Ninu Bjarkar Arna-
dóttur, Fyrir börn og fullorðna er
30 bls. að lengd og skiptist i tvo
hluta. Yrkisefnið er Jesús Krist-
ur, en bókin er helguð fóstra
skáldkonunnar, Gisla Sæmunds-
syni.
Sagan af Þuriði formanni og
Kambsránsmönnumbirtist hér i
visindalegri og vandaðri útgáfu
Guðna Jónssonaj;. Fyrst ,er for:-
máli eftir Gu&na Jónsson, þá é‘r'
ýtarleg grein um Þuriði formann,
einnig skrifuðaf Guðna Jónssyni.
Næst kemur svo meginefni bók-
arinnar, ásamt nokkrum viðauk-
um og athugasemdum, en aftast
eru fylgiskjöl varðandi Kambs-
rán, svo og nafnaskrá.
Af öðrum útgáfubókum Helga-
fells má til dæmis nefna nýtt
skáldverk eftir Halldór Laxness,
nefnist það t túninu heima, og
mun þar vera byggt á æskuminn-
ingum skáldsins frá Reykjavik og
nærsveitum hennar. Þá er og von
á bók, sem mörgum mun leika
mikill hugur á að eignast. Það er
bók dr. Kristjáns Eldjárns um
Bólu-Hjálmar, og nefnist hún
Hagleiksverk Hjálmars i Bólu.
Bókin er prýdd fjölda mynda af
hagleiksverkum þessa löngu
látna snillings, sem einkum hefur
orðið frægur fyrir ljóð sin, þótt
margt fleira væri honum til lista
lagt.
Þórarinn Helgason bóndi i
Þykkvabæ i Landbroti hefur
skrifað skáldsögu um Una
danska, en Þórarinn er löngu
þjóðkunnur maðUr.
Dr. Kristján Eldjárn: „Hagleiks-
verk Hjálmars i Bólu.”
Frú Anna Guðmundsdóttir,
ekkja Magnúsar heitins Asgeirs-
sonar og Kristján Karlsson bók-
menntafræðingur hafa safnað
saman öllum ljóðum Magnúsar,
þýddum og frumsömdum, og er
þaðsafn væntanlegt i tveim stór-
um bindum, nærri þúsund blað-
siður alls. Kristján Karlsson
skrifar ýtarlega ritgerð um
Magnús, en með þeim var náin
persónuleg vinátta um langt
skeið.
Þá mun Helgafell senda frá sér
tvær viðhafnarútgáfur fallega
myndskreyttar. Það eru Maður
og kona, með myndum eftir
Gunnlaug Schevíng og Timinn og
vatnið, eftir Stein Steinarr,
mvndskreytt af Einari Hákonar-
syni. Enn fremur er von á þrem
skáldsögum, eftir þá Þorvarð
Helgason, Guðberg Bergsson og
Þráin Bertelsson.
—vs
Hringur í Bogasalnum
— sýnir 43 olíukrítarmyndir gerðar á
síðustu 14 árum
JG-RVK. Hringur
Jóhannesson, listmálari
opnar í dag kl. 14.00
málverkasýningu í Boga-
sal Þjóöminjasafnsins en
þar sýnir hann 41
oliupastelmyndir, sem
málaðar eru á seinustu 14
árum.
Hringur er einn af okkar efni-
legustu ungu málurum og er þetta
10. sjálfstæða sýningin sem hann
heldur, en auk þess hefur hann
tekið þátt i fjölda samsýninga
bæði heima og erlendis.
Verður sýningin opin daglega
frá kl. 16.-22.00.
Timinn hitti Hring Jóhannesson
að máli á blaðamannafundi
siðastliðinn fimmtudag, er hann
hafði lokið við að hengja upp
myndirnar. Hann hafði þetta að
segja:
— Þetta eru myndir sem ég hef
gert á undanförnum 14 árum.
Sumar eru frumdrög að stærri
verkum, en ég beiti gjarnan
þeirri aðferð að vinna myndirnar
fyrst i oliukrit og siðan i oliu, ef
mér sýnist svo. Myndirnar hafa
ekki verið sýndar opinberiega
fyrr, enda eru þær ekki beinlinis
hugsaðar sem slikar, þegar þær
eru gerðar.
— Ég hefi ferðazt mikið um
landið og mála þá og teikna á
þennan hátt. Oliupastel er
hentugt efni til þeirra hluta og
hentugri farangur en oliulitir og
annað, er málverkinu fylgir.
— Myndi.rnar eru úrtak úr mikl-
um fjölda slikra mynda, er ég hefi
gert, þvi auðvitað henta ekki allar
skyndimyndir til sýninga. Sumt
er aðeins riss.
— Oliupastel er skemmtilegt
efni, ef menn ná einhverjum tök-
um á þvi.
Sýningin verður opin til 14.
þessa mánaðar.
Kirkjuvörður
Starf kirkjuvarðar við Laugarneskirkju er
laust til umsóknar.
Umsóknir sendist formanni sóknarnefnd-
ar, Þorsteini Ólafssyni, Bugðulæk 12, sem
veitir nánari upplýsingar.
Sóknarnefnd Laugarneskirkju.
Tilboð óskast í
nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 9. september
kl. 12-3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl.
15.
Sala varnarliðseigna.
Auglýsing til félags-
manna F.Í.B.
í A-Skaftafellssýslu
F.l.B. verður með Ijósastillingu á verk-
stæði Jóns Ágústssonar, Höfn Hornafirði
frá 8/9-12/9 kl. 20-22.
AugfýsicT
í Tímanum