Tíminn - 11.09.1975, Blaðsíða 1
SLONGUR
BARKAR
TENGI
Landvélarhf
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR 6UNNARSS0N
SKULATUNI 6 - SIMI '91 >19460
Mikil deila risin á milli
ríkisstjórnarinnar og ÍSAL
ÍSAL TELUR RÍKIS-
SJÓÐ SKULDA SÉR
400 MILLJ. KRÓNA
Viðskiptahættir fyrirtækisins
taldir öeðlilegir að mörgu leyti
fjsnl—RpvHavfV _ iviibii Hoiio sem umfram væri. skoðast sem Samkvæmt upplýsingum Ti
Gsal—Reykjavik. — Mikil deila
er nú risin milli álbræöslunnar og
rikisstjórnarinnar um þaö, hvort
álbræðslan eigi inni hjá rikinu 400
miiijónir króna, sem hún hafi of-
greitt sem fra mleiðslugjald.
Þessa meintu inneign telur isal
sig mega nota til greiöslu á fram-
leiðslugjaldinu í ár.
f sambandi við álsamninginn
stóð mikil deila um það á sinum
tima, hvort álbræðslan skyldi
greiða sömu skatta og önnur
innlend fyrirtæki, eða hvort hún
ætti aðeins að greiða ákveðið
framleiðslugjald.. Framsóknar-
menn lögðu mikla áherzlu á, að
hún byggi við sömu skattalög og
önnurhérlend fyrirtæki. Gegn þvi
var færð sú mótbára, að eríitt
yrði að fylgjast með framtali ál-
bræðslunnar. Niðurstaðan varð
þvi sú, að þáverandi stjórnvöld
sömdu um, að álbræðslan skyldi
greiða ákveðið framleiðslugjald.
Sá böggull fylgdi þó skammrifi að
færi framleiðslugjaldið eitthvert
árið fram úr 50% af nettóhagnaði
álbræðslunnar það ár, skyldi það,
sem umfram væri, skoðast sem
skattainneign hennar.
í álsamningnum segir, að slik
skattaeinneign flytjist með 5%
ársvöxtum og skuli mæta siðari
greiðslu á framleiðslugjaldinu. í
samræmi við þetta ákvæði i ál-
samningnum telur álbræðslan sig
orðið eiga skattainneign sem
nemi um fjögur hundruð milljón-
um króna, og geti hún látið þessa
innéign mæta siðari greiðslum á
framleiðslugjaldi.
Álbræðslan mun telja, að þessi
inneign hafi aðallega myndazt á
árinu 1973. Rikisstjórnin hefur
mótmælt þessu og fer nú fram
rækileg athugun á rekstri ál-
bræðslunnar 1973, en samkvæmt
álsamningnum má rikisstjórnin
fela „alþjóðafyrirtæki óháðr.a
löggiltra endurskoðenda” slika at
hugun. Álbræðslan mun ekki
hafa treyst islenzkum endurskoð-
éndum til að vinna þetta verk.
Risi málaferli út af ágreiningi um
þetta efni, verður fjallað um þau
af alþjóðlegum gerðardómi, þvi
að eigendur álbræðslunnar neit-
uðu að sætta sig við úrskurð is-
lenzkra dómstóla.
upplýsingum Tim-
ans hefur rikisstjórnin fengið
bráðabirgðaskýrslu frá erlendu
endurskoðunarfyrirtæki, sem at-
hugað hefur ársreikninga ál-
bræðslunnar árið 1973. Matsatriði
munu vera ófá i skýrslunni.
Að sögn Steingrims Hermanns-
sonar, sem á sæti i viðræðunefnd
um orkufrekan iðnað, hafa Is-
lendingar mótmælt ýmsum
verzlunarmáta álbræðslunnar,
sem þeirtelja i hæsta máta óeðli-
legan. Má þar nefna, að álbræðsl-
an tekur lán hjá móðurfyrir-
tækinu — með öðrum orðum hjá
sjálfu sér — ákveður vexti og
greiðslutimabil og hefur sjálf
undir höndum alla útreikninga
hvað lántökur og fyrirkomulag
snertir. Þá er og vert að nefna, að
álbræðsla kaupir ennfremur hrá-
efni hjá móðurfyrirtækinu og um
kaup og kjör á þvi gildir sama
fyrirkomulag og með lántökurn-
ar.
Af þessu leiðir, að álbræðslan
getur næsta auðveldlega með alls
konar bókhaldstilfærslum sýnt
nánast hvaða tölu sem er um
hagnað eða tap á fyrirtækinu.
Hitaveita Reykjavíkur sækir um 33% hækkun:
,,Vona, að ég sjái
ekki slíka tölu
í hækkunarbeiðni"
— segir Ólafur Jóhannesson viðskiptarádherra
OÓ-Reykjavik. Hitaveitustjóri ft-ani beiöni um hækkun á hita- hækki úr kr. 39.36 I kr. 52.35.
Reykjavikur gekk á fund veitugjöldum um 33%, eöa nán- Veröur máliö tekiö fyrir I
borgarráðs I fyrradag og iagöi ar tiltekiö aö tonn af heitu vatni borgarráöi á morgun, föstudag.
ólafur Jóhannesson, við-
skiptaráðherra, sagði i gær, að
þessi beiðni væri ekki enn komin
til rikisstjórnarinnar, sem ekki
væri von, þar sem borgaryfir-
völd ættu enn eftir að fjalla um
hana, en ég vona, sagöi ráðherr-
ann, að ég sjái ekki svona tölu
með beiðni um hækkun hita-
veitugjalda. Hitaveitan er búin
að fá riflegar hækkanir á þessu
og s.l. ári.
Sem kunnugt er standa yfir
miklar hitaveituframkvæmdir i
Kópavogi, Garðahreppi og
Hafnarfirði, og eru þær unnar á
vegum Hitaveitu Reykjavikur.
Rússneski björninn
náði aðeins einu
sinni að lyfta
hramminum ®
Þegar K.A. East, ambassador Breta á tslandi var aö taka á móti
ráöherrunum á Keflavikurflugvelli tókst hattur hans á loft og uröu
handtökin aö biöa þar til hann festi hendur á hatti slnum. Þeir, sem
á eltingaleikinn horfa, eru Nlels P. Sigurösson, ambassador I
London, Bishop aöstoöarsjávarútvegsráöherra og Hattersley,að-
stoöarutanrlkisráöherra. Tlmamynd Róbert.
„KOMINN TIL AÐ
SEMJA OG VONA
AO EKKI KOMI
TIL ÁREKSTRA"
— sagði Hattersley við komuna í gær
OÓ-ReykjavIk. — Þaö er
áreiöanlega bæöi tslendingum
og Bretum fyrir beztu aö fljót-
lega náist samkomuiag um fisk-
veiöimálin og erindi okkar hing-
aö er að semja og þaö er von
okkar, aö ekki komi til árekstra
milli þjóöanna vegna fiskveiöi-
réttinda sagöi Roy Hattersley,
aöstoöarutanrlkisráöherra, sem
er fyrir brezku sendinefndinni,
sem kom til Kefiavikur kl. 18 I
gær.
Ráðherrann var spurður,
hvort hann byggist við hörku i
samningaviöræðunum og svar-
aöi hann, að brezka sendinefnd-
in hefði vissar tillögur fram að
færa, og eins vist væri, aö is-
lenzka samninganefndin heföi
sinar tillogur, en það kæmi ekki
i ljós fyrr en á fundunum hvað
bæri á milli og þá reyndi á að
samræma sjónarmiðin.
Hattersley var spurður, hvort
hann byggist við nýju þorska-
striöi og svaraði hann með þvi
að itreka aö hann væri hingaö
kominn til að semja og mundi
hann hvorki hafa i hótunum eða
ákveða hvað skeður, ef
samningar ekki takast, og
kvaöst hann bjartsýnn á, aö
samkomulag næðist um fisk-
veiðiréttindi Breta hér við land
enda sæmdi ekki að setjast að
samningaborði með öðru hugar-
fari.
Hattersley var enn spurður,
hvort hann mundi tala máli
annarra þjóða, sem veiða við ts-
land en Breta og sagðist hann
eingöngu ræöa fiskveiðiréttindi
brezkra skipa. Að ööru leyti
vildi hann ekki ræða um
samningana fyrr en á fundum
með íslenzku samninganefnd-
inni.
I brezku sendinefndinni er
Edward Bishop aðstoðarsjávar-
útvegsráðherra, og sjö aörir,
þar á meðal sérfræðingar I haf-
réttar- og fiskveiðimálum og
tveir fiskifræðingar.
1 Islenzku samninganefndinni
eru Einar Agústsson, utanrlkis-
ráðherra, Matthlas Bjarnason,
sjávarútvegsráðherra, Hans G.
Andersen, ambassador, Pétur
Thorsteinsson ráöuneytisstjóri,
Jón Arnalds ráðuneytisstjóri og
Már EHsson, fiskimálastjóri.
Viðræðurnar fara fram I ráð-
herrabústaðnum og hefst fund-
ur kl. 11.00.
Brezku ráðherrarnir fóru
beint I brezka sendiráðið af
flugvellinum og munu þeir búa
þar, meðan þeir dvelja hér á
landi, en sendinefndin fer utan
aftur á morgun, föstudag.