Tíminn - 19.09.1975, Síða 4

Tíminn - 19.09.1975, Síða 4
4 TÍMINN Föstudagur 19. september 1975.. Hugmyndaríkir þjófar Eftir þvf sem fréttir herma, fjölgar sifellt þeim Itölum, sem stunda rán, og þrátt fyrir vax- andi tilraunir stjórnvalda viö aö spyrna á móti þessarri afbrota- öldu, viröist sem sifellt fleiri bætist viö. Aöeins á þessu ári, hafa veriö framin fimmtiu og sjö mannrán og um tvö hundruö þúsund rán af ymsu ööru tagi. Þá eru ótalin þau sprengjutil- ræöi, sem viröast njóta vaxandi vinsælda hjá þeim, sem halda sig öfugu megin viö lögin. Þaö er furöulegt, hvaö glæpamönn- um dettur I hug aö gera til aö afla sér peninga á auöveldan hátt, og ekki skortir þá hug- myndaflugiö. Hafa lesendur t.d. heyrt getiö um manninn, sem borgaöi svimandi fjárupphæö til ræningjanna, sem rændu lík- kistu fööur hans úr kirkjugarö- inum? Tildrög likkisturánsins eru þau, aö maöur nokkur fékk tilkynningu frá þjófum þess efnis, aö þeir heföu rænt kistu meö liki fööur hans úr kirkju- garöinum, þar sem sá gamli var grafinn. Eftir aö sonurinn haföi greitt stóra fjárupphæö, fannst likkistan grafin I nálægum akri. Þá er þaö sagan um verö- launahrossiö, sem hvarf á dul- arfullan hátt I slöasta mánuöi úr hesthúsi I Montecatini. Hrossiö var fimm vetra og metiö á of- fjár. Ekki hafa þjófarnir neitt látið I sér heyra enn og hrossið er ennþá ófundiö, þrátt fyrir mikla leit. Fyrstu vikuna I * september var 74 spólum af kvikmyndafilmum stoliö frá aöalstöövum Technicolor fyrir- tækisins rétt fyrir utan Róma- borg. Þar á meðal voru filmur, sem höfðu aö geyma þriggja vikna vinnu á nyrri kvikmynd, sem hinn frægi leikstjóri Fe- derico Fellini er aö gera, en hún nefnist Casanova og fer Donald Sutherland með aöalhlutverkiö, en sumt af þessu veröur mjög erfitt aö taka upp aftur. Fellini var harmi lostinn og sagöi viö Sutherland: ,,Þaö er orðiö úti- lokaö aö búa og vinna á ttallu”. Mannránin, sem framin hafa veriö á Italiu I ár, hafa mörg hver mistekizt, mannræn- ingjarnir veriö handsamaöir, en ekki er svo I öllum tilfellunum. Foreldrar ungu stúlkunnar Christina Mazzotti, sem var aö- eins 19 ára og var rænt frá heimili slnu, fóru I öllu aö ósk- um mannræningjanna og greiddu rúmlega 300 milljónir I lausnargjald fyrir hana. Biöu siöan foreldrarnir óþolinmóöir eftir aö fá dóttur slna aftur. En hún kom aldrei. Llk hennar fannst á ruslahaugum og eftir krufningu kom I ljós, aö hún haföi látizt vegna þess, aö hún tók of mikið af deyfilyfjum, sem mannræningjarnir höföu látiö henni I té til aö hafa hana ró- lega. Christina var fertugasta og fyrsta fórnardyr mannræn- ingjanna á ítaliu I ár. ★ Ingrid Bergman kemur enn á óvart Hin fræga leikkona, Ingrid Bergman, er þekkt fyrir það frá þvi fyrst að fór að bera á henni I heimspressunni, aö halda sinu striki óhikað og fara sinu fram, hvaö sem almenningur segir, eöa fréttamenn skrifa um hana. Mörgum sinnum hefur veriö hneykslazt á henni, en hún held- ur alltaf reisn sinni og er virðu- leg og vinsamleg I framkomu. Lars Schmidt, eiginmaður hennar, og hún hafa I nokkur ár búiö sitt I hvoru lagi og allir tal- iö, aö um friösamlegan hjóna- skilnað væri aðræða, — en allt I einu I sumar sáust þau aftur saman I Paris, og sagt er aö þau hafi búið þar saman I bezta yfir- læti I húsi slnu, sem þau eiga rétt fyrir utan Paris. Vinir þeirra gleöjast yfir hjónasætt- inni, en biöa spenntir eftir hvaö veröur nú I haust, en þá er Ing- rid ráöin til að leika I leikritum I Bandarikjunum. Hjúkrunarkona gerist fjórhirðir Hér á myndinni sjáið þið hina 36 ára gömlu Dagmar — Mariu Spindei sem til skamms tima vann sem skurðhjiikrunarkona i Essen i Þýzkalandi. Fyrir einu ári lagði hún hjúkrunarstörfin á hilluna, og gerðist i þess stað fjárhirðir, eða réttara sagt fjár- bóndi, á Luneborgarheiði, i Neuenkirchen ijiánd við Soltau, sem er miðja vegu milli Ham- borgar og Bremen. Dagmar- Maria á 75 ær, en bændurnir I kringum hana eiga samtals um 13 þúsund fjár. Af þessum fjár- hóp fást árlega 10 þúsund kiló af ull, en verðið á ullarkilóinu er u.þ.b. 130 krónur um þessar mundir þar I landi. 1 mynda- * textanum, sem fylgdi myndinni segir, að féð hafi annað og meira hlutverk en að sjá eig- endum sfnum fyrir ull. Þvi er ætlað að halda flóru heiðaland- anna I skef jum, eða réttara sagt sjá til þess að hún endurnýist og yngist upp. Með nagi sinu og narti kemur féð i veg fyrir að plöntur nái þeim vexti, sem þær ella myndu ná, en sumar hverj- ar næðu 75 sm hæð á ári. Blómgun yrði að sama skapi minni, og allt hefði þetta þær af- leiðingar, að gróðurinn úrkynj- aðist og yrðj lélegri, en sagt er, aö flóra Luneborgarheiðar sé mjög óvenjuleg.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.