Tíminn - 19.09.1975, Qupperneq 11
10
TÍMINN
Föstudagur 19. september 1975.
Föstudagur 19. september 1975.
TÍMINN
11
Kristján Benediktsson,
borgarráðsmaður
— Ekki nokkur vafi aö beint sam-
band er á milli greiðslu Armanns-
fells h.f. i húsbyggingasjóöinn og
úthlutunar á svæðinu, cn þvi
miður er þetta ekki eina málið af
þessu tagi, þau eru fleiri.
Ármannsfellsmálið speglar
stórfellda f jármálaspillingu
hjá ráðamönnum borgarinnar
Albert Guðmundsson,
borgarráðsmaður
Markús Örn Antonss.
borgarráðsmaður
Ragnar Júliusson,
varaborgarráðsmaður
— Þeir felldu i borgarráði tillögu frá Alfreö Þorsteinssyni, Björgvini Guðmundssyni og Sigurjóni
Péturssyni um aö þeirri viðteknu reglu yröi fylgt, að auglýsa eftir umsóknum um lóðirnar, sem Ar-
mannsfelli voru afhentar. —
BH-Reykjavik. Fá mál
hafa i seinni tið vakið
eins mikla athygli, um-
ræður og blaðaskrif og
sú ákvörðun meirihluta
borgarráðs á fundi 25.
ágúst s.l. að úthluta lóð á
mótum Hæðargarðs og
Grensásvegar til Ár-
mannsfells hf. Borgar-
ráðsmenn minnihlutans
beittu sér hart á móti,
einkum á þeim forsend-
um, að þarna væri skv.
aðalskipulagi grænt
svæði, þessar lóðir hefðu
ekki verið auglýstar, og
Ármannsfell væri með
verk i gangi fyrir borg-
ina, sem ekki gengi of
vel, og þvi væri varla
bætandi stórverkefni á
fyrirtækið. Strax kom
fram, að borgarráðs-
mönnum minnihlutans
þótti margt furðulegt i
sambandi við þessa
Birgir ísleifur
Gunnarsson,
borgarstjóri
Gaf skrifstofustjóra borgarverk-
fræðings fyrirmæli um, aö gera
tillögu til borgarráðs að Ar-
mannsfelli hf. yrði úthlutað
lóðinni.
lóðaúthlutun, sem hlaut
að vekja vissar grun-
semdir, m.a. að ekki
mátti auglýsa þessar
lóðir.
Mál þetta tók þó alveg nýja
stefnu, þegar Alþýðublaðið flutti
fréttir af fundi i borgarmálaráði
Sjálfstæðisflokksins, þar sem
fullyrt var, að Davib Oddsson
borgarfulltrúi hefði krafið Albert
Guðmundsson, borgarráðsmann
og formann byggingarnefndar
Sjálfstæðishússins, skýrra svara
um það, hvort sá orðrórnur væri
réttur, sem gengi manna á meðal
i borginni, að Ármannsfell hf.
hefði greitt eina milljón króna i
byggingarsjóð Sjálfstæðisflokks-
ins, gegn þvi að fá umrædda lóð.
Albert á að hafa brugðizt
ókvæða við þessum áburði og
heimtað tra ustsy firlýsin gu
fundarmanna, ella gengi hann út.
Eitthvaö mun Davið hafa orðið
skelkaður við þessi viðbrögð Al-
berts.og hamaðist næstudaga við
að mótmæla þvi, sem upp á hann
var hermt, þótt hann á hinn bóg-
inn viðurkenndi, að mál þetta
hefði verið til umræðu á umrædd-
um fundi.
Málið var nú hins vegar kom-
ið inn á nýtt umræðustig, þar sem
farið var að ræða um beinar mút-
ur i sambandi við lóðaúthlutun-
ina. Alþýðublaðið átti viðtal við
stjórnarformann byggingarfé-
lagsins Einhamars. Ot úr þvi við-
tali kom, að Einhamar fær engar
byggingarlóðir, enda ekkert
greitt i byggingarsjóð Sjálf-
stæðisflokksins, þótt eftir þvi hafi
verið leitað af Albert Guðmunds-
syni.
Blaðaskrifin héldu nú áfram af
Davið Oddsson,
borgarfulltrúi
Umræður um málið komust á nýtt
stig, þegar kvisaðist að á fundi I
borgarmálaráði Sjálfstæöis-
flokksins heföi hann krafiö Albert
sagna um það, hvaða samband
væri á milli framlags Ármanns-
fells hf. I húsbyggingasjóöinn og
úthlutunar lóðarinnar.
fullum krafti, og viðtöl við Davið,
Albert og fleiri urðu daglegur við-
burður. Fór þá ýmislegt nýtt að
koma upp á yfirborðið.
Þannig upplýsti skrifstofustjóri
borgarverkfræðings að hánn
hefði fengið fyrirmæli frá borgar-
stjóra um að gera tillögu um út-
hlutun lóðarinnar til Ármanns-
fells hf. Þetta varð til þess, að
rifjað var upp, að borgarstjóri,
Birgir Isleifur Gunnarsson, hefði
áður verið lögfræðingur Ár-
mannsfells hf., og Alþýðublaðið
spurði, á hvers nafni hlutabréf
borgarstjórans i fyrirtækinu væru
núna.
Albert Guðmundsson hafði gert
bókun á borgarráðsfundinum.
þegar úthlutunin fór fram. Þar
sagöi hann, aö vegna frumkvæðis
Armannsfells hf. um tillögur að
skipulagi á lóðinni teldi hann eðli-
legt, að henni yrði úthlutað til Ár-
mannsfells hf.
Aðalsteinn Richter segir hins
vegar i bréfi, sem birt var i Þjóð-
viljanum, að borgarstjóri og
borgarverkfræðingur hafi beitt
sér fyrir skipulagningu lóðarinn-
ar.
Framkvæmdastjóri Ármanns-
fells hf. segir i blaðaviðtali, að
hannhafi fengið Vifil Magnússon
arkitekt til að skipuleggja
ibúðabyggð á þessu svæði upp á
von og óvon um það, hvort fyrir-
tækið fengi lóðina.
Skipulagsstjóri, Aðalsteinn
Richter, segir hins vegar, að
Vifill Magnússon hafi unnið að
þessu verkefni undir sinni stjórn
og á vegum borgarinnar og fái
greiðslu samkvæmt þvi.
Albert Guðmundsson hefur við-
urkennt opinberlega, að Ar-
mannsfell hf. hafi greitt fé I hús-
byggingarsjóð Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann hefur óskað rannsóknar
formanns Sjálfstæðisflokksins og
yfirstjórnar flokksins á þeim að-
dróttunum, sem að honum hafa
beinzt i sambandi vi ð þetta mál.
A.m.k. þrjú af dagblöðunum
hafa talið þetta mál þannig, að
opinber rannsókn ætti að fara
fram, og að Albert hefði átt að
biðja um slika rannsókn, en ekki
að rannsóknaréttur sé settur á
lagginnar innan Sjálfstæðis-
flokksins til að úrskurða um sekt
hans eða sýknu.
Þar sem ætla má að borgar-
fulltrúar hafi fylgzt betur með
þessu máli, aðdraganda þess og
framvindu heldur en aðrir, sneri
Timinn sér til borgarráðsmanns
Framsóknarflokksins, Kristjáns
Benediktssonar, og spurði um álit
hans á þessu máli.
— Mér finnst ákaflega sterkar
likur fyrir þvi, að beint samband
sé á milli lóðaúthlutunarinnar til
Armannsfells hf. og þeirrar
greiöslu, sem Albert Guðmunds-
son hefur upplýst að fyrirtækið
hafi lagt af mörkum I húsbygg-
ingarsjóð Sjálfstæðisflokksins.
Slikt er vitanlega erfitt að sanna.
En verulegu máli hlýtur að
skipta, hversu há upphæðin var,
hvort hún var t.d. fimm þúsund
krónur eða fimm milljónir.
Mjög há upphæð hlýtur að
vekja grunsemdir.
Mér finnst, að forráðamenn
húsbyggingarinnar ættu að upp-
lýsa, hver fjárhæðin er, fyrst þeir
á annað borð hafa viðurkennt, að
um greiðslu hafi verið að ræða.
— Telur þú mikil brögð að þvi
hjá ráðamönnum Reykjavikur,
að þeir hygli flokksmönnum sin-
um á kostnað borgarinnar?
— Augljóst er, að þeir aðilar,
sem styðja Sjálfstæöisflokkinn
vel og dyggilega, njóta þess með
ýmsu móti i viðskiptum sinum við
Reykjavikurborg. Byggingarfé-
lagið Ármannsfell hf. hefur þó að
minum dómi notið aiveg óvenju-
legrar fyrirgreiðslu borgaryfir-
valda.
— Geturðu nefnt einhver dæmi
um það?
— Það er mjög auðvelt.
1 ársbyrjun 1972 var gerður
verktakasamningur við Ar-
mannsfell hf. um byggingu Fella-
skóla i Breiðholti III. Unglinga-
álmu skólans átti að ljúka fyrir 1.
október 1973. Við þetta Var ekki
staðið af hálfu verktakans, og
kostaði sú vanefnd borgina stórfé
á þeim tima.'En á sama tíma og
borgin varð að leggja út milli 10
og 20 millj. kr. vegna vanefnda
Armannsfells hf. á samningum,
var gerður viðbótarsamningur
Milljónahöllin við Espigerði
Býgg,ng þessa húss er án efa eitt mesta gróðafyrirtæki, sem hér hefur verið stofnað til.Þeir, sem þarna
keyptu Ihúðir, hafa greitt milljónir til hluthafa Ármannsfells hf. Borgarfuiltrúar minnihlutans vildu, að
það skilyrði yrði sett fyrir lóðaúthlutuninni, að byggingareikningar yrðu birtir og þá mætti vænta að
álagning yröi hófleg. A slikt gátu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ekki fallizt.
við fyrirtækið, án útboðs, um inn-
réttingu I kjallara Fellaskóla.
Refsingin til handa Armanns-
felli hf. fyrir að standa ekki við
verksamning, sem kostaði borg-
arsjóð veruleg fjárútlát, var sú,
að gera við það viðbótarsamning,
án útboðs, fyrir rúmlega 10 millj.
kr. Ég leyfi mér að fullyrða, að
Geir Hallgrimsson
formaður
Sjálfstæðisflokksins
— Albert Guðmundsson hefur
óskaö eftir rannsókn vegna
meintra ásakana um, aö hann
hafi tekið við fjárframlagi I
byggingasjóðinn sem greiöslu
fyrir lóðina. Hann vill hins vegar
að formaður Sjálfstæöisflokksins
skipi sæti rannsóknardómarans.
þarna var um óvenjulega og
óeðlilega samninga að ræða við
Ármannsfell hf.
Á sama árinu og Armannsfell
hf. fékk verksamninginn um
byggingu Fellaskóla, var úthlut-
að lóðum við Stóragerði. -Þessar
lóðir voru mjög eftirsóttar, svo
sem kunnugt er.
Meðal lóða i Stóragerðinu voru
tvær, sem ætlaðar voru undir há-
hýsi með um 40 ibúðum i hvoru.
Þrátt fyrir að' Armannsfell hf.
væri með stórverk i gangi fyrir
borgina, þ.e. Fellaskólann, þótti
ráðamönnum Sjálfstæðisflokks-
ins hjá borginni ekki annað koma
til greina en að Ármannsfell hf.
fengiaðra lóðina. Borgarfulltrúar
minnihlutans lögðust eindregið
gegn þeirri ráðstöfun og bentu
m.a. á, að byggingaframkvæmdir
við háhýsi i Stóragerði myndu
seinka framkvæmdum við bygg-
ingu Fellaskóla, sem þó væri
mjög brýn fyrir borgina og fólkið
i Breiðholti III. Sú varð lika
raunin, eins og fram kemur hér
að framan.
Vitað var, að bygging háhýs-
anna beggja á Stórageröissvæð-
inu myndi verða mikið gróða-
fyrirtæki, þar sem augljóst var,
að væntanlegir kaupendur ibúð-
anna myndu vilja greiða mun
hærra verð fyrir ibúð þar en i
Breiðholti, en kostnaður við
bygginguna hlyti að verða
svipaður á hvorum staðnum sem
væri, svo og gatnagerðargjaldið.
Eðlilegt hefði þvi verið, að bygg-
ingasamvinnufélag, sem selur
Ibúðir á kostnaðarverði, fengi
a.m.k. aðra háhýsalóðina við
Stóragerðið. Á það vildu borgar-
ráðsmenn og borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins ekki fallast.
Þeim virtist rikast i huga, að Ar-
mannsfell gæti matað krókinn
sem bezt á kostnað væntanlegra
kaupenda.
Síðasta dæmið, sem hér skal
nefnt, er svo úthlutun lóða til Ár-
mannsfells hf. undir 23 ibúðir á
horni Hæðargarðs og Grensás-
vegar.
Upplýst hefur verið, að 28
aðilar, byggingasamvinnufélög,
einstakir byggingameistarar og
samtök einstaklinga, hafa frá 1.
desember sl. óskað eftir lóðum
undir fjölbýlishús.
Ekki þótti borgarráösmönnum
Sjálfstæðisflokksins ástæða til að
skoða þessar umsóknir, og ekki
vildu þeir fallast á að skoða þess-
ar umsóknir, og ekki vildu þær
fallast á að umræddar 23 lóðir
yrðu auglýstar. Þeir neyttu afls-
munar og beittu meirihlutavaldi
sinu i borgarráði til að knýja það
fram, að Ármannsfell hf. fengi,
án auglýsinga, allt svæðið undir
23 ibúðir. Furðu hlýtur að vekja,
að offorsið skyldi vera slikt hjá
borgarráðsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins, að þeir felldu þá tillögu,
að auglýst yrði eftir umsóknum
um þessar lóðir. Slfkt hefur þó til
þessa þótt eðlilegt og sjálfsagt, og
þá hefði e.t.v. gefizt tóm til að
átta sig á, að verið var að ráð-
stafa undir byggingar einu af
grænu svæðum borgarinnar, skv.
aðalskipulaginu.
Þá er upplýst, að byggingar-
félagið Ármannsfell hf. er á eftir
með þær framkvæmdir, sem það
er með fyrir borgina, þannig að
sagan frá 1972 virðist á góðri leið
með að endurtaka sig.
Ég vona að þetta sé nægilegt
svar.
Tíminn spurði Kristján ekki
fleiri spuminga um þetta mál.
í ljósi þeirra upplýsinga, sem
fram hafa komið hér að framan,
þarf engan að undra, þótt þær
raddir séu háværar meðal al-
mennings, að samskipti Ar-
mannsfells hf. við Reykjavikur-
borg séu með þeim hætti, að þar
hljóti eitthvað að liggja að baki,
sem upplýsa þurfi. Undir það skaí
tekið.
Ármann Örn Ármannss.,
framkvæmdastjóri
Ármannsfells hf.
— Segist hafa fengið arkitektinn
til að skipuleggja byggingasvæðið
fyrir Ármannsfell hf. upp á von og
óvon um, hvort fyrirtækið fengi
lóðina.
Aðalsteinn Richter
skipulagsstjóri
— Segir að skipulag svæðisins
hafi veriö unnið á vegum
skipulagsyfirvalda borgarinnar
og undir sinni stjórn.
Skipulagsstjóri hefur ennfremur
upplýst að að hafi verið vegna
þrýstings Alberts Guðmundsson-
ar, að arkitekt Armannsfells var
ráðinn til starfa hjá skipulags-
deild. Verkefni hans var að
breyta „grænu svæöi” I, bygg-
ingarlóð fyrir Armannsfell!
Fellaskóli í Breiðholti III
Vanefndir Ármannsfells h.f. við framkvæmdir viö skólann hafa kostaö borgarsjóð Reykja vfkur ótaldar milljónir, og komið I veg fyrir, aö börnin
I nágrenninu fengju þá námsaðstöðu sem þau áttu rétt á.