Tíminn - 19.09.1975, Page 17
Föstudagur 19. september 1975.
TÍMINN
17
Umsjón: Sigmundur ó. Steina
FURÐULEG VINNUBRÖGÐ ÍR-INGA
— sem hafa tilkynnt, að þeir liggi enn með óútfyllt þótttökueyðuhlöð fró Evrópusam-
bandinu og ætli sér ekki að taka þótt i Evrópukeppni meistaraliða í körfuknattleik
KÖRFUKNATTLEIKSMENN
ÍR hafa sýnt stórfuröuleg
vinnubrögö i sambandi viö
rétt þeirra tii aö taka þátt I
Evrópukeppni meistaraliöa i
körfuknattleik. Þegar dregiö
var fyrir stuttu I Evrópu-
keppninni, dróst 1R gegn hinu
fræga spánska liöi Real Mad-
rid. Stuttu eftir dráttinn i
keppninni ruku ÍR-ingar upp
til handa og fóta — sögöu aö
þeir ætluöu ekki aö taka þátt i
keppninni og þeir heföu aldrei
tilkynnt þátttöku I keppninni.
Þessar fréttir úr herbiíöum
tR-inga komu eins og köld
vatnsgusa framan I körfu-
knattleiksunnendur og 1.
deildar liöin okkar f körfu-
knattleik.
Þegar þetta mál var athug-
aö nánar, sögöu IR-ingar, að
þeir heföu aldrei tilkynnt þátt-
töku i Evrópukeppninni, og
þeir sögöust hafa þau eyðu-
blöö, sem þarf að senda til
Evrópusambandsins til að til-
kynna þátttöku, enn óútfyllt
hjá sér. IR-ingar tilkynntu
þetta til stjórnar KKl, án þess
að roðna.
Þessi vinnubrögð IR-inga
eru fyrir neðan allar hellur, og
framkoma þeirra i þessu máli
er óafsakanleg . Þeir eru nú
búnir að koma i veg fyrir, að
annað Islenzkt lið geti tekið
þátt I keppninni fyrir hönd Is-
lands — með þvi að liggja með
eyöublöö Evrópusambandsins
óútfyllt undir koddanum hjá
sér. Þessi vinnubrögð IR-inga
eru vægast sagt stórfurðuleg.
Hvers vegna létu þeir ekki
vita af þvi, að þeir ætluðu sér
ekki aö taka þátt i Evrópu-
keppninni, fyrr en þátttöku-
fresturinn var útrunninn og
búið aö draga i keppninni?
Nú eru uppi háværar raddir
um að refsa ÍR-ingum fyrir
þessa framkomu — þ.e.a.s.
að útiloka þá frá keppni I
Evrópukeppni i framtiðinni.
Stjóm KKI hefur sent IR-ing-
um bréf, þar sem sambandið
harmar þennan slóðaskap 1R-
inga, þar sem hann hafi orðið
til þess, að annað islenzkt
félag getur ekki tekið þátt I
Evrópukeppninni. Að lokum
má geta þess, að Evrópusam-
band körfuknattleiksmanna
hefur lýst furðu sinni á fram-
komu IR-inga.
SKOTGLAÐI SKOTINN
— sem hrellir alla markverði Skota með
skotum sínum, leikur með Dundee
United gegn Keflvíkingum á þriðjudaginn
★ AAörg af stóru félögunum á
Bretlandseyjum hafa augastað á hinum
1 9 dra Andy Gray
DUNDEE United-liðið/ sem mætir Keflvíkingum í
UEFA-bikarkeppninni á þriðjudaginn í Keflavík, kemur
hingað með alla sína sterkustu leikmenn. United-liðið er
nú talið eitt skemmtilegasta lið Skota — liðið er skipað
ungum og efnilegum leikmönnum, sem eru menn fram-
tíðarinnar. Sá leikmaður liðsins, sem er þekktastur, er
markaskorarinn ANDY GRAY, sem er undir smásjánni
hjá mörgum stærstu félögum á Bretlandseyjum. Gray er
aðeins 19 ára gamall og markheppinn með af brigðum —
hann skoraði 20 mörk í skozku 1. deildarkeppninni sl.
keppnistímabil og varð þá markhæstur. Þá skoraði hann
þar að auki 6 mörk í bikarkeppninni.
Þessum skotharða Skota, sem
hrellir alla markveröi Skota með
skotum sinum, er bezt lýst meö
oröum hins fræga skozka lands-
liösmanns Colin Stein hjá Glas-
gow Rangers, en hann sagði, eftir
aö hafa séð Gray leika: — Ég
myndi vilja borga mikið fyrir að
leika i skónum hans, þótt það væri
ekki nema annan hálfleikinn. Við
hliðina á Grayleikur annar ungur
og efnilegur leikmaöur PAUL
STURROCK, sem er einnig mikill
markaskorari. Þessir tveir
hættulegu leikmenn, eru taldir
hættulegasti sóknardúett i skozku
kiiattspyrnunni i dag. Það veröur
þvi gaman að fylgjast með viöur-
eign þeirra við Einar Gunnarsson
og Gfsla Torfason, miöveröi
Keflavíkurliösins og Þorstein
ólafsson, hinn snjalla markvörð
Keflvikinga, sem hingað til hefur
staöið sig frábærlega vel i
Evrópuleikjum Keflavikur-liös-
ins.
Það er öruggt aö barátta þeirra
Einars, Gisla og Þorsteins gegn
hinum sókndjörfu miðherjum
United-liðsins — Gray og
Sturrock— á eftir að veita knatt-
spyrnuunnendum.sem leggja leið
sina til Keflavikur á þriöjudaginn
kemur, mikla ánægju.
ANDY GRAY....... hinn mark-
sækni leikmaöur Dundee United,
skoraði 26 mörk sl. keppnistima-
bil. Tekst honum aö skora hjá
Keflvikingum?
„Róðurinn verður örugglega
þungur á íslands-miðunum"
— sagði Andy Gray, hinn hættulegi sóknarleikmaður Dundee
United, um leikinn gegn Kefivíkingum í Keflavík
— Fyrst verðum við að
vinna sigur yfir islend-
ingunum, áður en við
getum farið að hugsa
um næstu mótherja,
sagði markaskorarinn
mikli frá Dundee, Andy
Gray, í viðtali við
skozka dagblaðið
,,Scottish Daily News",
þegar hann var spurður
um möguleika Dundee
United í UEFA-bikar-
keppni Evrópu. — Nei,
ég get ekkert sagt um
möguleika okkar gegn
íslendingunum. Ég veit
lítið annað um Kefla-
víkurliðið, en það sem
vinur minn hjá Hibs,
Alan Gordon, hefur sagt
mér um liðið.
— Hann sagöi, að leikmenn
Keflavikurliösins væru mjög
góðir af áhugamönnum að
vera, og þaö væri erfitt að
ieika gegn þeim á heimavelli
þeirra — Hibs hefði mátt
þakka fyrir jafntefli á Islandi.
Þá veit1 ég, að nokkrir leik-
menn Keflavikur-liðsins leika
meö landsliði Islands, svo að
Keflavikurliöið hlýtur að vera
gott liö.
— Það má búast við, að róö-
urinn veröi þungur hjá okkur,
þegar viö mætum Islending-
unum á heimamiðum þeirra.
Við gerum okkur grein fyrir
þvi, og mætum til leiks meö
þvi hugarfari, sagöi Andy
Gray.
Þá sagði Gray, að leikmenn
Dundee United væru mjög
ánægðir með aö fá tækifæri til
að heimsækja Island og leika
hér knattspyrnu.
Síðast
fór
Dundee
United
héðan
ósiqrað
— hvað gerist
þegar þetta fræga
lið leikur gegn
Keflvíkingum?
DUNDEE United-liðið, sem
mætir Keflvikingum i UEFA-bik-
arkeppni Evrópu, fór ósigrað frá
tslandi síöast þegar liðið lér hér.
United-liðið lék hér þrjá leiki 1966
á Laugardalsvellinum — gegn
Fram (7:2), KR (4:0) og iands-
liöinu (6:0). Keflvikingar eru
ákveönir að láta söguna frá 1966
ekki endurtaka sig. — Þeir ætla
sér aö leggja Dundee United að
velli I Keflavik á þriðjudaginn.
Barið á
dyr hjá
Suður-
nesja-
mönnum
KEFLAVIKUR-liöiö verður i
sviösljósinu i kvöld i Keflavik, en
þá heimsækja leikmenn liðsins
Suöurnesjamenn og bjóða þeim
miða á leik Kefla víkurliðsins
gegn Dundee United. Það er ekki
að efa, að Suðurnesjamenn taka
vei á móti þessum áhugasömu
leikmönnum, sem tryggðu þeim
bikarinn um sl. helgi. Keflviking-
ar stefna að þvi, að selja 3 þús.
iniða á leikinn i forsölu, en þeir
þurfa aö fá 4-5 þús. áhorfendur á
leikinn gegn Dundee United, til
þess aö slappa taplausir frá þátt-
töku sinni f Evrópukeppninni.