Tíminn - 25.09.1975, Side 1

Tíminn - 25.09.1975, Side 1
SLÖNGUR BARKAR TENGI TARPAULIN RISSKENMUR HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKULATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 Fleira en Armannsfells- málið þarf að rannsaka > O Engar úr- bætur í sjónvarps- málum BORGARSTJÓRI JÁTAR: Ármannsfell greiddi eina milljón króna — skömmu síðar hófust viðræður milli Ármannsfells og borgarinnar um lóðina á horni Grensásvegar og Hæðargarðs BH-Reykjavlk. A blaöamanna- fundi f gær viðurkenndi borgar- stjóri, Birgir Isleifur Gunnars- son, að byggingafélagið Ár- mannsfell hf. hafi gefið eina milijón króna i húsbyggingasjóð Sjálfstæðisflokksins i ársbyrjun 1975, eða rétt fyrir upphaf þeirra mála, sem urðu til þess, að Ár- mannsfelli var úthlutað byggingasvæði á horni Grensás- vegar og Hæðargarðs. Hafði byggingafélagið áður sótt fast að fá þetta svæði, en verið neitað um það, bæði af borgarstjóra og borgarverkfræðingi. Það kom og fram hjá borgar- stjóra I gær, að það var formaður hýsbygginganefndar Sjálfstæðis- flokksins, Albert Guðmundsson, borgarfulltrúi, sem tók að sér að koma erindi Armannsfells hf. á framfæri við borgaryfirvöld og koma þvi i gegn — skömmu eftir að framlagið i byggingasjöðinn hafði borizt. Borgarstjóri lýsti þvi yfir að- spurður, að þetta væri eina dæmið um, að byggingafélag kæmi málum sinum fram á þennan hátt — þ.e.a.s. skipu- leggja svæði sem þvi hefur verið margneitað um — og borgaryfir- völd siðan látið sannfærast af ágæti skipulagsteikninganna, enda þótt breytinga hefði verið þörf á þeim! Hitt væri ekki óalgengt, , að aðilar væru fengnir til að vinna að skemmtilegum verkefnum með Aust- firðinga ------O RETTIR Tugþúsundir fjár streyma nú úr sumarhögum til rétta. Þessi mynd er af fé i safn- girðingunni við Undirfells- rétt. Timamynd: M.Ó. borginni, eins og gerst hefði I þessu tilviki, en arkitekt Ar- mannsfells, Vifill Magnússon, hefði verið fenginn til aðstoðar skrifstofu borgarverkfræðings, og yrði honum að sjálfsögðu greitt fyrir veitta aðstoð. Borgarstjóri kvaðst hafa kannað framlag Armannafells hf til húsbyggingarsjóðs Sjálf- stæðisflokksins og aðspurður sagði hann það eina dæmið um slikt, sem hann hefði kannað. Hann væri ekki i húsbygginga- nefnd flokksins og gæti þvi ekki svarað fyrir hana — og hann hefði þvi miður ekki hugmynd um, hver hefði veitt milljóninni frá Ármannsfelli h.f. viðtöku! Borgarstjóri kvað lóða- auglýsingar birtar venjulegast einu sinni á ári, siðla árs með tilliti til úthlutunar næsta árs, með umsóknarfresti I árslok, Ot- hlutun væri venjulegast lokið fyrir 1. febrúar með tilliti til Hús- næðismálastjðrnarlána. Eftir það væri ekkki um annað að ræða nema eina og eina lóð til út- hlutunar á árinu, og viðburður, ef þær væru auglýstar, þvi að svo mikill stafli umsókna um byggingalóðir lægi venjulegast fyrir hjá borginni. Þá rakti borgarstjóri viðskipti Ármannsfells hf. við borgina, en byggingafélagið hefur tekið að sér fjögur viðamikil verkefni á siðustu árum, og væru þau viðskipti hin eðlilegustu i alla staði, þótt ekki hefði verið staðið við allt, sem um hefði verið samið Loks kvað borgarstjóri hvorki sig eða neinn fjölskyldumeðlim sinn eiga hlutabréf i Armannsfelli hf. Hann hefði átt hlutabréf þar á sinum tima, en selt þau einstaklingi, áður en hann varð . borgarstjóri. Borgarstjóri sagði að sér fyndist eðlilegt að Ármannsfells- málið skuli nú rannsakað frá grunni, og þá aðallega tengsl byggingafélagsins og Sjálfstæðis- flokksins. Hins vegar sagði borgarstjóri ekkert annað eðlilegt en að Sjálfstæðismenn I borgar- stjórn ráði ferðinni með rannsókn málsins, annað komi ekki til mála. Næðist hins vegar ekki samkomulag um skipun rann- sóknanefndar i borgarráði, telur borgarstjóri ekkert mæla á móti þvi að fela sakadómi rannsókn málsins. Greinargerðin sem borgar- stjori lagði fram á fundi með fréttamönnum i gær er birt á bls. 6. Borgarstjóri svarar spurningum blaðamanna um Armannsfcllsmálið áfundin- um i gær. Timamynd: G.E. BORGARSTJÓRI REYNIR AÐ HVÍTÞVO SIG — GERIR ALBERT GRUNSAMLEGAN Enda þótt það verði að teljast aðalat- riðiö i skýrslu Birgis ísl. Gunnarssonar borgarstjóra, að hann skuli játa, að Ar- mannsfell hafi greitt 1 millj. kr. i byggingarsjóð Sjálfstæðishússins i byrjun þessa árs, og að i framhaldi af þvi hafi byrjað viðræður milli Ármannsfells og borgarinnar um byggingarlóðina á horni Grensásvegar og Hæðargarðs, vekur þab óneitanlega mikla athygli, að á sama tima og hann reynir að hvitþvo sjálfan sig, gerir hann Albert Guðmundsson, grunsamlegan. Þannig tekur borgarstjóri þaðskýrt fram, að hann sjálfur komi hvergi nærri fjármálaráði flokksins eða húsbyggingar- nefnd og hafi þess vegna ekki tekið við neinum greiðslum. Þykir honum sérstök ástæða til að leggja áherzlu á það. Það vita hins vegar allir, hver er pott- urinn og pannan i fjáröflunarráði Sjálf- stæðisflokksins, og hver er i forsvari fýrir húsbyggingu Sjálfstæðisflokksins. Það er Albert Guðmundsson, varafor- maður borgarráðs og staðgengill borgar- stjóra. M.ö.o. það, sem borgarstjóri legg- ur áherzlu á að sverja af sér — það á Albert Guðmundsson. Hún er þvi harla léttvæg yfirlýsing borgarstjóra, sem fylgir i kjölfarið, að hann sé sjálfur sannfræður um, að stuðningur Alberts við þessa lóðaúthlutun sé ekki á neinn hátt tengdur fjárframlagi Armannsfells við húsbyggingarsjóð Sjálf- stæðishússina. Þannig stillir borgarstjóri Albert Guðmundssyni upp við vegg — gefur ótvirætt i skyn hver hafi tekið við milljóninni — og það er siðan Alberts að hreinsa sig. Sannast hér, að enginn er annars bróðir i leik, en vist er um það, að mörgum finnst, að þarna speglist hinn djúpstæði ágreiningur sem er á milli einstakra forystumanna Sjálfstæðis- flokksins. -B.H.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.