Tíminn - 26.09.1975, Page 4

Tíminn - 26.09.1975, Page 4
4 TÍMINN TTTtOQQHTTmT Föstudagur 26. september 1975 Engin viðhöfn Höfuðstöðvar FBI, leyniþjón- ustu Bandarikjanna voru nýlega fluttar í þennan myndar- lega steinkassa, sem sést á meöfylgjandi mynd. Flutning- arnir fóru fram án allrar við- hafnar, eins og oft er þó, þegar opinberar byggingar eru teknar i notkun. Ástæðan er talin vera * Ríkra manna börn Þau höfðu sorgmædd augu strax árið 1954,- þegar þessi mynd var tekin af systkinunum Christinu og Alexander, börnum Tinu og Aristotle Onassis. Fjöl- skyldan varð ekki stærri, og nú er aðeins Christina eftirlifandi. Hún er nú 24ára gömul, og gerði reyndar tilraun til að binda enda á lif sitt i fyrra. Alexander Onassis fórst I flugslysi i Grikk- landi 1973. Móðir hans, Tina, dó 1974 i Paris, 45 ára gömul, af einhverjum orsökum, sem ekki hafa verið nánar skilgreindar. Og Aristotle Onassis dó einnig i Paris um miðjan marz 1975. Ekki virðist neinn skyldleiki milli mikilla auðæfa og ham- ingju. sú, að ráðamönnum hafi ofboðið svo kostnaðurinn við bygging- una, aðþeir hafi álitið réttast að vera ekkert að fjölyrða um hana við skattborgarana. Kostnaðaráætlun hljóðaði i fyrstu upp á sem svarar tæpum tiu milljörðum islenzkra króna. Meðan á byggingu stóð, hleypti blessuð verðbólgan kostnaðin- um upp um rúma sex. mill- jarða, og breytingar á siðustu stundu, sem taldar voru nauð- synlegar, kostuðu hvorki meira né minna en fjóra og hálfan milljarð. Ef við leggjum þetta saman verður útkoman vist rúmlega tuttugu milljarðar is- lenzkra króna! Prinsessan stóðst ekki prófið Karolina prinsessa af Monaco er 18 ára gömul, hávaxin, grannvaxin, glæsileg og dug- leg stúlka. Samt tókst henni ekki að ná inntökuprófi inn i The Institute of Political Science i Paris. Karólina sem hefur eytt töluverðum tima með Philippe Laville (25 ára gam- all), mun nú verða að þrauka annað kennslutimabil og taka aftur próf, ef hún ætlar sér að stunda nám i þrjú ár við stofn- unina og taka þar lokapróf. Vin- ir Karolinu segja, að hún sé mjög aðlaðandi stúlka og að hún eigi svo marga vini, að erfitt sé fyrir hana að einbeita sér að náminu. En foreldrar hennar, Rainier prins og Grace prins- essa, eru ákveðin i að láta Karolinu ljúka skólanámi með stúdentsprófi. Grace prinsessa gerði það ekki. Sem ung stúlka var hún i Ravenhill-klaustur- skólanum, og seinna i öðrum skóla. En svo lét hún innrita sig I leiklistarskóla og var þar i tvö ár. 1949 kom Grace Kelly fram i fyrsta sinn á leiksviði á Broad- way, ileikritinu „Faðirinn” eft- ir Strindberg. Tveim árum sið- ar, eða 1951, gerði hún samning við kvikmyndafélag, og árið 1952 lék hún aðalhlutverk á móti Gary Cooper. Eftir það undirrit- aði hún sjö ára samning með MGM-kvikmyndafélagið og varð stjarna. En Grace Kelly hefur enn ekki stúdentspróf, og það er liklega þess vegna, sem hún sækir svo fast að dóttirin nái sér i slikt. — Þú ert þó hlægilegur, og þetta gerir þú bara vegna þess að ein- hver gömui spákona heldur þvi fram, að þú lendir I þvi að skipið sökkvi undan þér. DENNI DÆMALAUSI Náðu i það Snati. Ekki biaða- drenginn, heldur blaðið.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.