Tíminn - 26.09.1975, Qupperneq 11

Tíminn - 26.09.1975, Qupperneq 11
10 TÍMINN TÍMINN 11 ► Föstudagur 26. september 1975 Föstudagur 26. september 1975 1 Pýramörkinni vift Höfn (1975) Viö vorum komin til Kaup- mannahafnar aftur og heimsótt- um „menntaseliö”, þ.e. hús Jóns Sigurðssonar eitt kvöldiö. Þaö var blæjalogn og hitinn 20 gráöur, þegar við komum aö Austurvegg 12 (östervoldgade). Höföum hringt i séra Jóhann Hliöar, sem býr i húsinu og hefur lyklavöldin (a.m.k. siðdegis eftir aö húsvörö- ur fer heim) og hafði skiliö eftir lyklana svo Þorsteinn máni Svarfdælingur gat sýnt okkur húsiö. A fyrstu hæö er veitingasala og lögö fram islenzk dagblöð. Náms- menn hafa hér félagsaöstöðu. Uppi eru minningarherbergi Jóns Sigurðssonar og er þar sannar- lega forvitnilegt aö koma. Jón hefur búið vel og höföinglega og haft æriö margt i kringum sig, er vottar hin miklu störf hans á ýmsum sviðum. Þarf margar heimsóknir til að átta sig á þvi öllu. Húsgögnin eru flest eftirlik- ingar húsbúnaöar Jóns. Fræði- mannsibúö er á annarri hæð og er veitt ókeypis islenzkum fræöi- mönnum venjulega til þriggja mánaða dvalar. tslenzkukennsla fyrir börn fer fram i húsinu. A þriöju hæð býr islenzki prest- urinn i Kaupmannahöfn. Carl Sæ- mundsen kaupmaður gaf rikinu húsið áriö 1967 og hefur það siöan veriö allmikið endurbætt að inn- an. Rikið borgar hita, rafmagn, ræstingu og sér um öll útgjöld ibúöanna uppi. Námsmenn vant- ar fé til húsgangakaupa og lag- færinga niðri. Talið er að um fimm hundruð Islendingar hafi heimsótt húsiö i sumar. Sumir koma oft til að hittast og lesa blööin. Nýleg athugun sýnir aö nú eru i Danmörku fjögur—fimm þúsund tslendingar, þ.e. miklu fleiri en i nokkru öðru Evrópu- landi utan tslands. Margt er um námsfólk en margir stunda ýmis konar atvinnu — karlar og konur. Daginn eftir skoöuðum við sjá og skoöa. Geta má þess, aö rakinn er þró- unarferill og sýnt fram á hvernig ein lifveran lifir á annarri — og má engan hlekk vanta i festina, ef vel á að fara. Alls staðar er bar- átta, lögmál lifsins er strangt. Úti á stræti sáum viö barist um peningana og sálina, stundum á alvarlegan, en oft lika á hlægileg- an hátt. Á tröppum háskólans var þétt- setið eitt laugardagskvöld I sum- arbliðunni. Maöur stóð uppi á há- um krana andspænis og lét ,,öll- um illum látum”, baöaði út öllum öngum og öskraði setningar á enskuskotinni dönsku. Heyröist t.d. oft ýmist Viet Nam, Stalin, Lenin, Marx! Aheyrendur hlógu og kölluðu til ræöumanns aö herða sig og skemmta betur. A stórri grasflöt undir trjánum framan viö kirkju heilags anda á „Strikinu” sat eöa lá fjöldi fólks, einkum unglingar en útlendings legur hópur söng og spilaði á git- ara. Bezt söng svertingjastúlka ýmsa fallega og fjöruga negra- söngva. Og hún hreyfði sig á eðli- legan, þægilegan hátt eftir hljóð- fallinu. Það var ekki bara eitt- hvert rugg eða róður, eins og oft sést og er fremur til leiðinda, þeg- ar söngvarinn viröist ekki hafa hugmynd um hvaða efni hann fer með, en bara tekur bakföll of rær!! Hvit stúlka söng popp- og rokklög, en hún gerði það miklu siður, þótt ekki vantaði hana lendasveiflur og læralyftingar. Hún gerði allt vélrænt, enda hlaut sú svarta miklu meira lof. Um helgar streymir fólkið út úr borginni út að sjó eða út i skógana I grennd. Margir fara með lestinni út á Dýramörkina (Dyrahaven), hiö gamla veiði- svæði danskra konúnga og stór- höfðingja, sem nú er öllum opiö. Þarna eru grassléttur og fag.ir ævagamlir skógarlundir, sem friðaðir voru vegna veiða kon- venjulega margt fólk á skokki, karlar og konur, er hlaupa langar leiðir á skógarstigum og i þægi- legri forsælu. Marga góða stund áttum við islenzku stúdentanir i Dýramörkinni i gamla daga, oft margir saman. Þá lásu flestir is- lenzku stúdentarnir, sem utan fóru, við háskólann i Kaup- mannahöfn. Af minum bekkjar- bræðrum 1929 fóru þó sumir til Þýzkalands og á næstu árum tóku námsmenn einnig að sækja til Sviþjóöar, Bretlands, Noregs o.fl landa. Höfn var ekki lengur ein um boðið að kalla. Inni i borginni er fjöldi útlendra ferðamanna. Þeir skoða aöallega gömlu hverfin, en lita varla á nýju göturnar „Þetta nýja er nú alls staöar eins, það er ekki nýtt fyrir okkur”, segja þeir og yppta öxlum. Innan um ferðamanna- sæginn kjaga virðulegar hús- mæður með innkaupatöskur sin- ar. Þær virðast vandlátari um verð og vörugæði en tiökast heima — og meira er verðmerkt af vörum og getið um innihald eða samsetning þeirra. Ferðamenn kaupa kynstur af póstkortum, þótt flest séu þau hin sömu ár eftir ár og sýna aðallega Kaup- mannahöfn. Fáein ný nektarkort sjást innanum, en virðast ekki mikið keypt. Danir eru að veröa þreyttir á sliku og segja að út- lendingar kaupi mest og sæki mest „djörfu” sýningarnar. Útlendir blaðamenn, er til Hafnar koma, flýta sér margir hverjir sem allra mest á klám- vettvang og meta það meir en það sem mikilvægt er i dönsku þjóð- lifi. Nokkrir gróöabrallsmenn hafa grætt fé á „klámbylgjunni” og magnað hana i eiginhags- munaskyni, sumir framámenn hafa varið þetta i nafni frelsisins. Kunnur rithöfundur kom lika hassreykjandi á fund ráðherra einu sinni, en hafði ekki erindi sem erfiöi. Ráðherra rak hann út! hafa öllu hærra en venjulegar skógardúfur. Sáust fyrst i Dan- mörku fyrir aldarfjórðungi og breiðast óöum út. Nokkrir dansk- ir stúdentar sátu á bekk og virtu fyrir sér fólkið, ekki sizt ungu stúlkurnar, sem framhjá gengu. „Veiztu það, Jónas, að sumar nú- timadömurnar hérna eru ná- kvæmlega eins klæddar og for- mæöur þeirra fyrir tvö þúsund árum”, sagði snaggaralegur ná- ungi og glotti við. „Af hverju heldurðu þaö”, spurði stúlkan hans efagjörn á svipinn. „Jú, það skal ég segja ykkur, fornmenja- rannsóknirnar hafa nýlega sann- að það. A Norður-Jótlandi hefur fundizt kvenfatnaður með beina- grind i jörð svo vel varðveittur að hægt er að gera sér örugga hug- mynd um bæöi snið og lit búnings- ins. Konur fornaldar hafa a.m.k. sumar, gengið i blússu og pilsi eins og nú, bláum og brúnum á lit, t.d. i brúnu pilsi og blárri blússu. Rómverjar hinir fornu kölluðu Norðurlandabúa „hina marg- litu”. Þeir notuðu sem sé jurtalit- uð föt, blá, brún, rauöbrún, græn leit og gulleit. Já, þið eruð alveg eins klæddar og tizkudömurnar fyrir tvö þúsund árum! „Varla hafa þær þó haft smellur og rennilása, þær gömlu”, svaraði stúlkan, „en kannski góð belti og spennur. En segðu mér, hvenær farið þið karlmennirnir aftur að ganga með blúnduermar og reyra að ykkur lifstykki til að laga vöxt- inn? Þetta geröu hirðmenn og herforingjar fyrr á tiö ekki siður en kvenfólkið! Strákurinn svaraöi engu en þurrkaði bara af sér svit- ann. Þetta var eitthvert mesta hitasumar, sem gengið hefur yfir Norðurlönd og eitt hið þurrasta og sólrikasta. En á Lapplandi snjó- aði i ágúst. Það er aö færast hiti i hunda- málið i Danmörku, eins og raunar vlðar. By g gin gam eis ta r i bannaði nýlega allt hundahald i að út úr matvörubúð, af þvi að hún hafði hund i innkaupatösk- unni. Höfn er viðast hreinleg borg og mikið er barizt gegn margs konar mengun m.a. miklum hávaða úti og inni, t.d. i verksmiðjum. Hávaði sumra hljómsveita er og yfirþyrmandi og veldur heyrnar- skemmdum og verkar raunar sem deyfilyf. Menn koma hálf- ringlaðir út i umferöina. Talsvert af „nýtizkumusik” er með þvi marki brennd, þvi miður. Nóg er annars staöar af óþægilegu bila- skrölti og ærandi umferðardyn. A myndunum sjáið þið i fyrsta lagi hús Jóns Sigurössonar og konu hans. Þau bjuggu þar árin 1852-1879. Húsið er sérkennilegt að lögun, áþekkt stafni á skipi. Skammt er þaðan út á Löngulinu og á hinn bóginn að „vötnunum” og Austurbrú. Stutt er einnig að gosbrunni Gefjunar og eftirtekt- arverðu listaverki. Gylfi sænskur fornkonungur, gaf Gefjuni eitt plógsland i riki sinu, það sem fjögur naut drægju upp dag og nótt. En nautin (öxnin) voru raunar synir hennar og jötuns nokkurs. Plóglandið er Sjáland en vatnið Lögurinn mikli i Svi- þjóð, farið þar sem landið haföi upp gengið. Svo er hemt i Gylfa- ginningu i Snorra Eddu. Ein myndin sýnir hóp dádýra i Dýramörkinni, skammt frá „ein- búahöllinni”, veiðiaðsetursstaö konunga fyrrum. 1 skóginum stendur gamla björkin mikla, sem hér er sýnd. Það fer ekki mikið fyrir konunum sem sitja með skógarnestið sitt undir björkinni. 1 gömlu stórstofunni á Fjóni sjáið þið falleg gömul húsgögn þ.á.m. brúðarkistu (lengst til hægri), en i hana söfnuðu heima- sætur fyrrum vefnaði, léreftum o.fl. gagnlegum munum til bús- ins. Ingólfur Davíðsson: HEYRT OG SÉÐ Á HAFNARSLÓÐ ' ÉHIS8S Danskar brúður í þjóöbúningutn Dádýr í Dýramörkinni IIús Jóns Sigurðssonar við Austurvegg 12, Kaupmannahöfn. dýrasafnið mikla (Zoologisk Museum) i Höfn og dvaldist þar lengi, enda undur margt aö sjá I þeim miklu salarkynnum. Dýrun-' um er komið fyrir i sem eðlileg- ustu umhverfi, hverri tegund eða dýraheild. Myndir og greinargóð- ar skýringar fylgja, einnig skugga- og kvikmyndir. Þetta er ótrúlega lifandi allt saman. Ég ætla ekki að reyna aö lýsa þvi, maður verður að koma þangað, unganna öldum samán. Annars væri sennilega búið að höggva þar allt svona nálægt stórborg- inni. Fjöldi dádýra, er fyrrum voru flutt þangað vegna veið- anna, reika um slétturnar, friðuð að vissu marki. Menn fara á þennan stað með fjölskyldur sin- ar og hafa mat með. Börnin fá kannski skemmtilega ökuferð i stórum léttivögnum, sem stórir hestar ganga fyrir. Þarna er Viss borgarhverfi eru illræmd vegna óeirða, fikniefnavanda- mála, „pornobralls” o.s.frv., og mikið rætt um hvað gera skuli til úrbóta, t.d. á Vesturbrúarsvæð- inu bak við aðaljárnbrautarstöð- ina. Talið er að „peningahákall- ar” standi á bak við i fjárgróða- skyni og þurfi fyrst af öllu að sanna á þá sök. En nálægt „Strikinu” kurruðu Tyrkjadúfurnar i trjánum. Þær stórri sambyggingu, sem verið var að ganga frá — og urðu af talsverð blaðaskrif. Flestir til- vonandi leigjendur voru hlynntir banninu, en hundamenn skirskot- uðu til mannréttinda (eins og heyrzt hefur hér) og ein kona kvaðst heldur reyna að fá sér hús- næði annars staðar, þótt verra væri og dýrara, ef hún fengi að hafa hundinn sinn þar hjá sér. Þeirrikonu var skömmu eftir vis- Loks eru myndir af brúöum i dönskum þjóðbúningum, skemmtilegt .. safn. Margir hafa tekið eftir hávöxn- um mjóum trjám meö uppréttum greinum. Það er eins og grænar súlur gnæfi upp úr görðunum. Þetta eru súluaspir (pýramida- poplar). Þiö sjáið þær á myndinni af gosbrunni Gefjunar. Gömul stofa á Fjóni Gosbrunnur Gefjunar, Kaupmannahöfn fimmhefti OKEYPIS Samvinnan hefur löngum verið með ódýrustu blöðum, og er svo enn. Árgangurinn kostar aðeins 1500 krónur. Samvinnan kemur nú út tiu sinnum á ári, og er hvert hefti minnst 28 blaðsíður. Árgangurinn er því um 300 síður að stærð. Samvinnan er vönduð að allri ytri gerð; hún er prentuð á góðan pappír, með litprentaðri forsíðu — og flytur fjölbreytt efni við allra hæfi. Nýir áskrifendur Samvinnunnar fá hálfan árgang, fimm I hefti, ÓKEYPIS um leið og þeir gerast áskrifendur. $ Samvinnan ---------------------------------*--------------------- Undirritaður óskar að gerast áskrifandi að Samvinnunni Nafn Heimili SAMVINNAN Suðurlandsbraut 32 Reykj'avík

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.