Tíminn - 26.09.1975, Qupperneq 14
14
hmtnn‘
Föstudagur 26. september 1975
LÖ GREGL UHA TARINN
25 Ed McBain
Þýðandi Haraldur Blöndal
vinn fyrir mér með því að sýna ferðahópum húsnæðið
hérna.
Haws gekk að kommóðunni og opnaði sérhverja skúff u
Allar voru þær tómar, en í horninu á neðstu skúffunni
hreiðraði kakkalakki um sig.
— Þú misstir af einum, sagði Haws og lokaði skúff unni.
— Hvað þá? sagði konan.
Haws gekk að skápnum og opnaði hann. Inni í honum
héngu sjö vírherðatré. Annars var skápurinn tómur.
Hann var í þann veginn að loka hurðinni, þegar i eitthvað
á gólfinu vakti athygli hans. Hann leit nánar á þetta og
tók f ram vasal jós og lýsti á það. Þetta var peningur.
— Ef þetta eru peningar, þá á< ég þá, sagði hin ágæta
kona.
— Gerðusvovel, sagði Haws. Hann rétti henni peninginn
því hann vissi mætavel, að jafnvel þótt leigjandinn hefði
átt peninginn, þá var gersamlega ómögulegt að ná
fingraförum af honum. Á öllum peningum var fita og
olía, sem komið gat á ólíklegustu stöðum.
— Er klósett hérna? spurði hann.
— Innar á ganginum Lokaðu hurðinni á eftir þér.
— Ég vildi aðeins kanna, hvort hér væri annað herbergi.
Það er allt og sumt.
— Það er hreint, ef það er að angra þig.
— Ég efast ekki um að það er blettlaust, sagði Haws.
Hann leit enn einu sinni í kringum sig. — Þetta er þá öll
dýrðin?
— Þetta er allt og sumt, svaraði konan.
— Ég sendi mann hingað til að dusta gluggakistuna.
— Hvers vegna? spurði konan. — Hún er hrein.
— Ég á við að hann ætlar að leita að f ingraförum.
— Jæja? Konan starði á hann... — Heldur þú að þessi
stórbokkagemsi haf i verið skotinn út úr þessu herbergi?
— Það er mögulegt, svaraði Haws.
— Verð ég þá í einhverjum vandræðum?
— Ekki nema þú hafir skotið hann, svaraði Haws og
brosti.
— Það er naumast þú hef ur kímnigáfuna, sagði konan.
— Þau gengu út úr herberginu. Konan læsti á eftir sér
herberginu.
— Er þetta allt og sumt? Eða viltu sjá eitthvað annað?
spurði hún.
— Ég vil gjarna tala við konuna innar á ganginum, sagði
Haws.— En ég þarf þín ekki við frekar. Þakka þér kær-
lega fyrir. Þú hef ur verið mér mjög hjálpleg.
— Þetta er bót á tilbreytingarleysið, svaraði konan.
Haws trúði henni.
Haws þakkaði henni enn einu sinni fyrir og fylgdist
með henni þegar hún hökti niður þrepin. Svo gekk hann
að dyrunum, sem merktar voru 32, og bankaði. Enginn
svaraði. Þá bankaði hann aftur og sagði: Fru Malloy?
Dyrnar opnuðust i örlitla rifu.
— H'ver er þetta? spurði rödd.
— Lögreglumaður. Má ég tala við þig?
— Um hvað?
— Um Orecchio.
— Ég þekki engan Orecchio, sagði röddin.
— Frú Malloy....
— Ég heiti UNGFRÚ Malloy og þekki engan Orecchio.
— Er þér sama þótt þú opnir dyrnar, f rú?
— Ég vil engin vandræði.
— Ég skal ekki...
— Ég veit að maður var skotinn til bana í gærkvöld. Ég
vil engin vandræði.
— Heyrðir þú skothljóðið, frú Malloy?
— UNGFRÚ Malloy.
— Heyrðir þú skothIjóðið?
— Nei.
— Veizt þú nokkuð hvort Orecchio var heima í gær-
kvöld?
— Ég veit ekki hver þessi Orcchio er.
— Maðurinn í númer 31.
— Ég þekki hann ekki.
— Viltu ekki gera svo vel aðopna dyrnar, frú.
— Ég vil það ekki.
— Ég gæti komið aftur með húsleitarleyf i, en það væri
miklu auðveldara að...
— Komdu mér ekki í vandræði, sagði hún. — Ég skal
opna dyrnar, en komdu mér ekki í nein vandræði.
Polly Malloy var í fölgrænum náttserk. Hann var
stutterma. Haws sá förin eftir nálina um leið og hún
opnaði dyrnar. Náíarförin sögðu mikið um manneskjuna
Polly Malloy. Hún var um það bil tuttugu og sex ára
gömul, líkaminn unglingslegur og grannur. Andlitið
hefði talizt fagurt, ef lifsreynslan hefði ekki skinið svo
af því sem raun bar vitni. Græn augun voru greindarleg
Marsipan,
súkkulaði- hnetu
og rís-stöng.
Hvað ertu
að borða
Haddi?,
Er húnV Hvernig getur >
góð? J marsipan, súkkulaði
^rr/~1 hentu og ris-stöng ekki /
me
FÖSTUDAGUR
26. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-,
fregnirkl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Baldur Pálmason les
söguna „Siggi fer i sveit”
eftir Guðrúnu Sveinsdóttur
(5). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög á milli atriða.
Spjallað við bændur kl.
10.05. Morgunpoppkl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Igor Oistrak og Irina Kolle-
gorskaja leika á fiðlu og
planó tónverk eftir
Glazúnóff og Tsjai-
kovský/Vinaroktettinn leik-
ur Oktett i E-dúr op. 32 eftir
Spohr/Itzhak Perlman og
Filharmoníusveit Lundúna
leika Fiðlukonsert nr. 2 I d-
mollop.22eftir Wieniawski,
Séiji Ozawa stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna : Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis”
15.00 Miðdegistónleikar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.10 Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun.
Sæmundur G. Jóhannesson
ritstjóri rekur minningar
slnar frá uppvaxtarárum I
Miðfirði (4).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.35 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Frá sjónarhóli neytenda.
20.00 Pianókonsert op. 38 eftir
Samuel Barber.
20.30 „Oft er mönnum i heimi
hætt” Fyrri þáttur Gísla
Helgasonar og Andreu
Þórðardóttur um slys.
Kynnt verður starfsemi
slysadeildar Borgarspital-
ans og flutt viðtöl þaðan.
21.15 Nicu Pourvu leikur á
Panfiautu tónlist frá
Rúmeniu.
21.30 Gtvarpssagan: „ódám-
urinn” eftir John Gardner.
Þorsteinn Antonsson þýddi.
Þorsteinn frá Hamri les (7).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. íþróttir.
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangartónlistarþáttur i
umsjá Ásmundar Jónssonar
og Guðna Rúnars Agnars-
sonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur
26. september
20.00 Fréttir og veður
21.35 Frostrósir, eða Sekvens
fyrir segulband, dansara og
ljós. Endurtekinn ballett-
þáttur. Tónlistina samdi
Magnús Blöndal Jóhanns-
son, en dansana samdi Ingi-
björg Björnsdóttir. Fyrst á
dagskrá 26. október 1968.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 í Miklagljúfri. Bresk
heimildamynd um ferð á
húðkeipum niður Mikla-
gljúfur (Grand Canyon' I
Kólóradó—fylki i Banda-
rlkjunum. Þýðandi og þulur
Ellert Sigurbjörnsson.
21.50 Skálkarnir. Breskur
sakamálamyndaflokkur.
Folinn. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.40 Dagskrárlok.