Tíminn - 26.09.1975, Qupperneq 19
Föstudagur 26. september 1975
TÍMINN
19
- ■ ■ •■:■■•
■ « ■
HÚSVÍKINGAR
VILJA TOGSKIP
Hafrannsóknarskipið
Komet, sem er vestur-þýzkt
lagðist að bryggju i Reykja-
vik lausteftir kl. 13 i gærdag.
Hálft i hvoru var biíizt við að
skipið myndi ekki fá sömu
fyrirgreiðslu og önnur skip,
þar eð það er fyrsta vestur-
þýzka skipið sem
hingað kemur cftir að ASl
skoraði á félaga sina að veita
ekki v-þýzkum eftirlits-
skipum þjónustu hér. Mót-
þrói var þó enginn sýndur,
enda skipið hafrannsóknar-
skip og ekki i tygjum við v-
þýzku lögbrjótana á tslands-
miðum. Erindi skipsins var
að sækja vatn og vistir.
Timamynd: Róbert.
Kenna
Ólafs-
firðingum
að hætta
að reykja
5-daga áætlunin er nú orðin
mjög vel þekkt hér á landi. Si-
aukinn fjöldi fólks tekur þetta
ndmskeið og losnar undan oki
reykinganna.
Dagana 28. sept.-2. okt. n.k.
verður 5-daga áætlunin fram-
kvæmdá Ölafsfirði. Námskeiðið
fer fram i Gagnfræðaskóla
Ólafsfjarðar á vegum íslenzka
bindindisfélagsins og hefst
sunnudagskvöld 28. sept., kl.
20:3ðogstenduryfir fimm kvöld
I röð. Allir — unglingar og full-
orðnir, konur og karlar, sem
mögulega geta - eru hvattir til
að nota þetta tækifæri til að losa
sig við reykingarnar. Hættan,
sem af þeim stafar, er öllum
ljós. Lifið og heilsan er þvi i
veöi. A hverju kvöldi verða — á-
samt fróðlegum erindum —
sýndar kvikmyndir, er varpa ó-
ræku ljósi á raunveruleik þess-
ara mála. Eini kostnaðurinn,
sem þátttakendur þurfa að bera
er kaup á handbók, sem kostar
kr. 500.00. Læknirinn, sem
starfa mun meö Jóni Hj. Jóns-
syni við þetta námskeið er Jósef
Skaftason héraðslæknir, ólafs-
firði.
Leiðrétting
IGREIN blaðsins s.l. fimmtudag,
um sjónvarpsmál á Austurlandi,
var Sigurður Þorkelsson hjá Pósti
og Sima rangt titlaður. Sigurður
Þorkelsson er forstjóri tækni-
deildar og staðgengill póst- og
simamálastjóra. Beðið er vel-
virðingar á mistökum þessum.
LANDVERND
gébé Rvik — „Húsvikingar vilja
styrkja undirstöðuatvinnuveg
sinn, fiskveiðarnar, og telja að
kaup og útgerð á togskipi sé væn-
legasta og öruggasta leiðin til að
ná þvi marki. Þá skora þeir á
bæjarstjórn Húsavikur að hafa án
frekari tafar forgöngu um kaup á
togskipi til bæjarins, I samvinnu
við fyrirtæki og einstaklinga i
bænum.” Þetta var ein af
ályktunum, sem samþykktar
voru með öllum greiddum at-
kvæðum, á almennum borgar-
fundi, sem haldinn var á llúsavik
nýlega.
Eundurinn ályktaði, að óhjá-
kvæmilegt væri að auka hráefni
fyrir fiskiðnaðinn á Húsavik, og
telur.aðkaupog útgerðá togskipi
sébezta aðferðin til að ná þvi tak-
marki.
á Albert"
Timanum hefur borizt svolát-
andi yfirlýsing:
„Vegna umræðna i fjölmiðlum
um byggingamál Sjálfstæðis-
flokksins og lóðaúthlutanir á
borgarsvæði Reykjavikur, lýsir
stjórn félags Sjálfstæðismanna i
Hliða- og Holtahverfi yfir fyllsta
Þá lýsti hinn almenni borgara-
fundur á Húsavik fullum stuðn-
ingi við þá ákvörðun að færa fisk-
veiðimörkin út i 200milur og lýsti
sig andvigan öllum samningum
við erlenda aðila um veiði-
heimildir innan 50 milna mark-
anna.
Þá hvatti fundurinn til þess, að
hinar ströngustu reglur yrðu sett-
ar um nýtingu landhelginnar, og
benti sérstaklega á það alvarlega
ástand, er nú rikir á miðunum
fyrir Norðurlandi, þar sem flest
byggðarlögin byggja afkomu sina
á sjósókn á staðbundnum bátum
og fiskiðnaði. Var þessi ályktun
samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum, svo og það álit, að
rányrkja undanfarandi ára stefni
nú lifsafkomu ibúa þessa lands-
hluta i voða, ef ekki verður gripið
til róttækra aðgerða.
trausti á forystu Sjálfstæðis-
flokksins i þessum málum, svo og
málefnum Reykjavikurborgar al-
mennt.
Telur stjórnin allar árásir á Al-
bert Guðmundsson, formann hús-
byggingarnefndar og aðra aðila
þessa máls, mjög ómaklegar og
algerlega ástæðulausar”.
„Ómaklegar árdsir
Héraösmót framsóknarmanna i Kjósarsýslu verður haldið laug-
ardaginn 4. október i Hlégarði, Mosfellssveit. Hefst það kl. 21.
ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra og Jón Skaftason al-
þingismaður flytja ávörp. Sungin veröa og leikin lög eftir Sigfús
Halldórsson. Kátir félagar leika fyrir dansi.
Tilboð óskast
i Land-Rover og nokkrar fólksbifreiðar, er
verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju-
daginn 30. september kl. 12-3. Tilboðin
verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5.
Sala varnarliðseigna.
Rafmagnsnotendur
Vinsamlegast athugið að frá og með 1.
október verður afgreiðslutimi frá kl.
8,30—12 og 13—16, mánudaga—föstudaga.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Atvinna
Bændaskólinn á Hvanneyri óskar að ráða
vanan fjósamann og mann til almennra
bústarfa. Reglusemi áskilin.
Nánari upplýsingar gefa bústjóri og
skólastjóri Bændaskólans.
Bændaskólinn, Hvanneyri.
Danskennsla
ÞR í
Alþýðuhúsinu
v/Hverfisgötu
Námskeiöi gömlu dönsunum og þjóðdönsum hefjast mið-
vikudaginn 1. október og mánudaginn 6. október nk.
Kennsla i barnaflokkum félagsins hefst mánudaginn 6.
október fyrir börn 4—12 ára.
Innritunverður að Frikirkjuvegi 11 laugardaginn 27. þ.m.
milli kl. 2 og 6 og i sima 1-59-37 og mánudaginn 29. septem-
ber i Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu kl. 7—10 i sima 1-28-26.
Þjóðdansafélag Reykjavikur.
Nýjung í
slótursölu
Sala á pökkuðu og frystu slátri frá slátur-
búsi Kaupfélags Borgfirðinga hefst i dag.
Hver pakkning inniheldur fimm slátur.
Sláturmarkaðurinn verður opin frá mið-
vikudegi til föstudags kl. 1—5 og á laugar-
dögum kl. 8—11.
Sláturmarkaður
sambandsins
Kirkjusandi.