Tíminn - 27.09.1975, Síða 1
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
Landvélarhf
TARPAULIN
RISSKEMMUR
220. tbl. —Laugardagur 27. september—59. árgangur
J
HF HORÐUR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
Einar Ágústsson, utanríkisrúðherra:
Engín stefnubreyt-
ing hjá Þjóðverjum
Gsal-Reykjavlk — Genscher haföi
ekki fram að færa neinar ákveön-
ar tillögur I sambandi viö fisk-
veiöideilu þjóöanna eins og ég
haföi átt von á. Hins vegar kom
fram I okkar viöræöum, sem voru
mjög vingjarnlegar, aö Genscher
taldi rikisstjórn sina hafa hug á
þvi, aö leysa þessa deilu — og
segja má, aö þaö sé nokkur breyt-
ing frá því sem áður var, sagöi
Einar Agústsson, utanrikisráö-
herra I gærkvöidi, eftir fund sinn
viö Hans Dietrich Genscher, ut-
anrikisráðherra V-Þýzkalands i
New York.
— Ljóster.aöstefnubreytingar
eru engar af hálfu Þjóöverja i
þessu máli, sagöi Einar. — Aöeins
vinsamlegri tónn.
Einar kvað Genscher hafa ósk-
aö eftir nýjum viðræöum, og
kvaöst hann myndi leggja það
fyrir rfkisstjórnina, er heim
kæmi. Einar kvað viðræöumar
hins vegar tæpast geta orðið fyrr
en eftir Utfærsluna I 200 milur þ.
15. næsta mánaðar. Utanrikisráö-
herra kvað viöræöurnar veröa
ráöherraviðræður.
— Ég sagði Genscher, að aöal-
atriðiö væri það, að við vildum
minnka sókn Utlendinga á miðun-
um, en einnig kom ég inn á lönd-
unarbann i nokkrum v-þýzkum
höfnum og Efnahagsbandalags-
tollana. Hins vegar gaf Genscher
ekkert sérstakt Ut á það, en sagði,
að við skyldum mæta til viðræðn-
anna i góðum anda.
Ekki kvað Einar ágang v-
þýzkra eftirlitsskipa né aðgerðir
Islenzku landhelgisgæzlunnar
hafa borið á góma i viöræðunum.
Fjárhagur Fjórð-
ungssjúkrahússins
á Akureyri kominn
„á hættustig
rr
BH-Reykjavik. — Fjárhagur
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri er kominn á þaö hættustig, aö
um þessi mánaðamót getur svo
fariö, aö ekki veröi unnt aö greiöa
starfsfólki laun, eöa leysa Ut jafn-
vel nauösyniegustu iyf, sem
sjUkrahúsinu eru send i póst-
kröfu, sagði Torfi Guölaugsson,
Skattstjóri
á Isafirði:
Skattamis-
ræmið er
stórmál
fvrir ASÍ
að qlíma við
Gsal-Reykja Hreinn Sveinsson,
skattstjóri á tsafirði, sagði i
viðtali við Timann i gær, að hann
myndi að sjálfsögðu verða við
þeiri ósk Bolvikinga, að koma
mótmælalistum þeirra á fram-
færi við sina yfirmenn, en eins og
Timinn greindi frá i gær, hafa 50.
skattgreiðendur á Bolungarvik
mótmælt skattaálögum, sem þeir
telja að komi mjög misjafnlega
niður á fólk.
Um þetta mál sagði Hreinn, að
auðvitað væri það sláandi fyrir
launþega, að sjá i skattskrá jafn-
vel efnamenn greiða minna i
opinber gjöld en þeir sjálfir. Hins
vegar snýr þetta mál beint að lög-
gjafanum. Vill hann hafa skatta-
lögin svona til frambúðar?
Hreinn kvaðst telja, að
launþegasamtök — ASÍ — hefðu i
þessu sambandi stórmál að glima
við.
framkvæmdastjóri Fjóröungs-
sjúkrahússins á Akureyri i viötali
viö Timann i gær.
— Ég kalla það hættustig hjá
sjúkrahúsinu, ef það getur ekki
sinnt nauðsynlegustu verkefnum,
sem ætlazt er til að það leysi af
hendi, — og Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri er ekkert eins-
dæmi I þessum efnum. Astandið
er viöa mjög svipað þvi, sem hér
er, og það er furðulegt, hversu
blind viðkomandi yfirvöld geta
verið á fjárþörf sjúkrahúsanna
úti á landi, sem ekki hafa sama'
bakhjarl og við vitum, að
sjúkrahúsin i Reykjavik hafa.
— Hver er rekstrarhalli
sjúkrahússins á þessu ári?
— Rékstrarhallinn fyrstu átta
mánuði þessa árs er kominn upp I
rúmar 30 milljónir, og hefur mál-
unum verið bjargað frá degi til
dags með lánum i bönkum og
samningum um greiðslufrest og
loks skuldasöfnun. Rekstrar-
kostnaður fyrstu 8 mánuöi þessa
árs er 53% hærri en fyrstu átta
mánuði ársins 1974, en tekjuliö-
irnir hafa aðeins hækkað smá-
vægilega. Og svona getum við
ekki haldið áfram lengi fram yfir
mánaðamót. Við þurfum nú sér-
staka fyrirgreiðslu.
— I hvaða mynd kæmi slík
fyrirgreiðsla sér bezt?
— Við vonumst til, að daggjöld
verði hækkuð og sú hækkun veröi
látin virka aftur fyrir sig til 1.
september — en til viðbótar þessu
þarf sérstaka fjárveitingu. Þetta
er svo sem ekki fyrsta hallaáíið
okkar. 1 fyrra varð 45,5 milljón
króna tap á rekstri sjúkrahússins,
en þá fékkst fyrirgreiðsla, bæði
hjá Tryggingastofnun rikisins og
ríkinu, sem gerði sjúkrahúsinu
kleift að standa i skilum. En það
hafa enn ekki fengizt nein loforð
fyrir sliku á þessu ári, sagði Torfi
Guðlaugsson, framkvæmdastjóri
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri, að lokum.
Einar tók það fram, að fundur
hans og Genscher hefði ekki verið
neinn samningafundur, enda
hefði hann ekki haft neitt umboð
til þess að semja.
Einar kvaðst hafa hitt fulltrúa
ýmissa landa á allsherjarþinginu.
og hefði hann rætt landhelgismál-
ið óformlega við hina ýmsu full-
trúa.
Einar Ágústsson mun ávarpa
allsherjarþingið á mánudag og
aöspurður kvað hann landhelgis-
máliö vera aðalmál ræðu sinnar.
RANYRKJAN
FYRIR AUGUM
ÍSFIRÐINGA
GS—Isafirði — Rányrkjan, sem
viögengst á heimshöfunum, birt-
ist tsfiröingum i glöggri og átak-
anlegri mynd þessa dagana.
Hérna hefur undanfariö veriö
rússneskt skip, sem landaö hefur
smokkfiski, sem Rússarnir hafa
veitt á Nýfundnalandsmiöum.
Þykir mönnum veiöarfæri þau
hljóti aö vera all-smáriöin, sem
slikur smáfiskur veiöist i.
Smokkfiskurinn, sem veiðist
hér viöland, og notaður er i beitu,
mun yfirleitt vera um kiló að
þyngd. Smokkfiskurinn, sem
Rússamir hafa verið að landa
hér, er svo lítill og vesældarlegur,
að einn nægir i beituna, og er ekki
fjarri lagi að 20-30 stykki þurfi til
að fylla kilóið.
Auk þessa smokkfisks er svo I
afla þessum alls konar smáfisk-
ur, sem festst hefur I veiðarfær-
unum, og verður að sjálfsögðu
ekki veiddur i stærri mynd siðar.
Skallagrímur vill
kaupa aðra ferju
— um leið og aðstaðan kom
varð Akraborgin ónóg
BH-Reykjavik. — Stjórn Skalla-
grims hf., eigendur Akraborgar,
eru að ihuga kaup á ööru skipi,
þar eö sýnt er, aö Akraborgin
annar hvergi nærri verkefni sinu,
eftir aö aöstaöa féttkst meö
bry ggjuútibúnaöi fyrir bflaferju
Akraborgin — annar
lengur verkefni shu!
ekki
bæöi á Akranesi og i Reykjavík.
— Ef ég mætti ráöa, myndum við
ráðast nú þegar i kaup á öðru
skipi til að ganga á móti Akra-
borginni, sagði Björn H. Bjöms-
son, stjórnarformaður Skalla-
grfms hf. i viðtali við Tímann i
gær. — Þetta er hreinasta mar-
tröö, þvi við önnum ekki öllu þvi,
sem býðst, og við vitum að vöru-
flutningabilstjórar sækja fast að
komast að hjá okkur. Við fjölguð-
um upp i fjórar ferðir á milli á
dagfyrir mánuði, og þaðsýndi sig
að auka bara aðsóknina, bæði
manna og bifreiða. Akraborgin er
þegar orðin of litil. Þörfin fyrir
hana hefur þegar komið áþreifan-
lega I ljós.
1 viðtalinu við Björn kom fram,
að færri komast nú oröið að með
bila sina, en gjarnan vildu og enn
gæti aðsóknin færzt verulega i
aukana.
— Þaö fara um 200.000 bilar
fyrir Hvalfjörð á ári,sagði Björn',
en þaö er útilokað, að viö getum
flutt meira en 40.000 árlega með
þessu skipi. Annað skip af
svipaðri stærð gæti aukið fjöldann
upp i 80.000, og er þá enn veruleg-
ur hluti eftir. En skip, sem gengi
á móti Akraborginni, myndi fljót-
lega sanna tilverurétt sinn,
miðað við þá reynslu, sem þegar
er fengin.
Rannsóknardómari
í Ármannsfells-
málinu skipaður
eftir helgina
Ungir og aldnir gleðjast nú i
réttum og það er ekki annaö
aö sjá en þarna sé
upprennandi fjárspekingur á
ferö meö kindina sina. Sjá
grein i OPNU. Timamynd:
M.ó.
BH-Reykjavik — i gærkvöldi
haföi ekki verið ákveðiö, hvaöa
sakadómari heföi meö höndum
rannsóknina i Ármannsfellsmál-
inu svonefnda, að þvi er Halldór
Þorbjörnsson yfirsakadómari,
tjáöi blaöinu, en i gær bárust
sakadómaraembættinu fyrirmæli
frá saksóknara rikisins, Þórði
Björnssyni, um rannsókn á
meintu misferli i lóðaúthlutun á
vegum borgarinnar til bygginga-
félagsins Ármannsfells.
1 fyrradag rituðu borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins saksókn-
ara rikisins bréf, þar sem þeir
óska eftir rannsókri á máli þessu.
Forsendur þess að þeir snúa sér
nú til saksóknara, segja þeir þær,
að ekki hafi náðst samstaða i
borgarráöi um skipun rannsókn-
arnefndar innan borgarstjórnar i
máli þessu. í gær samþykktu
borgarráðsmenn Sjálfstæðis-
flokksins svo að hætta við að
skipa rannsóknarnefnd þá, sem
borgarráð hafði áður samþykkt
að skyldi rannsaka alla þætti Ar-
mannsfellsmálsfns. Þessu mót-
mæltu fulltrúar minnihlutaflokk-
anna I borgarstjórn.
» o