Tíminn - 03.10.1975, Page 2

Tíminn - 03.10.1975, Page 2
'' TÍMINN „Skattar verði í samræmi við raunverulegar tekjur" Frétt Timans af bréfi þvi, sem 50skattgreiöendur i Bolungavik sendu skattstjóra umdæmisins, hefoir vakiö mikla athygli. Stjórn og fulltrúaráö Starfs- mannafélags Reykjavikurborg- ar samþykkti nýlega á fundi svolátandi ályktun af þessu til- efni: „Stjórn og fulltrúaráö Starfs- mannafélags Reykjavikurborg- ar fagnar frumkvæði 50 skatt- greiöenda I Bolungavik, sem fram kemur I bréfi þeirra til skattstjóra Vestfjaröaumdæmis og birt hefur veriö I fjölmiðlum, en I þvi bréfi koma fram mót- mæli gegn gildandi skattalög- gjöf. í framhaldi af samþykkt aöal- fundar Starfsmannafélags Reykjavikurborgar 8. marz s.l. um bætta og endurskipulagða skattálagningu og skattheimtu, hvetur stjórn og fulltrúaráð félagsins aöra launþegahópa I landinu til þess, aö þeir láti einnig þetta þýöingarmikla hagsmuna- og kjaramál til sin taka. Sú krafa sé gerð til stjórn- valda og Alþingis, aö skattbyrði almennings veröi jafnan I hóf stillt, og enn fremur aö fram- kvæmdar skuli nú þegar raun- hæfar úrbætur, I þvi skyni að framlag þegna þjóöfélagsins til hins opinbera veröi I sem rétt- ustu hlutfalli viö raunverulegar tekjur hvers og eins.” Fjölbreytt vetrarstarf Æskulýðsráðs Reykjavíkur Tvær nýjar félags- miðstöðvar á döfinni gébé-RvIk — Vetrarstarf Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur er um þess- ar mundir aö hefjast og er mjög fjölbreytt aö vanda. Fer starf- semin fram aö Frikirkjuvegi IX, I Tónabæ, Fellahelli, Siglunesi og Saltvik. Auk þess eru tómstunda- störf á vegum Æskuiýösráös I skólum og hverfum höfuöborgar- innar. Þegar eru um 170 fastá- kveönir liöir i vetrarstarfinu, og búizt er við mikilli þátttöku ungra sem aldinna I vetur. Félagsmiðstööin Fellahellir I Breiðholti hefur nú sitt fyrsta heila starfsár I haust. Þar fara ALVARLEGT SLYS Á MIÐUNUM HHJ-Rvik. — Alvarlegt slys varö á miðunum I gærkvöldi. Háseti um borð i Ársæli Sig- urðssyni II HF 12 varð á milli gálga ofg hlera og meiddist alvarlega. Var þegar haft sam- band við Slysavarnafélagið og beöið um að maðurinn yrði sóttur i þyrlu og að læknir fylgdi með þyrlunni. Fór bandarlsk þyrla frá Keflavikurflugvelli á vettvang og þegar síðast fréttist var hún á sveimi yfir skipinu og átti að reyna að ná manninum um borð I vélina I körfu og flytja hann á Borgarspitalann. Slysið varð um hálfáttaleytið I gærkvöldi og þá var skipið statt um 25 sjómilur vestur af Garðskaga. HÁHYRNINGARNIR BÁÐIR DAUÐIR kryfja á annan þeirra fram ýmiss konar námskeið I vet- ur, t.d. I ljósmyndun, leir og smelti, og einnig félagsmálanám- skeið. Þá verður leikjasalurinn opinn vissa tlma I viku hverri, og er borðtennis þar einna vinsæl- astur. Bæklingur hefur verið gef- inn út um starfsemi Fellahellis I vetur, og verður hann sendur til allra Breiðholtsbúa. Auk þess, sem hér hefur verið upp talið, hafa ýmis félög og stofnanir feng- ið inni i Fellahelli með starfsemi sina, t.d. skátar KFUM og K. Námsflokkar Reykjavikur, Barnamúsikskólinn og fleiri. Að Frikirkjuvegi 11 verða klúbbár Æskulýðsráðs með margskonar starfsemi og nám- skeið haldin, auk þess sem skrif- stofa ráðsins er opin þar daglega. 1 Saltvlk verður húsnæðisleiga og útivistarþjónusta. I Tónabæ verða dansleikir á föstudögum, laugardögum og sunnudögum fyrir unglinga, auk þess sem salir þar verða leigðir út til margskonar starfsemi, og verður reksturinn þar þvl með svipuðu sniði og undanfarin ár. í Siglunes-klúbbnum verður starfsemin lifleg að venju. Þar verða flokkar I bátasmiðum I vet- ur, námskeið verða haldin I sigl- ingareglum, meðferð áttavita og sjókorta og margt fleira. gébé—Rvlk — Háhyrningarnir tveir, sem ætlunin var aö láta Sæ- dýrasafniö fá, drápust er verið var aö flytja þá tii Þorlákshafnar. Þaö var rannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem var meö há- hyrningana I togi, en þar sem há- hyrningar eru viðkvæmar skepn- ur, munu þeir ekki hafa þolað þessa niöurlægjandi aöferö og drepist. Það var Hamravlk KE 75, sem fékk óboðna gesti, er skipið var að sildveiðum undan Hjörleifshöfða i fyrradag. Fimm háhyrningar gerðu sig heimakomna við netin, rifu þau og tættu. Sluppu þrlr, en tveir óheppnir festust I netunum. Voru þegar geröar ráðstafanir til að reyna að ná háhyrningunum lifandi og koma þeim ósködduð- um I Sædýrasafnið I Hafnarfirði. Arni Friðriksson var fengin til að flytja háhyrningana til Þor- lákshafnar, og voru þeir bundnir ogviðsíðu skipsins. — Viö reynd- um að koma þeim um borð, sagði Sveinn Sveinbjörnsson fiskifræð- ingur I gærkvöldi, en hann er um borð i Árna, og notuðum við til þess „sjúkrakörfurnar” sem við köllum svo, en þvi miður tókst það ekki og ákváðum við þvi að draga þá til hafnar. Þeir drápust svo á leiðinni. — Við tókum stærri háhyrning- inn um borð, en hann er um sjö metrar að lengd. Ætlunin er að láta kryfja hann til að komast að,, hvaö varð honum að dauða, sagði Sveinn, hinum fleygðum við. — Sædýrasafnið I Hafnarfirði verður þvi að biða enn um sinn eftir háhyrningi. Hinrik Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Æskuíýðsráðs, sagði á blaöamannafundi, sem ráðið efndi til, að ætlunin væri að efla starfið I hverfum borgarinn- ar að mun, og I þvi sambandi minntist hann á, að nú væri verið að setja á stofn tvær félagsmið- stöðvar til viðbótar I kjallara safnaðarheimilisins I Bústaða- sókn, og I Árbæ er I hönnun fé- lagsmiðstöð, sem verður I Rofa- bæ. Þá sagði Hinrik að sumarstarf Æskulýðsráðs hefði verið llflegt I sumar, stangveiðiklúbbur var starfandi og farið var I veiðiferð- ir, þá var vélhjólaklúbburinn vin- sæll, og farið var I kynnisferðir. Reiðskóli var starfræktur I Salt- vlk, og margar sjóferðir farnar á vegum Sigluness. Frumsýning hjá L. A. A sunnudaginn verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akur- eyrar leikritið Tangó eftir Slavomir Mrozek. Þýðinguna gerðu Þrándur Thoroddsen og Bríet Héðinsdóttir, en leikstjóri er Eyvindur Erlendsson. Leikmynd er eftir Steinþór Sigurðsson. Tangó var fyrst sýndur hér á landi fyrir tólf árum, hjá Leikfélagi Reykjavikur undir leikstjórn Sveins Einarssonar. I þeirri sýningu fór Arnar Jónsson með sitt fyrsta mikilsháttar hlut- verk hjá L.R. hlutverk Arthurs, sem Aðalsteinn Bergdal leikur I þetta sinn. Júllus Oddsson mun leika hlutverk Stómils, Sigurveig Jónsdóttir — Elenoru, Gestur E. Jónasson — Edda, Saga Jóns- dóttir — öllu, Arni Valur Viggós- son, — Efgenius frænda og Kristjana Jónsdóttir — Ömmuna. Tangó segir frá frelsisdýrkend- um nokkrum, fjölskyldu sem eftir mikið brambolt hefur tekizt að þvi er þau sjálf segja, að brjóta af sér hlekki fordómanna og úr- eltrar hefðar og lifir „frjálsu nútímalffi” eða listrænar tilraunir og fyrirhyggjuleysi eitt á stefnuskrá. Ungi maðurinn, Arthur, sem eins og aðrir ungir menn, er frábitinn þvi að sætta sig við heiminn, eins og hann er, vill aftur á móti hafa kjölfestu og reglu i tilverunni og leggur þvi' til atlögu við „þetta frelsisviti”. Föður hans og f jölskyldu tekst þá aö snúa allri hans siðbót upp i fáránlegan skopleik lengi vel, en leikurinn fær óvæntan og snöggan endi „svo sem vænta mátti”. Tangó er fyrsta frumsýning L.A. á þessu starfsári. Miðasala fyrir frumsýninguna hefstá fimmtudaginn kl. 16.00 og verður haldið áfram næstu daga milli kl. 16.00 og kl. 18.00. Jafn- framt verða seld áskriftakort L.A. eins og venjulega i byrjun leikárs. Áskriftakortin gilda á fjórar til fimmsýningar, og eru seld með 25-20% afslætti — 40-30% fyrir skólahemendur. t'östiidagur 3. október X975 Siglingaiþróttin er mjög vinsæl mebal ungiinga, en I Siglunesi eru þeim kenndar bátasmlöar og öll meðferð bátanna. Vetraráætlun FÍ gengin í gildi: Fleiri vöruflutninga- ferðir en nokkru sinni — ferðum milli Reykjavíkur, Húsavíkur og Sauðárkróks fjölgað 1. OKTÓBER gekk vetraráætl- un innanlandsfiugs Flugfélags tslands I gildi. Áætlunin er I aöalatriðum svipuð þvi sem var s.l. vetur, en þó verða nokkrar markverðar breytingar og nýj- ungar. T.d. verða fleiri ferðir milli Reykjavlkur og Sauðár- króks og Húsavikur og fleiri vöruflutningaferðir milli Reykjavikur og annarra staða á landinu. Enn fremur tekur Flugfélag Norðurlands aö sér flug frá Akureyri, sem Flug- félag íslands annaðist s.l. vetur. 1 sambandi viö flug til ýmissa flugvalla mun verða naldið uppi ferðum til nærliggjandi byggð- arlaga með áætlunarbifreiðum. Þessi skipan mála hefur gefizt vel á undanförnum árum. Samkvæmt vetraráætluninni verður farþegafluginu hagað sem hér segir: Milli Reykjavik- ur og Akureyrar verða þrjár ferðir á dag, á mánudögum, miðvikudögum, laugardögum og sunnudögum. Á föstudögum verða fjórar ferðir, en tvær ferðir aðra daga. Til Vest- mannaeyja verða tvær ferðir alla daga. Til ísafjaröar verður flogið alla daga, og til Egils- staða verður sömuleiðis flogið alla daga vikunnar. Til Patreks- fjaröar verður flogið á mánu- dögum, miðvikudögum og föstudögum. Til Þingeyrar á mánudögum og föstudögum. Til Sauðárkróks verður flogið á mánijdögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum. Til Húsavikur verður flogið á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum. Til Norðfjarðar á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Til Hornafjarðar á þriðjudög- um, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum. Til Fagurhóls- mýrar verður flogið á fimmtu- dögum. Sem að framan greinir verða I vetur fleiri vöruflutningaferðir milli staða á landinu en nokkru sinni fyrr. Tvær feröir I viku verða með vörur til Akureyrar, tsafjarðar, Egilsstaða og Vest- mannaeyja. Enn fremur verður vöruflutningaferð einu sinni I viku frá Egilsstöðum til Akur- eyrar, þaðan til tsafjarðar og Reykjavlkur. t sambandi við áætlunarflug Flugfélags tslands til Akureyr- ar mun Flugfélag Norðurlands halda uppi flugi til staða á Norð- austurlandi, til Húsavikur, Raufarhafnar, Kópaskers, Vopnafjarðar og Þórshafnar. Enn fremur til Grimseyjar og milli Akureyrar og Egilsstaða og Akureyrar og ísafjarðar. Þá mun Flugfélag Norðurlands frá og með 1. nóvember halda uppi áætlunarflugferðum milli Akur- eyrar og Sauðárkróks og Akur- eyrar og Siglufjarðar. A slnum tima var tekinn upp sá háttur I Reykjavlk og nokkr- um hinna stærri kaupstaða, að vörusendingum var ekið heim til viðtakanda Enn fremur voru vörusendingar sóttar til send- anda. í framhaldi af þessu hefur verið ákveðið að opna nokkrar vöruafhendinga — og móttöku- stöðvar. Þangað geta viðtak- endur sótt pakka, og einnig afhent smærri vörusendingar, sem eiga að fara til annarra staða á landinu. Stöðvarnar eru sem hér segir: I Breiðholti I verzluninni Straumnesi, Vest- urbergi 76, I Arbæjarhverfi: I verzluninni Garðarskjöri, Hraunbæ 102, I Kópavogi: I sendibilastöð Kópavogs við Nýbýlaveg, Nýbýlavegi. I athugun er að opna fleiri slikar stöðvar og mun verða tylkynnt um það þegar þar að kemur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.