Tíminn - 03.10.1975, Page 8
8
TÍMINN
Föstudagur 3. október 1975
Þessar myndir eru tekn-
ar um borð i sildarskip-
inu Rauðsey, er það kom
til Akraness um siðustu
helgi með 100 lestir af
sild. Var saltað i skipinu
við bryggjuna, og sést
söltunarfólk að störfum
á annarri myndinni, en á
hinni myndinni er verið
að hifa tunnur, fullar af
saltsild, i land.
TILKYNNINGASKYLDAN
ORIN ALLAN
SÓLARHRINGINN
BH-Reykjavík. — Um þessi
mánaöamót verða þær breyt-
ingar á tilkynningaskyldu báta,
að 24ra klukkustunda vakt verð-
ur tekin upp, og stendur hún
næstu sjö mánuðina i stað tiu
stunda vaktarinnar, sem verið
hefur undanfarna fimm mán-
uði, eða yfir sumartimann.
Tóku breytingarnar gildi i gær.
Hannes Hafstein hjá Slysa-
varnafélagi Islands veitti
Timanum þær upplýsingar, að
tilkynningaskyldan næði til
allra báta, og væri nauðsynlegt
að hafa fyrirliggjandi allar upp-
lýsingar um það, hvenær þeir
létu úr höfn, hvar þeir væru að
veiðum og hvenær þeir kæmu til
hafnar.
— Tilkynningaskyldunni er
fyrst og fremst komið á i
öryggisskyni fyrir bátana
sjálfa, sagði Hannes Hafstein,
og þvi eru vanhöldin og trassa-
skapurinn sem vill brenna við,
furðulegt og nánast óskiljanlegt
fyrirbæri. Þetta ættu sjómenn
að geta gert sér ljóst. Þá er til-
kynningaskildan upplýsinga-
miðstöð fyrir aðstandendur sjó-
manna, og það ekki svo litilvæg.
Þó ekki kæmu nema þessi tvö
atriði til ættu sjómenn að gera
sér ljóst, að þeir mega ekki láta
undir höfuð leggjast að hafa
samband við tilkynningaskyld-
una.
Fyrsta Ferguson
vélin safngripur
— merkar nýjungar í drdttarvélum
frd Massey Ferguson
A VÖRUSÝNINGUNNI I Laugar-
dalshöll nú I sumar sýndu Drátt-
arvélar hf. nýja og aflmikla
dráttarvél frá Massey Ferguson,
sem nefnist MF 595. Arnór Val-
geirsson frkvstj. sagði i samtali
við Sambandsfréttir, að á sýning-
unni hefði hún vakið mikla at-
hygli þeirra, sem hefðu skoðað
hana, enda ylli hún að vissu leyti
þáttaskilum. Merkasta nýjungin
við þessa vél er nýtt og m jög full-
komið öryggishús, sem m.a.
veitir ökumanninum stóraukið
útsýni, auk þess sem það er mun
þægilegra til að vinna i en eldri
hús. Það erhannað I samræmi við
ströngustu reglur um gerð slikra
húsa, sem settar hafa verið I ná-
grannaiöndunum, og t.d. hefur
veriö lögð áherzla á að hljóðein-
angra það sem bezt, m.a. með
sérstökum gúmmipúðum milli
þess og vélarinnar, til að minnka
vinnuhávaðann, sem berst inn til
ökumannsins. Er vonazt til, að
hús af þessari gerð verði innan
tlðar fáanleg á aðrar tegundir
Massey Ferguson dráttarvéla.
Auk þess er vélin meö öllum
sama útbúnaöi og verið hefur fá-
anlegur á þær Massey Ferguson
dráttarvélar, sem fluttar hafa
veriö til landsins undanfarið, svo
sem multi-power vökvaskiptingu
i girkassa, vökvahemlum,
tveggja hraða aflúrtaki og vökva-
stýri, en siðast nefndi búnaðurinn
er nú á öllum dráttarvélum, sem
fyrirtækið flytur inn. Arnór gat
þess einnig, að þessi vél væri
fyrst og fremst ætluð til
jarðvinnu. Gerði hann ráð fyrir,
að vélar af þessari gerð yrðu
einkum keyptar af jarðræktar-
samböndum, búnaðarfélögum og
öðrum aðilum, sem þyrftu á afl-
miklum dráttarvélum að halda.
MF 595 er framleidd i verk-
smiðjum Massey Ferguson i
Frakklandi og búin 92 hestafla
Perkins disilvél. Arnór kvað verð
vélarinnar ekki liggja fyrir enn,
en sennilega yrði það á bilinu .2-3
mi'ljónir.
MF 70 gröfu-
og moksturssamstæða
Þá sýndu Dráttarvélar hf. einn-
ig gröfu og moskturssamstæðu af
gerðinni MF 70 á vörusýningunni,
en innflutningur þeirra hófst á s.l.
ári. Nú þegar eru margar slikar
samstæður i notkun hjá verktök-
um og sveitarfélögum viðs vegar
um landið, og hafa þær reynzt vel.
Þessi samstæða er framleidd i
Bandarikjunum, og er hún stærri
og afkastameiri en MF 50B, sem
er langmest selda gröfusamstæð-
an hér á landi.
Eins og fram kemur f fréttinni
hér að ofan er nýja dráttarvélin
MF 595 búin 92 hestafla Perkins
disilvél. t samtalinu við Arnór
Valgeirsson frkvstj. kom m.a.
fram,að fyrstu dráttarvélar, sem
fluttar voru hingað til lands,
munu aðeins hafa verið búnar 10-
20 hestafla vélum. Fyrstu Fergu-
son dráttarvélarnar voru þó
nokkru aflmeiri, eða með allt að
27 hestafla vélum. Þær land-
búnaðardráttarvélar, sem mest
eru seldar i dag, eru hins vegar
flestar búnar aflvélum á bilinu
frá 47 og upp í 62 hestöfl.
Fyrsta Ferguson
dráttarvélin safngripur
Fyrir nokkru keyptu Dráttar-
vélar hf. aftur fyrstu Ferguson
dráttarvélina, sem fyrirtækið
flutti inn. Var hún afgreidd árið
1949, eða sama ár og fyrirtækið
var stofnað. Þessi vél var keypt
frá Tilraunastöðinni á Keldum,
og hafði hún verið i stöðugri notk-
un allt frá 1’949. Vélin er af
gerðinni TEA 20 með bensinvél,
og yfirfóru starfsmenn Dráttar-
véla hf. hana og máluðu, en hún
er enn i fullkomnu lagi. Nú
stendur þessi vél i anddyrinu að
Suðurlandsbraut 32, þar sem hug-
myndin er, að hún verði framveg-
is varðveitt sem safngripur.
Arið 1949 seldu Dráttarvélar hf.
samtals 178 Ferguson dráttar-
vélar,.sem var 41% af heildarinn-
flutningi dráttarvéla það ár.
Vélar af þessari gerð voru fluttar
inn til ársins 1956, og á þvi tima-
bili seldi fyrirtækið samtals 1596
slikar vélar, þaraf 112 af gerðinni
TEF 20 með disilvélum. Alls voru
á árunum 1949-56 fluttar til lands-
ins 3114 dráttarvélar afýmsum
gerðum, og hefur þvi um 51% af
þeim innflutningi verið af gerð-
inni Ferguson. Eftir árið 1956
tóku svo við nýjar gerðir, FE 35
og FE 65, sem voru stærn
og aflméiri. Fram að þessum
tima höfðu einnig verið
fluttar til landsins allmargar
dráttarvélar af gerðinni Massey
Harris, en fyrirtækið sevi fram-
leiddi þær sameinaðist F erguson
fyrirtækinu um þetia leyti. Hóf
það sameinaða fyrirtæki siðan
framleiðslu dráttarvéla af gerð-
inni Massey Ferguson, en Drátt-
arvélar hf. hafa núum árabil flutt
þær hingað til lands.
Merkjasölu
dagur SÍBS
á sunnudag
HINN árlegi merkjasöludagur
Sambands Islenzkra berklasjúk-
linga er nk. sunnudag 5. október.
Blöð og merki sambandsins
verða þá seld i Reykjavik og yfir
100 öðrum stöðum á landinu.
Blað sambandsins, Reykja-
lundur, er að miklu leyti helgað
Vinnuheimilinu að Reykjalundi,
sem varð 30 ára á þessu ári, og
kynningu á félagssamtökum
astma- og ofnæmissjúklinga, sem
nýlega hafa gerzt aðilar að sam-
bandinu.
Stöðugt er unnið að bygginga-
framkvæmdum á Reykjalundi, en
þar er nú sjúkrarými fyrir 165
sjúklinga.
Einnig rekur sambandið vinnu-
stofu i Reykjavik, þar sem nú
vinna um 35 öryrkjar.
Þetta er fyrsta dráttarvélin sem
Dráttarvélar fluttu inn, en það
var árið 1949 — Nú er vélin varð-
vcitt sem safngripur.