Tíminn - 03.10.1975, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Föstudagur 3. október 1975
LÖ GREGL UHA TARINN
31
Ed McBain
Þýðandi Haraldur Blöndal
ræddi við vini sína. Viðmælendur frú La Bresca hefðu
getað verið að leggja á ráðin um öll hugsanleg ofbeldís-
verk i þrjátíu og eitt skipti þennan dag án þess að Brown
hefði haft um það minnstu hugmynd. Hann var nú búinn
aðtaka uppá tvær segulbandsspólur öll þessi samtöl, þvi
hann skildi ekki stakt orð en vildi þó að einhver — helzt
Carella — þýddi þau við eitthvert tækifæri.
— Halló, sagði rödd á ensku.
Brown varð svo um þetta, að hann datt nærri ofan af
stólnum. Hann settist upp þrælsperrtur og hagræddi
heyrnartólunum. Svo stillti hann hljóðstyrkinn á segul-
bandsupptökunni og hlustaði fullur athygli.
— Tony? spurði seinni röddin.
— Já, hver er þetta? Fyrri röddin var þá rödd La
Bresca. Sennilega var hann nýkominn heim frá vinnu
sinni. Seinni röddin....
— Þetta er Dom.
— Hver þá?
— Dominick.
— Jæja, komdu sæll, Dom. Hvernig gengur lífið?
— Ljómandi.
— Hvað er um að vera, Dom?
— Svo sem ekki neitt, svaraði Dom. Ég ætlaði bara að
forvitnast um þig, það var allt og sumt.
Þeir þögðu báðir svolitla stund. Brown beið ákafur
eftir framhaldinu.
— Mér líður vel, svaraði La Bresca loks.
— Gott. Það er ágætt, sagði Dom.
Aftur varð þögn.
— Ef þetta var erindið, sagði La Bresca, þá held ég
bara...
— Bíddu aðeins. Tony. Ég var reyndar að hugsa um
hvort....
— Hvað er það?
— Ég ætlaði að athuga hvort þú gætir lánað mér eitt-
hvað af seðlum til að ég geti komið mér hér almennilega
f yrir.
— Komið þér fyrir? Að gera hvað? spurði La Bresca.
— Ég tapðaði stórfé í veðmálum í síðustu hnefaleika-
keppni. Þú skilur, ég þarf að ná mér á strik og koma mér
fyrir.
— Það hef ur aldrei verið nein regla á þér né þínu líf i,
sagði La Bresca.
— Það er ekki satt, Tony.
— Allt i lagi. Það er ekki satt. En hitt ER satt. Ég á
enga seðla til að lána þér.
— Annað hef ég nú heyrt, sagði Dom.
— Jæja? Hvað hefur þú heyrt?
— Það ganga sögur um að þú komist bráðlega í feitan
sjóð.
— Einmitt það? Hvar heyrðir þú þetta BULL?
— Ég hef eyrun opin. Menn skiptast á upplýsingum.
— í þetta sinn eru upplýsingarnar rangar.
— Bara nokkur hundruð dali til að fleyta mér næstu
vikurnar. Þangað til ég kem skipulagi á þetta.
— Dom, ég hef ekki séð hundrað dala seðil síðan ég
var með Hektor.
— Tony....
Rödd Dom var örlftið hikandi en gaf ótvíræða aðvörun
til kynna. Brown skynjaði þessa skyndilegu spennu og
hlustaði spenntur eftir næstu orðum Dom.
— ÉG VEIT ÞAÐ, sagði hann svo.
Aftur varð þögn. Brown beið. Hann heyrði þungan
andardrátt annars mannanna.
— HVAÐ VEIZT ÞÚ, spurði La Bresca.
— Um verknaðinn.
— HVAÐA verknað?
— Láttu mig ekki þurfa að segja það í símann, Tony,
Maður veit aldrei hver hlerar nú orðið.
— Hvern f jandann ertu að reyna að gera? Brjóta mig
niður eða hvað, spurði La Bresca.
— Nei. Ég er aðeins að reyna að fá nokkur hundruð
dala lán. Þangað til ég kem mér á réttan kjöl. Mér væri
hreint ekkert um það gefið að sjá allar þínar áætlanir
fara í vaskinn, Tony.
— Ef þú slefar einhverju þá vitum við hver var að
verki, félagi.
— Hlustaðu á mig, Tony. Ef ég komst að þessu þá vita
þetta f leiri. Þetta er á allra vörum. Þú mátt þakka fyrir
að lögreglan er ekki komin á sporið.
— Lögreglan veit ekki einu sinni að ég er til, svaraði
La Bresca. Ég hef aldrei verið sekur fundinn um nokk-
urn skapaðan hlut.
— Hrein sakaskrá og það sem gert hefur verið er
tvennt ólíkt, Tony.
— Vertu ekki að ónáða mig, Dom. Ef þú eyðileggur
þetta fyrir mér, þá....
— Ég er ekki að eyðileggja neitt. Ég bið þig að lána
Föstudagur
3. október
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigrún Sigurðardóttir
les „Disu og söguna af
Svartskegg” eftir Kára
Tryggvason (3). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög á
milli atriða. Spjallað við
bændur kl. 10.05. Morgun-
popp kl. 10.25 Morguntón-
leikarkl. 11.00.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Dag-
bók Þeódórakis” Málfriður
Einarsdóttir þýddi. Nanna
ólafsdóttir les (23). Einnig
les Ingibjörg Stephensen
ljóð og flutt er tónlist eftir
Þeódórakis.
15.00 Miðdegistónleikar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popp
17.10 Tónleikar.
17.30 Mannlif i mótun Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri rekur minningar sinar
frá uppvaxtarárum i Mið-
firði (6).
18.00 Tónleikar. T.ilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Húsnæðis- og byggingar-
mál Sveinbjörn Jónsson
framkvæmdastjóri, Kjartan
Sveinsson byggingatækni-
fræðingur, Hrafnkell
Thorlacius arkitekt og Þór
Magnússon þjóðminjavörð-
ur svara spurniagunni:
Hvers virði er byggingarlist
okkur islendingum? Ólafur
Jensson sér um þáttinn.
20.00 Pianókonsert nr. 1 i e-
moll eftir Frédéric Chopin
Pjotr Paleczny og Sinfóniu-
hljómsveit pólska útvarps-
ins leika, Jerzy Maksymiuk
stjórnar.
20.30 Oft er mönnum I heimi
hætt Siðari þáttur Gisla
Helgasonar og Andreu
Þórðardóttur um slys. Farið
verður i heimsókn á Grens-
ásdeild Borgarspitalans og
flutt viðtöl þaðan.
21.00 Fiðlusónata op. 30 nr. 1
eftir Ludwig van Beethoven
Lorand Fenyves og Anton
Kuerti leika.
21.30 Ú t v a r p s s a g a n :
„Ódámurinn” eftir John
Gardner Þorsteinn Antons-
son þýddi. Þorsteinn frá
Hamri les (9)
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. fþróttir
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Asmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
3.október1975
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maður Svala Thorlacius.
21.20 Munnharpan er merkis-
gripur. Breskur þáttur um
munnhörpur og munn-
hörpuleikara. Nokkrir fræg-
ir munnhörpuleikarar koma
fram i þættinum, þ.á m.
Cham-Ber Huang, Larry
Adler, James Cottom o.fl.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
21.50 Skálkarnir. Breskur-
sakamálamyndaflokkur. 10.
þáttur. Bernie. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
22.40 Dagskrártok.