Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 28
[ FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL SMÁAUGLÝSINGAR Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is Signý Sæmundsdóttir ætlar að syngja fyrir sveitunga sína austur á Hellu í kvöld. Þegar hún hefur mikið við í matargerð þá eldar hún rétt sem heitir hani í víni. „Ég er nú ekki með tilstand í eldhúsinu dags daglega en ég hef gaman af mat, bæði að láta mig dreyma um fína rétti og takast á við að útbúa þá í raunveruleikanum,“ segir Signý sem kveðst njóta þess að skoða uppskrifta- bækur og blöð. „Það sem heillar mig er fjölbreytileikinn og allt sem er í kringum matargerðina,“ segir hún glaðlega. Meðal þess sem hún leikur sér að í eldhúsinu stöku sinnum er að baka gómsætar gúmelaðikök- ur. „Þetta er allt gott hvað með öðru,“ segir hún og bætir við. „Númer eitt er að kitla bragðlaukana svolítið.“ Einn réttur er í sérstöku uppáhaldi hjá Signýju og sá er bæði góður og aðgengileg- ur að hennar sögn. „Þetta er „Hani í víni“ eða „Coq au Vin“ eins og hann ku heita uppá frönsku. Ég fann hann í skemmtilegri bók sem heitir Áttu von á gestum og var gefin út fyrir mörgum árum, skrifuð af Guðrúnu Hilmarsdóttur matreiðslukennara. Þenn- an rétt hef ég notað þegar eitthvað mikið stendur til. Þetta er franskur réttur og þeir sem hafa komið til Frakklands hafa áreið- anlega heyrt um hann því hann er víða á matseðlum veitingahúsa.“ Þegar forvitnast er um það sem Signý aðhefst þessa dagana kemur í ljós að hún er með söngdagskrá í kvöld á Hellu ásamt Þóru Fríðu systur sinni. „Jú, það er nýlega búið að opna safnaðarheimili Oddakirkju á Rangárvöllum en það stendur ekki við kirkjuna heldur er á Hellu. Í það er búið að kaupa flygil að nokkru leyti uppá krít og tónleikarnir eru liður í að safna fyrir honum,“ segir Signý. „Við systur eigum ættir að rekja austur í Rangárvallasýslu og okkur er ljúft og skylt að styrkja þetta góða málefni.“ gun@frettabladid.is Gaman að kitla bragð- laukana og góminn Þegar Signý á von á gestum matreiðir hún stundum góðan rétt úr kjúklingum og grænmeti. Uppskriftin er á næstu opnu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR. Góðan dag! Í dag er föstudagur 28. október 301. dagur ársins. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 8.58 13.12 17.24 Akureyri 8.51 12.56 17.00 Heimild: Almanak Háskólans KRÍLIN Mamma ætlar að hækka vikupening- ana mína ef ég er ekki duglegur að æfa mig á blokk- flautuna! Allir herra- skór eru á tilboði í versluninni Euroskór í Firðinum í Hafnarfirði sem eins og margir vita stendur við Fjarðargötu 13-15. Mikið úrval er af skóm í búðinni og eru þeir allir á 20% afslætti nú um helgina. Súpubarinn er nýr veitinga- staður við Borgartúnið. Eins og nafnið bendir til er þar boðið upp á súpur og að auki með- læti með þeim. Súpubarinn er í sama húsi og Essó og Sub- way og nú legg- ur súpuilminn þar út á hlað. Fjölbreytt úrval sam- kvæmiskjóla frá Dynasty er á 40% afslætti í dag og á morgun í versluninni Feminin Fashion í Bæjarlind 12 í Kópa- vogi. Þar er opið í dag frá 11 til 18 og á morgun frá 10-16. Bison í Kringlunni fagnar sex ára afmæli á Íslandi nú um helgina og býður af því tilefni 20% afslátt af öllum vörum sínum. Þar er um að ræða bæði herra- og dömu- fatnað af öllum mögulegum gerð- um sem henta jafnt á djammið, ráðstefnuna og í skólann. LIGGUR Í LOFTINU [MATUR - TILBOÐ] Verið velkomin í stórglæsilegan sýningarsal Mörkinni 1, 108 Reykjavík. Upplifið það nýjasta í innréttingum. Opnunartími. Virka daga 9-18 Laugardaga 11-15 Sími 515 0700 SLÁTURTÍÐ Góður matur og hollur bls. 2 TVÍBURAR Gefa Dönum góð ráð bls. 5 ]
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.