Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 29
[ ]má setja í frysti í nokkra tíma og þá er auðveldara að brjóta skelina utan af þeim. Ef ekki er til hnetubrjótur má nota hamar.Hnetur
Smáflöskur eru hentugur kostur fyrir þá sem vilja drekka eitt og eitt rauðvíns-
glas en ekki opna heila flösku auk þess að vera góður kostur í móttökum. Nú
fæst hið vinsæla Santa Rita vín frá
Chile í hentugri öskju með fjórum
smáflöskum. Vín fyrirtækisins þykja
afar hagstæð miðað við gæði og
var Santa Rita m.a. útnefnt „hag-
stæðasti vínframleiðandinn“ í tíma-
ritinu Wine & Spirits árið 2002.
Santa Rita 120 vínlínan hefur
sögulega tilvísun í sjálfstæðis-
baráttu landsins. Snemma á 19.
öld, er landsmenn reyndu að
komast undan ofríki spænsku
krúnunnar, földu 120 hermenn
uppreisnarmanna sig í kjöllurum
víngerðarinnar og herjuðu þaðan
á hermenn Spánarkonungs.
Voru hermennirnir 120 undir
stjórn hershöfðingjans Bern-
ardo O‘Higgins, sem varð einn
af leiðtogum landsins er það
hlaut sjálfstæði. Santa Rita 120
Cabernet Sauvignon er frísklegt
og ávaxtaríkt vín sem ræður við
flestan mat.
Verð í vínbúðunum 1.400
krónur.
SANTA RITA:
Fjórar smáflöskur í
hentugri öskju
Gestasaumarinn Stefán Jón Hafstein sýnir glaðbeittur handverk sitt. Kristín Árnadóttir,
aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, einbeitir sér að saumaskapnum.
Sláturtíðin er að líða undir lok
að þessu sinni en það er aldrei
of seint að gleðjast í góðra vina
hópi og sauma nokkrar vambir.
Guðrún Ögmundsdóttir passar
að safna að sér skemmtilegu
fólki og taka með því slátur
helst á hverju ári.
Í húsi einu við Nóatún hittist um
daginn glaðbeittur hópur og lét
heilt fimmtudagskvöld snúast um
kindainnyfli, blóð og saumaskap.
Húsráðandi, Guðrún Ögmunds-
dóttir, segist alltaf taka slátur
þegar hún getur enda er hún alin
upp við þann sið. „Mér finnst
óskaplega gaman að gera slátur
því það er svo skemmtileg félags-
leg athöfn fyrir utan auðvitað
að vera heilmikil búbót,“ segir
Guðrún. „Við Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Kristín Árnadóttir og
Fríða tengdamamma höfum gert
þetta á víxl heima hjá hvor annarri
í nokkur ár og höfum stundum
boðið til okkar gestasaumurum.
Gestasaumarinn í ár var Stefán
Jón Hafstein en áður hefur til
dæmis Þórhildur Þorleifsdóttir
verið gestasaumari hjá okkur.
Frumskilyrðið fyrir að fá að vera
gestasaumari er að hafa gaman
af þessu og þykja slátur góður
matur.“ Guðrún segir að aðfar-
irnar skili að minnsta kosti ellefu
máltíðum fyrir hverja fjölskyldu.
„Við hittumst svo alltaf og borðum
slátur saman þegar sláturgerðinni
er lokið og það gerðist síðastliðinn
sunnudag heima hjá Ingibjörgu
Sólrúnu. Þá kemur öll fjölskyld-
an með svo við vorum þar átján
í mikilli sláturveislu.“ Að sögn
Guðrúnar eru gerð bæði blóðmör
og lifrarpylsa og uppskriftin nokk-
uð hefðbundin. „Viðsetjum reynd-
ar rjóma og kjötkraft í staðinn
fyrir mjólk.“ Og verkaskiptingin
er nokkuð ákveðin. „Ég er eigin-
lega með meginumsjónina eftir
forskrift Fríðu, sé um að hræra,
troða og sníða en eftirlæt þeim
hinum saumaskapinn.“ Og það
er oft glatt á hjalla þegar slátur-
gerðarhópurinn kemur saman.
„Pólitíkin fær stundum að fljóta
með í umræðunni en það fer eftir
því hvað er að gerast hverju sinni.
Annars ræðum við allt frá sögum
af börnunum okkar og að handan-
heiminum.“
brynhildurb@frettabladid.is
Sláturtíð svo björt og blíð
Guðrún Ögmundsdóttir húsráðandi einbeitt á svip við blóðhræringinn. E.ÓL.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, saumar vambir undir árvökulu
auga Sigfríðar Hallgrímsdóttur.
Réttir kvöldsins
Fordrykkur í boði hússins
M/ þriggja rétta seðlinum Canasta Cream
Forréttur verð f/ einrétta verð f/ þriggja
rétta máltíð
Humarsúpa kr. 850
m/ rjómatoppi og hvítlauksbrauði
Aðalréttir
Smjörsteiktur skötuselur kr. 2.950 kr. 3.890
m/ hvítvínssósu , grænmeti
og bakaðri kartöflu
Lambafillet kr. 2.980 kr. 3.890
m/ sherrybættri sveppasósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu
Nautalundir kr. 3.150 kr. 3.990
m/chateaubriandsósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu
Eftirréttur
Súkkulaðifrauð kr. 690
Borðapantanir í síma 562 1988
Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27 / www.madonna.is
Tilboðin gilda öll kvöld
Fá›u hól
fyrir framan sjónvarpið
Allt til víngerðar
Opið mán. - fös. 10 - 18 laug. 10 - 15