Tíminn - 10.10.1975, Side 1

Tíminn - 10.10.1975, Side 1
PRIMUS HREYFILHITARAR I VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR HF HÖRÐUR 6UHNARSS0N SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 Rannsaka flakið af Gná Gsal-Reykjavik. — Það liggur ekki ljóst fyrir hvort Gná er það mikið skemmd eftir slysið, að hún verði ekki gerð upp. — og fyrr er ekki hægt að taka ákvörðun um kaup á nýrri þyrlu, sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgis- gæzlunnar i samtali við Timanní gæ rkvöldi. Pétur sagði að von væri á tveimur sérfræðingum hingað til lands frá bandarisku strand- gæzlunni til þess að rannsaka vélina og ennfremur hefði fulltrii- um Sikorsky-verksmiðjanna verið tilkynnt um slysið. — Ég hef fullan hug á því, að byggja þyrluflota gæzlunnar upp aftur,ogéghefrættum þessi mál almennt við ráðherra, en ákvörðun um hugsanleg kaup á nýrri þyrlu, verður ekki tekin, fyrr en niðurstöður liggja fyrir um það, hvort Gná er talin ónýt, sagði Pétur Sigurðsson. Sjö háhýsi munu brátt risaefsr.ogaustast á Digraneshálsi. Auk þeirra munu verða á svæðinu nokkrar iægri íbúðarblokkir og þjónustu- miðstöð. Hæsta húsið verður 10 hæðrr, en flest munu þau veröa 7 hæðir. Á likaninu sjást háhýsin til hægri og á milli þeirra og annarrar byggöar ris þjónustumiðstöðin. Flest önnur hús á likaninu eru þegar risin og er iðnaðarhverfið neðst til vinstri. í ibúðarhverfinu norður af fyrir- huguðum háhýsum er hafin undirskriftarsöfnun og telja ibúarnir að byggingarnar muni byrgja fyrir sól, en skipulagsyfirvöld I Kópavogi eru á öðru máli. Sjá nánar á bls. 3. FJ-Reykja vik. Þingflokkar stjórnarflokkanna komu saman til fundar I gær, þar sem land- heigismáiið var til umræðu. Eng- ar ákvarðanir voru teknar á fund- um þessum. Þórarinn Þórarinsson, formað- ur þingflokks Framsóknarflokks- ins, sagði Timanum, að þing- mennirnir hefðu rætt landhelgis- málið, en engin ákvörðun var tek- in i þvi. Matthías Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, sagði Timanum, að á þingflokksfundi Sjálfstæðis- flokksins hefði verið skýrt frá stöðunni i landhelgismálinu og það rætt itarlega. Engar ákvarðanir voru teknar á þessum fundi. — unnið að útvegun fjór, segir menntamdlaráðherra Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, er hér með tæki, sem verða á til nokkurs hagræðis fyrir þing- menn og starfsmenn Alþingis. Er þetta taltæki, sem þingmenn munu bera á sér i húsakynnum Aiþingis, sem nú er i fleiri byggingum. Hægt er að ná tii þingmanna hvarsem þeireru staddir frá simborði þinghússins með hjálp tækisins. Talkerfið i þingið kostar 4 millj. kr. i innkaupi og við bætist uppsetningarkostnaður, en frágangi á kerfinu er enn ekki lokið. Talkerfið sem notað hefur verið til þessa i Alþingi er oröið ófullnægjandi og nær ekki nema tii sjálfs þinghússins. Timamynd Gunnar. BH-Reykjavik. — Við höfum ekki fengið neitt formlegt svar frá ráðherra ennþá. Við héldum fund i stjórn Lánasjóösins i dag, af þvi að við áttum sannarlega von á bréfi frá ráðherra, en það kom ekki, svo að sama óvissan rikir enn. Þannig komst Sigurjón Valdi- marsson, framkvæmdastjóri Lánasjoðs islenzkra námsmanna að orði við Tímann i gærkvöldi, er við höfðum samband við hann. Við báðum Sigurjón að segja okkur frá þvi, hversu margar lánaumsóknir lægju fyrir hjá Lánasjóðnum. — Það sem hér er um að ræða eru fyrst og fremst 800 lán, sem ætlunin var að greiða á milli 15.- 30. september, en hér er um að ræða fyrri hluta haustlána. Enginn þessara umsækjenda hef- ur enn fengið úrlausn, og siðast i Framhald á bls. 8. Framkvæmdastjóri LÍN: Enn allt í óvissu um úthlutun lóna Engar ókvarðanir teknar ó þing- flokksfundum um landhelgismólið SKATTAYFIRVÖLD TÖLDU MANNINN EKKI HAFA GETAÐ LIFAÐ AF FRAM- TÖLDUM TEKJUM, EN FÓGETARÉTTUR SYNJAÐI UM LÖGTAK FYRIR HÆKKUN Á FRAMTÖLDUM TEKJUM MANNSINS FJ-Reykjavik. Fógetaréttur Kópavogs hefur synjað um framgang lögtaks, sem bæjar- sjoður Kópavogsog skattheimta rikissjóðs í Kópavogi baðu um, á þeim forsendum að gerðar- beiðcndur hafi ekki rökstutt nægilcga áætlanir um hækkun á tckjum viðkomandi ein- staklings.en skattayfirvöldin töldu að hann hefði ekki átt að geta framfleyt;t sér á framtöld- um tekjum. Mál þetta snerist um opinber gjölid einstaklings vegna áætlaðar hækkunar tekna hans gjaldárin 1970 og 1971. Skatt- stjórinn i Reykjanesumdæmi tilkynnti manninum, að framtöl hans og fyrirliggjandi bókhald væru ekki nægilega traust til að þau yrðu lögðtil grundvallar við álagningu opinberra gjalda, þar sem tölur þeirra væru „óeðli- lega lágar” miðað við sam- bærilega aðila og - „lægri, en virðist geta staðizt”. Mað'urinn mótmælti þessu og kvað sparsemi sina megin- ástæðuna fyrir hinum „óeðli- lega lágu” tölum. Skattstjórinn áætlaði manninum siðan tekju- aukningu og voru gjöld á hann lögð samkvæmt þvi. Maöurinn mótmælti þessu og skaut máli slnu til rikisskattanefndar. Sú nefnd lækkaði tekjuakninguna nokkuð „eftir atvikum”, en taldi fulla ástæðu -til að „véfengja framtöl” mannsins oggera honum að greiða skatta að nýju. Maðurinn sætti sig ekki við úrskurðinn og greiddi ekki þau gjöld, sem byggðust á áætlunum um hækkaðar tekjur hans. Var þá lögð fram lögtaks- beiðni til tryggingar gjöldunum, en fógetaréttur synjaði um framgang hinnar umbeðnu gerðar sem fyrr segir, þar sem skattstjóri og rikisskattanefnd „hafa ekki rökstutt nægilega áætlanir um hækkun á tekjum, svo sem ber'þó að gera lögum samkvæmt.” Úrskurð þennan kvað upp Léó E. Löve.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.