Tíminn - 17.10.1975, Side 1
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
Jl L-n—y- .._1.1
Landvélarhf
PRIMUS
HREYFILHITARAR
í VÖRUBÍLA OG VINNUVÉLAR
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKÚLATUNI 6 -SÍMI (91)19460
SKORIÐ AFTAN
ÚR TOGARA—
VARÐSKIP HÉLT
ÞREAAUR LAND-
HELGISBRJÓTUAA
r
Þjóðverjar aflétta
löndunarbanninu —
Róðherraviðræður
verða 28. október
FRA VEIÐUM
Gsal—Reykjavík — 1 gærdag
voru aðcins þrlr vestur-þýzkir
togarar hér við landið og héldu
þeir sig á Grindavlkurdýpi. Varð-
skip var að glima við þá I gær, og
um kl. 10.30 I gærmorgun tókst
varðskipsmönnum að komast svo
nærri Altona NC-473 með klipp-
urnar, að varðskipið gat siglt yfir
togvirana og skorið þá I sundur.
Þar með fór troll landhelgis-
brjótsins I sjóinn. Togarinn var
þá 17 milur innan 50 miinanna.
Togararnir þrir, sem voru að
ögra varðskipunum i gær, voru
Altona, Eckenflirde og Köln, en
tveir þeirra síöarnefndu hlfðu
inn trollið strax og varðskipið
nálgaðist. Aö sögn Landhelgis-
gæzlunnar I gærkvöldi, tókst
varöskipi að halda togurunum
þremur frá veiðum i allan gær-
dag. Aðrir þýzkir togarar sem
voru á Reykjaneshrygg og suður
af Hvalbak I fyrradag, sigldu allir
lit úr landhelgínni i fyrrinótt.
Þegar blaðamenn fóru I fyrra-
dag i eftirlitsflug með Sýr, kom
flugvélin fyrst að Altona á Mýrar-
grunni og var þá skipið á vestur-
leið. Altona hefur siðan siglt með-
fram suðurströndinni og tekið sér
stöðu með öðrum landhelgisbrjót-
um á Grindavikurdýpi i gær-
morgun.
Að sögn Hálfdáns Henryssonar,
hjá landhelgisgæzlunni var Al-
tona eini þýzki togarinn sem hélt I
vesturátt af þeim togurum sem
héldu sig suður af Hvalbak á út-
færsludaginn. Hálfdán sagði að
allir þýzku togararnir, sem hefðu
verið að veiðum fyrir SA-landi
hefðu haldið út úr landhelginni og
fjögur af sjö skipum sem voru á
Reykjaneshrygg I fyrradag nefðu
haldið I fyrrakvöld út úr land-
helginni með stefnu á Grænland.
Hálfdán sagði að skipin hefðu
verið elt af varðskipi fram eftir
nóttu, en togararnir hefðu allir
haldið sinu striki og stefnt i vestur
og þvi hefði varðsmipið snúið við
og lagt til atlögu við þá þrjá, sem
eftir voru innan landhelginnar.
Engir togarar eru fyrir vestan.
Altona er 100. togarinn sem
missir veiðarfæri sin fyrir til-
verknað varðskips innan 50-miln-
anna og sá fyrsti eftir útfærslu I
200 sjómilur.
Gsal—Reykjavik — t gærdag
barst tilkynning frá v-þýzkum
stjórnvöldum, þess efnis, að aflétt
hafi verið lcndunarbanni i nokkr-
um þýzkum höfnum, sem I gildi
hefur verið gagnvart Islenzkum
skipum nú um alllangt skeið. Þá
hafa verið ákveðnar ráðherravið-
ræður um landhelgismáliö milli
Isienzkra og v-þýzkra ráðamanna
þann 28. október n.k.
Þessi ákvörðun um afléttingu
löndunarbanns var tekin af
v-þýzkum stjórnvöldum, eftir
simtal sem Einar Ágústsson, ut-
anrikisráðherra átti viö Gensch-
er, utanrIkisráðherra
Bonn-stjórnarinnar i gær.
— Ég var áöur búinn að gefa
Genscher það fyllilega I skyn, að
viðræður milli þjóðanna um land-
helgismálið, myndu ekki koma til
greina af okkar hálfu, nema þýzk
stjórnvöld afléttu löndunarbann-
inu, sagði Einar Agústsson, utan-
rikisráðherra i samtali við Tim-
ann i gærkvöldi.
Utanrikisráðherra kvað
Genscher hafa hringt til sin og til-
kynnt, að löndunarbanninu hefði
verið aflétt. — Hann spurði siðan,
hvort nokkuð væri nú til fyrir-
stöðu viðræðum milli þjóöanna,
sagði Einar, og i samræmi við
yfirlýsingu rikisstjórnarinnar 15.
júni s.l., þegar reglugerðin um
200 milurnar var gefin út, ákváð-
um við að hafa a.m.k. einn við-
ræðufund við V-Þjóðverja, — eins
og aðrar þær þjóðir, sem óska eft-
ir viðræðum.
Eins og að likum lætur hefur Is-
lenzka viðræðunefndin ekki verið
ákveðin, og um þá v-þýzku er það
aðeins vitað, að aðstoðarutanrik- i
isráðherrann verður formaður
hennar.
— Mér finnst það bera vott um
breytta stefnu hjá V-Þjóðverjum,
sagði utanrikisráðherra um þá
skipan v-þýzkra stjórnvalda að
aflétta löndunarbanninu, — og aö
þeir vilji raunverulega ganga
eitthvað til móts við okkar
sjónarmið. Hversu mikið gildi
það hefur, skal ég ekki segja um,
en hins vegar held ég, að tilgang-
ur V-Þjóðverja með þessu hafi
verið sá að friðmælast, sagði
utanrikisráðherra.
Einar Agústsson nefndi, að
Genscher hefði I simtalinu viö
hann i gær, farið fram á það, aö
landhelgisgæzlan færi gætilega að
v-þýzkum togurum á íslandsmiö-
um. Ráðherra kvaðst hafa svarað
þvi til, að hann gæti að sjálfsögðu
engu lofað um slikt.
— Landhelgi Islands er ekki til
sölu á einn eða neinn hátt, sagöi
Einar Agústsson.
Timinn leitaði I gær álits Ólafs
Jóhannessonar, viðskiptaráð-
herra á þeirri skipan v-þýzkra
stjórnvalda að aflétta löndunar-
banninu.
— Ég fagna þvi aö löndunar-
banninu hafi veriö aflétt. Ég tel
það bera vott um, að V-Þjóðverj-
ar séu að átta sig á hlutunum.
Landssamband islenzkra út-
vegsmanna gat ekki frætt Tim-
ann um það i gærdag, hvort ein-
hverjir islenzkir togarar eða skip
hafi i hyggju að selja I Þýzkalandi
á næstu dögum, en þaö er þó talið
fremur óliklegt, þvi að tollar á is-
fiski þar eru hærri en i Bretlandi.
Þessa mynd af Altona tók Gunnar I fyrradag þar sem togarinn var á Mýrargrunni.
YNGSTU REYKINGA-
MENNIRNIR 9 ÁRA
Vilja framkvæma
félagslega rannsókn
d öllum 14 dra
unglingum á höfuð-
borgarsvæðinu
BH-Reykjavik Sjö nemendur i
sálfræöi við Arósaháskóia fóru
þess á leit við borgarráö, i byrjun
þessa mánaðar, aö það veitti
þeim 300 þúsund kr. styrk til þess
að framkvæma alhliða sálfræði-
lega og félagslega rannsókn á öll-
um 14 ára unglingum á höfuð-
borgarsvæðinu, en fjöldi þeirra
mun vera um 1800.
Þessi rannsókn er hluti af sam-
norrænni rannsókn, sem þegar
hefur verið framkvæmd I Silki-
borg i Danmörku og I Vestur-
Noregi. Það er einnig ljóst, að
þessi rannsókn hefur mikið hag-
nýtt og fræðilegt gildi hér á Is-
landi, þar sem hún kemur til með
aö gefa mjög alhliða upplýsingar
um stóran hóp ungmenna, og um
leið er haldiö opnum þeim mögu-
leika að fylgja niðurstöðum þess-
arar könnunar eftir seinna meir.
Nemendurnir sjö I Arósum eru
allir Islenzkir.
Erindi sjömenninganna hefur
fengið hinar beztu undirtektir
margra aðila, sem rætt hefur
verið við i sambandi við
rannsóknina. M.a. hefur æsku-
lýðsráð mælt með erindi þeirra,
svo og fræðslustjóri borgarinnar,
forstöðumaður sálfræöideildar
skóla og lektor og prófessorar i
sá'fræði.
Þess má geta, að kostnaður við
rannsóknina kemur til með aö
verða talsvert á þriðju milljón kr,
þannig að sjömenningarnir sækja
einnig um styrki til Norræna,
menningarmálasjóösins, Sátt-
málasjóðs og fjárveitinganefndar
alþingis.
FB-Reykjavlk. KomiÐ hefur i ljós
að athuganir, að 4.7% drengja og
2.5% telpna á aldrinum niu ára
eru farin aö reykja. Þessar
upplýsingar koma fram I skýrslu
borgarlæknisembættisins um
reykingavenjur barna og
unglinga i Reykjavik. Könnunin
náði til nemenda i 21 barna- og
unglingaskóla I . Reykjavik og
var gerð I april 1974. Hún náði til
9-17 ára nemenda, og tóku þátt i
henni 10.282 nemendur, eða 96,6%
þeirra, sem i skólunum voru þann
dag, þegar könnunin fór fram.
Notuð voru spurningaeyðublöð.
Þetta er 1 þriðja sinn sem könn-
un sem þessi fer fram hérlendis.
Fyrsta könnun var gerð árið 1959,
og náði hún til unglinga á aldrin-
um 13 til 17 ára i 10 unglinga- og
gagnfræðaskólum i Reykjavik.
Náði hún til 2702 nemenda og
leiddi m.a. i ljós, að 34,8% 13 ára
pilta og 17,2% 13 ára stúlkna voru
byrjuð að reykja. Þá reyktu 2,7%
pilta og 3,2% stúlkna i þessum
aldursflokki daglega.
önnur könnun fór svo fram á
revkingavenjum 10, 11 og 12 ára
barna i stærstu barnaskólum
Reykjavikur og i Mýrarhúsaskóla
á Seltjarnarnesi 1962. Tóku þátt i
henni 3.832 börn. Þá kom i ljós, að
i 10 ára aldursflokknum voru
10,4% pilta og 2.8% stúlkna farin
að reykja.
I könnuninni að þessu sinni
kom i ljós, aö 4.7% 9 ára drengja
og 2.5% 9 ára telpna sögðust
reykja, eins og fyrr segir. Tala
þeirra, sem reykja, eykst lltillega
næstu tvö aldursárin hjá báðum
kynjum, en þegar börnin ná 12 og
13 ára aldri eykst hún stórlega:
einkum er þetta áberandi hjá
telpum, nær hámarki hjá 16 ára
piltum, 51,1%, en hjá stúlkum
ekki fyrr en þær eru 17 ára, 61,6%.
Fjöldi nemenda 18 ára og 19 ára
er of lítill til aö mark sé á honum
takandi, segir I skýrslunni.
I fyrri könnunum tóku þátt 3238
piltar á aldrinum 10 til 17 ára, af
þeim reyktu 22,7%. I sömu
aldursflokkum pilta reykja nú
23.5%. Við fyrri kannanir reyktu
9.9% af 3.296 stúlkum á aldrinum
10 til 17 ára, en nú reykja 24,7%
stúlkna á þessum aldri.
Þegar geröur er samanburð-
ur á árunum 1959—’62 annars
vegar og árinu 1974 hins vegar, er
eftirtektarvert, að fram aö 14 ára
aldri reykja færri piltar nú en
þá, og þeim sem reykja, virðist
einnig fækka eftir 16 ára aldur.
Það er aðeins I 15 og 16 ára
aldursflokkum, sem fleiri piltar
reykja nú en áður, og er munur-
inn ekki ýkja mikill, 43.6% og
51.1% nú, saman borið við 41.2%
og 47.5% árið 1959.
öðru máli gegnir um stúlkur. 1
öllum aldursflokkum reykja nú
fleiri stúlkur en áður. Þess gætir
litið sem ekkert á aldrinum 10 og
11 ára, en hjá 12 ára stúlkum
hefur aukningin orðiö úr 5,7% I
10,5% og meðal 13 ára telpna úr
17,2% i 25,7%. Siöan heldur aukn-
ingin frá fyrri könnun áfram með
hækkandi aldri stúlknanna, og i 17
ára aldursflokki reykja nú 61.6%
stúlkna, en aðeins 19.5% áriö 1962.
Tvisvar sinnum fleiri piltar en
stúlkur reyktu I fyrri könnun, en
nú hefur breyting oröið á. Or þvi
að 13 ára aldri er náö, reykja nú
Framhald á bls. 19